Morgunblaðið - 16.10.2002, Page 11

Morgunblaðið - 16.10.2002, Page 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 11 UTANRÍKISRÁÐHERRA hefur ákveðið að gera breyt- ingar á skipan sendiherra í utanríkisþjónustunni og var tilkynnt um breytingarnar í gær. Sverrir Haukur Gunnlaugsson sendiherra, sem hefur verið ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins frá árinu 1999, tekur við starfi sendiherra Íslands í London. Gunnar Snorri Gunnarsson, sem verið hefur sendi- herra Íslands hjá Evrópusambandinu í Brussel frá árinu 1997, tekur við starfi ráðuneytisstjóra utanrík- isráðuneytisins. Þorsteinn Pálsson, sem hefur verið sendiherra Íslands í London frá árinu 1999, tekur við starfi sendiherra Ís- lands í Kaupmannahöfn. Helgi Ágústsson, sem verið hefur sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn frá árinu 1999, tekur við starfi sendi- herra Íslands í Washington D.C. Kjartan Jóhannsson sendiherra, sem starfað hefur á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins undanfarin tvö ár, tekur við starfi sendiherra Íslands gagnvart Evrópusambandinu í Brussel. Jón Baldvin Hannibalsson, sem verið hefur sendiherra Íslands í Washington D.C. frá árinu 1998, tekur við starfi sendiherra Íslands í Helsinki. Kornelíus Sigmundsson, sem verið hefur sendiherra Íslands í Helsinki frá árinu 1999, tekur við starfi að- alræðismanns Íslands í Winnipeg í Kanada. Eiður Guðnason, sendiherra, sem verið hefur aðalræð- ismaður Íslands í Winnipeg frá því á síðasta ári, tekur við starfi sendiherra Íslands í Beijing. Ólafur Egilsson, sendiherra Íslands í Beijing síðan 1998, flyst heim til starfa í utanríkisráðuneytinu. Þar mun hann meðal annars gegna starfi sendiherra gagn- vart nokkrum fjarlægum ríkjum. Gunnar Pálsson, sendiherra og fráfarandi fastafulltrúi Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu frá árinu 1998, tók 1. október síðastliðinn við starfi skrifstofustjóra um- hverfis- og auðlindaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Gunnar Gunnarsson, sendiherra, fráfarandi skrif- stofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneyt- isins, tók 1. október síðastliðinn við starfi fastafulltrúa Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu í Brussel. Sturla Sigurjónsson hefur tekið við starfi skrif- stofustjóra varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneyt- isins. Hann var skipaður sendiherra í utanríkisþjónustu Íslands hinn 1. ágúst 2002. Ofangreindar breytingar, sem ekki hafa þegar átt sér stað munu koma til framkvæmda í nóvember og desember næstkomandi, segir í frétt frá utanríkisráðu- neytinu. Breytingar gerðar á skipan sendiherra Gunnar Gunnarsson Kjartan Jóhannsson Helgi Ágústsson Þorsteinn Pálsson Gunnar Snorri Gunnarsson Sverrir Haukur Gunnlaugsson Kornelíus Sigmundsson Sturla Sigurjónsson Jón Baldvin Hannibalsson Gunnar Pálsson Ólafur Egilsson Eiður Guðnason SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála- ráðherra segist ekki hafa heimild til að endurskoða ákvarðanir Persónu- verndar og niðurstöðu stofnunarinn- ar verði ekki skotið til ráðherra þar eð Persónuvernd sé sjálfstæð stjórnsýslustofnun. Ágreiningur milli Íslenskrar erfðagreiningar og stofnunarinnar í tengslum við mið- lægan gagnagrunn á heilbrigðissviði sé því mál sem Persónuvernd verði að útkljá. Íslensk erfðagreining hefur sent bréf til ýmissa stofnana, þeirra á meðal Persónuverndar, vegna mið- lægs gagnagrunns á heilbrigðissviði. Í bréfinu til Persónuverndar segir Íslensk erfðagreining að vegna ástæðulausra tafa og ómálefnalegr- ar meðferðar Persónuverndar á málinu áskilji fyrirtækið sér allan rétt til að neita að greiða áfallinn kostnað Persónuverndar og annarra opinberra aðila og krefja Persónu- vernd og/eða ríkissjóð um bætur vegna tjóns og tapaðra tekjumögu- leika af gagnagrunninum. Sólveig segist ekki sjá ástæðu til að tjá sig efnislega um þennan ágreining að svo stöddu enda hafi henni ekki borist umrætt erindi og því ekki haft tækifæri til að kynna sér það í þaula. Hún hafi hins vegar fylgst með þróun þessara mála á undanförnum misserum. „Eftir því sem ég kemst næst eru ekki einhlítar ástæður fyrir því að framgangur þessa máls hefur tafist. Ég tel þó mikilvægt að þetta mál verði unnið áfram í góðri samvinnu allra hlutaðeigandi aðila. Það þýðir auðvitað að stjórnvöld verða að leita allra leiða til þess að flýta meðferð þess máls en jafnframt er nauðsyn- legt að menn hafi skilning á því að Persónuvernd verður að uppfylla þær skyldur sem lög um Persónu- vernd leggja stofnuninni á herðar,“ segir ráðherra. Á að ganga fram í samræmi við lög Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra bendir á að lögum samkvæmt sé Persónuvernd undirstofnun dómsmálaráðuneytisins. „Sjónarmið mitt sem heilbrigðisráðherra er hins vegar að gagnagrunnsmálið eigi að ganga fram í samræmi við þau lög sem samþykkt voru á sínum tíma. Sjálfur studdi ég þá lagasetningu. Samskipti heilbrigðisráðuneytisins við Persónuvernd hafa verið með þeim hætti, að ráðuneytið hefur svarað erindum stofnunarinnar og lagt áherslu á að ákvæðum laganna um persónuvernd sé fylgt. Síðustu skoðanaskipti ráðuneytisins og Per- sónuverndar voru í sumar, þegar ráðuneytið sendi Persónuvernd lagatúlkun sína, þótt okkur þætti það að vísu óþarft. Eina viðmiðun okkar hefur verið að málið gangi fram í samræmi við lög.“ Lagatúlkunin, sem Jón vísar til, varðaði fyrirspurn Persónuverndar um hvort fyrirhuguð nettenging ÍE við fyrirspurnalag gagnagrunnsins samræmdist lögum. Afstaða ráðu- neytisins var að Persónuvernd bæri að meta óskir um breytingar með til- liti til öryggis gagna í grunninum, eftirlits með þeim og þeirra ákvæða laganna sem það varða. Að öðru leyti væri það hlutverk starfrækslu- nefndar að sjá um að gerð grunnsins væri í samræmi við lög. Ráðuneytið tók þó fram að heimild til sendingar fyrirspurna og móttöku svara á Net- inu væri háð mati Persónuverndar á því hvort það stofnaði öryggi gagnanna í hættu. Persónuvernd skildi bréf ráðuneytisins svo að fyr- irliggjandi breytingartillögurnar rúmuðust innan starfsleyfisins. Aðspurður hvort hann telji að af- greiðsla málsins af hálfu Persónu- verndar hafi dregist úr hófi segir Jón alveg ljóst að mjög langur tími sé liðinn frá því að lögin um miðlæg- an gagnagrunn á heilbrigðissviði voru sett, en Persónuvernd verði sjálf að skýra þann drátt sem orðið hefur á málinu. Jón kveðst að svo stöddu ekki vilja tjá sig um hvort hann telji til greina koma að endurskoða 12 ára sérleyfissamning Íslenskrar erfða- greiningar, þar sem svo langur tími sé liðinn án þess að gagnagrunnur- inn hafi litið dagsins ljós. „Ég vona að málið nái fram að ganga, en ef breyttar forsendur verða lagðar fram munum við auðvitað fara yfir þær. Það er hins vegar of snemmt af velta vöngum yfir því á þessu stigi,“ segir ráðherra. Tafir vegna breytingatillagna ÍE Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir að stjórn Persónuverndar muni ræða bréf Ís- lenskrar erfðagreiningar á fundi sín- um á fimmtudag og taka afstöðu til efnis þess. Hún vísar á heimasíðu Persónuverndar, www.personu- vernd.is, þar sem málið sé rakið af hálfu stofnunarinnar. Á heimasíðunni kemur fram, að Persónuvernd telur öryggisúttekt á miðlægum gagnagrunni á heilbrigð- issviði hafa tafist vegna breytinga- tillagna Íslenskrar erfðagreiningar. Persónuvernd hafi óskað eftir að fyrirtækið legði fram nákvæmar til- lögur að breytingum á öryggisskil- málum gagnagrunnsins og farið fram á ítarlegan rökstuðning með hverri tillögu. „Persónuvernd hafa ekki enn, 14. október 2002, borist til- lögur frá Íslenskri erfðagreiningu um breytingar á öryggisskilmálun- um,“ segir á heimasíðu Persónu- verndar. Ekki náðist í Pál Hreinsson, stjórnarformann Persónuverndar, í gær, en bréf Íslenskrar erfðagrein- ingar var stílað á hann. Páll Magnússon, framkvæmda- stjóri samskipta- og upplýsingasviðs Íslenskrar erfðagreiningar, segir að fyrirtækið kjósi að tjá sig ekki nánar um málið að sinni. Bréf fyrirtækisins til Persónuverndar skýri afstöðu Ís- lenskrar erfðagreiningar. Persónuvernd á að útkljá deilu um gagnagrunninn Stjórn Persónuverndar fjallar um bréf ÍE á fundi sínum á fimmtudag milljónir eftir þegar búið var að standa skil á gjöldum og búið var að borga af lánum. Á síðasta ársfundi hafnasam- bandsins var samþykkt að óska eftir 7–8% hækkun á gjaldskrá, en samgönguráðherra sam- þykkti 5,3% meðaltalshækkun. „Sú þróun sem við höfum séð á undanförnum árum í afkomu hafna er býsna alvarleg. Við sem berum ábyrgð á rekstri hafnanna getum ekki látið eins og ekkert sé,“ sagði Árni Þór á fundinum. Hann sagði að forsenda nýs hafnalagafrumvarps hefði verið að aflagjaldið yrði tvöfaldað. Samstaða þyrfti hins vegar að vera um slíka aðgerð og á þessu stigi væri ekki ljóst hvort slík samstaða næðist. „Í umræðum um málefni sjáv- arútvegsins hefur þeirri hug- mynd verið varpað fram að auð- lindagjald eigi að renna heim til byggðanna í stað þess að fara í ríkissjóð. Ég vil lýsa þeirri skoðun minni að þessa hugmynd ber að taka alvarlega og skoða í fullri einlægni þótt einhverjir hnökrar kunna að finnast á slíkri ráðstöfun. Í mínum huga er alveg skýrt að hafna- og sveitarsjóðir eru mun betur að þessari tekjulind komnir en rík- issjóður, sem hefur iðulega farið með allt sitt á hreinu frá verka- skiptingaborði ríkis og sveitar- félaga,“ sagði Árni Þór. ÁRNI Þór Sigurðsson, formað- ur Hafnasambands sveitarfé- laga, sagði á ársfundi sam- bandsins að hækka þyrfti gjaldskrá hafna umfram verð- lagsbreytingar vegna lélegrar afkomu hafna. Hann lýsti einnig yfir stuðningi við hugmyndir um að auðlindagjald yrði látið renna til byggðanna og sagði að hafna- og sveitarsjóðir væru betur að þessari tekjulind komnir en rík- issjóður. Á fundinum kom fram að tekjur 16 hafnasjóða á landinu hefðu á árinu 2001 numið 1.181 milljón en gjöld 835 milljónum. Framlegð var 29,3%, sem er heldur betri niðurstaða en árið 2000 þegar framlegðin var 27,4%. Þess má geta að árið 1992 var framlegðin 37,4%. Í fyrra var greiðslubyrði þessara hafna 588 milljónir sem þýðir að 242 milljónir vantaði upp á tekjur ársins til að hafnirnar ættu fyrir afborgunum lána. Afkoma Reykjavíkur- hafnar versnar Afkoma Reykjavíkurhafnar var verri í fyrra en árið 2000. Tekjurnar námu 1.017 milljón- um og gjöld 753 milljónum. Framlegð var 25,9%, en nam 35,7% árið á undan. 131 milljón vantaði til að standa undir greiðslubyrði lána. Eru það mikil umskipti frá árinu 1999 þegar Reykjavíkurhöfn átti 336 Vill hluta auð- lindagjalds í hafnasjóði Afkoma hafna hefur verið að versna á síðustu árum EFNAHAGSBROTADEILD ríkis- lögreglustjóra hefur gefið út ákæru á hendur tveimur fyrrverandi fram- kvæmdastjórum Sæunnar Axels ehf. og framkvæmdastjóra inn- og út- flutningsfyrirtæksins Valeikur ehf. fyrir brot á tollalögum og almennum hegningarlögum. Ákærðu er gefið að sök að hafa komið sér undan greiðslu tolla af afurðum við innflutning sem að lágmarki nam tæpum 57 milljón- um króna. Ákærðu er gefið að sök að hafa sammælst um að flytja út til fimm ESB-landa tæp 804 tonn af unnum þorskafurðum sem Valeik annaðist útflutning á og starfsmenn fyrirtækisins gáfu út rangar upplýs- ingar um að væru af íslenskum upp- runa á vörureikningum og útflutn- ingsskýrslum með afurðunum. Ákærðir fyrir tollasvik og hegningar- lagabrot LÖGREGLAN á Ísafirði, í samstarfi við starfsbræður sína í Bolungarvík og á Patreksfirði, hefur eftir ítarlega rannsókn síðustu daga upprætt fíkniefnahring á Ísafirði. Fimm karl- menn á aldrinum 19 til 28 ára voru handteknir vegna gruns um sölu og dreifingu á fíkniefnum. Að loknum yfirheyrslum hefur þeim verið sleppt en rannsókn málsins heldur áfram. Hún hófst þegar lögreglan stöðv- aði akstur fimmmenninga í Vest- fjarðagöngum að kvöldi 13. október sl. Hald var lagt á fíkniefni, áhöld til neyslu og peninga. Fíkniefna- hringur upp- rættur á Ísafirði ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.