Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 4

Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Opnunartímar: Mánud.-föstud. frá kl. 10-18. Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is Netfang: bilathing@hekla.is Nissan Double Cab 2500 Diesel, f.skr.d. 26.09. 1999, ek. 53 þús. km, 4 dyra, beinsk., pallhús o.fl. Verð 1.730.000 Nánari upplýsingar hjá Bílaþingi Heklu NJÁLUNÁMSKEIÐ Jóns Böðv- arssonar eru iðulega þétt setin en í gærkvöldi hófst fjórða námskeið hans um þessa vinsælustu og lengstu sögu Íslendingasagnanna. Það dugar ekkert minna en stóri salur Borgarleikhússins til nám- skeiðshaldsins og í tíu skipti mæta þátttakendur í tvo tíma í senn og fræðast um Brennu-Njálssögu fram í desember. Eitt námskeið dugar skammt þegar Njála á í hlut og verður hún því líka til umfjöll- unar í námskeiði á vorönn. En námskeiðið nú er það síðasta sem Jón Böðvarsson, cand.mag. mun hafa umsjón með. „Ég er orðinn 72 ára svo ég fer nú að hætta þessum námskeiðum, það er tímabært að ég fari að draga mig í hlé,“ sagði Jón er Morgunblaðið ræddi við hann í Borgarleikhúsinu. Gera má ráð fyrir að um 6.000 manns hafi sótt námskeið Jóns, en hann hefur frá árinu 1986 glætt flestar Íslend- ingasögurnar auk Eddukvæða og fornaldarsagna lífi á vegum End- urmenntunarstofnunar. Hversdagshetjur Njálu „Njála er sú Íslendingasaga sem er ekki bara lengst og mest heldur mest lesin í gegnum aldirnar,“ sagði Jón. „Hún höfðar svo til Ís- lendinga að menn eins og Gunnar og Njáll og konur eins og Hall- gerður og Bergþóra hafa verið eins og persónur rétt á meðal okk- ar. Og þegar talað er um Skarp- héðin er aðeins einn Skarphéðinn sem kemur til greina.“ Á námskeiðin flykkjast aðdá- endur Njálu en sennilega má segja að þeir séu ekki síður aðdáendur Jóns því margir koma aftur og aft- ur á námskeið hans. „Nú er ég komin aftur í tíma hjá þér,“ segir kona sem vindur sér upp að Jóni í anddyri Borgarleik- hússins, nokkrum mínútum áður en námskeiðið á að hefjast. Jón segir blaðamanni að margir nem- enda hans síðan hann kenndi í gagnfræðaskóla og menntaskóla sæki námskeiðin. „Elstu nemendur mínir sem ég kenndi í gagnfræða- skóla eru 63 ára,“ segir Jón. „Ég byrjaði svo snemma að kenna.“ Á Njálunámskeiðinu nú eru þátttakendur á öllum aldri og sam- kvæmt upplýsingum frá Endur- menntunarstofnun, sem í sam- starfi við Mími-Tómstundaskóla stendur fyrir Njálu-námskeið- unum, er sá elsti 82 en sá yngsti 15 ára. En er Jón farinn að kunna Njálu utanbókar? „Ja, ég hefur nú kunnað söguna nokkurn veginn utan að frá því ég var innan við tvítugt. Hún er ein af eftirlætis Íslendingasögunum mín- um, en það eru fimm, sex sögur sem ég geri ekki upp á milli.“ Á námskeiðinu nú verður fjallað um 1.–81. kafla, forleikina tvo og sögu Gunnars Hámundarsonar á Hlíðarenda. Efnisþáttur verður rakinn og skýrður. Einnig verður rætt um efnistök, sögusvið og helstu sögupersónur – einkum Hrút, Hallgerði, Gunnar, Kol- skegg, Mörð, Njál, Bergþóru og Skarphéðin. Þá verður greint frá ólíkum viðhorfum til þessa fólks og söguatburða. Jón Böðvarsson heldur sitt síðasta námskeið í Brennu-Njálssögu Kunni söguna utan að fyrir tvítugt Morgunblaðið/Þorkell Jón Böðvarsson heldur nú sitt síðasta námskeið um Njálu. RAUÐI kross Íslands gengst fyrir landssöfnun n.k. laugardag undir kjörorðunum Göngum til góðs, til styrktar hjálparstarfi í sunnanverðri Afríku, en markmiðið er að safna að minnsta kosti 20 milljónum króna. Úlfar Hauksson, formaður Rauða kross Íslands, segir að 80 söfnunar- staðir verði á landinu og þar af 30 á höfuðborgarsvæðinu, en stefnt sé að því að fá 2.000 sjálfboðaliða til að að- stoða við söfnunina. Skráning sjálf- boðaliða stendur yfir hjá deildum Rauða krossins og hjá félaginu en einnig er hægt að skrá sig á netinu (www.redcross.is). Gert er ráð fyrir að sjálfboðaliði, sem gangi í um tvo tíma, geti safnað um 10.000 krónum, sem nægi að gefa fimm manna fjölskyldu mat sem dugi í tvo mánuði. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er verndari Rauða krossins og verndari söfnunarinnar. Hann seg- ir að það sé sérstök ánægja að leggja þessari söfnun lið. Rauði krossinn hafi verið einn alþjóðlegasti fulltrúi Ís- lendinga í hjálparstarfi og Íslending- ar væru illa staddir í þessu alþjóðlega samfélagi án hans. Hann segir að fólkið í landinu hafi alla jafna stutt Rauða krossinn vel og vonandi njóti söfnunin þess, en hungursneyðin í Afríku sé eitt stærsta vandamál heims. Vandinn brenni fyrst og fremst á börnum og konum, en of lítið hafi verið gert að því að sýna í verki að vilji sé til þess að rétta þessu fólki hjálparhönd. Söfnun Rauða krossins sé að því leyti nokkur prófsteinn á samúð Íslendinga og vilja til að leggja sitt af mörkum. Sú staðreynd að Rauði krossinn sé alfarið með söfn- unina á sínum höndum tryggi líka að stuðningurinn komist í réttar hendur. Sigrún Árnadóttir, framkvæmda- stjóri Rauða krossins, kom frá Afríku um helgina, en þar fylgdist hún með matarúthlutun Rauða krossins. Hún segir að Rauði krossinn beini augum sínum að fimm löndum að þessu sinni, þ.e. Malaví, Swaziland, Lesotho, Zimbabwe og Zambia. Margir komi að aðstoðinni og Sameinuðu þjóðirnar samhæfi starfið en í hlut Rauða kross- ins komi að aðstoða um 750.000 manns fram í apríl. Hún segir að upp- skeran á svæðinu í fyrra hafi verið lé- leg og enn verri í vor en fyrir vikið eigi fólk ekki fyrir mat auk þess sem al- næmisvandinn auki vandann. Þriðji til fjórði hver maður í Malaví sé t.d. smitaður af alnæmisveirunni og börn séu oft höfuð fjölskyldna. Að sögn Sigrúnar er gert ráð fyrir að hver fimm manna fjölskylda þurfi um 50 kg af maís, 5 kg af sojablöndu, 5 kg af baunum og 5 kg af olíu á mánuði. Vandinn versni verði ekkert að gert og það sé hlutverk Rauða krossins að bregðast við með stuðningi. Íþróttahreyfingin þátttakandi Íþrótta- og Ólympíusamband Ís- lands er sérstakur samstarfsaðili Rauða krossins við söfnunina. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, segir að af- mælisverkefni sambandsins, Ísland á iði, falli vel að söfnuninni. Eitt stærsta vandamál Íslendinga sé hreyfingar- leysi og offita og heilsuleysi því sam- fara, en það sé með mikilli ánægju sem ÍSÍ taki þátt í þessu verkefni með Rauða krossinum. ÍSÍ hvetji sitt fólk, íþróttafélög og í raun alla Íslendinga til að hreyfa sig, ganga til góðs og safna fé í þetta góða málefni. Söfnun Rauða krossins vegna hungursneyðar í Afríku Markmiðið að safna 20 milljónum króna Morgunblaðið/Kristinn Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Ellert B. Schram, forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, kynna landssöfnunina. MAÐUR sem var handtekinn á föstudagskvöld vegna reksturs spilavítis í miðborg Reykjavíkur var dæmdur í skilorðbundið fang- elsi fyrir tæpum 10 árum vegna spilavítisreksturs í Ármúla í Reykjavík. Að kröfu lögreglunnar í Reykja- vík var hann úrskurðaður í gæslu- varðhald til 4. október nk. Árið 1993 var hann, ásamt tveimur öðrum mönnum, dæmdur fyrir að reka spilavíti í húsnæði í Ármúla 15. Þegar lögreglan í Reykjavík lokaði spilavítinu í októ- ber 1992 var lagt hald á spilapen- inga og sérsmíðuð spilaborð auk umtalsverðs magns af áfengi. Hér- aðsdómur Reykjavíkur dæmdi mennina í þriggja mánaða fang- elsi, skilorðsbundið til þriggja ára og var þeim öllum gert að greiða tvær milljónir í sekt. Skömmu fyrir miðnætti sl. föstudagskvöld lokaði lögreglan spilavíti í viðbyggingu við Suður- götu 3, í portinu á bak við Her- kastalann og húsnæði Happdrætt- is Háskólans og lagði hald á borð og fleira sem tengdist rekstrinum. Á þriðju milljón í reiðufé Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu var einnig lagt hald á vel á þriðju milljón króna í reiðufé og nokkurt magn af áfengi. Kemur því væntanlega til álita hvort brot- ið hafi verið gegn áfengislögum en staðurinn hafði ekki vínveitinga- leyfi. Í 183. grein almennra hegn- ingarlaga er lagt bann við að gera sér fjárhættuspil eða veðmál að at- vinnu eða að koma öðrum til þátt- töku í þeim. Varðar slíkt sektum eða fangelsi í allt að eitt ár. Í 184. grein segir að hver sem afli sér tekna, beint eða óbeint, af því að láta fjárhættuspil eða veðmál fara fram í húsnæði sem hann hefur umráð yfir skuli sæta sektum eða fangelsi í allt að eitt ár. Rak spilavíti í Ár- múla fyrir tíu árum Maður situr í gæsluvarðhaldi vegna spilavítisreksturs í miðborginni SKELJUNGUR hefur keypt hlutabréf í Fjárfestingarfélag- inu Straumi hf. að nafnverði kr. 160.000.000. Eignarhlutur Skelj- ungs er nú 5,7% en var áður enginn. Lokaverð með hlutabréf Straums í Kauphöllinni í gær var 3,02. Þá seldu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. í gær hlutabréf í Skeljungi hf. að nafnverði kr. 20.000.000. Frá þessu var greint í flöggunum frá félögunum Kauphöll Íslands í gær. Eignarhlutur Sjóvár-Al- mennra trygginga er nú 7,59%, eða kr. 57.346.488 að nafnverði, en var áður 10,24% eða kr. 77.346.488 að nafnverði. Síðasta viðskiptaverð með hlutabréf Skeljungs í gær var á genginu 14,60. Skeljungur kaupir hlutabréf í Straumi EKKI hefur verið staðfest með óyggjandi hætti hvaða vopni var beitt þegar maður var stunginn í íbúð við Klapparstíg 11 að kvöldi fimmtudags en maðurinn lést af sár- um sínum stuttu síðar. Lögreglan í Reykjavík fann nokkra hnífa og önnur hættuleg áhöld við húsleit í íbúðinni en ekki hefur verið staðfest að morðvopnið sé þar á meðal. 35 ára gamall Reyk- víkingur, Steinn Ármann Stefáns- son, situr í gæsluvarðhaldi á Litla- Hrauni vegna málsins. Hann hefur ekki játað að hafa ráðist á manninn, hvorki við yfirheyrslur né fyrir dómi. Játning ligg- ur ekki fyrir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.