Morgunblaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 51 DAGBÓK Mörkinni 6, sími 588 5518 Nýjar vörur Opið virka daga frá kl. 9-18. Laugardaga frá kl. 10-15. Úlpur, ullarstuttkápur, hattar, húfur og kanínuskinn Kristinn P. Benediktsson, sérfræðingur í almennum skurðlækningum og þvagfæraskurðlækningum Hef opnað stofu hjá Lækningu í Lágmúla 5 Sérgrein: Almennar skurðlækningar og þvagfæraskurðlækningar, sérsvið brjóstaskurðlækningar. Hef áralanga reynslu í hvers konar skurðlækningum og þvagfæra- skurðlækningum og býð alla velkomna til viðtals og aðgerða. Viðtalspantanir í síma 533 3131 eða 894 0569 Dönsk gæði fyrir betri mat á borðið  Glerkeramik húðaðar pönnur og pottar  Steiking án feiti  Maturinn brennur ekki við  Mjög auðvelt að þrífa  Nikkelfrí húð sem flagnar ekki af  Þolir allt að 260° hita í ofni  Málmáhöld leyfileg  Þvoist með sápu  2 ára ábyrgð Hin fitulausa panna Síon ehf. - GASTROLUX Íslandi Smiðjuvegi 11, gul gata, Kópavogi, sími 568 2770 og 898 2865. ein sta ka Margar stærðir og gerðir. Líttu við hjá okkur eða pantaðu pöntunarlista Tilvalin tækifæris- og brúðkaupsgjöf Handklæði & flíshúfur . Fáið sendan myndalista Myndsaumur Reykjavíkurvegur 62 220 Hafnarfjörður Sími 565 0488 www.myndsaumur.is Innifalið1 stækkun, 30x40 cm í ramma, aðrar stækkanir að eigin vali, með allt að 50% afslætti Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207. Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020. Barnamyndatökur - Tilboð í október kr. 6.000. Afmælisþakkir Innilegar þakkir til allra sem glöddu mig og sýndu mér hlýhug á 90 ára afmæli mínu þann 8. september sl. með heimsóknum, gjöfum og skeytum. Sérstakar þakkir til barna, tengda- barna og barnabarna fyrir yndislega daga í Skorradal í júní sl. og ferðalag. Kær kveðja, Dóra á Hellu. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake VOG Afmælisbörn dagsins: Þú ert sjálfstæður og vilt sem minnst afskipti annarra af þínum högum. Þetta er lofsverð afstaða en getur þó stundum valdið árekstrum. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Gættu þess að hafa ekki of mörg járn í eldinum. Njóttu lífsins og láttu allar áhyggj- ur lönd og leið á meðan. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þótt þú lendir í einhverju mótlæti um skeið máttu ekki láta það á þig fá. Gefðu þér tíma til að hafa samband við vini og ættingja. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Dagurinn hentar vel til að ræða við yfirmann þinn. Vandamálin eru eftir sem áður til staðar og eina leiðin er að bretta upp ermarnar og leysa þau. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Sígandi lukka er best svo vertu bara rólegur og taktu einn dag fyrir í einu og gerðu þitt besta. Njóttu vinnu þinnar. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Leggðu höfuðið í bleyti. Láttu samt árangurinn ekki stíga þér til höfuðs, því dramb er falli næst. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Nú er rétti tíminn til þess að segja þínum nánustu hvað þér býr í brjósti. Sýndu þessum aðilum lipurð en ef hún dugar ekki þá er það harkan sex sem gildir. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Góður vinur leitar ásjár hjá þér og þú verður að gefa þér tíma til þess að sinna hon- um. En gættu þess að það gangi ekki of langt. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú átt í innri baráttu og veist varla í hvorn fótinn þú átt að stíga. Leyfðu þér líka að slaka á og sletta úr klauf- unum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Leyfðu sköpunarþrá þinni að fá útrás þótt þér finnist ekki mikið til um afrakstur- inn. Ekki dæma þig of hart. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þér hættir til að eyða um efni fram í skemmtanir og afþreyingu í dag. Þú hefðir gott af því að heyra hvað vinum þínum finnst um mál- ið. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Það er stutt í einhvern stór- atburð sem þú þarft að vera reiðubúinn fyrir hvað sem það kostar. Reyndu að fara fram af varkárni. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Sú stund kann að koma, að rétt sé að halda að sér hönd- um og láta hlutina hafa sinn gang. Þá muntu sjá að oft er betra um að tala en í að komast. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Hlutavelta 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. a3 Bb7 5. Rc3 d5 6. Bg5 Be7 7. Da4+ c6 8. cxd5 Rxd5 9. Bxe7 Rxe7 10. e4 0-0 11. Hd1 Rd7 12. Be2 Dc7 13. 0-0 Hfd8 14. Hfe1 a6 15. Db3 Hac8 16. Bc4 Df4 17. Re2 Dh6 18. Rg3 b5 19. Bf1 Rg6 20. Dc3 Rh4 21. Rxh4 Dxh4 22. b4 De7 23. e5 f5 24. exf6 Rxf6 25. Db3 Df7 26. Dxe6 Dxe6 27. Hxe6 Hc7 28. Rf5 Kf8 29. Rd6 Bc8 30. Rxc8 Hdxc8 31. g3 He7 32. He5 Rd7 33. Hf5+ Ke8 34. Hc1 He6 35. Bh3 He4 36. Hg5 g6 37. Hd5 Hc7 Staðan kom upp í Evrópu- keppni taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í Halki- diki á Grikklandi. Hristos Banikas (2.521) hafði hvítt gegn Hannesi Hlífari Stefáns- SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. syni (2.588). 38. Hxc6! og svartur gafst upp enda verður hann manni undir eftir 38. ...Hxc6 39. Bxd7+. Taflfélagið Hellir tók þátt í keppninni og fékk samtals 6 stig af 14 mögulegum og lenti í 26.–31. sæti. Árangur liðsmanna varð þessi: Hannes Hlífar Stefánsson 4 v. af 7 mögulegum, Helgi Ólafsson 3 v., Ágúst Sindri Karlsson 3 v., Snorri G. Bergsson 3½ v., Ingvar Ás- mundsson 1½ v. af 6, Andri Áss Grétarsson 3½ v. af 6. og Gunnar Björnsson ½ af 2. LJÓÐABROT FOSSANIÐUR Þá væri, Sjáland, sælla hér sumarið þitt og blómin, ef þú gætir gefið mér gamla fossaróminn. Hefði allur auður þinn eitthvað slíkt að bjóða, léti ég fyrir lækinn minn leikhússönginn góða. Þó að vanti þennan nið, þér finnst ekki saka. Engir hérna utan við eftir þessu taka. Þorsteinn Erlingsson Morgunblaðið/Sverrir Þessi duglegi drengur, Gunnar Þór Sigurjónsson, safnaði flöskum að andvirði 5.473 króna til styrktar Rauða krossi Íslands. Morgunblaðið/Ingibjörg Þessi duglega stúlka, Sig- urborg Hanna Sigurjóns- dóttir, hélt tombólu og safnaði 1.071 krónum til styrktar Rauða krossi Ís- lands. ICERELAY er biðsagna- kerfi sem Jón Baldursson þróaði upp úr Geirfuglalaufi Ásgeirs Ásbjörnssonar. Kerfið nýtur sín best þegar spilin eru sterk og slemma liggur í loftinu. Annar aðil- inn tekur þá að sér að spyrja makker sinn í þaula um skiptingu, styrk, háspil og staðsetningu þeirra. Stund- um er meira að segja hægt að spyrja um gosa. Þeir sem kunna kerfið skemmta sér konunglega þegar „relayið“ kemur upp, en andstæðing- arnir horfa þreytulega til lofts eða hreinlega dotta yfir spilunum á meðan. Því allt tekur þetta sinn tíma: Suður gefur; AV á hættu. Norður ♠ D1043 ♥ Á1087 ♦ – ♣ÁD1073 Vestur Austur ♠ 65 ♠ 9 ♥ G ♥ 96432 ♦ Á109753 ♦ KD86 ♣K864 ♣952 Suður ♠ ÁKG872 ♥ KD5 ♦ G42 ♣G Ísak Örn Sigurðsson og Ómar Olgeirsson spila óvenjulegt kerfi. Að grunni til er kerfið byggt á Stand- ard, en þeir nota Icerelay- framhald eftir opnun á hálit. Spilið að ofan kom upp í tví- menningskeppni hjá Brids- félagi Kópavogs á fimmtu- daginn og gaf þeim félögum tækifæri til að beita „rela- yinu“. Ísak var í norður, en Ómar í suður: Vestur Norður Austur Suður – – – 1 spaði Pass 2 lauf Pass 2 tíglar (1) Pass 2 hjörtu Pass 3 lauf (2) Pass 3 tíglar Dobl 3 hjörtu (3) Pass 3 spaðar Pass 4 lauf (4) Pass 4 tíglar Pass 4 spaðar (5) Pass 4 grönd Pass 5 tíglar (6) Pass 5 hjörtu Pass 5 spaðar (7) Pass 5 grönd Pass 6 spaðar (8) Pass 7 spaðar Allir pass Allar sagnir norðurs nema lokasögnin eru merk- ingarlaust kvak, biðsagnir, sem hafa það hlutverk eitt að bíða eftir svari frá makk- er. Opnun suðurs lofar fimmlit í spaða og síðan byrjar Ómar að lýsa spilum sínum á kerfisbundinn hátt: (1) A.m.k. sexlitur í spaða. (2) Sexlitur í spaða og þrílitur í hjarta. (3) Þrír tíglar og eitt lauf, sem sagt skiptingin: 6-3-3-1 (4) Fjögur „kontról“ (ás=2, kóngur=1). (5) Fyrirstaða í spaða, en ekki í tígli. (6) Fyrirstaða í hjarta og afneit- un á spaðadrottningu. (7) Afneitun á tíguldrottningu. (8) Hjartadrottning og gosarnir í spaða og tígli! Eftir þessar sagnir var vestur vakinn af blundi sín- um með þeim orðum að hann ætti út. Vestur spurði um sagnir. Hann hlustaði af athygli, en spurði svo: „Er þá ekkert vitað um laufgos- ann?“ BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Morgunblaðið/Jim Smart Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 5.100 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Eva Mjöll Sig- urjónsdóttir og Kristín Laufey Halldórsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj@mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.