Morgunblaðið - 16.10.2002, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 16.10.2002, Qupperneq 16
AKUREYRI 16 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ verður í Glerárkirkju fimmtudaginn 17. október nk. klukkan 15.00 Glerárkirkja Vinafundur eldri borgara Gestur samverunnar verður séra Magnús G. Gunnarsson, sóknarprestur á Dalvík. Þá mun Óskar Pétursson koma með góðan glaðning að vanda. Að venju verða léttar veitingar í safnaðarsal. Sóknarprestur FJÓRIR aðilar skiluðu inn full- gildum tillögum í samkeppni um viðbyggingu og endurbætur Brekkuskóla og ákvað dómnefnd að tillaga Arkitektur.is yrði fyrir valinu. Arkitektur.is er í eigu sex arkitekta og rekur fyrirtækið starfsstöðvar á Akureyri og í Reykjavík. Ráðgert er að bjóða framkvæmdina út næsta vor og að verkinu verði lokið fyrir skólasetn- ingu haustið 2005. Samkvæmt til- lögu Arkitektur.is er áætlaður byggingarkostnaður um 530 millj- ónir króna en áætlaður heildar- kostnaður verksins er nálægt 700 milljónum króna. Í umsögn dómnefndar segir um tillögu Arkitektur.is; „Vel hugsuð og vel unnin tillaga, miðjurými og aðkoma góð. Þungamiðja skólans mjög vel leyst með nýju sameig- inlegu rými s.s. sal, bókasafni, eld- húsi o.fl. og getur nýst sem hverfa- miðstöð utan skólatíma. Frumleg hugmynd að breytingu á eldra hús- næði, sem aðlagar það nútíma skólastarfi. Nýbygging og breyt- ingar á eldri byggingu falla vel að nágrenninu, þó telur dómnefnd stóra glerveggi óheppilega fyrr kennslurými og viðhald bygging- arinnar. Vegalengdir innan skólans eru stuttar og skýrar. Þröngt á milli bygginga, má leysa með ein- földum hætti. Huga mætti betur að skjólmyndun. Umferðarleið milli bygginga helst til þröng.“ Í greinargerð með tillögu Arki- tektur.is kemur m.a. fram að Gagnfræðaskóli Akureyrar, (nú Brekkuskóli, innskot blaðam.) sé virðulegt skólahús með langa sögu að baki sem kennslustofnun. Þegar skólinn var byggður á árunum upp- úr 1940, voru kröfur til skólahús- næðis allnokkuð aðrar en gerðar eru til slíks húsnæðis í dag. Það helst hefur breyst, að stærð al- mennrar kennslustofu var í þá daga álitin nægileg 40 fermetrar en nú er krafan að slíkar stofur séu 52–60 fermetrar. GA er óhentugt húsnæði fyrir nútíma skólastarf Markmið höfunda er að aðlaga og samtvinna GA og nýbyggingu í nútímalega, bjarta og hagkvæma skólabyggingu, skapa sterka heild- arlausn, sem svarar nýtingu og rýmisþörf fyrir skólastarf og frí- stundastarf hverfisins. Einnig að aðskilja og aldursskipta kennslu- svæði hvers stigs, koma í veg fyrir gegnumgang annarra nemenda um kennslusvæði hvers stigs, einfalda bílaumferð að skóla og auðvelda aðgengi fótgangandi, tryggja ör- yggi barna gagnvart akandi um- ferð og skapa manneskjulegt umhverfi og skjólgóð útivistar- svæði. Tillagan gerir ráð fyrir að horfst verði í augu við þá staðreynd að GA er óhentugt hús fyrir nútíma- skólastarf. Þessu er hins vegar hægt að breyta á einfaldan máta, með því að stækka grunnflöt hverrar skólastofu í þá stærð sem krafist er. Gert er ráð fyrir að byggt verði utaná hluta langhliða byggingarinnar, 1,6m út frá núver- andi húshlið. Við þetta næst stækk- un sem gerir það að verkum að innri skiptingu kennslustofanna þarf ekki að breyta, þær verða eft- ir breytingu af æskilegri stærð, 52 eða 60m². Við þessa breytingu rýmast allar hinar 25 almennu kennslustofur og 6 hópherbergi í GA. Kennslusvæðið skiptist þann- ig, að yngsta stigið verður á jarð- hæð, miðstigið á 1. hæð og ung- lingastigið á 2. hæð. Hvert skólastig hefur beinan aðgang að tveimur stigahúsum. Læstum skápum fyrir nemendur verður komið fyrir á göngum hvers stigs fyrir sig. Miðrýmið tengipunktur allra þátta skólans og frístundastarfsins Nýbyggingin er vestan við nú- verandi skólahúsnæði. Aðalinn- gangur er úr vesturátt frá aðkomu- torgi og bílastæðum. Þessi inngangur verður jafnframt hið nýja andlit skólans. Fyrir framan innganginn er aðaltorg skólans. Staðsetning þess er vel fallin fyrir skólasetningar og aðra hátíðavið- burði nemenda og kennara skólans. Ingangur leiðir beint inn í mið- rýmið, hjarta skólans, tengt sölum, bókasafni og stjórnunarhluta skól- ans. Miðrýmið er tengipunktur allra þátta skólans og frístund- astarfsins. Úr miðrýminu er gler- gangur, sem tengir nýbygginguna við aðalstigahús GA. Afgreiðsla, skrifstofur skólastjórnar og að- staða kennara eru í suðurhluta ný- byggingarinnar við aðalinngang. Þeir sem erindi eiga í skólann ganga beint inn að afgreiðslurými tengt stjórnunarálmu. Sérinngang- ur er fyrir starfsfólk úr suðri inní stjórnunarhlutann. Samkomu/matsalur, setustofa og tónlistarstofa eru vestan miðrým- isins. Skólinn er staðsettur á tiltölu- lega afmörkuðu svæði. Aðkomu- leiðir að skólanum afmarkast af gróinni íbúðarhúsabyggð að sunn- an, nálægð við sundlaug og íþrótta- hús, gilið og kirkjuna. Aðkoma ak- andi umferðar að bílastæðum skólans er eftir Skólastíg. Bein göngubraut er frá bílastæðum nið- ur að skólanum. Bílastæði skólans eru í tengslum við núverandi bíla- stæði íþróttahallar, sem auðveldar samnýtingu. Aðkoma fótgangandi að skólanum er eftir göngustígum úr ýmsum áttum. Tillagan gerir ráð fyrir að tengja sig inn á stíga- kerfi sundlaugar og andapollsins, svo og BA húss. Þaðan er göngu- leið um skólalóðina í átt að skól- anum. Tillaga Arkitektur.is að viðbyggingu og endurbótum Brekkuskóla á Akureyri. Morgunblaðið/Kristján Arkitektarnir sex, sem eiga Arkitektur.is og unnu sameiginlega að tillög- unni sem varð fyrir valinu, fyrir framan húsnæði Brekkuskóla. F.v.: Páll Tómasson, Helga Benediktsdóttir, Haraldur Örn Jónsson, Guðmundur Gunnarsson, Elín Kjartansdóttir og Gísli Kristinsson. Arkitektur.is vann samkeppni um viðbyggingu og endurbætur Brekkuskóla Byggingarkostnaður áætlaður rúmur hálfur milljarður króna FÉLAGSMÁLARÁÐ samþykkti á síðasta fundi sínum að breyta fyrri ákvörðun frá í sumar og færa Brit Bieltvedt til í starfi og ráða hana í starf framkvæmdastjóra Öldrunar- stofnunar Akureyrarbæjar. Félags- málaráð hafnaði öllum 18 umsókn- unum um stöðuna í sumar, þar sem ekki hefði fundist sá umsækjandi sem verið var að leita að og sam- þykkti þá að auglýsa stöðuna að nýju nú í haust. Brit Bieltvedt var í hópi umsækjenda. Á síðasta fundi félagsmálaráðs var jafnframt lagður fram undirskrifta- listi 53 starfsmanna Öldrunarstofn- unar, þar sem skorað var á félags- málaráð að ráða Brit Bieltvedt í stöðu framkvæmdastjóra stofnunar- innar. Jakob Björnsson, formaður félagsmálaráðs, sagði að undir- skriftalistinn hefði vissulega haft áhrif á þá ákvörðun ráðsins að ráða Brit í stöðuna. Hún hafði verið ráð- inn í stöðu deildarstjóra búsetudeild- ar, sem auglýst var um svipað leyti og starf framkvæmdastjóra Öldrun- arstofnunar. Jakob sagði að Brit hefði ekki síður haft áhuga á stöðu framkvæmdastjóra og hefði reyndar sinnt báðum stöðunum undanfarna mánuði og staðið sig vel. Jakob sagði að líklega yrði tekin ákvörðun um það á næsta fundi ráðsins að auglýsa stöðu deildarstjóra búsetudeildar lausa til umsóknar. Framkvæmdastjóri Öldrunar- stofnunar Akureyrarbæjar sér um rekstur hjúkrunar- og dvalarheimila hjá bænum en velta þeirra er um 600 milljónir króna á ári og stöðugildi um 135. Í rekstri eru 180 hjúkrunar- og dvalarrými á þrem mismunandi stöðum á Akureyri. Öldrunarstofnanir Akureyrarbæjar Brit ráðin fram- kvæmda- stjóri Bærinn fær afhentar 3,6 milljónir króna TRYGGINGAFÉLAGIÐ Sjóvá-Al- mennar hefur greitt Akureyrarbæ 3,6 milljónir króna í ágóðahlutdeild fyrir árið 2001. Fulltrúar félagsins létu þess getið á fundi með stjórnendum bæjarins að þetta væri besta útkoma þeirra fjögurra ára sem Sjóvá-Al- mennar hafa annast tryggingar fyrir bæinn og stofnanir hans. Forsaga málsins er sú að bærinn bauð út allar tryggingar sínar árið 1999 og inni í tilboði Sjóvár-Almennra var svokölluð ágóðahlutdeild sem þýðir að ef tjón er lægra en iðgjald fær Akureyrarbær hluta mismunar- ins endurgreiddan. Öll árin hefur svo verið en árið 2001 sker sig út og hefur útkoman aldrei verið betri. Þetta kemur fram á heimasíðu bæjarins. OKTÓBER hefur sannarlega verið ljúfur og hlýr hér við heimskauts- baug. Kiwanisfélagarnir í Grími, sem eru ötulir við fjáröflun fyrir klúbbinn sinn, notuðu tækifærið og buðu í garðyrkjuverk hjá hreppn- um. Hitastigið undanfarnar vikur hefur sannarlega slegið út hitastig júlímánaðar. Þökur voru pantaðar úr landi. Tyrfa átti Bakkabrekkuna í „miðbæ“ Grímseyjar. Margir Kiw- anisfélagar lögðu hönd á plóginn undir styrkri stjórn Garðars Óla- sonar sem kom að verkinu bæði sem virkur Grímsfélagi og hrepps- nefndarmaður. Börn og fullorðnir eiga örugg- lega eftir að njóta sín í grænni Bakkabrekkunni á góðviðrisdögum næstu sumur. Morgunblaðið/Helga Mattína Grímsfélagar og Grímseyjarbörn við „sumarstörf“. Sumar- störf í október Grímsey ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.