Morgunblaðið - 01.10.2002, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
ALLRI áhöfn rækjubátsins Arons ÞH frá Húsa-
vík, fimm mönnum, var bjargað þegar skipið
sökk um 25 sjómílur norður af Grímsey snemma
í gærmorgun. Rækjuskipið Sæþór EA kom á
vettvang um 15 mínútum eftir að óskað hafði
verið aðstoðar. Tveir skipverjar af Aroni syntu
yfir í Sæþór en hinir þrír fóru á milli í gúmmí-
björgunarbáti. Voru mennirnir allir í flotgalla.
Veður var gott og ekki hætta á ferðum að mati
skipstjórans á Sæþóri. Aron sökk um 30 mín-
útum síðar, í svokallaðri Paradísarholu.
Már Höskuldsson, skipstjóri á Aroni, vaknaði
þegar drapst á vélunum og sá að mikill sjór var
kominn í vélarrúm bátsins. „Og þar sem dautt
var á öllum vélunum vissi ég að við hefðum engin
ráð til að ná sjónum úr bátnum nema með allri
þeirri aðstoð sem hægt væri að fá.
Mig óraði ekki fyrir því á þeirri stundu að
hann ætti eftir að fara niður.“
Rækjubáturinn Aron ÞH sökk norður af Grímsey
Morgunblaðið/Kristján
Már Höskuldsson, skipstjóri á Aroni, faðmar Lilju dóttur sína en við hlið þeirra er Hörður Albert Harðarson vélstjóri.
Óraði ekki fyrir að báturinn færi niður
Vel gekk/6
RÁÐHERRAR dóms- og heil-
brigðismála munu leggja til á rík-
isstjórnarfundi á föstudag að sér-
stakur stuðnings- og
aðgerðahópur, sem ætlað er að
leysa bráðavandamál geðsjúkra,
verði stofnaður. Leggja ráðherr-
arnir til að hópurinn verði skip-
aður fulltrúa frá hvoru ráðuneyti
fyrir sig, auk fulltrúa frá félags-
málaráðuneyti, að fengnu sam-
þykki Páls Péturssonar félags-
málaráðherra.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra segir að hópurinn verði heil-
brigðisstéttum og lögreglunni til
aðstoðar, sem og öðrum sem með-
höndli erfið einstaklingsmál sem
upp koma. Óformlegur starfshóp-
ur, sem komið var á fót síðasta
vor, hafi m.a. lagt þetta til.
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra segir að starfshópurinn
þyrfti að hafa yfirsýn yfir mögu-
legar lausnir og vald til að beita
þeim. Mjög brýnt sé að hefja sem
fyrst viðræður milli ráðuneytanna
til að koma upp slíkum hópi. „Það
eru ýmsar lausnir til í þjóðfélag-
inu, en oft þarf að benda á þær og
framkvæma,“ segir hún.
Óttaðist að sonurinn kynni að
vinna óbætanleg voðaverk
Fyrir fjórum mánuðum sendi
Stefán Aðalsteinsson, faðir Steins
Ármanns, sem grunaður er um að
hafa orðið manni að bana á
fimmtudag, bréf til ráðherra
dóms-, heilbrigðis- og félagsmála
þar sem hann óskaði þess að ráð-
herrarnir fyndu í sameiningu við-
unandi langtímalausn á máli sonar
síns. Í bréfinu sagðist hann óttast
að sonur sinn, sem væri geðsjúkur,
kynni að vinna einhver voðaverk,
sem ekki yrði hægt að bæta, yrði
hann áfram á götunni.
Í bréfinu segir Stefán óforsvar-
anlegt að Steinn Ármann hafi ver-
ið útskrifaður af réttargeðdeildinni
á Sogni.
„Steinn á enga vini, enga kunn-
ingja nema samfanga, fíkla og úti-
gangsmenn. Hann kann ekkert á
lífið utan fangelsismúranna og hef-
ur engan félagslegan þroska til að
takast á við það. Steinn er geð-
veikur, gefur sér forsendur sam-
kvæmt sínum eigin óbeisluðu til-
finningum, hann er læknislaus og
hefur verið án sérhæfðrar með-
ferðar og geðlyfja síðan hann var á
Sogni,“ segir í bréfinu.
Fjölskyldan og aðrir aðstand-
endur séu langþreyttir, hræddir
og úrkula vonar og hafi reynt allt
sem í þeirra valdi stendur til að
leita úrlausnar. Til margra hafi
verið leitað, en enginn vilji fá hann
og enginn sjá hann. „Nú bið ég
ykkur að reyna að finna tafarlaust
viðunandi langtímalausn,“ segir í
bréfinu, sem er dagsett 29. maí
síðastliðinn.
Ráðuneyti gera tillögu um stofnun starfshóps
Ætlað að leysa bráða-
vanda geðsjúkra
Óttaðist að/30–31
AÐSTANDENDUR tveggja far-
þega sem fórust eftir að Cessna-flug-
vélin TF-GTI fórst í Skerjafirði 7.
ágúst 2000 hafa óskað eftir því við ís-
lensk stjórnvöld að rannsókn flug-
slyssins verði tekin upp á ný. Af-
hentu þeir samgönguráðherra bréf
þessa efnis í gær um leið og afhent
var skýrsla breskra sérfræðinga
sem þeir fengu til að fara yfir skýrslu
Rannsóknarnefndar flugslysa, RNF,
um slysið. Leggja bresku sérfræð-
ingarnir til að yfirvöld verði hvött til
að taka rannsóknina upp á ný eftir
því sem við eigi til að tryggja að
gerðar séu allar viðeigandi ráðstaf-
anir um öryggi.
Meðal niðurstaðna bresku sér-
fræðinganna, Bernies Forwards og
Franks Taylors, er að skýrsla RNF
sé unnin í samræmi við reglur um
flugrannsóknir en niðurstöður séu
byggðar á ætlunum fremur en raun-
verulegum gögnum. Segir að sú nið-
urstaða RNF að eldsneytisskortur
sé líklegasta orsök slyssins sé grund-
völluð á vafasömum eldsneytis-
útreikningum og gagnrýnd er yfir-
borðskennd rannsókn á mótor
vélarinnar eftir slysið. Rannsóknin
hafi ekki verið eins gagnger og hún
hefði átt að vera með tilliti til hryggi-
legra dauðsfalla og þess sem kunni
að lærast til að koma í veg fyrir slys
og dauðsföll í framtíðinni.
Vafasöm saga mótors
Segir að nefndin hafi komist fljót-
lega að niðurstöðu um að flugmað-
urinn hefði leyft sér að hafa hættu-
lega lítið eldsneyti og því ekki gengið
nægilega hart fram í að kanna aðrar
mögulegar orsakir eins og til dæmis
úrbræðslu mótorsins eða að hann
hefði fest. Þá segir að með tilliti til
óþekktrar og vafasamrar sögu mót-
orsins hefði ekki átt að gefa út loft-
hæfisskírteini fyrir vélina.
Þær upplýsingar fengust í sam-
gönguráðuneytinu í gær að Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra væri
að skoða skýrsluna og myndi ekki tjá
sig um hana að svo stöddu.
Ný skýrsla um flug-
slysið í Skerjafirði
Vilja að
rannsókn
verði tek-
in upp
Leggja til/11
BRESKA hljómsveitin Coldplay
heldur aðra tónleika sína hér á
landi í Laugardalshöllinni 19. des-
ember næstkomandi.
Sveitin lék í Höllinni í ágúst 2001
fyrir fullu húsi. Hrifust sveit-
armenn þá svo mjög af landi og
þjóð að þeir lýstu því yfir að þeir
myndu snúa aftur við fyrsta tæki-
færi.
Síðsumars gaf Coldplay út aðra
plötu sína, A Rush of Blood to the
Head. Hefur hún hlotið lof gagn-
rýnenda og farið efst á flesta sölu-
lista í Evrópu og selst í yfir þremur
milljónum eintaka í heiminum. Þar
af hafa selst 2.500 eintök hér á
landi en þess má geta að fyrri plat-
an, Parachutes, hefur selst í 8 þús-
und eintökum hérlendis.
Plötur Coldplay hafa selst í
meira en 10 þúsund eintökum.
Coldplay aft-
ur til Íslands
Tónleikar/54
ARNÓR Guð-
johnsen er besti
erlendi knatt-
spyrnumaðurinn
sem leikið hefur í
sænsku úrvals-
deildinni frá upp-
hafi að mati
blaðamanna
sænska knatt-
spyrnutímarits-
ins Fotballextra Match. Teitur Þórð-
arson er í sjöunda sæti listans en
hátt í þrjú hundruð erlendir leik-
menn hafa komið við sögu sænsku
úrvalsdeildarinnar. Arnór lék sex ár
í Svíþjóð, fyrst með Häcken og síðar
með Örebro.
Arnór er sagður hafa verið lista-
maður með knöttinn, snöggur og
leikinn og þekktur fyrir hælsending-
ar.
♦ ♦ ♦
Arnór valinn
sá besti
Arnór
Guðjohnsen
Arnór bestur/B1