Morgunblaðið - 16.10.2002, Page 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 39
ENN er veiddur sjóbirtingur í ör-
fáum ám norðan heiða og sunnan,
m.a. í Tungufljóti sem er á fram-
lengingu til 20. október. Síðasta
holl þar lenti í snarvitlausu veðri
og verulegum vatnavöxtum, en
náði samt sem áður 21 birtingi,
bæði legnum og nýgengnum.
„Þetta var mikið ævintýri, veð-
urhamurinn var svakalegur og
ána skóf yfir okkur í vindrokun-
um. Það var svo mikið vatn í ánni
að veiðistaðir voru týndir og fisk-
ur á gerólíkum stöðum og hann er
annars vanur að vera. Við fengum
21 birting, alla á spón, og ég hugsa
að meðalvigtin hafi verið milli 6 og
7 pund. Það voru sex fiskar hjá
okkur á bilinu 10 til 12 pund, en í
veiðibókinni eru þónokkrir stærri,
allt að 18 punda. Við misstum ann-
að eins af fiski og við náðum og
sumir í hópnum töpuðu mjög
stórum fiskum,“ sagði Jóhann
Rafnsson, einn af veiðimönnunum
sem luku veiðum á hádegi á mánu-
dag.
Hópurinn á undan Jóhanni og
félögum var með fáa fiska, en þar
á undan var holl með 24 birtinga
og eins og hjá flestum hópum, all-
marga stórfiska. Að sögn Jóhanns
var talsvert af aflanum nýgenginn
fiskur og var mest af honum 4 til 6
pund, stærri fiskurinn var orðinn
leginn.
Enn er veitt í nokkrum ám, m.a.
Geirlandsá sunnan heiða og Litluá
og Brunná norðan heiða. Veiði í
þeim öllum lýkur um helgina.
Talsvert hefur veiðst af stórum
sjóbirtingum á nokkrum stöðum
í haust. Þessi stórfiskur veiddist
nýverið í Fossálunum.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Enn stór-
fiskaskot í
Tungufljóti
MORGUNBLAÐINU hefur borist
athugasemd frá Stefáni Guðmunds-
syni vegna fréttar í blaðinu sl.
sunnudag um sjópróf sem fram fóru
hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra
vegna Arons ÞH 105:
„Af einhverjum orsökum virðist
sem blaðamaður Morgunblaðsins
stingi niður penna hér og þar í frá-
sögn sinni úr sjóprófum Arons ÞH,
sem haldin voru á Akureyri föstu-
daginn 11. október síðastliðinn.
Hann hirðir lítið um þá heildarmynd
sem skrif hans birta, og skeytir í
engu um þær ranghugmyndir sem
lesandi miðilsins getur fengið við
lestur fréttarinnar.
Það er illmögulegt fyrir hvern sem
er; lærðan eður leikan, að ímynda
sér annað en að viðhald skipsins hafi
verið allt í molum og trassaskapur
útgerðar og vélstjóra skipsins hafi
gert það að verkum að göt hafi verið
hér og þar vegna tæringar af völdum
útleiðslu.
Þá virðist og einhver fjandans
sveif spila stóra rullu í umfjöllun
blaðsins og það veit hver heilvita
maður að slíkir hlutir koma illa í leit-
ir í kolsvarta myrkri og með hálffullt
vélarrúm af olíublönduðum sjó; þó að
blaðið láti þess ógetið. Menn eiga
fótum sínum fjör að launa við slíkar
aðstæður.
„Fyrrverandi vélstjóri“ er kynnt-
ur til sögunnar í umfjöllun blaðsins
og eru það rangindi ein. Maðurinn
var einfaldlega í fríi; eins og undirrit-
aður. Sá sem þetta skrifar veit betur
en svo að þarna hafi allt verið í tómu
rugli.
Umrætt skip fékk fyrsta flokks
viðhald á öllum stundum eftir að-
stæðum hverju sinni og ekkert til
sparað þegar að vélbúnaði eða öðr-
um hlutum kom. Það þarf ekki annað
en að vísa til Siglingastofnunar Ís-
lands vilji menn fá nánari útlistanir á
þeim málum.
Allar vangaveltur eða aðrar pæl-
ingar á orsökum þessa hörmulega
atburðar eru væntanlega byggðar á
getgátum einum saman og ber því
hverjum sem er að varast að draga
inn gamla vandamálapakka sem fyr-
ir löngu höfðu verið leystir.
Það hefir ekki þótt tíðindum sæta
þótt skip eigi við minniháttar út-
leiðsluvandamál að stríða tímabund-
ið; eða hitt að það hrökkvi í sundur
rör örsjaldan fyrir aldurssakir eða
aðrar sakir. Það er hins vegar sjald-
gæft að menn eigi við slík vandamál
árum saman líkt og lesa má í frétt
blaðsins.
Þessi tætingslega og viðvanings-
lega umfjöllun blaðsins úr sjóprófum
setur það niður um stall og ætti að
verða viðkomandi víti til varnaðar í
framtíðinni.
Undirritaður var því miður
„áhorfandi“ í þessu máli en tekur
það sárt að horfa upp á óvönduð
vinnubrögð og rangfærslur þegar
kemur að jafnviðkvæmu máli sem
þessu.
Virðingarfyllst, Stefán Guð-
mundsson, skipstjóri í fríi … “
Athugas. ritstj.
Öllum má ljóst vera að sjóprófum
sem stóðu á þriðja tíma verða ekki
gerð tæmandi skil í frétt. Athyglin
hlýtur að beinast að þeim þáttum
skipsskaðans sem varðar orsakir
þess að báturinn sökk og þeim atrið-
um sem rannsóknarnefnd sjóslysa
spurði einkum út í. Missagt var í
fréttinni að Ágúst H, Borgþórsson
væri fyrrverandi vélstjóri skipsins.
Hið rétta er að hann var í veikinda-
fríi og er beðist velvirðingar á þeirri
missögn.
Athugasemd við frásögn af
sjóprófi vegna Arons ÞH
HAUSTFERÐ Minja og sögu verð-
ur farin sunnudaginn 20. október
og er ferðinni heitið í Reykholt í
Borgarfirði. Lagt verður af stað
kl. 13 frá Þjóðminjasafni Íslands
við Suðurgötu. Staðhættir verða
skoðaðir undir leiðsögn Margrétar
Hallgrímsdóttur þjóðminjavarðar.
Kaffi verður kl. 15.15 í Hótel
Reykholti.
Reykholtskirkja verður skoðuð
undir leiðsögn Haraldar Helgason-
ar arkitekts. Geir Waage mun
sýna hina nýju Reykholtskirkju.
Loks mun Dagný Emilsdóttir, for-
stöðumaður Heimskringlu, taka á
móti hópnum og sýningin Snorri
og samtíð hans verður skoðuð.
Bergur Þorgeirsson, forstöðumað-
ur Snorrastofu, segir frá starfsemi
hennar og gengið verður um húsa-
kynni hennar. Áætlað er að leggja
af stað heim um kl. 17.30. Verð er
kr. 2.000 fyrir fullorðna en ókeyp-
is fyrir börn. Kaffi er innifalið.
Skráning í ferðina er hjá Þjóð-
minjasafni fyrir kl. 12 föstudaginn
18. október. Félagsmenn eru
hvattir til þess að mæta og taka
með sér gesti. Allir eru velkomnir.
Haustferð Minja og sögu
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Gnýr á Sól-
heimum í Grímsnesi ætlar að standa
fyrir maraþon-boccía laugardaginn
19. október. Þessa helgi munu fé-
lagar í íþróttafélaginu spila boccía í
heilan sólarhring til að safna áheit-
um vegna keppnisferðar á Íslands-
mót fatlaðra sem haldið verður á
Akranesi í október. Stefnt er að því
að senda stóran hóp keppenda á
þetta mót. Kostnaður við ferðir sem
þessar er mjög mikill og verður fé-
lagið að standa fyrir fjáröflunum til
að ná upp í kostnað. Í fyrra var spilað
maraþon í sólahring sem gekk afar
vel og viðtökur voru góðar.
Maraþon-boccía fer þannig fram
að félagar skiptast á að spila þangað
til að 24 tíma takmarkinu er náð.
Almenningur og fyrirtæki heita á
Íþróttafélagið áður en maraþonið
hefst með frjálsum framlögum t.d.
1.000 kr. sem síðar eru greiddar eftir
maraþonið með bankainnlögn.
Maraþon-boccía
á Sólheimum
MATVÆLA- og næringarfræða-
félag Íslands (MNÍ) boðar til Mat-
væladags föstudaginn 18. október
kl. 12.30 til 17 í Hvammi, Grand
Hóteli Reykjavík. Ráðstefnan ber
yfirskriftina „Matvælaeftirlit -
horft til framtíðar“.
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra setur ráðstefnuna. Auk
hennar taka til máls eftiraldir að-
ilar: Jón Gíslason sem starfar fyrir
EFTA ríkin, Andrew Wadge frá
Food Standard Agency í Bretlandi,
Steinþór Skúlason frá Sláturfélagi
Suðurlands, Friðrik Blomsterberg
frá SÍF, Heiða Hilmisdóttir, eld-
húsi Landspítalans, fulltrúi neyt-
enda, Halldór Runólfsson yfirdýra-
læknir og Magnús H. Guðjónsson
frá heilbrigðiseftirliti sveitarfé-
laga.
„Fjöregg MNÍ“ verður afhent
en það er verðlaunagripur sem
veittur er fyrir lofsvert framtak á
matvælasviði. Samtök iðnaðarins
gefa verðlaunagripinn, sem er
hannaður og framleiddur hjá Gleri
í Bergvík, segir í fréttatilkynningu.
Matvæla-
dagur MNÍ
Úr Skálafelli
Ranghermt var í frétt í blaðinu í
gær að snjótroðari sem var að störf-
um í garðlöndum í Bláskógabyggð
væri úr Bláfjöllum. Hið rétta er að
hann var fenginn frá skíðalöndunum
í Skálafelli.
LEIÐRÉTT
MORGUNBLAÐINU hafa borist
eftirfarandi mótmæli við framkvæmd
kosningar um afstöðuna til Evrópu-
sambandsins frá Páli Vilhjálmssyni,
formanni Samfylkingar Seltirninga,
Eyjólfi Eysteinssyni í flokksstjórn
Samfylkingarinnar og Herði Guð-
brandssyni, bæjarfulltrúa Samfylk-
ingarinnar og forseta bæjarstjórnar
Grindavíkur:
„Í tölvupósti framkvæmdastjóra
Samfylkingarinnar, Karls Th. Birgis-
sonar, sl. föstudag kemur fram að
þingmenn og prófkjörsframbjóðend-
ur muni sjá um að bera út atkvæða-
seðla vegna kosningar um afstöðu
flokksmanna til aðildar Íslands að
Evrópusambandinu.
Í tölvupósti framkvæmdastjórans
segir að þetta sé m.a. gert til að fram-
bjóðendur geti hitt kjósendur sína.
Þessi framkvæmd á kosningu brýt-
ur gegn grundvallarreglum um leyni-
legar kosningar. Heimsókn frambjóð-
enda til kjósenda með kjörgögn
jafngildir áróðri á kjörstað. Þá býður
framkvæmdin heim hættu á stór-
felldu kosningasvindli.
Við undirritaðir félagsmenn í Sam-
fylkingunni krefjumst þess að farið
verði að viðteknum venjum um fram-
kvæmd kosninga og fylgt verði sam-
þykkt landsfundar Samfylkingarinn-
ar um að póstkosning verði viðhöfð
um afstöðu flokksmanna til aðildar Ís-
lands að Evrópusambandinu.“
Kemur á óvart
Í yfirlýsingu sem Karl Th. Birgis-
son framkvæmdastjóri Samfylking-
arinnar, sendi frá sér í gær segir að
gagnrýni Páls Vilhjálmssonar komi
að nokkru leyti á óvart. Hann hafi
hins vegar ekki kynnt sér málið.
„Framkvæmdahópur um kosn-
inguna og kjörstjórn ákváðu að hafa
þennan háttinn á, ekki sízt af öryggis-
ástæðum, að alls staðar þar sem því
yrði við komið dreifðu flokksmenn
gögnum til félaga sinna. Þetta er al-
þekkt aðferð annars staðar, t.d. í
breska Verkamannaflokknum, og
öruggari en hefðbundin póstdreifing
að því leytinu, að umslögum er ekki
hent inn um lúgu án þess að nokkur
viti með vissu hvort viðkomandi búi
þar eða annar taki við þeim.
Aðrar hugmyndir Páls um „áróður
á kjörstað“ og „brot á reglum um
leynilegar kosningar“ eru jafnundar-
legar og þær að frambjóðendur einir
beri út bréfin. Það gera almennir
flokksmenn um allt land og hafa stað-
ið sig ákaflega vel.“
Mótmæli vegna Evrópukosn-
ingar Samfylkingarinnar Staða kvenna í stjórnmálum
Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúd-
enta, heldur hádegisfund um stöðu
kvenna í stjórnmálum í dag, mið-
vikudaginn 16. október, kl. 12 í stofu
103 í Lögbergi.
Frummælendur eru Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, þingkona
Sjálfstæðisflokksins, Svanfríður I.
Jónasdóttir, þingkona Samfylking-
arinnar, og Una María Óskarsdóttir,
verkefnisstjóri ráðherraskipaðrar
nefndar um aukinn hlut kvenna í
stjórnmálum.
Í DAG
Fundur hjá Sagnfræðinga-
félaginu Ólöf Garðarsdóttir sagn-
fræðingur heldur fyrirlestur á opn-
um kvöldfundi Sagnfræðingafélags
Íslands fimmtudaginn 17. október
kl. 20.30 í húsi Sögufélags við
Fischersund. Erindið nefnist „Á
mörkum lífs og dauða. Helstu áhrifa-
þættir minnkandi ungbarnadauða á
Íslandi 1770–1920“. Ólöf kynnir nið-
urstöður úr doktorsritgerð sinni
sem hún varði síðastliðið sumar við
háskólann í Umeå í Svíþjóð. Þar
fjallar hún um þann árangur sem
náðist í baráttunni við mikinn ung-
barnadauða á Íslandi á síðari hluta
19. aldar.
Á MORGUN
Predikanir í guðfræðideild HÍ
Lokapedikanir í guðfræðideild Há-
skóla Íslands verða fimmtudaginn
17. október kl. 17.30, í kapellu Há-
skóla Íslands. Þar flytja guð-
fræðinemarnir Arndís Ósk Hauks-
dóttir og Svanhildur Blöndal
lokapredikanir Allir velkomnir.
Fyrirlestur um virkjanasvæðið
Guðmundur Páll Ólafsson, nátt-
úrufræðingur og rithöfundur, flytur
erindi sitt við Mímisbrunn á miðhá-
lendi Íslands fimmtudaginn 17. októ-
ber kl. 17. í stofu 101 í Odda. Þar
fjallar hann um og sýnir myndir frá
svæðinu norðan Vatnajökuls. Fjall-
kollur, áhugahópur háskólafólks um
framtíðina, stendur fyrir fundinum
og er hann einkum ætlaður stúd-
entum og starfsfólki Háskóla Ís-
lands. Erindið er liður í því að kalla á
viðbrögð frá háskólasamfélaginu
vegna fyrirhugaðra virkjunarfram-
kvæmda fyrir norðan Vatnajökul,
segir í fréttatilkynningu.
Fræðsla í Alþjóðahúsinu Fræðsla
um íslenskt samfélag verður í Al-
þjóðahúsi, Hverfisgötu 18, fimmtu-
daginn 17. október kl. 20 fyrir fólk af
erlendum uppruna. Sérfræðingur
frá Landlæknisembættinu fjallar
um íslenska heilbrigðiskerfið.
Fræðslan fer fram á íslensku og
verður túlkuð á rússnesku.
FÉLAG Snæfellinga og Hnappdæla í
Reykjavík heldur árshátíð laugardag,
19. október, í Breiðfirðingabúð Faxa-
feni 14, Reykjavík. Húsið verður opn-
að kl. 19. Heiðursgestir verða hjónin
Elín Sigurðardóttir ljósmóðir og Sig-
urður Ágústsson úr Stykkishólmi.
Miðar á árshátíðina verða seldir í
Breiðfirðingabúð fimmtudaginn 17.
október á milli kl. 17–19, segir í frétta-
tilkynningu.
Árshátíð
Snæfellinga