Morgunblaðið - 16.10.2002, Side 43

Morgunblaðið - 16.10.2002, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 43 DAGBÓK Vinna gegn streitu Í tilefni evrópsku vinnuverndarvikunnar efnir Vinnueftirlitið til morgunverðarfundar á Grand Hótel, mánudaginn 21. október frá kl. 8:30-10.00. Húsið opnað kl. 8.00. Dagskrá morgunverðarfundarins: • Setning vinnuverndarvikunnar Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins. • Takturinn í tilverunni; tálsýnin um tímasparnað tækninnar Sigríður Lillý Baldursdóttir, eðlisfræðingur og vísindasagnfræðingur. • Í skugga streitunnar - Baráttuþrek, tilfinninga- viðbrögð og hegðun Daníel Þór Ólason, aðjúnkt í sálfræði við Háskóla Íslands. • Streita og vinnuvernd: Forvarnir á vinnustöðum Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins. Fundarstjóri er Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, félagsfræðingur hjá Vinnueftirlitinu. Skráning á morgunverðarfundinn fer fram hjá Vinnueftirlitinu í síma 550 4600 eða með því að senda upplýsingar um nafn og vinnustað á netfangið vinnueftirlit@ver.is Vinsamlega skráið ykkur fyrir kl. 16.00 föstudaginn 18. október Þátttökugjald er kr. 2.000. Morgunverður er innifalinn í þátttökugjaldinu. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake VOG Afmælisbörn dagsins: Þú ert gæddur ríkum for- ystuhæfileikum, en þér hættir stundum til að fara of geyst í hlutina. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú skalt ekki vera vonsvik- inn þótt eitthvað renni þér úr greipum. Hristu af þér slenið og vertu vinnusamur og jákvæður. Naut (20. apríl - 20. maí)  Veraldleg gæði eru oft til lítils og sérstaklega þegar andlegur auður er ekki fyrir hendi. Þú verður að láta föstu útgjöldin ganga fyrir. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Í nýjum hugmyndum felast oft gömul sannindi. Farið ykkur hægt og rólega því tækifærin hlaupa ekkert frá ykkur. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Leiðindamál leysist af sjálfu sér þegar nýjar staðreyndir koma fram í dagsljósið. Annars dagar þær bara uppi og þú kemst hvergi. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Skoðanabræður þínir hóp- ast í kring um þig. Göngu- ferð um næsta nágrenni getur verið ótrúlega gef- andi. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Hugkvæmni þín er aðdáun- arverð og mun færa þér margan sigurinn. Þungu fargi verður af þér létt um leið og þú hefst handa. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Nú þarftu að taka bæði áhættu og þora að láta til skarar skríða. Leitaðu ráða til að verja sjálfan þig og sinntu aðeins þeim sem hugur þinn stendur til. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Taktu enga ákvörðun nema að vel athuguðu máli í dag. Notaðu þann byr sem þú hefur, en varastu allan leik- araskap. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Stundum er ferð án fyrir- heits það sem sálin þarfn- ast. Því fylgir að gera þær breytingar sem til þarf svo þú náir takmarkinu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það skiptir sköpum að halda ró yfir heimilinu og þar þarft þú að leggja þitt af mörkum. Nú reynir á sjálfsaga þinn og skipulagn- ingu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Aðstæður þínar hafa breyst og þú sérð að þú þarft að breyta klæðaburði þínum. Leggðu áherslu á að um- gangast aðeins jákvætt fólk. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Leggðu öll spilin á borðið því aðeins þannig færðu vinnufélaga þína á þitt band. Raðaðu verkefnum eftir forgangsröð. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT HAUST Allt fram streymir endalaust, ár og dagar líða; nú er komið hrímkalt haust, horfin sumars blíða. Fölna grös, en blikna blóm, af björkum laufin detta; dauðalegum drynur óm dröfn við fjarðarkletta. Allt er kalt og allt er dautt, eilífur ríkir vetur; berst mér negg í brjósti snautt, en brostið ekki getur. Kristján Jónsson 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rb3 Be6 8. f4 Dc7 9. f5 Bc4 10. Df3 b5 11. 0-0-0 b4 12. Rd5 Rxd5 13. exd5 Rd7 14. Kb1 a5 15. Bxc4 Dxc4 16. Rd2 Db5 17. Re4 a4 18. g4 b3 19. cxb3 axb3 20. a3 h6 21. h4 Be7 22. Hhg1 Dc4 23. Hg2 Ha5 24. Hc1 Dd3+ 25. Ka1 0-0 26. Hd2 Da6 27. Bf2 Rf6 28. Rxf6+ Bxf6 29. Dxb3 e4 30. Ka2 Hb5 31. Dc4 Hfb8 32. b4 Staðan kom upp í Áskor- endaflokki Mjólkurskák- mótsins sem lýkur í dag, 16. október. Sigurður Páll Steindórsson (2.211) hafði svart gegn Jóni Viktori Gunnarssyni (2.369). 32. ...Hxb4! 33. Dxa6 Hb2+ 34. Hxb2 Hxb2+ 35. Ka1 Hb6+? Eins og bent hefur verið á þá gat svartur hér og í lokastöðunni unnið eftir 35. ...Hxf2+! 36. Hc3 Bxc3+ 37. Kb1 e3 og hvítur ræður ekki við frí- peð svarts. 36. Ka2 Hb2+ 37. Ka1 og hér var samið um jafntefli. 9. og síðasta um- ferð Mjólkurskákmótsins hefst kl. 13 í dag, 16. októ- ber, á Hótel Selfossi. Kl. 20.30 sama dag hefst Við- skiptablaðsmótið í hrað- skák. Öllum er velkomið að taka þátt svo framarlega sem húsrúm leyfir! SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson ÁRIÐ 1929 setti Theodore Lightner fram þrjár grund- vallarreglur varðandi út- spilsvísandi slemmudobl: (1) Hafi blindur sýnt hliðarlit biður dobl um útspil í þeim lit. (2) Hafi blindur engan hliðarlit sýnt biður dobl um útspil í hliðarlit sagnhafa. (3) Hafi hvorugur sýnt hliðarlit biður dobl um útspil í lengsta lit makkers, en þá er doblið iðulega byggt á eyðu. Þetta eru einfaldar reglur og góð- ar, en margir kjósa þó að spila doblið eftir eyranu, sem eins konar ábendingu til makkers um að nú skuli hann vanda sig. Það gefur yf- irleitt ekki góða raun. Norður gefur; NS á hættu. Norður ♠ 54 ♥ ÁD652 ♦ ÁK762 ♣Á Vestur Austur ♠ 63 ♠ 10972 ♥ 7 ♥ KG1098 ♦ 105 ♦ G984 ♣KD1085432 ♣– Suður ♠ ÁKDG8 ♥ 43 ♦ D3 ♣G976 Vestur Norður Austur Suður – 1 hjarta Pass 1 spaði 4 lauf 4 tíglar Pass 4 spaðar Pass 5 spaðar Pass 6 spaðar Pass Pass Dobl Pass Pass Pass Hvað skyldi nú vaka fyrir austri með doblinu? Sam- kvæmt Lightner er það skýr beiðni um útspil í hjarta (fyrsta lit blinds), en þrátt fyrir ágætan hjartalit er það þó lauf sem austur vill fá út. Vestur var ágætlega lesinn í Lightner og kom alsæll út með einspilið í hjarta. Stöldrum nú við og setjum okkur í spor suðurs. Hvernig á hann að spila? Ef sagnhafi áttar sig á skiptingunni gæti hann hæg- lega fundið vinningsleiðina. Hann tekur á hjartaás og af- trompar mótherjana í fjór- um umferðum. Fer síðan í tígulinn, tekur þrjá efstu og hendir hjarta heima. Staðan er þá þessi: Norður ♠ – ♥ D6 ♦ 76 ♣Á Vestur Austur ♠ – ♠ – ♥ – ♥ KG109 ♦ – ♦ G ♣KD1085 ♣– Suður ♠ 8 ♥ – ♦ – ♣G976 Tígli er enn spilað og laufi hent! Austur er inni á tígul- gosa með eintómt hjarta og verður að gefa sagnhafa slag á drottninguna. Laufásinn er hin trygga innkoma á frítígul og hjartadrottningu. Austur vildi fá út lauf, en kom í raun í veg fyrir lauf- útspil með doblinu. Af þessu má draga þá ályktun að hálf- ur Lightner sé verri en eng- inn. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla 95 ÁRA afmæli. Níutíuog fimm ára varð í gær, þriðjudaginn 15. októ- ber, Ragnhildur Péturs- dóttir frá Rannveigarstöð- um. Hún dvelur á deild 3 á Hrafnistu í Reykjavík. 50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 16. október, er fimmtug Krist- björg Helga Guðlaugsdótt- ir, Súlunesi 18, Garðabæ. Á laugardag, 19. október, tek- ur hún á móti ættingjum og vinum á heimili sínu. Hlutavelta Þessir duglegu krakkar héldu tombólu og söfnuðu 3.100 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Þau heita Björn Ísak Benediktsson, Natan Dagur Benediktsson og María Guð- mundsdóttir. Svartur á leik. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík FRÉTTIR SAMKOMUSYRPA verður dag- ana 16. til 20. október hjá KFUM og KFUK í Reykjavík og meðal ræðumanna á samkomun- um verður Norðmaðurinn Ole Lilleheim. Hann starf- ar fyrir samtökin Open Doors eða Opnar dyr og er hingað kominn í boði fé- lagsins. Fyrstu tvær samkom- urnar verða í dag og á morgun kl. 20.30 í Kristni- boðssalnum við Háaleitis- braut 58–60. Föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld verða samkomur í húsi KFUM og K við Holtaveg og hefjast þær einnig kl. 20.30. Samtökin Open Doors voru stofnuð árið 1955 af Hollendingi sem nefndur er Bróðir Andrés. Hann hefur um árabil fært íbúum í austurhluta Evrópu Biblíur og einkum einbeitt sér að löndum þar sem kristniboð var ekki leyft. „Eftir fall járntjaldsins hafa samtökin einbeitt sér að því að styðja við kristna menn í öllum heimshlutum sem búa við erfiðar aðstæður vegna trúar sinnar. Markmið samtakanna er að styðja við þá sem of- sóttir eru vegna trúar sinnar og koma biblíum og biblíu- hlutum og veita þeim fræðslu. Þá reyna samtökin einnig að vekja kristið fólk á Vesturlöndum til meðvitundar um erfið kjör trú- systkina víða um heim,“ segir m.a. í frétt frá félögunum. Samkomuröð hjá KFUM og KFUK í Reykjavík Ole Lilleheim FÉLAG náms- og starfsráðgjafa í samvinnu við Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar boðar til nám- stefnu um ráðgjöf og fjölmenningu dagana 17. og 18. október í Viðeyj- arstofu. Á haustnámstefnunni gefst þátt- takendum kostur á að kynnast kenn- ingum Sauli Puukari og samstarfs- konu hans Marjatta Lairio frá Finnlandi. Sauli Puukari og Marj- atta Lairio hafa gert langtímarann- sókn um ráðgjöf í finnska skólakerf- inu sem m.a. kemur inn á málefni þess að vera ráðgjafi í fjölmenning- arlegu samfélagi. Toshiki Toma, prestur innflytj- enda, setur námstefnuna fimmtu- daginn 17. október kl. 9, í Viðeyjar- stofu. Fundarstjóri verður Helga Sigrún Harðardóttir atvinnuráð- gjafi. Erindi halda: Edda Ólafsdóttir fé- lagsráðgjafi hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík, Hanna Ragnarsdóttir, lektor við Kennaraháskóla Íslands, Ingibjörg Hafstað, Fjölmenning ehf. og Anh Dao Tran. Vinnuhópar munu starfa og ræða niðurstöður og kynna verkefni vinnuhópanna, segir í fréttatilkynn- ingu. Námstefna um ráðgjöf og fjölmenningu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.