Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 27 LANDSBANKI Íslandshefur selt 27% af 41%eignarhlut sínum í Vá-tryggingafélagi Íslands en hyggst selja allan hlut sinn snemma á næsta ári. Fjórir aðilar sem þegar eru hluthafar í VÍS keyptu hlut bankans, en það eru Ker, Samvinnulífeyrissjóðurinn, Eignarhaldsfélagið Andvaka og Eignarhaldsfélagið Samvinnu- tryggingar. Í sameiginlegri frétta- tilkynningu félaganna segir að þrátt fyrir þessi kaup sé stefnu- mörkun kaupenda óbreytt, þeir stefni að því að selja af hlutum sín- um í félaginu í dreifðri eignaraðild þannig að hægt verði að skrá VÍS á aðallista Kauphallarinnar sem fyrst. Þess sé vænst að markmiðum um dreifða eignaraðild verði náð fyrr en upphaflega hafi verið stefnt að. Geir Magnússon, forstjóri Kers, sagði í samtali við Morgunblaðið að ætlun félagsins væri að minnka hlut sinn verulega, en það færi eftir markaðsaðstæðum hversu hratt gengi að ná markmiðum um dreifð- ari eignaraðild. Hann sagðist telja að með því að nú væri einum kjöl- festufjárfesti minna í félaginu yrði eignaraðildin þegar upp verður staðið líklega enn dreifðari en ella hefði orðið. Landsbankinn á nú 14% hlut í VÍS, en hefur samið um sölurétt á 21%. Ástæða þess að hann semur um sölurétt á stærri hlut en hann á er meðal annars sú, að hann hefur að undanförnu selt nokkuð af hlut sínum og vill eiga þess kost eftir að forsendur hafa breyst, að láta þau kaup ganga til baka og selja þann hlut þeim sem keyptu af honum nú. Ker verður stærsti hluthafinn Stærsti kaupandi hlutafjárins er Ker, áður Olíufélagið, sem keypti tæplega 19% hlutafjárins og á 29% eftir kaupin. Að auki hefur Ker samið við Landsbankann um kaup- skyldu á tæplega 15% hlut. Samvinnulífeyrissjóðurinn keypti tæplega 5% hlut og á eftir kaupin rúmlega 9% auk þess sem kaupskylda hans er tæplega 4%. Eignarhaldsfélagið Andvaka keypti rúmt 1/2% og á nú tæplega 6% hlut og Eignarhaldsfélagið Samvinnu- tryggingar keypti 2,7% og á nú tæplega 26% hlut. Samanlagt hafa þessi tvö félög gert samning við Landsbankann um kaupskyldu þeirra sem tekur til tæplega 1% hlutafjár VÍS. Kaupskyldan er í öllum tilvikum þeim skilyrðum háð að Landsbank- inn tilkynni fyrir áramót að hann hyggist nýta sér sölurétt sinn og munu viðskiptin þá fara fram fyrsta febrúar á næsta ári á sama gengi og þau viðskipti sem nú hafa átt sér stað, eða á genginu 26. Söluhagnaður um 1,3 millj- arðar þegar sölu lýkur Í tilkynningu frá Landsbankan- um til Kauphallar Íslands segir að vegna söluhagnaðar muni salan hafa jákvæð áhrif á afkomu bank- ans. Arðsemismarkmið ársins, sem hljóða upp á 12–15% eigin fjár, verði þó ekki endurskoðuð. Miðað við sölugengið er verð- mæti VÍS rúmir 14 milljarðar króna og söluverð þess hlutar sem Lands- bankinn hefur selt er þá 3,8 millj- arðar. Söluverð þess 14% hlutar sem Landsbankinn á nú í VÍS verð- ur tæpir tveir milljarðar og þegar allt verður selt mun bankinn hafa fengið greidda tæpa 5,8 milljarða króna fyrir hlut sinn. Bókfært verð 45,4% hlutar Landsbankans í VÍS um mitt ár var rúmir 4,9 milljarðar króna og bókfært verð þeirra 41,13% sem bankinn átti fyrir þessa sölu nú og hyggst klára að selja á næsta ári ætti því að vera tæplega 4,5 milljarðar. Þegar upp verður staðið ætti söluhagnaður bankans því að vera um 1,3 milljarðar, en söluhagnaður af þeim 27% sem nú hafa verið seld um 850 milljónir. Bankinn mun einbeita sér að líftryggingunum „Í raun og veru þýðir þetta að við erum að selja eða semja um sölurétt á öllum okkar hlut í Vátrygginga- félaginu, og við gerum það í tveimur áföngum,“ segir Halldór J. Krist- jánsson, bankastjóri Landsbanka Íslands. „Við höfðum sett fram það langtímastefnumið í útboðslýsing- um okkar og stefnumörkun til markaðarins að við ætluðum að minnka fjárbindingu okkar í VÍS, en samt að vera þar áfram kjöl- festufjárfestir með 20–25% hlut. Þarna gafst okkur færi á að losa um alla fjárbindinguna í vátrygginga- starfseminni og einbeita okkur að líftryggingarþætti samstarfsins. Þegar sá kostur var í stöðunni þá töldum við það vera mjög skynsam- legt fyrir bankann að einbeita sér alfarið að starfsemi Lífís, en líf- tryggingareksturinn fellur vel að starfsemi bankans. Hitt hefði einnig komið til greina og það var okkar langtímamarkmið framan af að eiga jafnframt í VÍS einhvern kjölfestuhlut. En þetta er niðurstaðan eftir töluverðar við- ræður við samstarfsaðila okkar.“ Eykur svigrúm til vaxtar bankans Halldór segir að Landsbankinn hafi talið það mikilvægt varðandi þessa sölu að þeir sem kaupi hluti bankans nú ætli sér að framkvæma það sem tilkynnt hafi verið í útboðs- lýsingu að væri markmið eig- endanna, þ.e. að beita sér fyrir því að VÍS yrði í dreifðri eign, þótt kaupendurnir eignuðust nú tíma- bundið stærri hlut. Í tilkynningunni segir að eigin- fjárstaða bankans muni styrkjast við söluna og að það veiti bankanum verulegt svigrúm til að nýta vaxt- artækifæri á innlendum og erlendum fjármála- mörkuðum. Halldór segir aðspurður að í kjölfar vel heppnaðrar útrásar bankans með kaupum á Heritable Bank í London sé verið að leita leiða til að auka og efla starfsemi bankans í London, bæði með innri uppbyggingu og með útvíkkun á starfseminni. Einn- ig muni bankinn nýta vaxtartæki- færi sem bjóðast innanlands og þá jafnvel í samstarfi við aðra aðila í viðskiptabankastarfsemi, þar með taldir séu sparisjóðir. Þá þurfi að fjármagna innri vöxt, sem hafi verið talsverður á fyrri helmingi árins vegna aukinnar aðildar bankans að erlendum lánum. Sala til umræðu frá 1998 VÍS varð til við samruna Bruna- bótafélags Íslands og Samvinnu- trygginga á árinu 1989. Landsbank- inn keypti 50% hlut Eignarhaldsfélags Brunabóta- félagsins í VÍS í mars 1997 en bank- inn hafði allt frá árinu 1993 kannað möguleika á því að hasla sér völl í tryggingastarfsemi. Kjartan Gunnarsson, þáverandi formaður bankaráðs Landsbank- ans, greindi frá því í tilefni af kaup- unum að kveikjan að þeim væri mikill áhugi bankans á að verða öfl- ugur þátttakandi í lífeyristrygging- um og öllu sem þær snerti. Þar væri uppspretta langtímasparnaðarins í þjóðfélaginu eins og annars staðar og það væri bönkum mjög nauðsyn- legt að eiga hlutdeild í því. Ári síðar, eða í mars 1998, lagði þáverandi formaður bankaráðs Landsbankans, Helgi S. Guð- mundsson, til á fundi bankaráðsins að bankinn seldi stærstan hlut sinn í VÍS og losaði þannig um fjármagn til að nota hugsanlega til kaupa á hlut í Fjárfestingabanka atvinnu- lífsins eða öðrum arðbærum fjár- festingarkosti. Helgi sagði af þessu tilefni í samtali við Morgunblaðið að kaup bankans á 50% hlut í VÍS hefðu verið gerð á þeirri forsendu að hagræðing stæði fyrir dyrum. Þegar ár hefði verið liðið frá kaup- unum hefði hann hins vegar verið orðinn óþolinmóður og viljað sjá meiri hagræðingu en orðið hafði. Skráning á markaði Við aðkomu Landsbankans að VÍS 1997 gerðu hluthafar með sér samkomulag um að stefnt skyldi að því að skrá félagið á markaði og að það yrði gert þegar samkomulag hefði náðst um hvaða aðferð yrði beitt í þeim efnum. Í lok mars 2001 komst stjórn VÍS svo að samkomu- lagi um að stefna að skráningu fé- lagsins á Verðbréfaþingi Íslands á því ári og var það samþykkt á aðal- fundi félagsins skömmu síðar. Stærstu hluthafar VÍS ákváðu síð- an í desember á síðasta ári að fresta því að skrá hlutabréf félagsins á VÞÍ. Í tilkynningu frá Landsbank- anum var af þessu tilefni greint frá því að næstu skrefin í þessu máli væru þau að stærstu hluthafarnir myndu selja af sínum hlut til fagfjárfesta nægjanlega stóran hlut til að tryggja dreifingu hlutafjár. Sagði í til- kynningunni að það væri skoðun hluthafanna og félags- ins að aðstæður á markaði væru með þeim hætti að það þjónaði best hagsmunum þeirra og félagsins að bíða með skráninguna. Hlutafé VÍS var skráð á tilboðs- markað Kauphallarinnar 12. júlí 2002. Fram kom í skráningarlýs- ingu að stefnt væri að því að allir stærstu hluthafarnir í félaginu myndu minnka hlut sinn. Landsbankinn selur 27% í VÍS Bankinn hyggst selja allan hlut sinn snemma á næsta ári. Kaup- endur eru Ker og þrír aðrir hlut- hafar í VÍS Kaupendur eignarhlutar Landsbankans í VÍS vænta þess að mark- mið um dreifða eignaraðild náist fyrr fram en áætlað var. Söluhagnaður verður um 1,3 milljarðar ér á landi un skipa- aðstöðu í eild var í m. Henni élar voru í ureyri og k flugvéla í Vatna- orlaust ólf manns gvélum á nnarlega í ið Sæból, Mannbjörg orð. Vélin myndir af in á land. nn 30. júlí, gið var frá Með henni 941 sökk rði. Vélin sem voru leiðingum ökk. Vélin ndir á að í djúpinu fjörð. október yri og var and. Allir meiddir. fórst vél í Mannbjörg á land. mta apríl kafbátar- flogið var eykjaness. þar á með- Að sögn að á fyrsta afmælisdegi sveitarinnar hér við land. Sautjánda september 1942 fórust þrír menn með Northrop-vél við Vattarnes á Reyðarfirði. Tuttugasta og annan október 1942 fórst vél við lendingu í Skerja- firði og sökk. Þeir sem um borð voru sluppu ómeiddir og telur Ragnar lík- legt að vélin sem fundist hafi í Skerjafirði í vikunni sé flak þessarar vélar. „Það eru engar heimildir eða ljós- myndir til um að vélin hafi verið tek- in upp aðrar en munnmælasögur,“ Hann bendir á að ekki megi heldur útiloka að um sé að ræða flak ann- arar af tveimur vélum sem hurfu sporlaust frá Reykjavík. Hinn fjórða nóvember 1942 fórst ein vél 12 mílur norður af Skagatá. Vélin var á skipagæsluflugi en með henni fórust þrír menn. Tuttugasta og fjórða nóvember sama ár fórst ein vél í flugtaki á Ak- ureyri og sakaði engan. Hinn 21. apríl 1943 nauðlenti Northrop-vél í Þjórsá og sökk. Að sögn Ragnars var vélin á leiðinni frá Reyðarfirði til Reykjavíkur, flug- sveitin var á förum héðan af landi þegar atvikið átti sér stað og átti hún að fara í brotajárn. Mannbjörg varð en mennirnir tveir sem um borð voru kom- ust báðir í land. Þegar flugsveitin fór af landi brott árið 1943 var tveimur Northorp-vél- um flogið til Skotlands, að sögn Ragnars, þar sem þær voru geymd- ar þar til stríðinu lauk og var þeim síðan flogið til Noregs. Önnur þeirra eyðilagðist þegar flugskýli sem hún var í gaf sig undan snjóþunga en hin vélin var rifin 1956. Að sögn Ragnars er aðeins ein Northrop vél til í dag og er hún geymd á Flugminjasafni norska hersins á Gardermoen-flugvelli. Vélin var dregin upp úr Þjórsá ár- ið 1979 og var m.a. greint frá því í ít- arlegri umfjöllun í Morgunblaðinu. Það var Íslenska flugsögufélagið sem stóð að björguninni en vélin var gerð upp af Northrop-verksmiðjun- um í Bandaríkjunum og hún færð Norðmönnum að gjöf árið 1982. Að sögn Ragnars hefur lengi verið talið að það sé eina vélin sem unnt sé að bjarga. Eftir myndunum af vél- inni á botni Skerjafjarðar að dæma virðist hún hins vegar vera heilleg á að líta, að hans mati og í betra ástandi en vélin sem náð var upp úr Þjórsá. Ragnar hefur sett sig í samband við aðila í Noregi og Bandaríkjunum til að kanna hugsanlegan áhuga á því að vélin verði gerð upp. Hann bendir á að miklu skipti að vandlega sé að því staðið eigi að taka vélina upp á annað borð. „Þetta er fyrsta flugvélin sem Northrop-flugvélaverksmiðjurnar framleiða og mér fyndist ekki ósennilegt að verksmiðjurnar hefðu áhuga á að eiga hana sjálfar,“ segir Ragnar. Hann bendir á að eftir að hún sé tekin upp úr sjó þurfi meðal annars að gera ráðstafanir var- andi tæringu og æski- legt að sérfræðingar verði fengnir til aðstoðar. „Mér heyrist það á mönnum sem ég hef talað við hjá Northrop í gær [fyrradag] að þeir vilji endilega að það sé kannað rækilega og hafa ósk- að eftir því að Flugsögufélagið gangi í það að sjá til þess að menn flýti sér ekki um of við að taka hana upp,“ segir Ragnar J. Ragnarsson. eiddar voru í heiminum, var notuð á Íslandi Ljósmynd/Northrop 1981 við Northrop-flugvélaverksmiðjuna í Kaliforníu, eftir að endurbyggingu lauk. Ljósmynd/Imperial War museum agðist þegar henni hlekktist á í flugtaki á Eyjafirði 24. nóvember árið 1942. kristjan@mbl.is Var ein hrað- fleygasta sjó- flugvél í heimi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.