Morgunblaðið - 16.10.2002, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 16.10.2002, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 18 87 6 1 0/ 20 02 Hitagrind fyrir sumarbústaði Samansett og tilbúið til uppsetningar. Hitar allt að 80m2 hús. 99.900 kr. Evrópsk vinnuverndarvika Draga þarf úr vinnustreitu FRAMUNDAN erEvrópsk vinnu-verndarvika og meðal þess sem bryddað verður upp á má nefna morgunverðarfund þar sem helsta áhersluatriðið verður rækilega í brenni- depli. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir er í forsvari fyrir þessar uppákomur og svaraði hún nokkrum spurningum Morgunblaðs- ins. – Segðu okkur fyrst eitt- hvað um Evrópsku vinnu- verndarvikuna, hvenær er hún, hvernig er hún byggð upp, hverjar eru áherslur hennar o.s.frv.? „Evrópska vinnuvernd- arvikan árið 2002 ber yf- irskriftina Vinna gegn streitu. Markmið Vinnuverndar- vikunnar er að efna til upplýsinga- herferðar sem hefur að leiðarljósi að gera evrópska vinnustaði örugga og heilsusamlega. Liður í þeirri herferð í ár er að draga úr streitu. Þetta er þriðja Evrópska vinnuvikan en fyrir ári var hún helguð þemanu Varnir gegn slys- um. Slysavarnir eru nátengdar umræðunni um streitu, því stress- uðum starfsmönnum er hættara við slysum og mistökum en öðrum. Vinnueftirlitið, sem hefur séð um framkvæmd vinnuverndarvikunn- ar fyrir Íslands hönd, hefur valið vikuna 21.–25. október til átaksins, þótt að sjálfsögðu sé lögð áhersla á að málaflokkurinn Vinna gegn streitu fái athygli svo lengi sem þörf krefur. Vinnustreita er með algengustu vinnutengdu heilsufarsvandamál- unum í Evrópu samkvæmt Evr- ópsku vinnuverndarstofnuninni ASHW. Þegar ástæður veikinda- fjarvista eru skoðaðar sem taka til a.m.k. tveggja vikna má sjá að fjórðungur þeirra er vegna vinnu- streitu. Vinnustreita þarf þó ekki að vera neikvæð, því í hæfilegum mæli getur hún verið bæði gagn- leg og ánægjuleg, einkum þegar tekist er á við tímabundin verkefni sem fela í sér jákvæða áskorun. Of margir starfsmenn virðast hins vegar upplifa neikvæða streitu.“ – Hver er staða þessara mála á Íslandi? „Um fjórðungur starfsmanna á Íslandi finnur oft fyrir vinnu- streitu samkvæmt nýlegum rann- sóknum. Rannsóknir á rannsókna- og heilbrigðisdeild Vinnueftirlits- ins sýna að ástæðurnar geta verið margs konar, þar með talið inni- hald vinnunnar, vinnuaðstæður, vinnutími og skipulag. Starfsmenn sem búa við mikla vinnustreitu kvarta meira undan heilsufari og líðan og þeir eru meira fjarverandi frá vinnu vegna eigin veikinda.“ – Hvenær er svo morgunverð- arfundurinn og hvar? „Í tilefni af vinnuverndarvik- unni efnir Vinnueftirlitið til morg- unverðarfundar á Grand hóteli Reykjavík mánudaginn 21. októ- ber klukkan 8.30 til 10. Yfirskriftin er Vinna gegn streitu. Fundur- inn verður í Gullteigi og salurinn opnaður klukkan 8 svo fundar- menn geta verið búnir að fá sér morgunverð áður en fundurinn hefst.“ – Hver verða helstu umræðu- efnin á fundinum, hverjir taka til máls? „Á morgunverðarfundinum mun að sjálfsögðu verða fjallað um þætti sem tengjast þema vinnu- verndarvikunnar út frá ýmsum hliðum. Eftir að Eyjólfur Sæ- mundsson, forstjóri Vinnueftirlits- ins, setur vinnuverndarvikuna mun Sigríður Lillý Baldursdóttir, eðlisfræðingur og vísindasagn- fræðingur, fjalla um streitu í er- indi sem hún kallar „Takturinn í tilverunni; tálsýn um tímasparnað tækninnar.“ Þá mun Daníel Þór Ólason, aðjúnkt í sálfræði við Há- skóla Íslands, fjalla um tengsl bar- áttuþreks, tilfinningaviðbragða og hegðunar og að lokum mun Krist- inn Tómasson, yfirlæknir Vinnu- eftirlitsins, fjalla um forvarnir á vinnustöðum með hliðsjón af streitu.“ – Fyrir hverja verður fundur- inn? „Morgunverðarfundurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa áhuga á vinnuvernd, þó einkum þeim sem vilja kynna sér og taka þátt í umfjöllun um vinnustreitu, hvernig hún birtist og á hvern hátt megi fyrirbyggja hana á vinnu- stöðum. Sé það staðreynd að um fjórðungur starfsmanna á Íslandi búi við mikla vinnustreitu hlýtur það að vera áhugamál stjórnenda og almennra starfsmanna að læra að þekkja þá þætti sem hægt er að taka á í forvarnarskyni.“ – Vel á minnst, hvað er vinnu- vernd? „Vinnuvernd fæst við samspil manns og vinnuumhverfis, þ.e. að læra að þekkja þá þætti í vinnu- umhverfinu sem geta haft jákvæð og neikvæð áhrif á líðan starfs- manna. Samkvæmt vinnuverndar- lögum skal atvinnurekandi tryggja að gætt sé fyllsta öryggis, góðs aðbúnaðar og hollustuhátta á vinnustað. Til þess að slíkt sé hægt þurfum við að þekkja helstu áhættuþætti vinnuumhverfisins. Vinnuverndin er vax- andi fræðigrein, enda er æ meira farið að tengja almenna lýðheilsu og rétt- indi fólks við líðan þess á vinnu- stað.“ Loks má geta þess að skráning á morgunverðarfundinn er hjá Vinnueftirliti ríkisins og má nota netfangið vinnueftirlit@ver.is. Skrá skal þátttöku fyrir kl.16 föstudaginn 18. október. Þátttöku- gjald er 2.000 krónur með morg- unverði. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir  Guðbjörg Linda Rafnsdóttir er fædd árið 1957. Hún lauk dokt- orsprófi í félagsfræði frá Háskól- anum í Lundi og hefur starfað hjá Vinnueftirlitinu síðan árið 1994 og kennt félagsfræði við Háskóla Íslands síðan 1996. Eig- inmaður Guðbjargar Lindu er Stefán Jóhann Stefánsson hag- fræðingur og eiga þau þrjá syni, þá Hlyn Orra, Arnald Smára og Davíð Má. Vinnuvernd er vaxandi fræðigrein ÞÓRIR Gunnarsson, aðalræðismað- ur Íslands í Prag, sem jafnframt rek- ur veitingastaðinn Reykjavík í mið- borg Prag, segir að opinberir aðilar þar í landi kappkosti nú að lagfæra götur og mannvirki sem hafi þurft lagfæringar við eftir flóðin sem urðu í borginni í ágúst síðastliðnum. Hann segir að þeirri uppbyggingu miði vel. Hann segir veitinga- og hótel- rekstur í borginni hafa náð að rétta úr kútnum frá því Moldá flæddi yfir bakka sína í ágúst og að fleiri ferða- menn hafi heimsótt Prag nú en á sama tíma í fyrra þegar ferðamönn- um fækkaði umtalsvert í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11. september. Þórir segir að nú sé allt kapp lagt á að búið verði að lagfæra götur fyrir fund NATO-ríkjanna sem haldinn verður í borginni 21. og 22. nóvem- ber nk. „Það er ekki til vandamál í mið- borg Prag nema þar sem verið er að endurbyggja og laga.“ Þórir segir að skemmdir hafi orðið í nokkrum hverfum en verið sé að lagfæra þær skemmdir og miðar þeirri vinnu vel. Þar á meðal er Karlin-svæðið en þar eru nokkur hótel sem Íslendingar hafa gist á auk svæða við Moldá. Styrktartónleikar verða haldnir á Broadway 27. október nk. vegna flóðanna í Tékklandi og mun ágóðinn af þeim renna til uppbyggingar skóla í suðurhluta Tékklands þar sem að- stöðu er ábótavant eftir flóðin. Aðalræðismaður Íslands í Prag um ástandið í borginni Uppbyggingu miðar vel Prestar hafa ekki köllun til búskapar MEÐ ÁRUNUM hefur þeim sóknar- prestum fækkað sem stunda búskap á jörðum sem fylgja embættum þeirra. Ræður þar einkum tvennt: búskapur, sér í lagi fjárbúskapur, gefur af sér lítinn arð en kostar mikla vinnu og eins hitt að fólk sem hefur köllun til prestsstarfa hefur ekki köllun til bú- skapar. Þetta kom fram í máli séra Döllu Þórðardóttur en hún lagði fram tillögu á Kirkjuþingi í gær um að prestssetrasjóði yrði gert heimilt að færa kvóta, bæði sauðfjár- og mjólk- urkvóta, á milli jarða, þangað sem hann nýttist betur. Lagði hún einnig til að í starfsreglur sjóðsins yrði sett málsgrein um að allur kvóti sem fylgdi prestssetrum skyldi teljast eign þjóðkirkjunnar. Í máli nokkurra þingmanna kom fram að kvóti hefur tapast frá prests- setrum í gegnum tíðina. Séra Lára G. Oddsdóttir, prestur á Valþjófsstað, sagðist þekkja af eigin raun að taka við prestssetri þar sem hún hefði orð- ið að gerast bóndi. Sagðist hún lítið hafa þekkt til bústarfa, annað en það sem hún lærði af kvikmyndinni Dala- lífi, sem þættu vafasöm meðmæli. Því brá hún á það ráð að leita til nágrann- anna sem með samkomulagi ákváðu að gerast fjárhirðar hjá henni. Dalla benti á að stundum væri kvóti leigður frá prestssetrum til bónda í sveitinni og oft kæmi hann ekki aftur til jarð- arinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.