Morgunblaðið - 16.10.2002, Síða 37

Morgunblaðið - 16.10.2002, Síða 37
mætti, ásamt konu sinni, á skemmti- fund Félags kennara á eftirlaunum laugardaginn 5. október, og spilaði með okkur félagsvist, og virtist þá vera hress til líkama og sálar. En að- eins þremur dögum síðar, þriðjudag- inn 8. október, er hann burt kall- aður, heima í stofunni sinni. Í sálmi eftir séra Björn í Laufási stendur þetta: Fótmál dauðans fljótt er stigið fram að myrkum grafarreit. Mitt er hold til moldar hnigið máske fyrr en af ég veit. Eiríkur var kunnur maður vegna ritsmíða sinna í blöðum og tímarit- um. Hafa greinar hans í Morgun- blaðinu um stjórnmál og menningar- mál vakið verðskuldaða athygli, vegna gjörhygli og ritsnilldar. Hann var blaðamaður um langt árabil hjá tímaritinu Heima er bezt, sem Prentverk Odds Björnssonar á Akureyri gaf út um aldarþriðjung. Þar sinnti hann föstum þáttum og lagði mikla vinnu í þá. Eiríkur var samviskusamur, og þegar föstum þáttum í tímaritum eða blöðum þarf að sinna hlýtur það að vera vel séð og raunar nauðsynlegt. Eiríkur lærði prentiðn á Siglufirði hjá honum Sigurjóni Sæmundssyni, hálfbróður sínum, og vann þar um árabil, áður en hann fluttist með Rósu, konu sinni, og syninum Eiríki Páli til Akureyrar, þar sem hann hélt áfram prentstörfum og hún kennslustörfum. Þau hjón fluttust að Blöndubakka 1 í Reykjavík fyrir fáum árum. Var heimili þeirra fagurt og vel um gengið. Bækur margar í hillum og lýstu þær vel bókmenntasmekk hjónanna. Safn ljóðabóka fjölbreytt og athyglisvert. Mér var jafnan vel tekið, er ég kom í heimsókn til þeirra, en Rósa var mér samferða í síðustu tveimur bekkjum Kennaraskóla Íslands á sinni tíð. Við, sem kynntumst Eiríki Eiríkssyni, þökkum kynnin, sem við bjuggumst við að yrðu miklu lengri. Ég votta eftirlifandi eiginkonu hans og afkomendum samúð mína. Eftir lifir minning mæt, þótt maðurinn deyi. Auðunn Bragi Sveinsson. Í litlu blokkarsamfélagi ríkir mikil spenna þegar von er á nýjum eig- endum í stigaganginn. Svo var einn- ig þegar Eiríkur og Rósa fluttu í stigaganginn okkar. Við hugsuðum með okkur hvort nýju eigendurnir kæmu til með að falla inn í það góða samfélag sem fyrir var. Það er skemmst frá því að segja að þau hjónin stóðust þær væntingar sem við gerðum til nýrra nágranna og vel það. Eiríkur reyndist mikil heillastoð fyrir stigaganginn og var alltaf boð- inn og búinn að lagfæra það sem úr- skeiðis fór, dytta að og gefa góð ráð. Hann lét sér ekki nægja að laga það sem þurfti í sameigninni, hann var alltaf boðinn og búinn að gefa ná- grönnum sínum góð ráð og hjálpa þegar þeir stóðu í framkvæmdum. Þegar húsfundir voru í stigagang- inum var Eiríkur með sínar skoðanir á hreinu og hélt hann þeim ávallt til streitu, en hann gat alltaf fundið léttu hliðarnar á öllum málum. Eitt atriði sem okkur er minnis- stætt er þegar Eiríkur spurði á fyrsta húsfundinum sínum hvort við hefðum eitthvað á móti því að hann væri að smíða í kjallaraherberginu sínu. Það fannst okkur hið minnsta mál, okkur datt aldrei í hug að hann væri með heila smíðastofu þar, en við nutum þess að heyra í honum smíða þegar við áttum leið hjá. Hann var alltaf tilbúinn að lána verkfæri sín og miðla þekkingu sinni og mun- um við því minnast Eiríks með þakk- læti og virðingu. Elsku Rósa og fjölskylda, við vott- um ykkur okkar dýpstu samúð. Stefanía, Guðlaug, Hannes, Elín, Indriði, Helga, Stefán, Hallfríður, Ómar, Ragn- heiður og Björgvin.  Fleiri minningargreinar um Ei- rík J.B. Eiríksson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 37 ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Arðbær aukavinna Bandarískir dollarar, íslensk orka, asískt hugvit og þýsk mynt Byggðu upp þínar eigin lífeyristekjur. Hafið samband við Björn, s. 820 5788 eða beg@isl.is ...á réttum stað við flugvöllinn Vatnsnesvegur 12-14 • 230 Keflavík • Sími: 420-7000 Netfang: stay@kef.is • Heimasíða: www.kef.is HÓTEL KEFLAVÍK Cafè IÐNÓ Rekstraraðili - veitingastaður Hótel Keflavík er metnaðarfullt fjögurra stjörnu hótel í hjarta Reykjanesbæjar. Á hótelinu eru 70 herbergi, tveir veitingastaðir, Sólsetrið og Café Iðnó sem einnig er kaffihús og bar. Þá er á hótelinu fullkomin heilsuræktarstöð. Leitum eftir öflugum og ferskum aðila til að sjá um rekstur veitingadeildar með góðu samstarfi við ráðstefnudeild, en hótelið er vinsælt fyrir fundi, ráðstefnur og árshátíðir. Það hefur verið sérkenni hótelsins að vera fyrsti og síðasti viðkomustaður erlendra sem og innlendra ferðalanga á Íslandi. Upplýsingar gefur hótelstjóri í síma 420 7000 eða 696 7777 R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Skrifstofuhúsnæði óskast Íslensku menntasamtökin, sem er sjálfseignar- stofnun sem vinnur að umbótum í skólastarfi, eru þessa dagana að leita að hentugu húsnæði fyrir til leigu fyrir skrifstofur sínar. Æskileg stærð er 60—100 fm og 2—4 herbergi. Allar styrkveitingar til öflunar húsnæðis eru vel þegnar. Nánari uppl. gefur Jens Ólafsson í s. 690 0047. Til leigu í Lækjargötu Mjög gott rúmlega 1000 fm skrifstofuhúsnæði á þremur hæðum í þekktu lyftuhúsi í hjarta borgarinnar. Flísar, parket, teppi, loftræstikerfi, lagnastokkar. Húsnæði sem getur hentað ráð- gjafarfyrirtækjum, lögmönnum, tölvufyrirtækj- um. Laust fljótlega. Vinsamlega hafið samband við skrifstofu okkar. Sími 511 2900 Til leigu í Mörkinni 4 í Reykjavík á 2. hæð mjög glæsilegt fullinnréttað ca 680 fm skrif- stofuhúsnæði á 2. hæð, sem hægt er að skipta niður í tvær einingar. Upplýsingar gefur Gunnar í síma 693 7310. KENNSLA Foreldrakynning Fimmtudaginn 17. október frá kl. 20.00—21.30 verður kynning á starfsemi Fjölbrautaskólans í Breiðholti í Hátíðarsal skólans við Austurberg. Það er mjög mikilvægt að foreldrar/forráða- menn nýnema mæti á þessa kynningu, en for- eldrar/forráðamenn eldri nemenda eru einnig velkomnir. Kaffiveitingar. Skólameistari. NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Hafnargata 16, ásamt fylgifé, Ólafsfirði, þingl. eig. Tréver ehf., gerðar- beiendur Íslandsbanki hf., Lynghálsi 4, 155 Reykjavík og Trygginga- miðstöðin hf., þriðjudaginn 22. október 2002 kl. 10.00. Syðri Gunnólfsá, sumarbústaður, þingl. eig. Kormákur Þráinn Braga- son, gerðarbeiðendur Sparisjóður Kópavogs, Sparisjóður Ólafsfjarð- ar og sýslumaðurinn á Ólafsfirði, þriðjudaginn 22. október 2002 kl. 10.30. Sýslumaðurinn á Ólafsfirði, 16. september 2002. TIL SÖLU Trésmíðaverkstæði til sölu Vegna breyttra aðstæðna er til sölu þægilega stórt trésmíðaverkstæði miðsvæðis á höfuð- borgarsvæðinu. Verkstæðið er ágætlega búið tækjum fyrir innréttingasmíði og hefur ágæt sambönd til verkefnaöflunar. Gæti hentað vel með annarri starfsemi t.d. byggingaverktöku. Áhugasamir skili fyrirspurn merktri: „T — 12879“ til augl.deildar Mbl. eða á box@mbl.is . ÞJÓNUSTA Húsasmíðameistari getur bætt við sig verkefnum í uppslætti. Er með góð mót. Upplýsingar í síma 698 2261. TILKYNNINGAR Auglýsing um mat á umhverfisáhrifum — úrskurður Skipulagsstofnunar Snjóflóðavarnir á Siglufirði Skipulagsstofnun hefur úrskurðað samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrif- um. Fallist er á byggingu snjóflóðavarna á Siglufirði eins og henni er lýst í matsskýrslu framkvæmdaraðila. Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipu- lagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is . Úrskurð Skipulagsstofnunar má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 13. nóv- ember 2002. Skipulagsstofnun. SMÁAUGLÝSINGAR TILKYNNINGAR Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur, Síðumúla 31, s. 588 6060. Miðlarnir, spámiðlarnir og hug- læknarnir Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen, Ingibjörg Þeng- ilsdóttir, Erla Alexandersdótt- ir og Garðar Björgvinsson michael-miðill starfa hjá félag- inu og bjóða félagsmönnum og öðrum uppá einkatíma. Upplýsingar um félagið, einka- tíma og tímapantanir eru alla virka daga ársins frá kl. 13— 18. Utan þess tíma er einnig hægt að skilja eftir skilaboð á símsvara félagsins. Netfang: mhs@vortex.is . Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur starfar í nánum tengslum við Sál- arrannsóknarskólann á sama stað. SRFR. FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 18  18310168  9.0.*  HELGAFELL 6002101619 IV/V I.O.O.F. 7  18310167½  8.0.*  GLITNIR 6002101619 I  Hamar 6002101619 III Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Háaleitisbraut 58 Samkoma í Kristniboðs- salnum í kvöld kl. 20.30. Haustátak. Upphafsorð Gísli Friðgeirsson. Ræðumaður: Ole Lilleheim. Allir hjartanlega velkomnir. Haust- átak á morgun á sama stað og um helgina á Holtavegi 28, sjá „safnaðastarf í Mbl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.