Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri í Reykjavík, segir að ný-
gerð skoðanakönnun hafi ekki breytt
afstöðu sinni varðandi framboð í al-
þingiskosningunum næsta vor, en
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, telur einboðið að
Ingibjörg Sólrún fari fram og það yrði
farsælt fyrir þjóðina.
Í könnun sem Gallup gerði fyrir
þjóðmálaritið Kreml.is kom fram að
fari Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrir
lista Samfylkingarinnar í næstu al-
þingiskosningum auki flokkurinn
fylgi sitt um tæplega þriðjung og fái
34,2% atkvæða í stað 25,9%. Tæplega
19% þeirra kjósenda sem kváðust
ekki ætla að styðja Samfylkinguna
eru tilbúin að breyta afstöðu sinni
verði Ingibjörg Sólrún í fararbroddi.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir
að hún hafi ekki almennilega haft
tíma til að hugsa um niðurstöður
könnunarinnar, en hún sýni að Sam-
fylkingin eigi talsverð sóknarfæri og
hún geti nýtt sér þau án tillits til sinn-
ar persónu. Mikill stuðningur við sig í
könnuninni skýrist af því hvernig hafi
verið spurt. „Þótt mönnum þyki alltaf
vænt um að fá góðan stuðning er ég
nú eldri en tvævetur og veit að kann-
anir eru eitt og kosningar annað,“
segir hún og bætir við að því taki hún
niðurstöðunum með ákveðnum fyrir-
vara.
Borgarstjóri segist ekki munu
bregðast sérstaklega við þessari
könnun á þessu stigi, en hafi lofað
þeim sem stóðu að könnuninni að fara
yfir fyrri rök sín með sjálfri sér. „Ég
var búin að segja það býsna skýrt fyr-
ir kosningar að ég hygði ekki á þing-
framboð og fyrir því voru bæði per-
sónulegar og pólitískar ástæður.
Hugur minn hefur ekki staðið til þess
síðan, þótt borgarstjórnarkosningum
sé lokið, og ég sé ekkert það í spil-
unum sem breytir þeirri afstöðu.“
Spurð hvort líklegra sé að hún fari í
landsmálin en ekki vegna niðurstaðna
könnunarinnar segir borgarstjóri svo
ekki vera. „Þetta er líka alltaf spurn-
ingin um það að reyna að leggja svo-
lítið mat á það sjálfur hvað maður tel-
ur best – bæði persónulega og
pólitískt – að gera í hverri stöðu og
það er mál sem ég verð sjálf að fara
yfir og komast að niðurstöðu um. Þótt
stuðningurinn sé góður er hann ekki
það eina sem máli skiptir.“
Ingibjörg Sólrún segir að þó að hún
ætli að gefa sér tíma á næstu dögum
til að fara yfir fyrri rök sé það ekki
ávísun á breytingu. „Ég hef ekkert
breytt afstöðu minni,“ segir hún.
Mikil sóknarfæri
Samfylkingarinnar
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, segir að það séu
ánægjuleg tíðindi að könnunin birti
mikil sóknarfæri Samfylkingarinnar.
Í ljós komi að ef einn öflugasti stjórn-
málamaður landsins, borgarstjórinn í
Reykjavík, sem raunar tilheyri Sam-
fylkingunni, kæmi til liðs við flokkinn
gæti fylgið aukist um 8%. „Þessu
fagna ég mjög en fyrir nákvæmlega
ári lýsti ég því yfir í fjölmiðlum að ég
teldi æskilegt að hún kæmi til liðs við
flokkinn og forystusveitina,“ segir
Össur. „Eftir þessa könnun tel ég ein-
boðið að Ingibjörg Sólrún geri þetta.
Ég er þeirrar skoðunar að það yrði
mjög farsælt fyrir þjóðina að fá svona
sterkan talsmann jafnaðarstefnu inn
á Alþingi og sérstaklega yrði það
sterkt fyrir Reykvíkinga að borgar-
stjóri tæki sæti á Alþingi Íslendinga
til að sinna sérstaklega hagsmunum
borgarinnar. Ég horfi meðal annars
til þess að oddviti minnihlutans í
Reykjavíkurborg, Björn Bjarnason,
hefur ákveðið að sitja áfram á þingi.
Það er því margt sem mælir með
þessu, ég fagna því og vænti þess að
Ingibjörg Sólrún láti af þessu verða.
Miðað við ummæli hennar í fjölmiðl-
um tel ég raunar vaxandi líkur á að
svo verði.“
Össur segir að alltaf sé erfitt að
skapa væntingar sem síðan gangi
ekki eftir og því sé æskilegt að nið-
urstaðan liggi fyrir fljótlega. Borgar-
stjóri hafi sagt í viðtali í fjölmiðlum að
hún muni nú leggjast undir feld og
hugsa málið.
Spurður hvort yfirlýsingar Ingi-
bjargar Sólrúnar fyrir borgarstjórn-
arkosningarnar í vor, þess efnis að
hún ætlaði sér ekki að fara í lands-
málin, hafi áhrif segir Össur svo ekki
vera. „Ég túlkaði ekki yfirlýsingar
borgarstjóra þannig að hún þvertæki
fyrir það. Hún lýsti því hins vegar af-
dráttarlaust yfir að borgarmálin ættu
á þeirri stundu allan hug hennar og
hún hygðist ekki að óbreyttu hverfa
af þeim vettvangi. Það er ekkert sem
segir að borgarstjóri þurfi að hverfa
af vettvangi borgarmála þótt hún gefi
kost á sér til þess að bætast í forystu-
sveit Samfylkingarinnar og vera í
framboði fyrir flokkinn í öðru Reykja-
víkurkjördæminu. Hún getur áfram
sinnt málefnum borgarbúa og úr
sterkari stöðu en áður því hún getur
þá sveiflað brandi sínum á tveimur
vígvöllum.“
Undrandi á umræðunni
Árni Þór Sigurðsson, forseti borg-
arstjórnar Reykjavíkur og fulltrúi
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs á Reykjavíkurlistanum,
segir aðspurður að sér lítist engan
veginn á það að Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri yfirgefi borg-
armálin og fari yfir í landsmálin. „Mér
líst engan veginn á það vegna þess að
ég held hún sé mjög sterk í því hlut-
verki sem hún er í,“ segir hann. Árni
minnir einnig á að borgarstjórnarkosn-
ingar séu nýafstaðnar og að samstarf
VG, Samfylkingar og Framsóknar-
flokksins að Reykjavíkurlistanum
byggist m.a. á því að Ingibjörg sé borg-
arstjóri. „Ég er því að sumu leyti undr-
andi á þessari umræðu; að hún skuli
eiga sér stað.“
Þegar Árni Þór er spurður hvort
hann telji að Ingibjörg hafi skuld-
bundið sig til að vera borgarstjóri út
kjörtímabilið segir hann: „Ég tel að
yfirlýsingar hennar út af fyrir sig í
kosningabaráttunni hafi verið mjög
afdráttarlausar hvað þetta snertir.
Hún var að bjóða sig fram til að vera
borgarstjóri í fjögur ár og kjósendur í
Reykjavík hafa kosið hana til þess.“
Árni Þór bætir því þó við að auðvitað
eigi Ingibjörg Sólrún að ákveða það
sjálf hvað hún gerir í framhaldinu og
hvernig hún meti hugsanlegar breytt-
ar aðstæður.
R-listinn lifir með
eða án hennar
Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi
R-listans, segist ekki eiga von á öðru
en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri verði borgarstjóri út kjör-
tímabilið. „Það er ekki langt um liðið
frá borgarstjórnarkosningum,“ minn-
ir hann á, „en þar gaf Ingibjörg Sól-
rún mjög sterkar yfirlýsingar um að
hún ætlaði sér að sinna borgarmál-
unum næstu fjögur árin. Ég hef enga
trú á öðru en hún standi við það; ég á
ekki von á öðru en að hún verði borg-
arstjóri áfram.“
Alfreð segir að menn séu alltaf að
reyna að breyta atburðarásinni í
stjórnmálum með skoðanakönnunum
eins og þeirri sem vefsvæðið Kreml.is
stóð fyrir. „En það hefði kannski mátt
spyrja stuðningsmenn Reykjavíkur-
listans hvort þeir vildu að Ingibjörg
Sólrún yrði áfram borgarstjóri. Ég er
sannfærður um að í slíkri könnun
hefðu um 80 til 90% svarað því ját-
andi, þ.e. að þeir vildu hafa hana
áfram sem borgarstjóra.“
Alfreð tekur þó fram að Ingibjörg
Sólrún sé að sjálfsögðu frjáls að því að
gera það sem hún telur réttast að
gera. „Reykjavíkurlistinn mun lifa
áfram með eða án hennar,“ segir
hann að síðustu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um niðurstöður könnunar varðandi næstu alþingiskosningar
Hef ekki breytt
afstöðu minni
SLÁTRUN sauðfjár hófst í slát-
urhúsi Norðlenska ehf. á Húsavík í
gærmorgun og kom sláturféð úr
Mývatnssveit. Að sögn Sigmundar
Hreiðarssonar vinnslustjóra var
farið rólega af stað til að þjálfa
mannskapinn en svo verður strax
slátrað á fullum afköstum til loka
október.
Sigmundur segir að slátrað verði
um 65 þúsund dilkum á þessu hausti
sem er met hjá fyrirtækinu en til
samanburðar var slátrað um 58
dilkum hér í fyrra. Nú vinna ríflega
hundrað manns hjá fyrirtækinu á
Húsavík við slátrun og úrvinnslu af-
urðanna, þar af eru um tuttugu er-
lendir starfsmenn sem koma af
Evrópska efnahagssvæðinu.
Eins og kunnugt er var tekið í
notkun á dögunum nýtt og full-
komið vinnslukerfi frá Marel hf. í
kjötiðju Norðlenska á Húsavík.
Slátrað var tvisvar í ágúst til út-
flutnings til Bandaríkjanna og
sagði Sigmundur vinnslukerfið
vera mjög skemmtilegt og að geng-
ið hefði vel að vinna í því.
Slátrun hafin
hjá Norðlenska
Húsavík. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Sigmundur Hreiðarsson, vinnslustjóri Norðlenska ehf., segir stefnt á
met í slátrun hjá fyrirtækinu. Úr vinnslusal sláturhúss Norðlenska ehf.
á Húsavík þar sem slátrun hófst í gærmorgun á fé úr Mývatnssveit.MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Atlants-
skipum:
„Í ljósi hækkunar Eimskipafélags-
ins 2. og 4. september á þjónustu-
gjöldum og akstursþjónustu um fjög-
ur og sjö prósent, vegna verðlags-
þróunar, þykir Atlantsskipum rétt að
ítreka eftirfarandi:
Atlantsskip telja að forsendur Eim-
skipafélagsins fyrir hækkuninni séu
ekki til staðar og Atlantsskip munu
ekki taka þátt í að ýta undir verðbólgu
í þjóðfélaginu með þessum hætti. Það
hlýtur að vera óeðlilegt að Eimskipa-
félagið, sem tilkynnti að hagnaður
fyrirtækisins á fyrri hluta þessa árs
hefði verið 2.547 milljónir króna, skuli
ekki sjá hag sínum betur varið í að
skila hagnaði fyrirtækisins til sinna
viðskiptavina og lækka þannig
neyslukostnað heimilanna í landinu.
Alls nemur kostnaður við vöru-
flutninga til og frá landinu 10 millj-
örðum og þegar markaðshlutdeild
Eimskips er skoðuð er augljóst að
hækkunin nú mun hafa veruleg áhrif
á verðlagsþróun í landinu og bitna á
heimilum þessa lands.
Atlantsskip hvetja alla sem standa í
flutningum að hafna verðhækkunum
Eimskipa og sameinast undir fána
lággjaldastefnu Atlantsskipa.
Atlantsskip er framsækið skipa-
félag sem leggur áherslu á kröfur nú-
tímans um fljóta, örugga og trygga
þjónustu. Fyrirtækið er með skrif-
stofur í Kópavogi sem tryggir auð-
veldan aðgang fyrir flutningsaðila
hvaðan sem er af höfuðborgarsvæð-
inu. Fyrirtækið býður viðskiptavinum
sínum upp á flutninga jörðina um
kring í gegnum samstarfsaðila en
annast sjálft flutninga til og frá Am-
eríku og Evrópu. Sterk staða Atlants-
skipa á markaðinum tryggir lágt
vöruverð og er liður í kjarabót heim-
ilanna.“
Yfirlýsing frá Atlantsskipum
Höfnum verðhækkun
Eimskipafélagsins
EIMSKIPAFÉLAGIÐ hefur hækk-
að þjónustugjöld innanlands vegna
millilandaflutninga og einnig akst-
ursgjöld innanlands vegna milli-
landaflutninga. Hækkunin tók gildi í
fyrradag og hækkuðu þjónustugjöld-
in um 4% og akstursgjöldin um 7%,
en að sögn Guðmundar Þorbjörns-
sonar, framkvæmdastjóra sölu- og
markaðssviðs Eimskipa, á þessi
hækkun ekki við um innanlands-
flutninga félagsins og ekki heldur
um farmgjöld í millilandaflutningun-
um sjálfum.
Guðmundur segir að hækkunin sé
fyrst og fremst viðbrögð við þeirri
hækkun sem orðið hafi hjá birgjum
og þjónustuaðilum félagsins innan-
lands eftir mitt síðastliðið ár, og
einnig þeirri launahækkun, hækkun
á hafnarkostnaði og fleiri hækkun-
um sem orðið hafi. Ríflega ár sé síð-
an þessi gjöld hafi síðast verið hækk-
uð, en það hafi verið í byrjun ágúst á
síðasta ári.
Guðmundur segir að þessi hækk-
un nái til mikils minnihluta tekna
Eimskipafélagsins, verðið á meiri-
hluta þjónustunnar haldist óbreytt,
en langmestur hluti tekna félagsins
af millilandaflutningum sé af milli-
landaflutningunum sjálfum en ekki
þjónustunni sem tengist þeim.
„Þetta er eins væg hækkun og við
treystum okkur til, miðað við þá
kostnaðarþróun sem hefur orðið síð-
an á miðju síðasta ári,“ segir Guð-
mundur Þorbjörnsson.
Eimskip hækkar þjón-
ustu- og akstursgjöld
FORRÁÐAMENN Háskóla Íslands
og Stúdentaráðs Háskóla Íslands
hafa átt viðræður um breyttan þjón-
ustutíma í byggingum Háskólans. Í
tilkynningu þeirra segir að breytingin
felist fyrst og fremst í að loka bygg-
ingum skólans almennt fyrr en veita
þeim stúdentum sem hafa sérstaka
aðstöðu þar sólarhringsaðgang.
„Á næstu vikum verður könnuð
þörf á rýmri þjónustutíma fyrir stúd-
enta og með hliðsjón af niðurstöðum
þeirrar könnunar verða skoðaðir
möguleikar á að mæta þörf þeirra.
Stefnt er að því að hafa rýmri þjón-
ustutíma þegar líður á misserið og á
próftímabili.
Á meðan verið er að leysa aðgeng-
ismálin og fyrrnefnd könnun er gerð
verða Oddi, Árnagarður, Lögberg og
VR2 opin sem hér segir: Mánudaga til
fimmtudaga 7.30–22; föstudaga og
laugardaga 7.30–20; sunnudaga 10–
22, (nema VR2 10–18). Í flestum öðr-
um byggingum hafa stúdentar nú
þegar lykla eða aðgangskort.“
Breyttur
þjónustu-
tími í bygg-
ingum HÍ
♦ ♦ ♦
LÖGREGLAN í
Keflavík lýsir eft-
ir Óla G. Jónssyni
til heimilis að
Þangbakka 8.
Ólafur er 57 ára
gamall, 174 cm á
hæð, þéttvaxinn,
skolhærður en
með skalla. Hann
var klæddur dökkbláum mittisjakka,
dökkbláum buxum og ljósri skyrtu.
Vitað er að Óli fór frá Flugstöð Leifs
Eiríkssonar til Reykjavíkur með
leigubíl hinn 20. ágúst sl. en ekki hef-
ur spurst til hans síðan.
Lýst eftir
manni