Morgunblaðið - 16.10.2002, Side 40

Morgunblaðið - 16.10.2002, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. MÖNNUM hefur orðið tíðrætt um viðskiptasiðferði síðustu misseri og þá hvernig menn leika sér með kennitölur í þeim tilgangi einum að firra sig ábyrgð gagnvart skuldum. Sjálfur hef ég orðið fyrir barðinu á þeim leik og finnst tími til kominn að segja frá reynslu minni í þeim efnum. Í júní gerði ég sem einstaklingur samning við Blaðavinnsluna ehf. um prentun á Fréttablaðinu sem þá var í erfiðleikum. Blaðavinnslan átti prentvélina sem blaðið hafði verið prentað í en Ísafoldarprentsmiðja, sem hafði annast prentun Frétta- blaðsins, var komin í þrot. Nokkrir fundir voru haldnir vegna þessara samninga en þá sátu ávallt þeir Gunnar Smári Egilsson, rit- stjóri Fréttablaðsins og einn eigenda Fréttar ehf., og Eyjólfur Sveinsson, einn eigenda hins gamla útgáfu- félags Fréttablaðsins. Fór svo að gerðir voru við mig samningar um prentun blaðsins, með þriggja mán- aða uppsagnarfresti, undirritaðir af Eyjólfi Sveinssyni. Prentaði ég blaðið samkvæmt þessum samningi í félagi við fleiri á tímabilinu 12. til 25. júní en þá var út- gáfu blaðsins hætt tímabundið. Ég gerði ekki ráð fyrir öðru en að haft yrði samband við mig þegar blaðið ætti að koma út á ný en það fór á ann- an veg. Útgefendur gerðu samning við nýtt félag um rekstur Ísafoldar- prentsmiðju sem séð hefur um prentunina síðan. Ég sætti mig eðli- lega ekki við þessi málalok og vildi að samningar við mig yrðu haldnir. Þá kom upp úr dúrnum að nýr samn- ingur um prentun var gerður í nafni Fréttar ehf. og fullyrt við mig að gamli samningurinn, sem gerður var við Blaðavinnsluna, kæmi hinu nýja félagi ekkert við. Við endurútkomu Fréttablaðsins töluðu menn digur- barkalega um að félagið væri skuld- laust. Tæknilega er það kannski rétt en dæmi nú hver fyrir sig. Reikningar vegna vinnu minnar við prentun Fréttablaðsins áður en það hætti að koma út tímabundið hljóða upp á 3,5 milljónir króna. Með herkjum tókst mér að herja út 400.000 krónur. Enn er 3,1 milljón ógreidd vegna prentunarinnar. Þar sem samningurinn hefur verið huns- aður og uppsagnarfrestur var þrír mánuðir á ég samtals inni um 10 milljónir króna hjá Blaðavinnslunni. Við þetta er auðvitað að bæta að ég stóð uppi atvinnulaus um mitt sumar. Einu úrræði mín voru að fara fram á kyrrsetningu á prentun Frétta- blaðsins en það hefði hins vegar kost- að mig um 10 milljónir króna. Hefði ég krafist gjaldþrotaskipta á Blaða- vinnslunni hefði það kostað mig 150 þúsund krónur en ekkert verið á því að græða þar sem félagið var eigna- laust. Ég hafði ekki bolmagn til að standa undir þessum fjárútlátum til að ná rétti mínum. Í vonlausri stöðu horfði ég upp á þar sem Fréttablaðið kom út á veg- um nýs félags, Fréttar ehf. Öll tæki, tól og önnur aðstaða til vinnslu á blaðinu var sú sama og áður. En kennitalan var önnur og menn raupuðu um skuldleysi, Blaðavinnsl- an er ekki gjaldþrota, en starfsemin er engin. Þegar ég gerði samningana um prentun Fréttablaðsins voru m.a. í stjórn Blaðavinnslunnar skráðir þeir Gunnar Smári Egilsson, Gréta Oddsdóttir, Eyjólfur Sveinsson, Jón Gunnar Zoëga og Einar Jónsson í Saxhóli. Nýleg eftirgrennslan leiðir hins vegar í ljós að nöfn stjórnar- manna hafa verið máð úr firmaskrá og prókúruhafi er enginn. Það efast enginn um réttmætar kröfur mínar, en kennitöluleikurinn skilur mig eftir á köldum klaka. Ég hef hlustað á Gunnar Smára Egilsson fara mikinn í sjónvarpi og útvarpi um mál líðandi stundar. Þar er hann óragur við að höggva til beggja handa í umfjöllun um háa og lága, ríka og fátæka. En eftir kynni mín af kennitölufarsanum í kringum Fréttablaðið finnst mér tónninn í orðræðum ritstjórans vera orðinn falskur og helst til þreyttur áheyrn- ar. AÐALSTEINN ÖRNÓLFSSON, íþróttakennari í Kirkjubæjarskóla á Síðu. Ábyrgðarleysi fyrirtækja Frá Aðalsteini Örnólfssyni: Í LESENDABRÉFI til Morgun- blaðsins 8. okt. sl. víkur Ólafur S. Andrésson lífefnafræðingur að grein minni í sama blaði 6. okt. sl. sem nefndist „Hernaðurinn gegn land- inu“. Hann segir: „Ég mælist til þess að Morgunblaðið birti ekki níðskrif um fólk sem ekki hefur tök á að verja sig.“ Af samhenginu er augljóst að með orðinu „níðskrif“ á hann við grein mína frá 6. okt. Ég mótmæli því harðlega sem róg- burði að grein mín sé níðskrif. Hún felur vissulega í sér gagnrýni á skrif Halldórs Kiljans Laxness frá 1970, en sú gagnrýni á ekkert skylt við níð eða persónulega árás. Ennfremur segir Ólafur: „Það er einfaldlega ekki við hæfi að ráðast á látna menn. Enginn getur á sóma- samlegan hátt sett sig í áratuga gömul spor og gert hugsunum og efnistökum höfundar réttmæt skil.“ Ég er sammála fyrri hluta máls- greinarinnar, enda var grein mín gagnrýni en ekki árás. Síðari hlut- anum er ég á hinn bóginn ósammála. Algengt er að margra áratuga, já jafnvel árþúsunda, gömul skrif séu gagnrýnd. Aristóteles hefur verið ótæpilega gagnrýndur og ekki síður Karl Marx, svo aðeins tvö dæmi séu tekin. Halldór Kiljan Laxness er ekki hafinn yfir gagnrýni þótt hann hafi verið mesti rithöfundur sem Ís- land hefur eignast. Málefnaleg gagn- rýni og persónuleg árás, eða níð, er sitt hvað. Grein mín frá 6. okt. var málefnaleg. JAKOB BJÖRNSSON, Kúrlandi 12, Reykjavík. Rógburði mótmælt Frá Jakobi Björnssyni:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.