Morgunblaðið - 30.08.2002, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
LANDSBANKI Íslands hf. hefur
selt 27% af 41% eignarhlut sínum í
Vátryggingafélagi Íslands hf. og
hyggst selja allan hlut sinn
snemma á næsta ári. Kaupendur
eru Ker hf., Samvinnulífeyrissjóð-
urinn, Eignarhaldsfélagið Andvaka
og Eignarhaldsfélagið Samvinnu-
tryggingar en þessi félög eru öll
hluthafar í VÍS.
Söluverð þess hlutar sem
Landsbankinn hefur selt er um 3,8
milljarðar króna en bankinn mun
hafa fengið greidda tæpa 5,8 millj-
arða þegar allt verður selt. Sölu-
hagnaður bankans verður þegar
upp er staðið um 1,3 milljarðar
króna.
Í tilkynningu frá félögunum
fjórum sem hafa keypt hlut Lands-
bankans í VÍS kemur fram að þau
stefna að því að selja af hlutum
sínum í félaginu í dreifðri eign-
araðild þannig að hægt verði að
skrá félagið á aðallista Kauphallar
Íslands sem fyrst en VÍS var
skráð á tilboðsmarkað Kauphall-
arinnar í júlí síðastliðnum. Félögin
fjögur eiga samtals um 70% hlut í
VÍS eftir kaupin.
Geir Magnússon, forstjóri Kers,
sem nú er stærsti einstaki hluthaf-
inn í VÍS með um 29% hlut, segir
að það fari eftir markaðsaðstæðum
hversu hratt muni ganga að ná
fram markmiðum um dreifða eign-
araðild. Með því að nú væri einum
kjölfestufjárfesti færra í félaginu
yrði eignaraðildin þegar upp væri
staðið líklega enn dreifðari en ella
hefði orðið.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, segir að með
þessum viðskiptum hafi bankanum
gefist færi á að losa um alla fjár-
bindingu í vátryggingastarfsemi
þannig að hann geti einbeitt sér að
líftryggingaþætti samstarfsins.
Engin breyting verður á eignar-
haldi Landsbankans í Líftrygg-
ingafélagi Íslands hf. sem bankinn
á 50% hlut í.
Landsbankinn hyggst
selja allan hlut sinn í VÍS
SÍÐDEGIS í gær höfðu nokkrir ein-
staklingar verið yfirheyrðir hjá efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra í
kjölfar húsleitar sem framkvæmd
var í höfuðstöðvum Baugur Group hf.
í fyrrakvöld. Þar var m.a.um að ræða
Tryggva Jónsson, forstjóra Baugur
Group hf., og Jón Ásgeir Jóhannes-
son, stjórnarformann fyrirtækisins.
Húsleitin var gerð á grundvelli úr-
skurðar Héraðsdóms Reykjavíkur.
Ástæðan fyrir húsleitinni eru
ásakanir forsvarsmanns bandaríska
heildsölufyrirtækisins Nordica Inc.,
Jóns Geralds Sullenbergers, um
meint auðgunarbrot forstjóra og
stjórnarformanns Baugs. Húsleit
lögreglunnar hófst rétt fyrir kl. 17 í
fyrradag og lauk henni um miðnætti.
Í tilkynningu sem Baugur sendi
Kauphöll Íslands í gærmorgun segir
að stjórn fyrirtækisins telji ásakan-
irnar tilhæfulausar og alvarlegs mis-
skilnings um málavexti gæti í húsleit-
arúrskurðinum. Lögmaður Baugur
Group hf., Hreinn Loftsson hrl., hef-
ur með kæru óskað eftir því að
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði
um lögmæti aðgerða efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra. Krefst
hann þess að lögregla skili þegar í
stað öllum gögnum sem lagt var hald
á við húsleitina og segir aðgerðirnar
mun umfangsmeiri en efni standi til.
Í kæru Hreins Loftssonar segir að
tilefni kröfu ríkislögreglustjóra séu
ásakanir Jóns Geralds í garð
Tryggva Jónssonar og Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar um að þeir hafi „með
röngum reikningum látið Baug hf.
greiða verulegar fjárhæðir til kaupa
á skemmtibátnum The Viking Miami
í Flórída í Bandaríkjunum sem þeir
eiga í félagi við Jón Gerald
Sullenberger sem er viðskiptafélagi
þeirra sem þar býr, eins og komist er
að orði í kröfu ríkislögreglustjóra“.
Tveir meginþættir í rannsókn
lögreglunnar
Í kæru Hreins til héraðsdóms seg-
ir að rannsókn lögreglu byggist á
tveimur meginþáttum. Annars vegar
sé um að ræða grun um misferli
vegna 33 reikninga sem Jón Gerald
gerði Baugi í nafni Nordica en hins
vegar beinist rannsóknin að því að
upplýsa hvort reikningur að upphæð
589.890 Bandaríkjadalir, jafngildi um
52 milljóna króna, hafi verið gjald-
færður í bókhald Baugs hf. og hvert
greiðsla vegna reikningsins hafi
runnið.
Einu upplýsingarnar sem fram
hafa komið um tilefni húsleitar efna-
hagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra
er að finna í tilkynningu stjórnar
Baugs til Kauphallarinnar og í kæru
lögmanns Baugs til héraðsdóms. Jón
Steinar Gunnlaugsson, lögmaður
Jóns Geralds, segist ekki ætla að tjá
sig um kæru skjólstæðings síns á
hendur forsvarsmönnum Baugur
Group hf. að svo stöddu, enda hafi
hann ráðlagt skjólstæðingi sínum að
fara ekki út í fjölmiðlaumræðu um
málið.
Að ráði lögmanns hafa forsvars-
menn Baugs ekki heldur viljað tjá sig
um málið við fjölmiðla. Í kæru
Hreins Loftssonar segir að reikning-
urinn að upphæð rúmlega 589 þús-
und dollarar hafi verið svokallaður
kredit-reikningur sem Nordica hafi
gefið út og hafi sem slíkur verið færð-
ur til tekna í bókhaldi Baugs. Þetta
mikilvæga atriði hafi lögreglu yfir-
sést.
Umfangsmeiri aðgerðir
en efni stóðu til
Í kærunni eru aðgerðir lögreglu
sagðar mun umfangsmeiri en efni
stóðu til og upplýsinganna sem lög-
reglu vantaði hefði mátt afla með
mun vægari aðgerðum. Þá hafi rann-
sókn lögreglu áður en til húsleitar-
innar kom verið verulega ábótavant
og framkvæmd húsleitarinnar ámæl-
isverð. Lögregla hafi fyrst gefið við-
hlítandi skýringar á húsleitinni þegar
henni var næstum lokið og ekki upp-
lýst umboðsmenn Baugs um lögvar-
inn rétt þeirra til að bera undir dóm-
ara lögmæti ákvörðunar um hald-
lagningu einstakra muna. Er
húsleitin því talin ólögmæt og í kær-
unni er þess krafist að öllum þeim
gögnum sem fjarlægð voru úr húsa-
kynnum Baugs verði skilað þegar í
stað. Er því einnig haldið fram að að-
gerðir lögreglu séu brot á meðalhófs-
reglu og að lögregla hafi farið fram
úr heimild sinni við haldlagningu
gagna.
Ekki náðist í Jón H. Snorrason,
yfirmann efnahagsbrotadeildar rík-
islögreglustjóra, vegna málsins.
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra gerði húsleit hjá Baugi Group hf.
Yfirheyrslur fóru fram
í gær og fyrradag
Kæra/10
ÞEIM þykir augljóslega gaman
að ferðast með strætó, þessum
ungu mönnum sem ljósmyndari
Morgunblaðsins kom auga á í
gær. Drengirnir fylgdust með
umferðinni af aftasta bekk vagns-
ins og nutu útsýnisins meðan á
ferðalaginu stóð. Hvert ferðinni
var heitið er ekki vitað en víst er
að margir íbúar höfuð-
borgarsvæðisins glöddust við að
sjá aftur til sólar í gær eftir að
rignt hafði svo dögum skipti á
réttláta sem rangláta.
Skellihlátur í sexunni
Morgunblaðið/Arnaldur
48 ÁRA gömul frönsk kona beið
bana í bílslysi við Víðidalsá á
Jökuldalsheiði í gærmorgun
þegar fólksbifreið, sem hún var í
ásamt eiginmanni sínum, hafn-
aði utan vegar. Lögreglan á Eg-
ilsstöðum fékk tilkynningu um
slysið laust fyrir klukkan hálftíu.
Hjónin voru ferðamenn hér-
lendis á lítilli bílaleigubifreið og
sat konan í framsæti bifreiðar-
innar með beltið spennt sem og
maður hennar. Lést hún á slys-
stað eftir að lögregla og sjúkra-
lið komu á vettvang. Meiðsli eig-
inmannsins voru minniháttar.
Að sögn lögreglunnar virðist
sem ökumaðurinn hafi misst
stjórn á bifreiðinni þegar hann
ók af malbiki inn á viðgerðar-
kafla á veginum með lausamöl.
Að sögn lögreglu er kaflinn um
150 metra langur og rækilega
merktur. Bifreiðin valt nokkrar
veltur meðfram veginum og
hafnaði á þakinu um 4 metra frá
vegbrúninni.
Frönsk
kona lést
í bílslysi
Landsbankinn selur/27