Morgunblaðið - 01.10.2002, Side 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 35
Verð og gæði fara saman
Skjót og persónuleg þjónusta fagmanna
Allt fyrir málningarvinnuna
Íslensk hágæðamálning
MÁLNINGARTILBOÐ
í verslunum Hörpu Sjafnar
FYRIR nokkrum mánuðum hafði
Hjálmar Árnason alþingismaður
samband við undirritaðan vegna mik-
illar óánægju Vestmannaeyinga og
annarra sem nýta sér þann farkost
sem í boði er í dag milli lands og eyja,
einkum þó ferjuna Herjólf.
Ferðir skipsins hafa þótt of fáar og
skipið of hæggengt miðað við nútíma-
kröfur.
Þessa dagana hefur reynt töluvert
á þolinmæði þeirra sem þurfa að nýta
sér skipið á meðan Herjólfur fór í
slipp til Danmerkur, því í staðinn kom
flóabáturinn Baldur sem tekur „að-
eins“ um fjórar klukkustundir rúmar
að sigla milli Þorlákshafnar og Vest-
mannaeyja.
Við venjulegar aðstæður tekur um
það bil tvær klukkustundir fjörutíu og
fimm mínutur fyrir Herjólf að sigla
þessa leið, eða rétt um þrjár klukku-
stundir.
Eftir að hafa kannað lítillega loft-
púðaskip sem okkur buðust í Bret-
landi fékkst sú niðurstaða að þau skip
væru alltof gömul, hávaðasöm og dýr í
rekstri, enda hafa loftpúðaskip þessi
legið á söndum við suðurströnd Eng-
lands í langan tíma og skilst mér að
þau verði sett á byggðasafn þar.
Ekki tók langan tíma að finna
áhugaverð skip, svokölluð „mono-
hull“-skip sem í raun og veru eru ekk-
ert annað en hefðbundin einskrokka
skip. Þessi skip, „Shannon Alexis“ og
„St. Matthews“, eru smíðuð og hönn-
uð hjá þekktri ítalskri skipasmíðastöð
að nafni Fincantieri og er sú skipa-
smíðastöð sú áttunda stærsta í heimi
miðað við veltu á ársgrundvelli.
Sl. föstudag var haldinn opinn
fundur í Vestmannaeyjum sem hópur
manna stóð fyrir er sjá brýna þörf
fyrir háhraðaskip til að stytta sigl-
ingatímann á þessari siglingaleið. Á
sama fundi voru samgöngunefnd
þeirri, sem taka á til greina þessi mál,
afhentir undirskriftalistar þar sem
tvö þúsund og tvö hundruð manns
mótmæla núverandi ástandi. Ýmsir
aðilar tóku til máls, undirritaður
kynnti ofangreindar ferjur, þing-
menn, fyrrverandi þingmenn og
nefndarmenn ræddu sínar skoðanir á
málinu og var farið svo langt í um-
ræðunni að nefna jafnvel vegagerð
milli lands og eyja. Jarðgangagerð
uppá tugi milljarða króna var rædd,
þó svo að kannanir gerðar af sérfræð-
ingum hafi sýnt fram á að enginn eða
lítill grundvöllur sé fyrir slíku, svo
ekki sé minnst á jarðskjálfta sem gæti
haft í för með sér alvarlegar afleið-
ingar fyrir jarðgöng, sérstaklega á
þessum stað á Íslandi.
Nýtt skip
Eins og að ofan greinir, hefur und-
irritaður boðið ríkinu til sölu ofan-
greind skip og nokkur önnur. Fljót-
lega fóru að heyrast raddir sem segja
að þessi skip eyði of miklu eldsneyti,
ekki séu svefnklefar í þeim, veltiugg-
ar og svo framvegis.
Vissulega er í skipinu mjög öflugur
vélbúnaður sem þarf til að drífa áfram
svo þungt skip hlaðið ökutækjum,
vöruflutningabifreiðum, rútum,
vörum og fólki. Nóg pláss er um borð
til að útbúa svefnklefa ef á þarf að
halda, en höfum það hugfast að sigl-
ingatíminn með þessum skipum væri
ekki nema rétt um ein klukkustund
þannig að ekki er langur tími til að ná
að festa svefn. Skipið er útbúið með
veltikjölum sem draga til muna úr
veltingi skv. þeim upplýsingum sem
ég hef.
Varðandi olíueyðslu er vert að
nefna að hlutfallslega eyðir svona
skip ekki miklu meira en Herjólfur í
dag, en siglingatíminn styttist til
muna og spurningin er hvort umræð-
an varðandi eyðslustölur gleymist
ekki þegar athugað er hvaða mögu-
leikar fylgja því að stytta siglingatím-
ann milli lands og eyja. Við styttri
siglingatíma hljóta möguleikar fyrir
ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum að
margfaldast það mikið að auka þyrfti
vinnuafl í þeim geira svo um munaði í
samræmi við það. Eins og flestir vita
eru Vestmannaeyjar náttúruperla
sem margir vita af erlendis en hafa
sjaldnast tíma til þess að komast til og
frá Vestmannaeyjum. Tugþúsundir
ferðamanna fara um Suðurland á
hverju ári, að sjálfsögðu aðallega um
sumartímann og flestir sjá Vest-
mannaeyjar rísa upp úr sjóndeildar-
hringnum, sjá þær aðeins í fjarlægð
frá landi. Það myndi breytast veru-
lega að mínu mati ef slíkt skip, sem að
ofan er greint frá og boðið er til sölu,
myndi leysa Herjólf af.
Komið hefur fram að könnun, sem
samgöngunefndin lét gera fyrir sig,
sýnir fram á að skip sem þessi myndu
alls ekki henta við þessar aðstæður
sem ríkja á sjóleiðinni milli lands og
eyja. Það kann að vera rétt að svo sé
gefið upp í flokkunarfélagsvottorðum
skipanna, en skv. mínum heimildum
eru það leiðbeinandi tölur og engu að
síður hafi skipin verið notuð við mun
verri aðstæður en hámarkið sem
nefnt var, eða um 5,2 metra ölduhæð.
Við skulum hafa það hugfast að þessi
skip eru smíðuð úr sérstyrktu skipa-
stáli sem er með hærra núningsþol en
hefbundið skipastál og skipin eru af
stærri gerðinni eða um 95 metra löng.
Ég spyr þá: er ekki vert að athuga
siglingar Herjólfs sem núna er í notk-
un og er mun minna skip, hvort það
skip þoli þennan öldugang eða hafi
eitthvað út úr höfn að gera við þetta
sérstaka sjólag milli lands og Eyja?
Ég tel að sú ákvörðun um hvort sigla
eigi eða ekki vegna sjólags eigi að
liggja hjá skipstjóra skipsins hverju
sinni, enda á hann að þekkja sjólagið
og skipið vel. Það að fá stærra og öfl-
ugra skip fyrir þessa siglingaleið er í
mínum huga ekkert annað en meira
öryggi.
Sl. mánuði hef ég kynnt mér há-
hraðaferjur og hefðbundin ferjuskip
með upplýsingum frá fagmönnum,
samstarfsskipamiðlurum og í fræði-
ritum og flestir eru á sama máli, að
háhraðaferjur séu framtíðin í fólks-
og bílaflutningum, jafnvel á siglinga-
leiðum þar sem veður eru slæm, sbr.
Eystrasalt, Norðursjó og líka í Mið-
jarðarhafinu sem kemur mörgum á
óvart. Með þessum skrifum er ég alls
ekki að halda því fram að núverandi
Herjólfur sé ónothæft skip eða hættu-
legt, heldur að benda á nýtískulegri
skip sem gefur meiri möguleika.
Ég skora á viðeigandi aðila að at-
huga málið með jákvæðum huga, afla
sér meiri upplýsinga hjá undirrituð-
um, fara og skoða skipin, sá kostn-
aður er óverulegur miðað við hvað
þjóðin öll og sérstaklega Vestmanna-
eyingar gætu unnið sér inn með því að
fá nýrra og hraðskreiðara skip.
Nýr Herjólfur?
Eftir Svein Inga
Þórarinsson
„Það að fá
stærra og
öflugra skip
fyrir þessa
siglingaleið
er í mínum huga ekkert
annað en meira öryggi.“
Höfundur er skipamiðlari.