Morgunblaðið - 30.08.2002, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 9
Bankastræti 14, sími 552 1555
Gott verð
gallabuxur
Ný sending
Leðurjakkar
og síðar leðurkápur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Ný sending af brúðarkjólum
Allt fyrir herra og börn
O
pi
ð
al
la
d
ag
a
frá
k
l.
10
-1
8
la
ug
ar
da
ga
fr
á
kl
. 1
0-
14
Efnalaug og fataleiga Garðabæjar sími 565 6680
Haustbrúðkaup
Verslun fyrir konur
Mjódd
Haustdagar í Mjódd
Flauelsdragtir
frá Jensen og Share
Verð kr. 12.980
Teinóttar dragtir, stærðir 40-52
Verið velkomnar!
Hef hafið störf í
BATA-sjúkraþjálfun,
stóra turni Kringlunnar, 5. hæð.
Upplýsingar í síma 553 1234.
Héðinn Jónsson, sjúkraþjálfari.
G
æ
ð
i
á
N
e
tt
o
v
e
rð
i.
..
TILBOÐIÐ STENDUR
29. ágúst - 14. sept.
P
R
E
N
T
S
N
I
Ð
ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500
35% afsláttur af öllum Nettoline
innréttingum í 2 vikur
ja vikna tilboð2
NÚ ER LAG!35%
Eldhús Bað Fataskápar Þvottahús
OPNUNARTÍMI:
G l æ s i l e g a r d a n s k a r i n n r é t t i n g a r
mánudaga–föstudaga kl . 9–18
laugardag 31. ágúst kl . 10–16
sunnudag 1. sept. k l . 13-16
Mörkinni 6, sími 588 5518
Stórútsala
Opið virka
daga kl. 9-18.
Laugardaga
kl. 10-15
Fallegar ullarkápur
Glæsilegar heilsárskápur
Allt á 50% afslætti
Síðustu dagar
Kanínuskinn kr. 2.900
Skólavörðustíg 21, sími 552 2419.
Sölusýning Antik-hússins
verður haldin í
Suðurhrauni 12C, Hafnarfirði,
frá fimmtudeginum 29. ágúst
til sunnudagsins 1. september frá kl. 14.00-18.00.
LANDSBANKINN hefur fengið
svar frá sex sparisjóðum af þeim 26
sem fengu bréf í lok júlí sl. með
beiðni um viðræður um samruna eða
mögulegt samstarf. Halldór J. Krist-
jánsson, bankastjóri Landsbankans,
vildi í samtali við Morgunblaðið ekki
upplýsa um hvaða sparisjóði væri að
ræða en svörin ættu það sammerkt
að þar væri hugmyndum um eigin-
legan samruna hafnað. Flestir spari-
sjóðir væru þó reiðubúnir að ræða
samstarf um einstaka þætti til að
lækka rekstrarkostnað.
Jákvæð viðbrögð
„Beint eignarlegt samstarf við
bankann hefur ekki verið á dagskrá
hjá þeim sem hafa svarað, þó að mér
finnist að allir sparisjóðir hafi ekki
alveg útilokað möguleika á því. Á
nokkrum stöðum á landinu tel ég að
þetta verði skoðað mjög gaumgæfi-
lega. Fyrir utan viðbrögð við sam-
runa hef ég fengið jákvæð viðbrögð
um mögulegt samstarf Landsbank-
ans og sparisjóðanna um aðgerðir til
að lækka kostnað og hugsanlega
sameinast um tiltekin viðfangsefni.
Eitt af því sem við nefndum í bréfi
okkar var samstarf um uppbyggingu
hugbúnaðar og tölvumála. Þessi við-
brögð eru hvatning fyrir okkur til
þess að setjast niður og tala saman,“
sagði Halldór sem taldi möguleika á
slíkum viðræðum þegar starfsemi
bankans og sparisjóðanna væri kom-
in á fullt að loknum sumarleyfum.
Hann sagðist binda vonir við að fá
svör frá fleiri sparisjóðum og að við-
ræður gætu komist á um samstarf
um tiltekna rekstrarþætti.
Sex sparisjóðir af
26 hafa svarað
Landsbankanum
Samruna
hafnað en
möguleiki á
samstarfi
EKKI hefur enn verið gengið frá
sölu á fasteignum og lóðum Lýsis við
Grandaveg 42 en fyrirtækið hyggst
selja þær þegar það hefur fengið
nýja lóð fyrir höfuðstöðvar félagsins.
Katrín Pétursdóttir, framkvæmda-
stjóri Lýsis, segir að félagið bíði eftir
að fá lóð og menn muni ekki hreyfa
sig í sölumálum fyrr en það sé frá-
gengið.
„Við höfum verið að bíða eftir lóð
hér í Reykjavík á hafnarsvæði og það
hefur ekki enn sem komið er gengið
eftir. En við eigum þó von á því að
þau mál kunni jafnvel að leysast fyr-
ir áramótin. Þegar það liggur fyrir
munum við selja fasteignir og lóðina
hér. Við erum hér með sex hæða
byggingu þar sem skrifstofur fyrir-
tækisins eru og mötuneyti á þeirri
efstu og svo verksmiðjuhúsin sem
tengjast skrifstofubyggingu.“
Allri framleiðslu hætt
Katrín segir að þar sem allri
bræðslu og mjölvinnslu hafi verið
hætt í Reykjavík – þar sé einungis
fullhreinsun og pökkun auk rann-
sóknarstofa og skrifstofa Lýsis –
þurfi félagið ekki allt þetta húsnæði.
„Ég á ekki von á að það verði mjög
erfitt að losa um þessar eignir, þetta
er góður staður hér og umhverfið
orðið fallegt. Raunar pössum við eig-
inlega ekki inn í umhverfið lengur.
Það er aftur á móti mjög mikilvægt
fyrir Lýsi að vera áfram við útflutn-
ingshöfn eða nálægt henni.“
Lýsi bíður eftir lóð und-
ir nýjar höfuðstöðvar
Eignir og
lóðin við
Grandaveg
verða seldar
♦ ♦ ♦