Morgunblaðið - 16.10.2002, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 16.10.2002, Qupperneq 17
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 17 SUÐURNES MYNDLISTARÁHUGI í Reykja- nesbæ er mikill og ljóst að hið nýja Listasafn bæjarins á eftir að vera lyftistöng fyrir listalífið. Að sögn Hjördísar Árnadóttur, for- manns Félags myndlistarmanna í Reykjanesbæ, er nánast fullt á öll myndlistarnámskeið sem félagið hefur auglýst í vetur og hún sagði í samtali við Morgunblaðið að fé- lagið fyndi fyrir miklum meðbyr. Í dag eru félagsmenn 83. Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ var stofnað árið 1995 af áhugasömu myndlist- arfólki sem vildi hlúa að myndlist og myndlistarmönnum, ekki síður en gera myndlistina sýnilegri. Mikið hefur verið lagt upp úr námskeiðshaldi og í vetur er fjöl- breytni námskeiðanna síst minni en verið hefur á undanförnum ár- um. „Í vetur ætlum við að bjóða upp á átta mismunandi námskeið fyrir fullorðna og nú eru í gangi fjögur tólf vikna námskeið fyrir börn. Líklega munum við bjóða upp á sambærileg námskeið eftir áramót, en nú þegar er fullbókað á öll námskeiðin tólf sem við höf- um auglýst. Við takmörkum fjöldann við fimmtán á fullorð- insnámskeiðin og tíu á barna- námskeiðin, þar sem kennsla í myndlist byggist fyrst og fremst á handleiðslu við hvern ein- stakling. Það er því mjög mik- ilvægt að kennarar fái tíma til að sinna öllum,“ sagði Hjördís. Akkur að fá utanaðkomandi listamenn til að sýna Félagið hefur aðstöðu í Svarta pakkhúsinu í Keflavík, þar sem á árum áður var starfað við aðalat- vinnuveg þjóðarinnar, fiskvinnslu. Auk námskeiðshalds eru sýningar félagsins haldnar í húsnæðinu og tveir sjálfstæðir myndlistarhópar leigja aðstöðuna einu sinni í viku yfir veturinn. Þá hefur félagið starfrækt sumargallerí, þar sem félagsmönnum gefst kostur á að vera með verk til sölu yfir sum- armánuðina og í pakkhúsinu er lítill sýningarsalur til afnota fyrir listamenn, en hefur lítið verið notaður, að sögn Hjördísar. Hún er þó ekki í neinum vafa um að góður markaður sé fyrir hið nýja Listasafn Reykjanesbæjar. „Þetta er mikil viðurkenning fyrir mynd- listina og þessi nýja aðstaða mun gera myndlistarmönnum kleift að halda stórar og glæsilegar sýn- ingar. Ég geri mér vonir um að hún verði til þess að listamenn frá öðrum sveitarfélögum og jafnvel öðrum löndum sýni því áhuga að sýna verk sín hér, sem yrði akkur fyrir myndlistarmenn á svæðinu. List eða föndur? Stærsta kostinn við félagsskap eins og þann sem er í Félagi myndlistarmanna telur Hjördís vera fjölbreytileikann. „Það er sú mikla breidd sem er í félaginu sem gefur því gildi. Í því starfa okkar færustu og viðurkenndustu listamenn, nýliðar í myndlistinni og allt þar á milli. Það er mjög góð samstaða í félaginu og við sem erum ný og með litla mennt- un eða bakgrunn, njótum hand- leiðslu og stuðnings hinna. Sam- sýningar okkar eru gleggstu dæmin um þetta og við finnum mjög jákvætt fyrir fjölda fólks sem vill njóta. Hugtakið myndlist er líka svo opið og það fer eftir smekk hvers og eins hvað hann vill hafa í kringum sig. Fjölbreytnin er mik- il enda margir að skapa, hvort sem það kallast list eða föndur,“ sagði Hjördís. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Hjördís Árnadóttir segir myndlistaráhuga bæjarbúa mikinn og fara vaxandi. Í bakrunni myndarinnar má sjá nokkra af yngstu þátttakendum námskeiðanna sem Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ býður upp á í vetur. Breiddin gefur félaginu gildi Keflavík VERIÐ er að setja kopar á þak kirkj- unnar á Hvalsnesi þar sem járn sem var á þakinu var orðið illa farið eftir margra áratuga endingu. Kirkjan var byggð árið 1887, úr tilhöggnu grjóti. Þegar turn kirkjunar var endur- byggður um miðja síðustu öld var settur kopar á hann. Í sumar hefur verið unnið að viðhaldi á turninum og lagfæringum. Þá hefur verið gert við allar hurðir kirkjunnar. Staftré ehf. í Sandgerði sér um alla smíðavinnu og Carl Granz málar. Tré og blikk í Reykjavík annast vinnuna við koparinn. Framkvæmdin er gerð í samráði við húsafriðunarnefnd ríkisins sem jafnframt hefur veitt styrk til verks- ins. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Kopar á þak kirkj- unnar Hvalsnes LÖGREGLAN í Keflavík handtók í fyrradag tvo pilta og hafa þeir við- urkennt að hafa stolið ýmsum tækj- um úr sumarbúðum í Vatnaskógi. Síðastliðinn sunnudag var kærður til lögreglunnar í Borgarnesi þjófn- aður á tveimur fartölvum, tveimur geislaspilurum, myndbandsupptöku- vél, gsm-símum og myndavélum frá sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi. Grunur beindist að tveimur átján ára piltum og viðurkenndu þeir verkn- aðinn eftir að þeir voru handteknir í Keflavík og skiluðu þýfinu. Viðurkenndu þjófnað úr sumarbúðum KFUM Keflavík HÉRAÐSBÓKASAFNI Borgar- fjarðar var nýlega afhent merkileg gjöf frá tveimur Vestur-Íslendingum sem eiga ættir að rekja í Borgar- fjörðinn. Gjöfin er svokölluð Þor- láksbiblía, prentuð á Hólum í Hjalta- dal árið 1644 að frumkvæði Þorláks biskups Skúlasonar. Þetta er önnur Biblían sem prentuð var á Íslandi en sú fyrsta var sem kunnugt er Guð- brandsbiblía, prentuð á Hólum árið 1584. Það voru bræðurnir Baird og Linné Bardarson sem færðu Hér- aðsbókasafninu biblíuna sem hefur verið í eigu ættar þeirra í að minnsta kosti 150 ár. Baird er læknir á eft- irlaunum og búsettur í Seattle í Washington-fylki en Linné er kaup- sýslumaður í Seward í Alaska. Þeir eru sonarsynir Sigurðar Bárðarson- ar sem fæddist á Þursstöðum í Borg- arhreppi árið 1851. Hann fluttist vestur um haf 35 ára að aldri, eftir að hafa misst eiginkonu sína úr misl- ingum og fylgdi biblían honum til Ameríku þar sem hann gerðist síðar smáskammtalæknir. Við afhendinguna sögðu þeir bræður að tildrög gjafarinnar mætti rekja aftur um nokkur ár, en þá heimsótti Baird Borgarfjörðinn ásamt eiginkonu sinni. Þau kynntust Pétri Geirssyni Hóteleiganda í Borg- arnesi sem var þeim innanhandar við að finna slóðir forfeðranna og ætt- ingja hér, m.a. með því að leita eftir gögnum í Safnahúsi Borgarfjarðar. Baird kom þá í hug að sennilega væri Biblían best geymd þar. Þeir væru afar ánægðir með að Biblían væri komin aftur á fornar slóðir. Hún hefði farið sjóleiðina út og væri nú, eins og fyrir töfra, komin flugleiðina heim. Ennfremur væri fróðlegt að velta því fyrir sér um hvaða hendur hún hefði farið í gegnum tíðina og hvort einhverjir Íslendingar hefðu lært að lesa upp úr henni. Þeir sögð- ust þess fullvissir að afkomendur þeirra myndu í framtíðinni ferðast til Íslands og í Borgarfjörðinn í þeim tilgangi að sjá þessa merku bók. Biblían verður til sýnis í Safnahúsi Borgarfjarðar á næstunni. Vestur-Íslendingar gefa forna Biblíu Borgarnes Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Innan á kápu biblíunnar sést und- irritun Sigurðar Bárðarsonar. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Axel Kristinsson, safnstjóri við Safnahús Borgarfjarðar, veitti biblíunni viðtöku frá bræðrunum Lynne Bardarson (t.h.) og Baird Bardarson. TÓNLISTARFÓLKIÐ og hjónin Anna Jórunn Stefánsdóttir, talkenn- ari og sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, og Þór- hallur Hróðmarsson, kennslustjóri við Garð- yrkjuskólann á Reykj- um, eiga bæði stór- afmæli á þessu ári. Þórhallur varð sextugur hinn 15. september sl. og Anna Jórunn verður sextug hinn 21. desember nk. Afmæl- isveislan verður ekki með hefð- bundnu sniði því þau hjón hafa ákveðið að halda upp á afmælin sín með tónleikum í Hveragerð- iskirkju, en þau hjón eru bæði í kirkjukórnum. Tónleikarnir verða haldnir sunnudagskvöldið 20. október kl: 20.00. Á tónleikunum koma fram Tríó Reykjavíkur, Jónas Ingimund- arson, Sigrún Gestsdóttir og Jörg Sondermann. Einnig mun djass- tríó leika og auk þess syngja bæði Kirkjukórinn og Söng- sveitin. Að sögn þeirra hjóna eru tón- leikagestir vinsamlega beðnir um að koma ekki með afmælisgjafir, en hins vegar verður tekið þakk- samlega á móti smá framlögum í flygilsjóð tónlistarfélagsins. Að tónleikum loknum ætla þau hjón að bjóða upp á veitingar í safn- aðarheimilinu og að sjálfsögðu vonumst við eftir að sjá sem flesta af vinum okkar og vanda- mönnum, segja þessi tónelsku hjón í lokin. Sérstæð afmæl- isveisla Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Anna Jórunn og Þórhallur æfa sig heima. Hveragerði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.