Morgunblaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 1
229. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 1. OKTÓBER 2002 skiptum. Myndin er frá kauphöll- inni í Chicago en þar eins og víð- ar var mikill handagangur í öskjunni. MIKIÐ verðfall var á mörkuðum víða um heim í gær vegna lítt uppörvandi frétta af efnahagslíf- inu. Í Bandaríkjunum hefur Dow Jones-vísitalan ekki verið lægri í fjögur ár, Nasdaq í sex ár og Standard and Poor 500 í 15 ár. Ótíðindin voru meðal annars þau, að einkaneysla í Bandaríkj- unum jókst mjög lítið í ágúst auk þess sem óttinn við átök í Írak liggur eins og mara á öllum við- Reuters Verðfall á mörkuðum ÁTTA létu lífið og rúmlega 50 slösuðust, margir alvar- lega, í tveimur árekstrum á hraðbraut í norðurhluta Austurríkis í gærmorgun. Sumir þeirra sem létust brunnu inni í bílum sínum. Alls er talið að um 70 bílar hafi lent í árekstrunum, er urðu á háannatíma. Orsök árekstr- anna er talin vera þykkt þokubelti sem lá yfir tíu km kafla á hraðbrautinni á milli Vínar og Salzburgar, skammt frá bænum Seewalchen. AP Átta létust í tveimur árekstrum VIÐRÆÐUR um væntanlegt vopna- eftirlit í Írak hófust í Vín í Austurríki í gær. Gerðu fulltrúar Sameinuðu þjóð- anna írösku embættismönnunum það ljóst strax í upphafi fundarins, að ekki yrði sæst á neitt minna en algert frelsi fyrir vopnaeftirlitsmennina og yrðu þá fjölmargar hallir Saddams Huss- eins Íraksforseta ekki undanskildar. Bretar og Bandaríkjamenn ætla að kynna á morgun í öryggisráðinu nýja ályktun um Írak þar sem hert er mjög á fyrri skilmálum um vopnaeftirlit. Haft var eftir Hans Blix, yfirmanni vopnaeftirlits SÞ, að viðræðurnar hefðu gengið vel í gær en þær snerust aðallega um framkvæmdaratriði til að koma í veg fyrir hugsanlega árekstra eftir að vopnaeftirlitið er hafið í Írak. Melissa Fleming, talsmaður Alþjóða- kjarnorkumálastofnunarinnar, sagði, að úrslitaatriðið væri fullkominn að- gangur að öllum stöðum í Írak: „Við búum yfir miklum upplýsingum, miklum vísbendingum og gervi- hnattamyndum. Nú verðum við að kanna þær nánar á staðnum.“ Komið til móts við Frakka? Bandaríkjamenn og Bretar hyggj- ast leggja fyrir öryggisráðið á morg- un drög að nýrri ályktun um Írak þar sem kveðið er á um hernaðaraðgerðir verði nauðsynlegt að fylgja henni eftir með þeim hætti. Það var hins vegar haft eftir bandarískum embættis- mönnum í gær, að Bandaríkjastjórn kynni að fallast á málamiðlun til að koma í veg fyrir, að Frakkar beittu neitunarvaldi í ráðinu. Fælist hún í því að verða við kröfu Frakka um tvær ályktanir, eina um skilmálana og síðar aðra um viðbrögðin ef Írakar hlíta ekki þeirri fyrri. Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, sagði í gær, að hann væri þess fullviss, að Bandaríkjastjórn myndi jafna ágreining sinn við önnur ríki í öryggisráðinu og komast að sam- komulagi um viðunandi ályktun. Viðræður um vopnaeftirlit í Írak hófust í Vín í gær Eftirlitsmenn fái fullt athafnafrelsi Vín. AP, AFP. BRETAR eru svo samansaumaðir í fjármálum, að þeir fórna stund- um sjálfri ástinni til að komast hjá aukalegum útgjöldum hennar vegna. Kemur þetta fram í nýrri könnun, sem segir, að þrátt fyrir smásmyglið á flestum sviðum hætti mörgum til að spara eyrinn en kasta krónunni. Niðurstöðurnar voru þær, að 5% aðspurðra höfðu sagt upp kærustunni eða kærastanum fyrir jól eða fyrir Valentínusardaginn til að sleppa við gjafakaup. 17% viðurkenndu að hafa afritað geisladiska í sparnaðarskyni og næstum 50% sögðust alltaf fara með sitt eigið sælgæti í bíó. 21% hafði þann hátt á þegar hringt var úr farsíma að biðja strax þann, sem hringt var í, að hringja aftur í sig. Endurnýta frímerki 23% Breta endurnota frímerki, sem stimpilpúðinn hefur ekki lent á, og níu af hverjum tíu hlaupa upp til handa og fóta þegar ein- hver verslunin býður „tvo fyrir einn“. Einn af hverjum sjö lætur klippa sig mjög snöggt til að fækka ferðunum til rakarans og 29% hnupla handklæðum, bað- sloppum og sápu á hótelum. Þegar kemur að því að ávaxta sitt eigið pund skipta samt flestir við fjóra stærstu bankana, sem greiða þó verulega lægri vexti en smærri bankar. Ástin víkur fyrir aurunum London. AFP. NÁÐST hefur samkomulag innan Evrópusambandsins um málamiðlun í deilu þess við Bandaríkjastjórn um Alþjóðasakamáladómstólinn. Felst það í því að veita bandarískum her- mönnum takmarkaða friðhelgi fyrir hugsanlegri saksókn. Um þetta var samið á utanríkisráð- herrafundi ESB-ríkjanna í Brussel og jafnframt ákveðið, að einstök aðildar- ríki gætu gert tvíhliða samning við Bandaríkin um þessi mál svo fremi ákveðnum skilyrðum væri fullnægt. Per Stig Møller, utanríkisráðherra Dana, sem nú er í forsæti fyrir ESB, neitaði því, að með þessu væri verið að grafa undan dómstólnum áður en hann tæki til starfa. Skilyrðin eru þau, að þeir Banda- ríkjamenn, sem hugsanlega yrðu sak- aðir um stórglæpi, verði lögsóttir í Bandaríkjunum og nái sú takmark- aða friðhelgi aðeins til hermanna og opinberra sendimanna. Bandaríkjastjórn hefur hingað til neitað að samþykkja lögsögu dóm- stólsins og þá með þeim rökum, að hann yrði hugsanlega notaður gegn bandarískum hermönnum í pólitísku skyni. ESB hefur reynt að tala einum rómi í þessu máli en brestur kom í samstöðuna er stjórnvöld í Bretlandi og Ítalíu gáfu í skyn, að þau kynnu að semja sérstaklega við Bandaríkja- menn. Talsmenn Bandaríkjastjórnar vildu fátt segja um málamiðlunina í gær, aðeins, að hún yrði skoðuð. Deilan um Alþjóða- sakamáladómstólinn ESB sam- þykkir mála- miðlun Brussel. AP, AFP. TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, beið auðmýkjandi ósig- ur á flokksþingi Verkamanna- flokksins í Blackpool í gær þegar samþykkt var að endurskoða stefnu hans í einkavæðingarmál- um. Breska stjórnin hefur kynnt áætlun um einkavæðingu skóla og sjúkrahúsa en í atkvæðagreiðslu um hana var samþykkt með 67% gegn 33% að taka alla áætlunina til endurskoðunar. Er þetta aðeins í annað sinn frá því Blair tók við forystu í flokknum sem hann verð- ur undir á flokksþingi. Snerust gegn Blair Blackpool. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.