Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 11

Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 11 TVEIR breskir sérfræðingar sem aðstandendur tveggja farþega sem fórust eftir flugslys í Skerjafirði 7. ágúst 2000 fengu til að fara ofan í skýrslu Rannsóknanefndar flug- slysa, RNF, um slysið, athuga gögn um slysið og rannsókn þess og leggja fram tillögur um hvað hugs- anlega má betur fara hafa nú skilað skýrslu sinni. Meðal niðurstaðna þeirra er að rannsóknin hafi ekki verið eins ítarleg og nauðsynlegt var þrátt fyrir að hún hefði farið fram eftir reglum, að rannsakendur hefðu komist fljótt að þeirri nið- urstöðu að orsakir slyssins mætti rekja til þess að flugmaðurinn hefði leyft sér að vera með hættulega lít- ið eldsneyti og ekki hefði verið fylgt nægilega eftir vísbendingum um aðrar orsakir, eins og til dæmis vélarbilun. Þá segir að miðað við óþekkta og klárlega vafasama sögu mótorsins hefði vélin ekki átt að hafa fengið lofthæfisskírteini. Að- standendurnir hafa farið fram á það við yfirvöld að rannsóknin verði tekin upp aftur. Aðstandendur tveggja þeirra sem létust af völdum flugslyssins fengu bresku sérfræðingana Bernie Forward og Frank Taylor til að fara yfir skýrslu Rannsóknanefndar flugslysa og kringumstæður sem leiddu til slyssins þegar vél af gerð- inni Cessna 210, TF GTI, fórst í Skerjafirði að kvöldi frídags versl- unarmanna, 7. ágúst 2000, og með henni flugmaðurinn og fimm far- þegar. Fjórir létust strax en tveir allnokkru síðar. Verkefni þeirra var að fara yfir og endurskoða skýrslu RNF og önnur gögn sem aðgengi- leg voru, gefa umsögn um gögnin, rannsóknina, um gæði skýrslunnar og umfang, niðurstöður og tillögur í öryggisátt. Einnig að koma með ábendingar sem væru viðeigandi um rannsóknarvinnuna, skýrsluna og niðurstöður hennar og rannsaka það sem kynni að skipta máli varð- andi slysið og þá sem hlut áttu að máli. Í inngangi skýrslunnar benda þeir á að því hafi verið haldið fram að Ísland fullnægi kröf- um ICAO varðandi rannsóknir á flugslysum en almenningur viti hugsanlega ekki að staðlar ICAO séu lág- marksstaðlar sem 188 ríki hafi fall- ist á. Flest þróuð ríki reyni að gera meiri kröfur varðandi allan flug- rekstur og gera megi ráð fyrir að Ísland vilji teljast í hópi þeirra ríkja fremur en þeirra sem geri minni kröfur. Lagðar eru til þrjár tillögur í ör- yggisátt í bresku skýrslunni. 1. Með tilliti til efasemda skýrsl- unnar um líklegustu orsök slyssins, þær er varða lofthæfisskírteini vél- arinnar og galla á leitar- og björg- unarrannsókn er mælt með því að fara fram á það við íslensk stjórn- völd að ný rannsókn fari fram eftir því sem mögulegt er til að ganga úr skugga um að allar viðeigandi til- lögur í öryggisátt séu gerðar. 2. Mælt er með því að fara fram á það við íslensk stjórnvöld að sé frumskýrsla vegna flugslysarann- sóknar gefin út verði hún jafnan send öllum aðilum sem koma við sögu en ekki aðeins einum. 3. Mælt er með því að farið sé fram á það við íslensk stjórnvöld að tillögum RNF í öryggisátt (eldri, núverandi og til framtíðar) verði jafnan hrundið í framkvæmd nema góðar og gildar ástæður séu til- færðar fyrir því að gera það ekki. Skýrslan afhent yfirvöldum Þeir sem fóru fram á rannsókn bresku sérfræðinganna, Friðrik Þór Guðmundsson og Jón Ólafur Skarphéðinsson, hafa sent ríkis- stjórninni framangreindar kröfur og óskað eftir því með bréfi að rannsóknin verði tekin upp. Jón Ólafur tjáði Morgunblaðinu í gær að samgönguráðherra og forsætis- ráðherra hefðu fengið skýrsluna, svo og Rannsóknarnefnd flugslysa og Flugmálastjórn. Bretarnir segja í skýrslu sinni að þeim hafi verið falið að gefa um- sögn um rannsóknina og loka- skýrslu RNF og þegar haft sé í huga að margt sé endurskoðað frá frumskýrslu til útgáfu lokaskýrslu virðist ekki viðeigandi að dvelja um of við frumskýrslur. Samt sem áður hafi þeir gert það vegna breytinga frá frum- skýrslu til lokaskýrslu ef vera kynni að það varp- aði ljósi á rannsóknar- ferlið. Þá segja þeir skýrslu sinni beint til ættingja þeirra sem létust í þeirri von að draga megi af henni gagnlegan lær- dóm til að forðast slys og mann- skaða í framtíðinni. Vitna þeir til þeirrar stefnu Alþjóðaflugmála- stofnunarinnar, ICAO, að eini til- gangur rannsókna og skýrslu um þær sé að afstýra slysum og bjarga mannslífum í framtíðinni en ekki að finna sökudólg og segja bresku sér- fræðingarnir tilgang sinn þann sama og treysti þeir því að skýrslan og niðurstaðan verði notuð í þeim anda. Í inngangi skýrslunnar benda þeir á að því hafi verið haldið fram að Ísland fullnægi kröfum ICAO varðandi rannsóknir á flugslysum en almenningur viti hugsanlega ekki að staðlar ICAO séu lág- marksstaðlar sem 188 ríki hafi fall- ist á. Flest þróuð ríki reyni að setja fram meiri kröfur varðandi allan flugrekstur og gera megi ráð fyrir að Ísland vilji teljast í hópi þeirra ríkja fremur en þeirra sem geri minni kröfur. Skýrslu bresku sérfræðinganna er skipt í nokkra kafla og er fjallað um gæði skýrslunnar og rannsókn- arinnar, samband og samskipti RNF og Flugmálastjórnar, útreikn- inga á eldsneyti, hugsanlega mót- orbilun, sögu mótorsins, fráhvarfs- flugið, eftirlit Flugmálastjórnar með flugrekendum í Vestmannaeyj- um umrædda verslunarmannahelgi, horfur á að komast af og neyð- arviðbrögð. Byggt of mikið á tilgátum Um skýrslu RNF segir almennt að hún sé í samræmi við fyrirmæli Alþjóðaflugmálastofnunarinnar. Samt sem áður sé mikið af grein- ingu skýrslunnar byggt á tilgátum en ekki hörðum sönnunargögnum. Sérstaklega eigi það við um þá nið- urstöðu að eldsneytistankurinn sem notaður var hafi verið orðinn tóm- ur, þar hafi verið byggt á áætluðum útreikningum og ákveðnum tilgát- um miðað við stöðu stjórntækja eldsneytiskerfa. Staðhæft hafi verið í skýrslunni að ekki hafi verið hægt að meta stöðu vélarhlífa þar sem þær gætu hafa breyst við höggið þegar vélin lenti í sjónum en ekki hafi verið efast um stöðu rofa sem ákvarðar val á eldsneytistanki. Snemma hafi verið komist að þeirri niðurstöðu að meginorsök slyssins hafi verið eldsneytisskortur hver sem ástæðan hafi verið og það sé m.a. stutt með yfirborðslegri rann- sókn á mótor vélarinnar. Ekki hafi farið fram ítarleg rannsókn á snún- ingshlutum mótorsins og engin til- raun verið gerð til að meta ástand mótors með olíusýnishornum sem hefðu annaðhvort getað staðfest eða útilokað það að mótorinn hefði brætt úr sér. Þá er spurt hvar sé sönnun þess að flugmaðurinn hafi ekki athugað eldsneytisbirgðir vélarinnar. Stað- hæft sé í skýrslu RNF að enginn starfsmaður á Vestmannaeyjaflug- velli minnist þess að hafa séð flug- manninn mæla eldsneyti meðan hann var þar. Sú staðreynd að eng- inn muni eftir að hafa séð hann mæla þýði ekki að hann hafi ekki gert það, sérstaklega þegar ann- ríkið á vellinum þennan dag sé haft í huga. Segja olíusýni grundvallaratriði Um mögulega úrbræðslu mótors- ins segja bresku sérfræðingarnir að áður en fallist sé á að hann hafi orðið eldsneytislaus sé nauðsynlegt að athuga aðrar skýringar sem álykta megi af efni skýrslunnar. Ekki sé í henni getið um að olíusían hafi verið skoðuð og ekkert sé skráð um greiningu á olíu sem kunni að hafa verið eftir í mót- ornum. Það sé grundvallarregla vandaðrar slysarannsóknar að olíu- sýni séu tekin og rannsökuð. Þá segir einnig að grundvallaratriði í slysarannsókn við vélarbilun sé að meta ástand olíu mótorsins þegar hann stöðvaðist. Engin tilraun virð- ist hafa verið gerð til slíkra rann- sókna, hugsanlega vegna þess að rannsakendur hafi þegar ákveðið að líklegasta orsök slyssins hafi verið eldsneytisskortur. Mikið sé gert úr eldsneytistöku og eldsneytisnotkun en ekki minnst á neina tilraun til að ákvarða hversu mikil ol- ía hefði brunnið eða hvort einhverju sinni hefði verið bætt á vél- arolíuna. Með hliðsjón af eðli og fjölda flugferða hljóti olíunotkun að hafa verið mikil og þegar haft sé í huga að nokkur vafi sé á sögu mótorsins kunni olíu- eyðsla vel að hafa átt þátt í slysinu. Vísað er til þeirra orða í skýrslu RNF að olíulok hafi vantað á mót- orinn og hafi líklega farið af við höggið eða þegar vélin var fjarlægð af slysstaðnum. Segir að þessi nið- urstaða sé studd því að enga olíu hafi verið að finna í mótornum eða vélarhlífum eins og verið hefði ef lokið hefði losnað á flugi. Þótt skýrslur væru um eldsneyti í sjón- um á slysstað hefði ekki verið minnst á olíu sem hefði fundist þar mun lengur en eldsneytið miðað við hversu kyrrt var í sjó. Án olíuloks hefði olían, öll eða megnið af henni, farið af mótornum miðað við stöðu hans í sjónum. Samt séu engar skýrslur um olíu. Í skýrslunni segi að mótorinn hafi verið fullur af sjó sem bendi til þess að of lítil olía hafi verið eftir í hreyflinum til að rannsaka. Segja bresku sérfræðing- arnir að þegar þessi rök séu höfðu í huga og að kæliblöðkur kunni að hafa verið lokaðar eins og áætla megi af stöðu handfangs í stjórn- klefa ásamt því að upplýsingar skorti um ástand olíu á mótornum við slysið verði úrbræðsla eða fest- ing mótors að teljast hugsanleg or- sök þess að hann stöðvaðist. Bretarnir segja að við lestur skýrslunnar vakni nokkar spurn- ingar um samband RNF og Flug- málastjórnar. Segja þeir eðlilegt að frumdrög skýrslu séu send til um- sagnar þeim málsaðilum, hverra orðspor skýrslan geti haft áhrif á, áður en hún er birt. Þetta hafi RNF gert í tilviki Flugmálastjórn- ar en virðist ekki hafa átt við um alla málsaðila. Þetta hefði átt að gera varðandi dánarbú flugmanns, flugrekandann, viðhaldsverkstæðið og hugsanlega flugumferðarstjór- ann. Vitnað er til staðhæfingar RNF í frumskýrslunni að flugvélin hefði ekki verið hæf til flugs í samræmi við reglur. Ljóst sé að RNF hafi talið næg gögn styðja slíka stað- hæfingu. Í umsögn Flugmálastjórn- ar um frumskýrsluna segi hins veg- ar að ekki sé hægt að samþykkja slíka staðhæfingu og henni verði að breyta. Segir að lokaskýrslan greini í engu frá því að vélin hafi ekki ver- ið flughæf þótt nægileg gögn bendi til þess. Bent er á aðra staðhæfingu, þess efnis að flugmaðurinn hafi verið við störf í 13 tíma þegar slysið varð en 10 tímar séu hámarksflugtími sam- kvæmt íslenskum reglum. Flug- málastjórn hafi vísað þessu atriði frá með því að benda á að 13 tímar séu langt frá því hámark ef flug- vakt hefur lengst vegna ófyrirsjá- anlegra atvika eftir að flug er hafið og ófyrirséð atvik koma upp í loka- ferð. Í skýrslu Bretanna segir að þetta sé óskiljanlegt þar sem stað- reynd sé að flugmaðurinn hafi farið margar ferðir eigi því ekki við í til- viki hans. Þótt það sé mjög viðeigandi fyrir RNF að bjóða Flugmálastjórn að gefa umsögn verði nefndin að vera mjög vakandi fyrir því að láta ekki undan óviðeigandi þrýstingi við lokaútgáfu skýrslu. Er gefið í skyn að tónninn í umsögn Flugmáls- tjórnar sé öflugur og að henni hafi tekist að sannfæra RNF um að breyta staðhæfingum í skýrslunni er vörðuðu atriði sem Flugmála- stjórn væri veikust fyrir gagnrýni á. Í kafla þar sem fjallað er um frá- hvarfsflug GTI segir að það hafi verið alvarlegasta atriðið í þeirri röð atvika sem leiddi til slyssins. Segja Bretarnir að flugumferðar- stjórinn hafi haldið vel á spöðunum og raddir hans og flugmanna hafi verið rólegar jafnvel þegar GTI var beðin að fresta aðflugi og ekki hefði mátt greina streitu í rödd flug- mannsins. Þá er fjallað um eftirlit af hálfu Flugmálastjórn- ar með flugrekstri í Vestmannaeyjum og vís- að til orða í skýrslu RNF þar sem segir að Flugmálastjórn hafi haft viðbúnað í Eyjum og sent þangað nokkra starfsmenn til aðstoðar og öryggisgæslu. Þrátt fyrir þetta hafi starfsmönnum Flugmálastjórnar yfirsést að flugmaður GTI hafi far- ið framúr leyfðum flugtíma. Segir að furðulegt sé að ekki skuli hafa verið gerðar ráðstafanir til að hafa eftirlit með flugöryggi á þjóðhátíð og að hefðu slíkar ráðstafanir verið gerðar væri líklegt að tekið hefði verið eftir mjög lengdum flugtíma umrædds flugmanns. Þá segir í bresku skýrslunni að eftir þetta hafi eftirlit með flugrekstri verið aukið kringum þjóðhátíð. Í lokin leggja skýrsluhöfundar til að björgunarþættir verði hluti rannsóknar flugslysa eða að annar hópur verði fenginn til að starfa með RNF geri lög eða venjur það erfitt. Breskir sérfræðingar telja aðrar orsakir en bensínleysi jafnlíklegar fyrir flugslysinu í Skerjafirði Leggja til nýja rannsókn til að tryggja öryggistillögur Aðstandendur tveggja pilta er fórust eftir flug- slys í Skerjafirði í ágúst 2000 hafa óskað eftir því við íslensk stjórnvöld að ný rannsókn fari fram á orsökum slyssins. Morgunblaðið/Kristinn Krani köfunarpramma hífir flak flugvélarinnar TF-GTI af botni Skerjafjarðar. Allir aðilar málsins áttu að fá frumdrög Ný rannsókn verði gerð vegna galla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.