Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 17
UMFERÐARRÁÐ
SKRÁNINGARSTOFAN
UMFERÐARSTOFA
Nýtt nafn í umferð
Umferðarstofa er ný stofnun sem annast mun þau verkefni sem
Skráningarstofan hf. og Umferðarráð hafa annast.
Markmiðið með stofnun Umferðarstofu er að gera stjórnsýslu umferðarmála
skilvirkari og árangursríkari.
Hlutverk Umferðarstofu er að hafa með höndum umsýslu með skráningu
ökutækja, annast ökupróf og hafa umsjón og eftirlit með ökunámi og
starfrækslu ökuskóla.
Umferðarstofa annast fræðslu um umferðarlöggjöf og hefur forgöngu um
að styðja aðgerðir sem stuðla að auknu umferðaröryggi og bættri
umferðarmenningu.
Umferðarstofa annast gerðarskráningu ökutækja fyrir öll Norðurlöndin.
Umferðarstofa leggur ríka áherslu á að vinna í nánu samstarfi við þá aðila,
félög, samtök og stofnanir, sem tengjast umferðaröryggismálum.
Enda þótt verkefnin sem Umferðarráð hefur annast til þessa færist til
Umferðarstofu mun Umferðarráð, sem skipað er 22 fulltrúum ýmissa aðila
sem tengjast umferðaröryggismálum, starfa áfram að ákveðnum verkefnum.
Borgartún 30 • 105 Reykjavík • Sími 580 2000 • www.us.is
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
•
N
M
0
7
3
8
3
s
ia
.i
s