Morgunblaðið - 16.10.2002, Page 25

Morgunblaðið - 16.10.2002, Page 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 25 UMSKIPTI urðu í ljósmyndun þegar hægt var að vinna myndir í stafrænu formi á heimilistölvu. Staf- ræn tæknin bauð ljósmyndurum upp á glænýja möguleika til að virkja sköpunareiginleika sína. Fyrir marga hefur ástandið verið líkt og að ganga að nýjum miðli á byrjunar- stigi. Í sýningarsal Íslenskrar grafíkur sýnir ljósmyndarinn Kristján Loga- son 40 myndir unnar með stafrænni tækni. Sýninguna nefnir hann „Skref“, sem vísar í fyrstu myndina í seríunni sem er af fótspori í mosa, einnig má tengja titilinn við vinnuað- ferðina sem er unnin skref fyrir skref. Kristján tekur litskyggnur sem hann skannar inn í tölvu, skeyt- ir þeim svo saman ofan á hverja aðra og prentar út á pappír. Aðferðin er í sjálfu sér ekki ný. Ljósmyndarar hafa lengi leikið sér með að fram- kalla tvær eða fleiri filmur saman á einn pappír, en vegna tölvutækninn- ar er hægt að ráðskast frekar með hina endanlegu útprentuðu mynd. Kristján hleður allt að 10 myndum yfir hverja aðra og skapar þannig eina ljósmynd. Útkoman er draum- kenndar eða surrealískar myndir. Þær sem helst gætu talist jarð- bundnar eru blómamyndir sem minna eilítið á skrautlegar neðan- sjávarmyndir frá Mið- og Suður- Ameríku, en þar sem blómin eru venjuleg íslensk jarðblóm verða myndirnar nokkuð einkennilegar. Í blómamyndum er áhersla lögð á lita- dýrðina. Í öðrum myndum leggur hann áherslu á ljósið. Hleður hann saman myndum af sólstöfum og skapar þannig sérstaka og ýkta birtu í landslagi. Í flestum ljósmynd- unum er listamaðurinn að skapa áferð á myndfletinum, þ.e. að hann hleður saman myndum af vatni, skýjum, fjöllum og sandöldum. Vatns og ölduáferð myndast t.d. á klettum og verður landslagið því nokkuð framandi líkt og myndirnar séu teknar á annarri plánetu eða öðrum heimi. Búa sumar myndanna yfir álíka andrúmi og er að finna í tölvusköpuðum heimi nýlegra rokk- myndbanda með hljómsveitum á borð við Linkin Park og Creed. Hvarflaði einnig að mér hið sígilda „Psychedelic“ sálarferðalag í lokaat- riði kvikmyndarinnar „2001: A Space Odyssey“. Gætu myndirnar verið teknar í slíku „út-úr-líkama“ ferðalagi ef þessháttar tækni væri til staðar. Myndirnar eru 25x38 cm að stærð, sem er allt of lítið fyrir svo lit- ríkar og krefjandi myndir. Að öðru leyti eru þær vel heppnaðar og til- raunasemi ljósmyndarans skilar sér prýðilega. Myndirnar má einnig sjá á netinu á síðunni http://www.aurora.is. Stafræn furðuveröld MYNDLIST Sýningarsalur Íslenskrar grafíkur Sýningin stendur til 20. október og er op- in á fimmtudögum til sunnudags kl. 14- 18. LJÓSMYNDIR KRISTJÁN LOGASON Jón B.K. Ransu Skref nr. 44 eftir Kristján Logason. Í KJALLARA Norræna hússins hefur verið sett upp sýning níu lista- manna frá þremur Norðurlandanna, sex þeirra eru frá Danmörku, tveir frá Finnlandi og einn frá Noregi. Sýningin er unnin fyrir tilstuðlan NIFCA, Nordic Institute for Con- temporary Art, í samvinnu við Vejle Kunstmuseum í Danmörku. Sýning- arstjórar eru einnig frá Danmörku, þau Stine Höholt og Khaled D. Ram- adan. Sýningin ber nafnið Clockwise, og er kynnt sem sýning á norrænni samtímalist þó hér séu danskir lista- menn í miklum meirihluta og til dæmis enginn frá Svíþjóð, Færeyj- um, Íslandi, eða Grænlandi. Ýmislegt hefur verið rætt um nor- ræna list í gegnum tíðina. Sumir sakna þjóðareinkenna og norrænnar raddar og finnst samtímalistin bera of mikinn keim af meginstefnum og straumum sem ríkjandi eru í Banda- ríkjunum og Evrópu. Nú þegar sam- félög norður-Evrópu verða æ fjöl- þjóðlegri og ríkjandi menning blandast siðum og viðhorfum að- fluttra íbúa er ekki furða að leitin að eigin rödd verði ákafari. Óttinn við að samfélagið sem við þekkjum líði und- ir lok og okkur dagi uppi eins og steintröll í ókunnu landslagi kemur upp í okkur öllum. En um leið og mikilvægt er að gamlar hefðir gleym- ist ekki, mikilvægara nú en nokkru sinni fyrr, hlýtur líka að vera nauð- synlegt að halda opnum hug gagn- vart því sem fram kemur á hverjum tíma, hvort sem ungir listamenn sækja í hefð sem byggir á gömlu handverki eða leita þjóðareinkenna sinna á öðrum sviðum í samfélaginu. Hér á landi er samfélag okkar þó enn svo einsleitt að spurningar um upp- runa og stöðu einstaklingsins í fjöl- menningarlegu samfélagi sem vakna eru ekki enn orðnar áleitnar á áber- andi hátt. Aðstandendur Clockwise sýning- arinnar tala sérstaklega um að lista- menn hennar einbeiti sér að sam- félaginu og stöðu einstaklingsins innan þess, líkja þeim jafnvel við mannfræðinga. Árið 1975 birti bandaríski listamaðurinn Joseph Kosuth ritsmíð sína Listamaðurinn sem mannfræðingur, samansafn til- vitnana í heimspekinga og listamenn auk eigin skrifa. Þar segir hann m.a. að vandamál mannfræðinga sé að þeir standi utan við samfélagið sem þeir rannsaka. Það sem sé áhugavert við listamanninn sem mannfræðing sé að listamaðurinn standi ekki fyrir utan ... heldur kortleggi hann sitt eig- ið samfélag. Listamanninum sem mannfræðingi tekst kannski að gera það sem mannfræðingnum mistekst. Markmið mannfræði-listar er að birta á lifandi hátt samsetningu, grundvöll og byggingu menningar og lista í samfélaginu segir hann enn- fremur. Á þeim áratugum sem liðnir eru frá þessum skrifum Kosuth hefur þessi mannfræðilega nálgun lista- manna við samfélagið komið fram í ótal myndum, hún var til dæmis mjög sterk á tímum svokallaðs pólitísks réttrúnaðar sem gekk yfir Bandarík- in og síðan Evrópu fyrir rúmum ára- tug þegar minnihlutahópar fengu aukið vægi innan listheimsins. Í dag er þessi mannfræðistefna líka afar vinsæl og birtist helst í heimildar- myndum og ljósmyndum eins og greinilegt er á Dokumenta-sýning- unni í Kassel í Þýskalandi þar sem á fjögurra ára fresti er sýnt það sem á að vera efst á baugi í listheiminum. Listamenn Clockwise vinna flestir í þessum anda, með ólíku móti leitast þeir við að birta þætti norræns sam- félags, velta fyrir sér uppruna sínum – sem ekki er alltaf norrænn – og setja síðan niðurstöður síðan fram á ýmsan hátt. Það má spyrja sig að því hvort listamaðurinn komist nokkurn tíma hjá því að standa að einhverju leyti utan þess samfélags sem hann rannsakar, hvort sú afstaða hans að skoða það geri ekki að verkum að hann verði sér á parti. En þó að lista- mennirnir sem hér eiga í hlut taki að sér að vera eins konar spegill sam- félagsins skortir þá ekki hinn sam- mannlega þátt í hjarta sér. Það gerir það að verkum að þeir falla aldrei í þá gryfju að hampa sér á kostnað lífs- viðhorfa annarra. Hið fjölþjóðlega samfélag Dan- merkur, Noregs og Finnlands er greinilegt þegar við skoðum nöfn listamannanna, Jouko Lehtola og Melek Mazice frá Finnlandi, Tor- björn Rödland frá Noregi og þau Colonel (Thierry Geoffroy), Amel Ibrahimovic, Lilibeth Cuenca Rasm- ussen, Khaled D. Ramadan, Simone Aaberg Kærn og Marco Evaristti frá Danmörku. Hér gefst því miður ekki færi á að segja frá verkum allra sem sýna en ljósmyndir þeirra Jouko Lehtola og Torbjörn Rödland eru til dæmis slá- andi, vel hugsaðar og fagurfræðilega vel unnar. Ímynd hins norræna er þema sem Rödland hefur einnig unn- ið með í fyrri verkum. Eins eru verk Colonel húmorísk og beitt á sama tíma, þeir sem búsettir hafa verið í Danmörku á síðustu árum sjá að hann hittir beint í mark, sérstaklega í verki sínu I want to look Danish/I want to look like you. Myndband Lili- beth Cuence af ömmu sinni á Filipps- eyjum er heiðarlegt án þess að verða sjálfhverft og eins vekur myndband Simone Aaberg Kærn mann til um- hugsunar. Samfélag okkar í dag er á margan hátt flóknara en áður var og aðrar kröfur gerðar til einstaklinganna innan þess. Skandinavíu hefur oft verið lýst sem samfélagi hámarksör- yggis en nú á dögum virðist ekki vera hægt að bjóða nýjum kynslóðum ör- yggi. Atvinnuleysisbætur og gott heilbrigðiskerfi eru af hinu góða en uppfylla ekki allar þarfir. Öryggi er alla vega ekki að hafa í einfaldri og þekkjanlegri norrænni ímynd, því hún er ekki til. Það eru engin björg- unarvesti í boði. Ragna Sigurðardóttir Verk Khaled D. Ramadan, Ekkert björgunarvesti undir sætinu. Ekkert björgunar- vesti undir sætinu MYNDLIST Norræna húsið Til 20. október. Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12–17. CLOCKWISE, BLÖNDUÐ TÆKNI, NÍU LISTAMENN FRÁ FINNLANDI, NOREGI OG DANMÖRKU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.