Morgunblaðið - 16.10.2002, Qupperneq 24
LISTIR
24 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UNGLINGASAGA Olgu Guðrúnar Árnadóttur
Peð á plánetunni Jörð er að koma út í Taílandi
á vegum útgáfufélagsins Image publishing í
samstarfi við Dhamrongchaitaham Found-
ation. Verður bókinni dreift á almennan mark-
að í 4.000 eintökum en um 12.000 gjafaeintök-
um verður að auki dreift í skóla í Taílandi.
Að sögn Valgerðar Benediktsdóttur hjá
Réttindastofu Eddu leggur Image publishing
áherslu á að kynna erlendar barnabókmenntir
í Taílandi og hefur fyrirtækið sýnt áhuga á að
gefa út tvær íslenskar barnabækur til við-
bótar, verðlaunabækurnar Söguna af bláa
hnettinum eftir Andra Snæ Magnason og Leik
á borði eftir Ragnheiði Gestsdóttur. „Við erum
í góðu samstarfi við þessa útgáfu í gegnum
umboðsmann okkar þar og erum að semja um
útgáfu bóka Andra Snæs og Ragnheiðar. Út-
gáfan hefur sent okkur tilboð í Bláa hnöttinn
eftir Andra Snæ Magnason og þar hyggjast
þeir gefa bókina út í 4.000 eintökum fyrir al-
mennan markað og í 12.000 gjafaeintökum
fyrir skólabókasöfn. Þeir hafa ennfremur sent
tilboð í Leik á borði eftir Ragnheiði Gests-
dóttur og er ætlunin að gefa þá
bók út í 4.000 eintökum á al-
mennum markaði og í 33.000
gjafaeintökum til skólabókasafna.
Bók Olgu Guðrúnar er að koma
út í alls 16.000 eintökum í Taí-
landi um þessar mundir og verð-
ur spennandi að sjá viðbrögðin,“
segir Valgerður.
Peð á plánetunni Jörð kom út
hjá Máli og menningu árið 1995
og var m.a. valin á heiðurslista
Ibby-samtakanna, alþjóðlega
barna- og unglingabókaráðsins.
Bókin fjallar um unglingsstúlk-
una Möggu Stínu, sem verður
stundum ákaflega þreytt á fólk-
inu í kringum sig, einkum kenn-
urum. Magga á leynilegan kær-
asta sem er reyndar svo leynilegur að hann
veit það ekki sjálfur. Líkt og aðrar stúlkur á
hennar aldri á Magga í harðvítugri baráttu við
kaloríurnar en þar virðist við ofurefli að etja.
Spurningin er hins vegar sú hvort innri feg-
urðin sé ekki meira virði en það að
líta út eins og barbídúkka.
Olga Guðrún Árnadóttir hefur
sent frá sér ljóð, leikrit og skáld-
sögur fyrir börn og fullorðna. Hún
segir það hafa komið sér skemmti-
lega á óvart þegar taílenska út-
gáfufélagið falaðist eftir bókinni
til útgáfu. „Þetta er nú ekki sá
heimshluti sem maður á von á að
sé mikið að gefa út norrænar ung-
lingabókmenntir. Ég held að þessi
frakka unglingsstúlka virki
kannski dálítið spennandi á Taí-
lendinga, því þeir eiga mjög
ströngum reglum að venjast hvað
varðar samskipti unglinga og full-
orðinna. Þar eiga nemendur að
sýna kennurum sínum skilyrð-
islausa virðingu. Þess vegna er það kannski
ennþá sérstakara að þeir skuli hafa valið
þessa bók til útgáfu og dreifingar í skóla-
bókasöfn. Það verður fróðlegt að heyra hvern-
ig hún fellur í kramið,“ segir Olga Guðrún.
Íslensk unglingasaga í Taílandi
Olga Guðrún Árna-
dóttir rithöfundur.
ÞAÐ er snjallræði hjá Íslensku
óperunni að nota hádegið til að
gefa ungu listafólki tækifæri til að
sanna sig og einmitt að taka til
meðferðar þætti úr alvöru óperu.
Alda Ingibergsdóttir söng hlut-
verk Violettu af töluverðum glæsi-
brag og lék sér að háu tónunum
þar sem falleg rödd hennar naut
sín sérlega vel.
Jóhann Friðgeir er í mjög góðu
formi og söng einnig af glæsibrag.
Atriðið í 1. þætti óperunnar var
heildstæðast en það vantaði nokk-
uð á að atriðin úr seinni þáttunum
væru sannfærandi. Leikstjórinn
Kári Halldór átti ekki marga
kosta völ en leysti sitt verk þokka-
lega.
Það er ljóst að Alda og Jóhann
Friðgeir eiga erindi við óperu-
sviðið og væri gaman að heyra þau
syngja þessa vinsælu óperu í „full-
gildri sýningu“.
Píanóleikarinn Clive Pollard
hélt sýningunni saman með hóf-
stilltum leik sínum.
Eiga erindi við
óperusviðið
TÓNLIST
Íslenska óperan
Alda Ingibergsdóttir og Jóhann Frið-
geir Valdimarsson sungu nokkur atriði
úr óperunni La Traviata eftir Guiseppe
Verdi. Undirleikari Clive Pollard. Leik-
stjóri Kári Halldór. Í hádeginu þriðju-
daginn 15. október 2002.
LA TRAVIATA
Alda Ingi-
bergsdóttir
Jóhann Friðgeir
Valdimarsson
Jón Ásgeirsson
SPÆNSKI tenórinn Placido Dom-
ingo hefur verið aðlaður af Elísa-
betu Bretadrottningu.
Aðalstignina hlýtur söngvarinn
fyrir starf sitt í þágu tónlistar sem
og framlag sitt til góðgerðarmála.
Aðalstign Domingos er þó ein-
göngu táknræn en þar sem tenór-
inn er ekki breskur ríkisborgari má
hann ekki titla sig „sir“, en getur
engu að síður sett skammstöfunina
KBE – Stórriddari Breska heims-
veldisins fyrir framan nafn sitt.
Í viðtali við vefsíðu BBC-
fréttastofunnar í gær kvaðst Dom-
ingo vera „mjög hamingjusamur,
mjög snortinn og mjög stoltur af
aðalstigninni“.
AP
Placido Domingo, ásamt konu sinni, Mörtu Ornelas, heilsar Colin Powell,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í veislu sem breski sendiherrann í
Washington hélt honum til heiðurs á mánudag.
Domingo aðlaður
GAMANLEIKURINN Með
vífið í lúkunum er nú á fjölun-
um þriðja leikárið í röð í Borg-
arleikhúsinu. Á föstudags-
kvöldið verður aukasýning og
þá tekur Hall-
dóra Geir-
harðsdóttir
við hlutverki
Ólafíu Hrann-
ar Jónsdóttur
í leikritinu.
Hún leikur
Maríu, aðra
tveggja ham-
ingjusamra
eiginkvenna
Jóns Jónssonar (Steinn Ár-
mann Magnússon) leigubíl-
stjóra. Jón þessi á tvær eigin-
konur og allt leikur í lyndi þar
til hann lendir í því að drýgja
hetjudáð og kemst í blöðin.
Með önnur helstu hlutverk fara
Helga Braga Jónsdóttir og
Eggert Þorleifsson. Leikstjóri
er Þór Tulinius.
Ný leikkona
í Vífinu
Halldóra
Geirharðsdóttir
Goethe-Zentrum á Laugavegi 18
Þýska kvikmyndin „Der schönste
Tag im Leben“ (Besti dagur lífs
þíns) verður sýnd kl. 20.30. Myndin
er frá árinu 1995, og er með enskum
texta. Leikstjóri er Jo Baier. Þessi
bæverska rómantíska gamanmynd
um hjónabandið, sem hlaut Bæ-
versku sjónvarpsverðlaunin 1996,
sýnir á fyndinn en jafnframt raun-
sæjan hátt erfiðleika kynslóðar sem
ætlar í einu og öllu að hegða sér
öðruvísi en kynslóð foreldranna.
Waltraut og Ritschi ætla að gifta sig
í München en þá vill móðir brúð-
arinnar að brúðkaupið fari fram í
heimabæ hennar í Neðra-Bæjara-
landi og fyrir vikið endar besti dag-
urinn á ævi hjónaefnanna með
hreinu öngþveiti.
Í DAG
BANDALAG sjálfstæðra leikhúsa
efndi til fagnaðar í Iðnó í gær til að
vekja athygli á öflugri starfsemi sem
framundan er í vetur á vegum leik-
húsanna. Felix Bergsson er nýkjör-
inn formaður samtakanna og hann
sagði í samtali við Morgunblaðið að
tilgangur fagnaðarins væri þríþætt-
ur. „Í fyrsta lagi viljum við vekja at-
hygli á dagskrá Sjálfstæðu leikhús-
anna. Í öðru lagi viljum við kynna
nýjan bækling á ensku um sjálf-
stæðu leikhúsin á Íslandi. Í þriðja
lagi vildum við gleðjast yfir því ótrú-
lega kraftmikla starfi sem sjálf-
stæðu leikhúsin eru að sýna í haust
og vetur.“
Að sögn Felixar sáu um 130 þús-
und áhorfendur sýningar sjálfstæðu
leikhópanna á síðasta leikári 2001–
2002. „Bandalag sjálfstæðra leik-
húsa telur rúmlega 30 aðildarfélög,
leikhópa dansleikhús, brúðuleikhús
og barnaleikhús. Starfið á þessu
nýja leikári fer vel af stað og nýaf-
staðnar frumsýningar á Sögu Grett-
is í Hafnarfjarðarleikhúsinu og
Benedikt búálfur á vegum Drauma-
smiðjunnar sem sýnt er í Loftkast-
alanum lofa sannarlega góðu. Þriðja
sýningin, Beyglur með öllu sem
frumsýnd var í Iðnó fyrr í haust,
hefur slegið rækilega í gegn. Fram-
undan eru fjölmargar sýningar.“
Felix bendir á að sýningar sjálf-
stæðu leikhúsanna séu nær alltaf
hrein frumsköpun nýrra íslenskra
verka. „Leikhóparnir taka áhættu í
vali verkefna eftir nýja og óþekkta
höfunda og einnig hópverkefna sem
hin leikhúsin þora ekki að taka eða
hafa ekki tök á að vinna.
Krafturinn liggur í því hvað við
erum smá, en getum fyrir vikið verið
alls staðar. Við hittum áhorfendur
okkar í miklu meira návígi þar sem
eru sýningar í skólum, leikskólum,
stofnunum og fyrirtækjum. Dæmi
eru um sýningar sem ganga ár eftir
ár án þess að það veki mikla athygli.
Ég bendi á ýmsar sýningar Mögu-
leikhússins á síðustu árum sem hafa
farið um allt land og verið sýndar
mörg hundruð sinnum sumar hverj-
ar. Sjálfstæðu leikhúsin eru mjög
virk þótt ekki beri alltaf mikið á
okkur.“
Felix bendir á það ósamræmi sem
ríki í fjárveitingum opinberra aðila
til sjálfstæðu leihúsanna annars veg-
ar og stofnanaleikhúsanna hins veg-
ar. „Sjálfstæðu leikhúsin fá 35 millj-
ónir á næsta ári á móti þeim
hundruðum milljóna sem renna til
stofnanaleikhúsanna. Það er óneit-
anlega nokkuð ójafnvægi í þessu.
Við erum í stöðugum viðræðum við
stjórnvöld og allir virðast skilja mik-
ilvægi þess starfs sem leikhóparnir
eru að vinna.
Við höfum mikinn áhuga á að fá
stjórnvöld til að gera svipaðan
samning við okkur og gerður var við
kvikmyndagerðarmenn þar sem
samið var um stighækkandi framlög
í ákveðinn árafjölda.“
Spurður um helstu áherslur á
vegum samtakanna á næstunni
sagði Felix að sífellt meiri áhersla
væri lögð á erlend samskipti í hinum
alþjóðlega leikhúsheimi. „Við erum
mjög virk í Evrópsku leikhús-
samtökunum IETM og höfum í
gegnum þau tengsl við um 500 leik-
hópa og menningarstofnanir í Evr-
ópu.“
Bæklingur á ensku
María Reyndal, einn stjórnar-
manna í SL, kynnti nýútkominn
bækling á ensku þar sem 26 íslensk-
ir leikhópar eru kynntir. „Hug-
myndin er að kynna okkur fyrir er-
lendu leikhúsfólki því áhuginn fyrir
alls kyns samstarfi og heimsóknum
er mikill um allan heim. Í haust er-
um við á leið til Kanada til að taka
þátt í leikhúsþingi á vegum IETM
og væntum þess að það skili ár-
angri.“
Bandalag sjálfstæðra leikhúsa kynnir starfsemina á komandi mánuðum
Fagna öflugri
starfsemi
Morgunblaðið/Kristinn
Leikararnir Gísli Pétur Hinriksson og Jón Páll Eyjólfsson sýndu atriði úr
Grettissögu sem Hafnarfjarðarleikhúsið frumsýndi sl. laugardag.
Útileikir barna á
tuttugustu öld er í
samantekt Þór-
eyjar Guðmunds-
dóttur. Um er að
ræða bæði hefti
og myndband.
Í heftinu er lýst
rúmlega sextíu úti-
leikjum sem
skiptast í hópleiki, eltingarleiki, felu-
leiki, knattleiki, boltaleiki við vegg og
parísa. Einnig er fjallað um þróun
leikjanna hér á landi. Í myndbandinu
má sjá börn úr Háteigsskóla í úti-
leikjum.
Þórey er fyrrverandi lektor við Kenn-
araháskóla Íslands.
Útgefandi er Rannsóknarstofnun
Kennaraháskóla Íslands. Hefti er 53
bls., og myndband 25 mínútur.
Verð: 3.000 kr.
Leikir
Óperublaðið er
komið út, 2. tölu-
blað 15. árgangur.
Meginþema að
þessu sinni er
gamanópera
Rossinis, Rak-
arinn í Sevilla, en
sýningar standa
nú yfir á henni í Ís-
lensku óperunni. Í blaðinu er m.a. að
finna viðtöl við nokkra af aðstand-
endum uppsetningarinnar og kynn-
ingu á þremur söngvurum sem nýver-
ið voru fastráðnir að Íslensku
óperunni. Þar er einnig umfjöllun um
fjölbreytta dagskrá óperuhúsanna í
Berlín og viðtöl við fjóra íslenska óp-
erusöngvara þar. Ritstjóri er Margrét
Sveinbjörnsdóttir, kynningarstjóri Ís-
lensku óperunnar. Í ritnefnd eru
Soffía Karlsdóttir, Ólafur Jóhannes
Einarsson og Ingjaldur Hannibalsson.
Útgefandi er Vinafélag Íslensku óp-
erunnar. Blaðið er 32 síður og kemur
út tvisvar sinnum á ári í 2.000 eintök-
um. Verð: 690 kr.
Tímarit