Morgunblaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ HUGMYNDIR um að ný heilsu- gæslustöð fyrir Voga- og Heima- hverfi rísi við Hrafnistu í Laugarási eru komnar vel á veg af hálfu stjórnar dvalarheimilisins en skipu- lags- og bygginganefnd Reykjavík- ur er jákvæð fyrir því að bygging- arleyfi verði veitt fyrir nýrri hjúkrunarálmu og heilsugæslustöð á lóð þess við Brúnaveg. Forstjóri Hrafnistu leggur þó áherslu á að heilbrigðisráðuneytið hafi ekki tek- ið ákvörðun um hvar heilsugæslan verði. Umsókn Hrafnistu um að reisa heilsugæslustöð og nýja hjúkrunar- álmu og teikningar af byggingunum voru kynntar á fundi skipulags- og bygginganefndar í síðustu viku og var þá bókað að nefndin gerði ekki athugasemdir við að byggingarleyfi yrði veitt eftir að teikningar hefðu verið lagfærðar. Er gert ráð fyrir að hjúkrunarálman verði á þremur hæðum að kjallara meðtöldum en þar er gert ráð fyrir 60 hjúkr- unarrýmum á fjórum deildum. Yrði flatarmál álmunnar um 4.300 fer- metrar. Heilsugæslustöðin yrði hins vegar á tveimur hæðum með kjall- ara og yrði rúmlega 1.200 fermetr- ar. Hönnun þessara bygginga er í höndum Teiknistofu Halldórs Guð- mundssonar. Að sögn Sveins H. Skúlasonar, forstjóra Hrafnistu, liggur fyrir rekstrarleyfi hjá heilbrigðisráðu- neytinu um rekstur hjúkrunarálm- unnar og er miðað við að byrjað verði að byggja hana í haust. Hann segir að mikill munur verði á að- stöðu eftir að hún verði komin til sögunnar. „Þetta verður allt sam- kvæmt nýjustu kröfum, öll rýmin verða í 25 fermetra einstaklings- herbergjum með salerni og baði á hverju herbergi.“ Aðspurður segir hann mikla þörf á þessum rýmum. „Síðast þegar ég vissi voru 256 í mjög brýnni þörf fyrir hjúkrunar- heimili í Reykjavík og það er mjög slæm staða.“ Hvað varðar heilsugæslustöðina segir Sveinn að Hrafnista hafi lengi verið í viðræðum við Heilsugæsluna í Reykjavík. „Þar hefur verið gert ráð fyrir að heilsugæslustöð verði í hluta af þessu húsi sem við byggj- um. Við höfum unnið, hannað þetta og skipulagt í samvinnu við Heilsu- gæsluna en hins vegar hefur engin ákvörðun verið tekin af hennar hálfu um að það verði byggt hjá okkur enda er það ráðherra að ákveða það.“ Hann bendir á að í tillögum sem stjórn Heilsugæslunnar kynnti ný- lega sé gert ráð fyrir að önnur af tveimur heilsugæslum sem byggðar verða á höfuðborgarsvæðinu, verði í Voga- og Heimahverfi. „Þannig að við vildum hafa heimild til að byggja þarna ef ráðuneytið hefði áhuga á að semja við okkur. Annars getum við nýtt þetta húsnæði á annan máta.“ Sveinn segir að líklega myndi heilsugæslan ekki þjóna íbúum Hrafnistu þar sem hjúkrunarheim- ilið hafi eigin læknum á að skipa. „En við höldum að það sé styrkur fyrir báða aðila að tengjast. Það er styrkur fyrir þá að vera nálægt svona stóru heimili með öldrunar- þjónustu og líka styrkur fyrir okk- ur að hafa þá á lóðinni en þar er mjög fullkomin endurhæfingarstöð sem yrði sambyggð við þetta hús. Þannig að það myndi styrkja starfs- svið beggja aðila.“ Gæti verið tilbúin vorið 2004 Búist er við að ráðuneytið taki ákvörðun varðandi heilsugæsluna seinna í haust og verði staðsetning við Hrafnistu fyrir valinu gerir Sveinn ráð fyrir að bygging hennar taki rúmlega eitt og hálft ár þannig að stöðin yrði jafnvel tilbúin á vor- dögum 2004. „Það sem vakir fyrir okkur er að það er ódýrara að byggja húsið allt í heild. Þetta eru sambyggð hús og fyrst við vorum með þetta ferli í gangi með hjúkr- unarheimilið þá töldum við rétt að klára málið til þess að þurfa ekki að fara af stað aftur. Þá vitum við líka að ef ráðuneytið tekur ákvörðun um að semja við okkur þá erum við til- búnir.“ Hvað varðar fjármögnun segir Sveinn að viðræðurnar við Heilsu- gæsluna hafi gengið út frá því að Hrafnista fjármagnaði bygginguna sem yrði síðan leigð undir heilsu- gæsluna. „En síðan þarf þetta allt að fara í gegn um samþykktir hjá fjármálaráðuneyti og heilbrigðis- ráðuneyti og þeirri vinnu er ekki lokið.“ Teikning/Teiknistofa Halldórs Guðmundssonar Efri teikningin sýnir suðurhlið en að neðan vesturhliðina þar sem gamla Hrafnistubyggingin er í forgrunni. Hönnun heilsugæslustöðvar við Hrafnistu langt komin Vogar og Heimar EINSTAKLEGA góð þátttaka var í hátíðarhöldum Ártúnsskóla á laug- ardag þegar ný viðbygging skólans var vígð samhliða því sem haldið var upp á 15 ára afmæli hans. Með nýju byggingunni heyra lausar stofur á kennslulóðinni sögunni til. Að sögn Ellerts Borgars Þor- valdssonar skólastjóra er mikill munur fyrir skólann að vera búinn að fá nýju bygginguna. Í fyrra hafi skólinn verið einsetinn án þess þó að aðstaða til þess hafi raunveru- lega verið fyrir hendi. „Það gekk upp vegna þess að fólk hér var tilbúið að fylgja því eftir. Nú erum við hins vegar komin með varanlegt húsnæði sem er mjög fallegt.“ Viðbyggingin er tæplega 900 fer- metrar að stærð og tengir saman eldri byggingar með tengigöngum. Tvær heimastofur eru í nýja húsinu auk fjögurra sérkennslustofa fyrir list- og verkgreinar, raungreingar og tónlist ástamt skóladagvist. Þá voru ýmsar breytingar gerðar á húsnæði skólans samhliða þessu, skólasafn og tölvuver voru sam- einuð, nýtt mötuneytiseldhús var innréttað og skólasafn og matsalur látinn mynda samliggjandi miðrými sem er eins konar hjarta skólans. Morgunkaffi með glæsibrag Um 200 nemendur eru í skól- anum en Ellert segir milli 600 og 700 manns hafa mætt til að halda upp á þessi tímamót. „Það var svo mikið af eldri nemendum og for- eldrum þeirra sem halda enn góðu sambandi við skólann sem komu hingað,“ segir hann enda kemur í ljós að það var margt að sækja. „Foreldrafélagið stóð fyrir morg- unkaffi og gerði það með glæsibrag og við vorum með uppákomur þar sem núverandi og fyrrverandi nem- endur léku leikrit, sungu, lásu og léku á hljóðfæri.“ Fleira má nefna, svo sem skákáskoranir skáksveitar skólans, en hún var Íslandsmeistari barnaskólaskáksveita fyrir tveimur árum að ógleymdum gangandi myndbandasýningum frá liðnum árum og stórri myndasýningu. „Þetta var rosalega gaman en það sem mér fannst standa upp úr var þessi almenna, góða og mikla þátttaka og gleði og ánægja allra jafnt hjá starfsfólki skólans sem nemendum og foreldrum,“ segir Ellert og klykkir út með því að segja megi að skólastarfið hafi þrif- ist mest á þeirri jákvæðni sem ríkjandi er milli skólans og fjöl- skyldna barnanna sem hann sækja. Haldið upp á 15 ára afmæli Ártúnsskóla um leið og viðbygging var vígð Skólastarfið þrífst á jákvæðni Morgunblaðið/Kristinn Guðrún Georgsdóttir sýnir vinum og vandamönnum nýju stofuna sína. Með henni er bróðir hennar, Tómas Georgsson. Ártúnsholt FORMLEG afhending fyrstu náms- mannaíbúðanna að Arnarási 9–11 var síðastliðinn föstudag. Íbúðirnar eru í eigu Garðabæjar en Fé- lagsstofnun stúdenta sér um rekstur þeirra, móttöku umsókna og útleigu. Alls eru íbúðirnar fjórtán talsins en þar af eru tvær sérhannaðar fyrir fatlaða. Það var teiknistofan Arkís ehf. sem hafði hönnun hússins með höndum en verktakafyrirtækið Matthías ehf. sá um byggingu þess. Heildarkostnaður við bygginguna er áætlaður um 133 milljónir króna. Ásdís Halla Bragadóttir bæjar- stjóri afhenti íbúðirnar íbúunum á föstudag og fengu börnin, sem í þær flytja með foreldrum sínum, gjafir frá bænum. Þá var boðið upp á létt tónlistaratriði. Formleg afhending náms- manna- íbúða Garðabær Morgunblaðið/Jón Svavarsson VERKTAKI, sem hugðist byggja verslunarhúsnæði í Staðahverfi, hefur fallið frá því þar sem rekstur verslana gengur illa á svæðinu en fyrir er á sömu lóð um 700 fer- metra verslunarmiðstöð. Hefur hann fengið úthlutað lóð fyrir íbúð- arhúsnæði í Hraunbæ í staðinn. Trésmiðja Snorra Hjaltasonar hugðist stækka litla verslunarmið- stöð sem reist hefur verið að Barðastöðum 1–5 en að sögn Ágústs Jónssonar, skristofustjóra borgarverkfræðings, var fallið frá þeim áformum. „Þar var búið að byggja tæplega 700 fermetra versl- unarhús en rekstur á því hefur gengið mjög illa þannig að bæði Trésmiðjan og sá sem átti bygging- arréttinn á undan henni treystu sér ekki til að halda uppbyggingu þarna áfram á meðan reksturinn væri svona slappur. Þarna fór af stað matvöruverslun sem hætti. Mér skilst að þarna sé hárgreiðslu- stofa sem gengur þokkalega en fátt annað eins og er.“ Byggir íbúðir í Hraunbæ í staðinn Hann segir að vegna þessa hafi mönnum ekki þótt fýsilegt að byggja meira af slíku húsnæði í bili. Trésmiðjan hafi því sótt um að fá að breyta landnotkun á hluta lóð- arinnar og fá að byggja þar fjöl- býlishús en lóðin er skilgreind sem verslunar- og þjónustulóð. „Það féll vægast sagt í grýttan jarðveg í hverfinu,“ segir Ágúst og því verð- ur ekki úr því. Að hans sögn standa væntingar til þess að aðstæður til verslunar muni breytast þegar búið er að framlengja Korpúlfsstaðaveginn upp á Vesturlandsveg í grennd við Blikastaðalandið. Þá muni umferð aukast um svæðið. Í millitíðinni hefur Trésmiðjan fengið nýrri lóð úthlutað í staðinn fyrir lóðina að Barðastöðum. Sú er að Hraunbæ 111–111g, á óbyggðri ræmu milli Hraunbæjar og Bæj- arháls en þar hyggst Trésmiðjan reisa 6 íbúða raðhús og 22 íbúða fjölbýlishús. Hefur borgarráð sam- þykkt skiptin á lóðunum. Hætt við byggingu verslunar- húss Staðahverfi Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.