Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. EINS og kunnugt er hafa skatt- leysismörk stöðugt verið að færast niður frá því staðgreiðsla skatta var tekin upp 1988 og eru nú 67 þúsund kr. á mánuði, en ættu að vera vera 94 þús. kr. eða 39% hærri en þau eru. Ástæða þessa ranglætis liggur í því að persónufrádráttur hefur ekki fylgt verðþóuninni frá 1988. Sú aukna skattbyrði og skert lífskjör sem af þessu leiðir hefur harðast komið niður á láglaunafólki, m.a. eldri borgurum. Þetta óréttlæti hefur því staðið í 14 ár, því ber nú- verandi ríkisstjórn höfuðábyrgð á ástandinu, einnig hefur ómarkviss stefna og aðgerðarleysi ASÍ og BSRB við sína viðsemjendur verið lítt traustvekjandi. Skattleysis- mörkin er veigamikill hluti af kjara- baráttu og ættu því ávallt að sitja í fyrirrúmi þegar samið er um laun og kjör. Biðlund eldri borgara og annars láglaunafóks er löngu þrotin, þá verðum við að leita leiða sem eftir er tekið og verða ekki sniðgengnar af stjórnvöldum. Samstaða lág- launafólks getur myndað tugþús- unda breiðfylkingu og henni verður að beita á pólitískum vettvangi. Landssamband félaga eldri borg- ara ætti að leiða svona starf og vinna að stofnun landssambands láglaunafólks sem byði fram í öllum kjördæmum í komandi alþingis- kosningum. Við höfum nægan tíma til að vinna að þessu mannúðarmáli og málstaðurinn er skýr, mann- sæmandi laun, að eyða sárri fátækt, tryggja að laun fylgi verðþróuninni á hverjum tíma og síðast en ekki síst að aldrað fólk sé virt af verkum sínum fyrir land og þjóð. Við þurf- um að styrkja sjálfsvirðinu og sjálf- stjórn, örlög okkar gangvart vald- höfum á hverjum tíma eru ekki sjálfgefin eins og að reka fé í rétt. Ef við gerum ekki neitt erum við að svíkja okkur sjálfa og aðra, það er meira en nóg að láta ríkisstjórn- ina o.fl. hlunnfara okkur í 14 ár. Það þarf hörku og hugrekki, staðfestu og dómgreind til að leiða svona mál, þó að ekki sé nema að settu marki. Það hafa ýmsir reynt m.a. fyrir öryrkja og eldri borgara að vekja stjórnmálamenn til vitund- ar um hin bágu kjör umbjóðenda sinna sem skipta tugþúsundum manna. Allir viðurkenna í orði að ekki sé hægt að lifa af 70–80 þús. kr. á mánuði, en ekkert gerist og stöðugt fjölgar þeim sem leita að- stoðar hjálparstofnana. Ríkis- stjórnin, einkanlega þó forsætisráð- herra, talar um góðæri og að við séum 5. ríkasta þjóð veraldar, en hvaða einkunn er hann að gefa sjálfum sér í meðferð fjármuna til þeirra sem minnst mega sín, fall- einkunn heitir það, Davíð Oddsson. Það sem þú vilt ekki að þér sé gert, skaltu ekki öðrum gera svo vísað sé til orða Konfúsíusar. Alltof mörgum stendur á sama um fátækt og eymd annarra svo lengi sem það ekki tengist þeim sjálfum, þetta er eitt stærsta vandamál samtíðarinnar og hér í okkar litla landi fer sá hópur stækkandi ár frá ári. Það er eins og manni finnist stundum að stór hóp- ur aldraðra, öryrkja o.fl. sé fórn- arlömb óskilgreindra kringum- stæðna í þjóðfélaginu og þar skulu þeir bara vera. Að reyna að firra sig ábyrgð gagnvart þessu fólki með aðgerðaleysi og stundum hroka virðist vera sterk vísbending um andlega sturlun. Kannski hefur þessi taumlausa græðgi sem svo einkennir stjórnsýsluna í dag slökkt á mannlegum dyggðum og gert menn að andlausum bréfber- um vélmenna. Aldraðir hafa mikla og víðtæka lífsreynslu að baki, við vorum stór- an hluta síðustu aldar að byggja upp það þjóðfélag sem við búum við í dag. Þó svo að við notum ekki orf og ljá kunnum við að brýna svo bíti vel. Stöndum saman, við höfum verk að vinna. KRISTJÁN PÉTURSSON, fyrrv. deildarstj. Kjör eldri borgara o.fl. Frá Kristjáni Péturssyni: BÚNAÐARBANKINN Verðbréf fór inn á hættulegar brautir í nýleg- um hálffimm fréttum. Þar bentu þeir á að markaðsverð sjávarút- vegsfyrirtækja í Kauphöll Íslands er helmingi lægra en markaðsverð þess kvóta sem þessi fyrirtæki hafa. Á mannamáli þýðir það að fyrirtæk- in eru svo illa rekin að það borgar sig að leggja þau niður og selja kvótann og gerist sambærilegt iðu- lega á virkum fjármálamörkuðum. Búnaðarbankanum Verðbréfum fannst þó rétt að benda á að um „jaðarverð“ væri að ræða, og lítil viðskipti á bak við þau. Samkvæmt þessu mætti skilja að ekki sé hægt að finna markaðsverð á kvóta nema að hann verði seldur allur í einu lagi. Þarna er þó kvótinn sér á báti. Daglega birtir Búnaðarbankinn Verðbréf „jaðarverð“ ýmissa verð- bréfa og kallar það verð óhikað markaðsverð. Það væri Búnaðarbankanum Verðbréfum til sóma að stíga skref- ið til fulls og benda fjárfestum á þau miklu gróðatækifæri sem felast í því að kaupa, og svo leggja niður sjávarútvegsfyrirtæki. Er það ekki einmitt hlutverk hálf fimm frétta? Að upplýsa fjárfesta um kauptæki- færi? GUÐMUNDUR ÖRN JÓNSSON, Laugalind 1, Kópavogi. Búnaðarbankinn Verðbréf Frá Guðmundi Erni Jónssyni:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.