Morgunblaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 55
„AUGLÝSINGAGERÐ á hug minn allan og myndböndin líka. Ég hef ekki áhuga á að gera kvikmynd strax, ekki fyrr en ég tel mig hafa fullan þroska til þess. Minn að- almetnaður felst í því að leikstýra auglýsingum,“ segir Þórhallur Sæv- arsson en þriggja mínútna stutt- mynd í leikstjórn hans er komin í úrslit í samkeppni um Ungleik- stjóraverðlaun Nike. Þrír leikstjórar keppa um verð- launin en þau verða afhent 8. októ- ber nk. við hátíðlega athöfn í Nat- ional Film Theatre í London. Sigurmyndin gerð að auglýsingu Mynd Þórhalls, Aðdáandinn, verður sýnd í Nike-verslunum og á ýmsum uppákomum er Nike styrk- ir. Vinningsmyndin verður svo send víða í stuttmyndakeppni auk þess sem Nike hefur rétt á að kaupa myndina og vinna úr henni sjón- varpsauglýsingu. Myndin er unnin samkvæmt hug- mynd Þórhalls og kvikmyndatöku- mannsins Baldurs Eyþórssonar, en þeir félagar vinna oft saman að verkefnum. Þórhallur leikstýrði m.a. myndbandinu við lag Rottweil- er-hundanna, „Bent nálgast“, og auglýsingum fyrir veitinga- og skemmtistaðinn Vegamót. Í bæði skiptin var Baldur einmitt töku- maður. Keppnin hefur vakið athygli úti í Bretlandi og eru margir mætir menn í dómnefnd, að sögn Þórhalls, sem er hæstánægður með að vera kominn svo langt sem raun ber vitni. Hann frétti af keppninni að- eins tæpum þremur dögum áður en fresturinn rann út undir lok júní. Þeir félagar skelltu hugmynd á blað og teiknaði Aron Reyr Sverr- isson myndir til skýringar. Sendu þeir svo tvær hugmyndir út til London bæði með tölvupósti og hraðpósti til að tryggja að hug- myndirnar kæmust til skila í tæka tíð. Önnur hugmyndin komst áfram í tíu manna úrslit og var síðar valin í þriggja manna úrslitin. Hver þess- ara þriggja leikstjóra fékk svo tæpa eina milljón króna til að búa til stuttmynd eftir innsendri hug- mynd. Þórhallur og Baldur fóru oftar en einu sinni til stórborgarinnar vegna keppninnar og dvöldu þar í nokkrar vikur eftir að myndin komst í þriggja manna úrslit. „Við enduð- um á því að vera sex vikur í Lond- on,“ segir hann. Myndin var tekin upp síðustu daga ágústmánaðar og var skilað inn sama dag og skila- fresturinn rann út, 23. september. Þórhallur segist hafa fengið mikla aðstoð frá auglýsingafram- leiðslufyrirtækinu Thomas Thomas, sem hann komst í kynni við í gegn- um starf sitt hjá Saga Film. Þetta skilaði sér í ýmsu og m.a. vann 30 manna reynt starfslið við töku myndarinnar. „Á margan hátt virðist eins og þeir séu að veðja á mann. Það gaf mér mikið sjálfstraust í framleiðsl- unni allri að það væri einhver til staðar sem sæi möguleika í manni og væri tilbúinn til að leggja sig fram til að hjálpa manni,“ segir Þórhallur. Aðstoð frá Óskars- verðlaunahöfum Myndeftirvinnslan var gerð hjá fyrirtækinu The Mill sem Þórhallur segir eitt hið virtasta á sínu sviði. „Margir þeirra sem unnu við mynd- ina okkar þar voru menn sem unnu Óskarinn fyrir Skylmingaþrælinn,“ segir Þórhallur. Hljóðvinnsla myndarinnar var unnin hérlendis hjá Lotus-Hljóð- setningu og er Þórhallur mjög ánægður með hvernig til tókst. Tónlistina við myndina gerði hljóm- sveitin Úlpa en hún útsetti nýtt lag, „Darling“, fyrir myndina. Þórhallur hefur starfað á þessu sviði í fullu starfi síðastliðið tvö og hálft ár en segir þetta verkefni nokkuð frábrugðið öðrum. „Einna skemmtilegasta við þetta var að fá tækifæri til að sýna hvað í manni býr þegar allar aðstæður eru nán- ast eins góðar og þær geta orðið,“ segir hann. Dómnefndin fer góðum orðum um Þórhall í kynningu og segir handritið vel skrifað og frumlegt. Hún segir að það sé vel þess virði að fylgjast með störfum hans í framtíðinni. Þórhallur bendir á að oft sé mik- ið frjálsræði í auglýsingagerð og margt skemmtilegt sé hægt að gera. „Mig langar bara að búa til hluti sem fólk hefur gaman af, eitt- hvað sem það nennir að horfa á,“ segir hann. Skapandi auglýsingar Íslensk stutt- mynd er komin í úrslit alþjóð- legrar sam- keppni ungra leikstjóra. Inga Rún Sigurð- ardóttir ræddi við leikstjórann efnilega, Þór- hall Sævars- son, um að- dragandann. Morgunblaðið/Kristinn Stuttmyndakapparnir Baldur Eyþórsson og Þórhallur Sæv- arsson eru vanir að vinna saman að ýmsum verkefnum. TENGLAR ..................................................... www.britshorts.com/nike/ ingarun@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 55 Setningartónleikar í Tjarnarsal Ráhússins kl. 17: Aðgangur ókeypis Borgarstjóri setur hátíðina, Kvintett Sunnu, Agnar Már, FlÍS Tríó með Liudas Mockunas og Thorddsen/Fishcer kvartetting gefa sýnishorn af því hvað er í vændum Einleikstónleikar Norræna húsinu kl. 20:30 kr.1.000 Agnar Már Magnússon píanóleikari JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR www.ReykjavikJazz.com/ Sýnd kl.. 6, 8 og 10. www.laugarasbio.is Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 6. með íslensku tali. Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 14. Ný Tegund Töffara Yfir 20.000 MANNS  HK DV „ARFTAKI BOND ER FUNDINN!“ FRÁ FRAMLEIÐENDUM BIG DADDY Hvað gerist þegar þú tekur smábæjargaurinn, gefur honum 40 milljarða dollara og sleppir honum lausum í stórborginni? Adam Sandler fer á kostum í geggjaðri gamanmynd! 1/2Kvikmyndir.is Yfir 20.000 MANNS Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.10.  HK DV „ARFTAKI BOND ER FUNDINN!“ Sýnd kl. 5.50 og 8. Nýjasta meistaraverk Pedro Almodovars 1/2HL MBL SG DV ÓHT Rás2 Sýnd kl. 6.20, 8.30 og 10.40. Sýnd kl. 7. og 10. B.i. 14. Sýnd kl. 10. B. i. 14. Síðustu sýningar Hvað gerist þegar þú tekur smábæjargaurinn, gefur honum 40 milljarða dollara og sleppir honum lausum í stórborginni? Adam Sandler fer á kostum í geggjaðri gamanmynd! FRÁ FRAMLEIÐENDUM BIG DADDY 1/2Kvikmyndir.is ADAM SANDLER WINONA RYDER Ný Tegund Töffara Hverfisgötu  551 9000 www.regnboginn.is Teppi á stigaganga Ármúla 23, sími 533 5060
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.