Morgunblaðið - 16.10.2002, Side 45
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 45
KRINGLUKAST
30-40% afsláttur
af völdum vörum
Ný sending af
hermanna-
buxum
Kringlunni — Smáralind Laugavegi 97 — Kringlunni — Smáralind
KRINGLUKAST
30-40% afsláttur
af völdum vörum
MAÐURINN á bak við Biogen
nafnið, Sigurbjörn Þorgrímsson,
hefur lengi verið í fremstu röð hér-
lendra raftónlistarmanna. Oftar en
ekki blandar hann þyngdarlausu
sveimi (ambient)
saman við óþægi-
leg hljóð og há-
vaða, en ekki er
samt hægt að
segja að hann haldi
sig við eina stefnu
heldur tekur hann fremur það sem
honum hentar úr teknói,
drum’n’bass o.s.frv. og hrærir með.
Þessi plata, You are strange, er á
heildina litið á fremur þægilegum
slóðum, ekki mikið farið út á kant í
blöndun hávaða og hljómþýðu og
mest unnið út frá flóknari takt-
grunnum og -lykkjum. Fyrsta lag
disksins, „Tailwaves“, er nokkuð
dæmigert fyrir það sem á eftir kem-
ur, flókin en lágvær taktforritun
með sveimandi hljóðöldum í bak-
grunni sem endurtaka sig og grípa í
skottið á hver annarri með dáleið-
andi áhrifum. Taktpælingarnar ráða
ríkjum í „Audio, this is one“, sem er
afar vélræn súpa af töktum og
braki, eins og vélmenni hafi fengið
líf og tjáningarmátt og skapi hljóð-
skúlptúra á eigin spýtur. Í „Run“ er
takturinn svo ofvirkur að hjartað
slær hraðar og skemmtilegt er líka
„Vivagro“ þar sem ýmsar takbrýr
eru byggðar yfir áleitið og alltum-
lykjandi suð, sem er næstum ógn-
andi í nærveru sinni. Persónulega
var ég samt hrifnust af síðustu lög-
unum þar sem naumhyggjulegt og
taktlaust sveim tekur við, enda
„þægilegust“. „Halogen continues“
er sérlega fíngert, einungis lágvært
bylgjandi suð með mjúku, þoku-
kenndu hljómborðsstefi sem er end-
urtekið og lagið hefði þess vegna
mátt vera mun lengra til að dáleiða
mann alveg. Þetta á við fleiri lög á
plötunni, en aðall tónlistar af þessu
tagi sem byggir á endurtekningum
er þetta „transkennda“ andrúmsloft
sem náðst getur og lengdin á þátt í
að skapa virkilega seiðandi áhrif.
Diskurinn virkar eins og sýnis-
horn úr sarpinum og fer ekki mjög
langt út á tilraunajaðarinn, en hér
leynist samt margt áhugavert og á
köflum hreinlega fallegt og er góður
vitnisburður um verk hins iðna raf-
virkja.
Tónlist
Rafrása-
sveim
Biogen
You are strange
Eigin útgáfa
Geislaplata með Biogen, öðru nafni Sig-
urbirni Þorgrímssyni, sem semur alla tón-
list, flytur og útsetur.
Steinunn Haraldsdóttir
Morgunblaðið/Arnaldur
Steinunn Haraldsdóttir segir You
are Strange hins iðna listamanns
Biogen á köflum innihalda fallega
tónlist.
SONGS for the Deaf er ein allra
besta rokkskífa sem ég hefi heyrt
á árinu. Þetta er þriðja plata
Queens of the Stone Age, en sveit-
in var stofnuð á rústum neðanjarð-
argruggaranna/
eyðimerkurrokk-
arana í Kyuss.
Aðgengið var auk-
ið til muna í nýja
bandinu með fín-
asta árangri og
eru allar plötur QOTSA svo gott
sem skotheldar.
Songs for the Deaf er pottþétt
plata – svo einfalt er það. Rokkið
hérna er svo rokkandi en um leið
svo grípandi og melódískt að harð-
hausar jafnt og laglínuglaðari
rokkáhugamenn ættu að falla fyrir
þessu í hrönnum. Tónlistin er
vissulega ekki mikið frávik frá sí-
gildu rokki gæðasveita eins og
Screaming Trees, Steppenwolf og
(veljið sjálf). Útfærslan hér er
bara svo hrikalega flott, hljóðfæra-
leikurinn svo brjálæðislega þéttur
og heildin bara eitthvað svo …
eitthvað svo geðveik! Ekki skemm-
ir það þá fyrir að hafa snillinga
eins og Mark Lanegan (Screaming
Trees) og Dave Grohl innanborðs.
Ég er svei mér þá farinn að trúa
því að rokkið sé ódrepandi. Hér er
að minnsta kosti komin helv … góð
sönnun fyrir því. Drottningar
í ríki sínu
Queens of the Stone Age
Songs for the Deaf
Interscope
Frábær rokkplata frá Queens of the
Stone Age. Ég meina … þeir ROKKA!
Arnart Eggert Thoroddsen
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060