Morgunblaðið - 01.10.2002, Síða 57

Morgunblaðið - 01.10.2002, Síða 57
ÞEIR segja afkomutölur bíómynda helgarinnar sýna eitt og sanna; að Reese Witherspoon sé orðin eftir- lætisdóttir Bandaríkjanna. Nýjasta myndin hennar, róman- tíska gamanmyndin Sweet Home Alabama sem frumsýnd var á föstu- dag, reyndist nefnilega sú langmest sótta af öllum myndum sem í boði voru. Myndin var reyndar svo vinsæl að um var að ræða stærstu frumsýn- ingarhelgi septembermánaðar í sög- unni. Annað og kannski enn merki- legra met féll þó einnig því þetta er stærsta frumsýning á rómantískri gamanmynd í sögunni en eldra met- ið átti Runaway Bride með Juliu Ro- berts. Getur verið að um táknræn hlutverkaskipti sé að ræða, að With- erspoon, sem einnig var öflug í fyrra með Legally Blonde, sé hér með bú- in að taka við titlinum af Roberts sem eftirlætis aðalleikkona Holly- wood? Dómar um myndina hafa verið blendnir en flestum ber þó saman um að hin 26 ára gamla Witherspoon beri myndina uppi og sé orðin geð- ugasta gamanleikkonan sem í boði er í dag. Nýjasta bardagagrín Jackie Chans, The Tuxedo, fékk talsvert minni aðsókn en náði þó öðru sæt- inu. Myndin fjallar um einkabíl- stjóra sem finnur smóking sem veit- ir honum ofurkrafta og slagsmálahæfni. Fáránleg flétta vissulega en hafa ber í huga að henni er ætlað að höfða til fjölskyldunnar og yngri áhorfenda og virðist hafa gert það því meirihlutinn sem sá hana var undir 25 ára aldri. Jennifer Love Hewitt leikur á móti Chan í myndinni sem verður frumsýnd hér á landi, líkt og Sweet Home Ala- bama, innan skamms. Witherspoon mun aldeilis fá harða samkeppni um næstu helgi því sjálf frægasta mannæta bíósögunnar snýr þá aftur í fjórða sinn á hvíta tjaldið. Já, enn og aftur er Hannibal Lecter mættur til leiks og sleikir út um líkt og væntanlega bíógestir einnig yfir girnilegu leikaraliðinu í myndinni Red Dragon sem í eru, auk Anthony Hopkins, Edward Norton, Ralph Fiennes og Harvey Keitel.                                                                           !   "#$"%& %   '           ()*+ ,+*, ,-*, .*/ +*0 (*1 (*- 2*) 2*( ,*+ ()*+ ,+*, +,*0 ,()*- ,/*/ ,2*0 21*, ,,*+ 22,*, 21*1 Reuters Sæta Alabama-stelpan: Reese Witherspoon ásamt meðleik- urum sínum Patrick Dempsey og Candice Bergen. Drottinn blessi heimilið Sweet Home Alabama er langvinsælasta myndin vestanhafs skarpi@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 57 KATE Moss er orðið móðir í fyrsta sinn en hún ól hrausta stúlku um helgina og verður hún nefnd Lola, að því er bresku götublöðin fullyrða. Moss, sem er 28 ára, fór í flýti á Saint John and Elizabeth- sjúkrahúsið í London eftir að hafa gætt sér á kvöldverði á grískum veitingastað á laug- ardagskvöld. Litla stúlkan kom svo í heiminn á sunnudagsmorg- uninn. Nýbakaði faðirinn, Jefferson Hack, annar stofnandi og ritstjóri tímaritsins Dazed and Confuzed, fylgdi fyrirsætunni frægu á sjúkrahúsið en þau hafa verið saman í tvö ár. Með þeim á veit- ingastaðnum voru góðir vinir parsins, leikarahjónin Sadie Frost og Jude Law. Moss hefur starfað sem fyr- irsæta frá 14 ára aldri og varð fyrst þekkt í auglýsingum fyrir Calvin Klein. Árið 1998 var hún lögð inn á stofnun í London vegna örmögnunar en hún barð- ist við eiturlyfjafíkn. Moss orð- in móðir Kate Moss Sýnd kl. 5.45 og 8. Vit 433 Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14 ára. Vit 427  Kvikmyndir.is Roger Ebert  DV MBL  Kvikmyndir.com 1/2 SK.RadioX Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 12 ára. Vit 427 M E L G I B S O N M A T T D A M O N E R J A S O N B O U R N E M A T T D A M O N E R J A S O N B O U R N E „Þetta er fyrsta flokks hasarmynd.“ Þ.B. Fréttablaðið.HANN VAR HIÐ FULLKOMNA VOPN ÞAR TIL HANN VARÐ SKOTMARKIÐ GH Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  SG. DV GH Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  SG. DV KEFLAVÍK Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. B.i. 12 ára. Vit 435. Frábær fjölskyldumynd frá Disney um grallarann Max Keeblesem gerir allt vitlaust í skólanum sínum! Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 441.Sýnd kl. 5.45, 8.15 og 10.10. B.i. 14 ára. Vit 427 Sýnd í lúxussal kl. 10.10. B. i. 16. Vit 436 E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P  HJ Mbl 1/2 HK DV 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 8 og 10. Vit 433  HJ Mbl1/2 HK DV 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd akureyri kl. 8 og 10. B.i. 12 ára. Vit 435 AKUREYRI KEFLAVÍK AKUREYRI Sýnd kl. 6 og 8. Vit 433 AKUREYRI Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 429 Sýnd kl. 4 og 6 enskt tal. Vit nr 430. 25.000 2 5 . 0 0 0 á h o r f e n d u r MBL Sýnd kl. 6. Vit 441 AKUREYRI FjármálaAUÐUR er hagnýtt námskeið fyrir konur sem vilja auka fjármálaþekkingu sína. Þar lærir þú m.a. um helstu atriði er varða hlutabréfamarkaðinn, lestur ársreikninga og lánamarkaðinn. Á FjármálaAUÐI gefst þér einstakt tækifæri til að öðlast dýrmæta þekkingu og auka jafnframt sjálfstraust þitt í öllu er lýtur að fjármálum. Námskeiðið er samtals 16 klst. Dagsetningar og tími: Fyrra námskeið: 8.-24. október. - Nokkur sæti laus Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 18 - 20:30 Seinna námskeið: 5.-21. nóvember. - Næg sæti laus Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 20 - 22:30 Kennsla fer fram í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2. Verð: 6.900 kr. Allar nánari upplýsingar og skráning eru í síma 510 6200 eða á vefsíðu AUÐAR, www.audur.is FjármálaAUÐUR - námskeið fyrir konur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.