Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.08.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ 134 980 BARI er aðeins einn af fjölmörgum IDE-MØBLER sófum sem nú fást í miklu úrvali í Húsgagnahöllinni. Veturinn er rétti tíminn fyrir notalegan leðursófa – eða heilt sófasett á frábæru verði! 3ja sæta L190 H90 D90 2ja sæta L145 H90 D90 Áklæði: Koníakslitað leður Sími 510 8000 • Bíldshöfða 20 • 110 Reykjavík • www.husgagnahollin.is f a s t l a n d - 8 2 6 5 BARI 2+3 Skáldin Laxness, Undset og Tolkien Tolkien og norrænn arfur STOFNUN SigurðarNordals og Nor-ræna húsið gangast fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um Hringadróttinssögu eftir J.R.R. Tolkien og tengsl hennar við norræn- an menningararf í Nor- ræna húsinu í Reykjavík dagana 13.–14. september. Skrá þarf þátttöku á ráð- stefnuna hjá Stofnun Sig- urðar Nordals fyrir 31. ágúst, en hún er opin öllu áhugafólki. Morgunblaðið ræddi við Terry Gunnell, einn fyrirlesara á ráðstefn- unni. – Hver eru viðfangsefni ráðstefnunnar? „Í fyrsta lagi er það Hringadróttinssaga eftir Tolkien og helstu mýtur hennar, hvernig Hringadróttins- saga tengist norrænum menning- ararfi og samanburður á úr- vinnslu Tolkiens, Halldórs Lax- ness og Sigrid Undset á þessum menningararfi. Einnig verður rætt um skírskotun verka þeirra til ritunartímans og siðfræði skáldverkanna.“ – Hvernig kviknaði hugmyndin að ráðstefnunni? „Úlfar Bragason á Stofnun Sig- urðar Nordals kom fram með þá hugmynd að halda ráðstefnu þar sem sameiginleg efnistök þessara þriggja höfunda yrðu rædd. Þau nota öll efni úr norrænni goða- fræði og norrænni sögu í verkum sínum. Þau miðla boðskap með því að lýsa veröld sem var, leita langt aftur í forneskju og setja hlutina í samhengi. Auk fyrirlestra um höf- undana þrjá og upplesturs úr verkum þeirra verður margmiðl- unarefnið Sagnaarfur miðalda kynnt á ráðstefnunni og farið verður í kynnisferð í Reykholt í Borgarfirði.“ – Voru þessir höfundar þeir einu sem leituðu í þetta efni? „Nei, síður en svo. Nefna má fjölda annarra breskra rithöf- unda, til dæmis Golding, White og Orwell. Umfjöllunarefni þeirra eru til dæmis vald og stríð, og greinilegt er að þeir eru að skrifa sig frá síðari heimsstyrjöldinni. Reynsla þeirra í stríðinu var það sterk að þeir hafa ef til vill átt auð- veldara með að skrifa sögu í for- tíðinni eða framtíðinni.“ – Hvernig má tengja Laxness og Undset við þessi efni? „Laxness sendi frá sér Gerplu árið 1952, þar sem hann hæddist á vissan hátt að fornöldinni, hetju- dýrkuninni og þjóðararfinum. Undset skrifaði í þessum anda strax eftir fyrri heimsstyrjöld. Hún er, líkt og Tolkien og Lax- ness, að skapa nýja veröld, nýjan heim sem líkist að miklu leyti mið- aldaheiminum. Þar eru engin nú- tímastríðsvopn heldur er treyst á mátt einstaklinganna, trú, galdur og ýmis hindurvitni.“ – Hvaða efni úr verkum Lax- ness og Undset verður talað um? „Væntanlegir eru þrír norskir fyrirlesar- ar sem ræða munu verk Undset. Liv Bliksrud, prófessor við Óslóarháskóla og dokt- or í verkum Undset, fjallar um tengsl Undset við miðaldir, Olaf Solberg um hvaða not Undset hafði af miðaldatextum í verkum sínum og loks Gunnhild Kværness sem talar um tengsl Undset við Ísland. Svo munu Eiríkur Guð- mundsson og Helga Kress ræða um Laxness og efnistök hans.“ – Getur þú nefnt okkur fyrirles- ara sem fjalla munu um Tolkien? „Tom Shippey, sem gegnir Walter J. Ong prófessorsstöðu í mannlegum fræðum við Saint Louis-háskólann í Missouri í Bandaríkjunum, og er helsti sér- fræðingur um Tolkien og bækur hans, flytur fyrirlestur um tengsl Tolkiens og Íslands. Þess má geta að Tolkien kom aldrei til Íslands en hafði barnfóstrur frá Íslandi í mörg ár og hefur eflaust fræðst um ýmislegt varðandi land og þjóð. Andrew Wawn ræðir um aðra höfunda sem viðhöfðu svipuð efnistök og Tolkien, en skrifuðu bækur fyrr á síðustu öld. Ég mun ræða um álfaímynd Tolkiens og þær hugmyndir sem þar liggja að baki. Hann tók efni úr ýmsum átt- um og óf saman í sögum sínum. Matthew Whelpton talar um trú og trúarbrögð í sögum Tolkiens. Sveinn Haraldsson fjallar um tengsl rithöfundanna Tolkiens og Audens, en hann var líka mikill Ís- landsvinur. Ármann Jakobsson ber saman Hobbit og Hringa- dróttinssögu, og hvernig hug- myndir Tolkiens breytast meðan hann skrifaði verkin. Loks mun Lars Huldén, heiðursdoktor við Háskóla Íslands, fyrrverandi pró- fessor í norrænum fræðum við Helsingfors-háskóla og einn helsti þýðandi sænskumæl- andi Finna, flytja fyr- irlesturinn „Tiden och språket – ett översätt- arproblem, belyst med exempel från Kalevala och Sagan om Ringen“. Þetta er Sigurðar Nordals fyrirlestur jafn- framt því að vera lokafyrirlestur ráðstefnunnar og öllum velkomið að sækja hann þótt þeir hafi ekki sótt ráðstefnuna að öðru leyti.“ Nánari upplýsingar um ráð- stefnuna má finna á heimasíðu Stofnunar Sigurðar Nordals, www.nordals.hi.is. Tilkynna þarf þátttöku fyrir 31. ágúst. Terry Gunnell  Terry Gunnell er fæddur í Brighton, Englandi 1955. Lauk BA-prófi í Drama and Theatre Arts í University of Birmingham 1977, kennslu-og uppeldisfræði, Westfield College, Birmingham, 1978; Bacc. Phil. í íslensku fyrir erlendra stúdenta, Háskóla Ís- lands 1981; PhD í íslenskum fræðum, University of Leeds. Kenndi ensku í Menntaskólanum við Hamrahlíð, 1980-1998 og stundakennslu við HÍ í þjóðfræði og almennri bókmenntafræði, 1993-1998. Tók við stjórn þjóð- fræðikennslu í HÍ sem lektor í þjóðfræði árið 1998, dósent frá 2001. Terry Gunnell er giftur Þorbjörgu Jónsdóttur skrif- stofustjóra Námsflokka Reykja- víkur og eiga þau tvær dætur, Liv Önnu og Helgu Sólveigu. Þau sköpuðu nýja veröld í verkum sínum MALBIKSFRAMKVÆMDIR standa nú yfir á akbraut- arkafla við n/s flugbraut Reykjavíkurflugvallar og er verkið hluti af framkvæmdum við hliðarakbraut sem liggur meðfram brautinni enda á milli. Þegar myndin var tekin í gær var verið að vinna við malbikun á braut- armótum n/s-, v/a- og na/sv-flugbrautanna. Að sögn Heimis Más Péturssonar, upplýsingafulltrúa Flugmála- stjórnar, er áætlað að framkvæmdum við endurgerð flugvallarins verði að fullu lokið fyrir 1. október nk. Vinna við gerð hliðarakbrautarinnar hófst í fyrra. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Malbikað á Reykjavíkurflugvelli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.