Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 15
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 15 GRUNNSKÓLI Mýrdalshrepps var settur nýlega. Skólinn hefur und- anfarin ár starfað á tveimur stöð- um, yngri bekkirnir á Ketilsstöðum og þeir eldri í Vík. Nú í haust hefur allur skólinn verið færður til Víkur. Búið er að byggja við skólann þann- ig að nú rúmar hann alla bekki og tónskólann sem hefur starfað í íbúðarhúsnæði í Víkinni undanfarin ár. Einnig er í byggingu við skól- ann íþróttahús. Kolbrún Hjörleifs- dóttir skólastjóri segir þetta heil- mikla breytingu á skólastarfinu. Þá hafi þetta í för með sér sparnað fyr- ir Mýrdalshrepp vegna minni akst- urs bæði á nemendum og kennur- um milli staða. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Hafþór Ingi Sævarsson í fyrsta bekk í einni af nýju kennslustofunum. Skólinn í Mýrdaln- um á einum stað Fagridalur ÁRLEGUR Hólasandsdagur var haldinn nýlega en það er fagnaðar- og fræðsludagur til þess að minna á uppgræðsluátak sem í gangi er á Hólasandi, 14.000 hektara eyði- mörk norðan Mývatns. Landsvæðið takmarkast af Sandvatni að sunnan, Gæsafjöllum að austan og Lambafjöllum að vestan en gróðurlendi Þeistareykja að norðan. Mestur hluti hans ligg- ur í 300 til 400 metra hæð yfir sjó. Við landnám hefur þarna verið gró- ið land. Öskulagarannsóknir sýna að eyðing landsins hefur að mestu orðið á síðustu öldum, trúlega eftir 1700. Landgræðslan hófst handa við stöðvun jarðvegseyðingar á sand- inum 1960 en markviss uppgræðsla svæðisins hófst 1994 að frumkvæði Húsgulls á Húsavík og með öflugu framlagi Hagkaupa og síðar Umhverfissjóðs verslunarinnar. Síðan þá hefur lúpínu verið sáð ár- lega í 210 til 400 ha. Grasfræi hefur verið sáð í rofabörð á jaðri sands- ins og árlega hefur verið plantað um 20.000 birkiplöntum og 10–20 þúsund lúpínuplöntum. Stuðlað að sjálfbærri gróðurframvindu Markmiðið er að stuðla að sjálf- bærri gróðurframvindu þannig að sandurinn verði aftur vaxinn lyngi, birki og víðigróðri svo sem áður var. Í tilefni dagsins söfnuðust for- ystumenn Húsgulls, Landgræðsl- unnar, skógræktarmenn, sveitar- stjórn Skútustaðahrepps og ýmsir áhugamenn saman við Þeista- reykjaslóð þaðan sem farið var saman í rútu um uppgræðslusvæð- ið og litið á framvindu gróðurs sem er afar uppörvandi, bæði hvað varðar lúpínu og birki, enda skiptir nú auðnin sem óðast um klæði og býst grænum skrúða svo ótrúlegt er á að horfa. Það kom fram í máli þeirra Stef- áns Skaftasonar og Andrésar Arn- alds að veðrátta hefur verið gróðr- inum sérlega hagstæð í sumar og tvö næstliðin sumur einnig. Nýlega var undirritaður samn- ingur milli Skógræktarinnar og bænda á Grímsstöðum í Mývatns- sveit um að þeir leggi hlut Gríms- staða í Hólasandi, en það er um 1.000 hektara landsvæði á suður- jaðri sandsins, til landgræðslu- skóga. Á Hólasandi þar sem nú er lang- stærsta einstaka lúpínusvæði á Ís- landi er m.a. unnið að rannsóknum á sáningaraðferðum og meðhöndl- un lúpínufræs. Kostnaður vegna framkvæmda á sandinum árið 2001 varð 7,3 milljónir króna, þar af var framlag Umhverfissjóðs verslunar- innar 3,3 m.kr. Gert er ráð fyrir að framkvæmt verði í ár fyrir rúmar 8 milljónir króna. Fagnaðar- og fræðslu- dagur á Hólasandi Morgunblaðið/BFH Menn og málleysingjar undrast árangur uppgræðslu á Hólasandi. Mývatnssveit SKIPULAGSSTOFNUN hefur í úr- skurði fallist á fyrirhugað vikurnám á Mýrdalssandi, í Mýrdalshreppi á Há- öldu, vestur af Hjörleifshöfða, eins og náminu er lýst í framlögðum gögnum framkvæmdaraðila, Kötluvikur ehf. Komst Skipulagsstofnun að þeirri niðurstöðu að framkvæmdin muni ekki hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Nýta á vikurinn í verksmiðju sem reisa á í Vík í Mýrdal Markmið vikurnámsins er að nýta vikurinn á Mýrdalssandi sem hráefni til þenslu og flokkunar í verksmiðju sem reisa á í Vík í Mýrdal og efla með því atvinnulíf í Vík. Stefnt er að því að vikurnámið geti hafist árið 2003. Gert er ráð fyrir að vikurinn verði tekinn á Háöldu suðaustan Hafurs- eyjar og er efnistakan áætluð allt að 200.000 m³ á ári og eru rúmir 80.000 m³ áætlaðir til frekari vinnslu í verk- smiðju í Vík í Mýrdal. Skipulagsstofn- un bendir á að ekki liggi fyrir til hvers eigi að nýta þann hluta sem ekki verð- ur unninn í verksmiðjunni. Svæðið sem um ræðir er 15,5 km² og hefur fyrirhuguðu námusvæði ver- ið skipt í þrjá hluta frá suðri til norð- urs. Talið er að miðað við fullnýtingu svæðisins væri hægt að nýta það að öllu óbreyttu í um 570 ár miðað við 200.000 m³ efnistöku á ári. Skipulagsstofnun telur bein um- hverfisáhrif beggja kostanna á nátt- úrufar vera óveruleg. Í niðurstöðu hennar segir að vegna röskunar á námasvæðinu megi búast við að sand- fok geti aukist nokkuð vegna efnis- tökunnar og haft áhrif á gróður sunn- an námunnar. Gróðurþekja í ná- grenni námasvæðisins sé þó mjög lítil og áhrif á gróður yrðu óveruleg. Nauðsynlegt er þó að mati stofnunar- innar að fylgst verði glöggt með áhrif- um starfseminnar á sandfok og að framkvæmdaaðili hafi samráð við Landgræðslu ríkisins um aðgerðir til að bregðast við auknu sandfoki, gerist þess þörf. Skipulagsstofnun fellst á vikurnám á Mýrdalssandi MÖÐRUDALSGLEÐI var haldin samfara Ormsteiti á Héraði nú í vikunni þar sem bændur voru sóttir heim. Á Möðrudalsgleði var grillað, ný gistiaðstaða í baðstofum skoðuð ásamt ferðaþjónustunni Fjalladýrð á Efra-Fjalli. Auk þess spreyttu frændur og venslafólk Stefáns heit- ins Stórval Jónssonar sig í að mála myndir af Herðubreið, drottningu íslenskra fjalla. Margt listaverkið af Herðubreið drottningu íslenskra fjalla leit dagsins ljós á Möðrudals- gleði. Morgunblaðið/Sigríður Sigurðardóttir Möðrudalsgleði Norður-Hérað ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O P 18 64 9 0 9/ 20 02 N‡jar haustvörur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.