Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 8

Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 8
8 B SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÉG ER voðalega stolt af þvíað vera frá Suður-Afríkuog segist alltaf vera aðfara heim þegar ég ferþangað. Tálknfirðingar endurtaka þá stundum „heim“ með spurnarhreim í röddinni. „Heim til pabba og mömmu,“ segi ég yfirleitt og þeir kinka kolli. Þegar ég fer þaðan segist ég líka vera að fara heim til Tálknafjarðar. Ég á ís- lenskan mann og barn og er nýbúin að fá íslenskan ríkisborgararétt. Þú getur spurt mig hvort ég sé meiri Suður-Afríkubúi eða Tálkn- firðingur eða öfugt. Ég get ekki svarað þér öðruvísi. Ég er bara það sem ég er,“ segir Marion Gisela Worthmann frá Suður-Afríku og brosir góðlátlega. Marion eða Maja eins og Tálkn- firðingar kalla hana oftast er löngu búin að læra að klæða sig eftir ís- lenskri veðráttu. Hún hefur skotist inn úr dyrunum í hlýrri ullarkápu utan yfir peysu með háum rúllu- kraga. Veðrið gefur heldur ekki til- efni til annars þennan þungbúna sunnudagseftirmiðdag á suður- fjörðunum. Ef satt skal segja er grátóna myndin fyrir utan gluggann ákaf- lega fjarlæg veðurfarinu í sunnan- verðri Afríku. Sú spurning vaknar hvers vegna í ósköpunum leið ungrar stúlku frá landi eins og Suður-Afríku hafi legið til jafnfjar- lægrar eyju langt norður í Atlants- hafi og Íslands. Á leið til Bandaríkjanna „Eins og algengt er meðal ungra Suður-Afríkubúa lagðist ég í ferða- lög að loknu framhaldsskólanámi. Eftir að hafa ferðast talsvert um Evrópu starfaði ég í dálítinn tíma á ferðaskrifstofu í Þýskalandi. Ég ætlaði að fara þangað aftur til að vinna lengur á ferðaskrifstofunni þegar ég lenti í erfðileikum með að fá atvinnuleyfi og varð að hætta við. Við vinkona mín vorum þó ekki af baki dottnar og fengum fisk- vinnu á Tálknafirði í gegnum vin- konu okkar á Patreksfirði. Hug- myndin var síðan að halda áfram héðan til Bandaríkjanna eftir hálft ár.“ – Og þú ert ekki farin enn. „Nei,“ Marion kímir. „Ég kynntist manninum mínum Steinari Arnar- syni einum mánuði áður en ég átti að fara í mars árið 1995. Sem betur fer fékk ég tækifæri til að lengja dvöl mína um 6 mánuði í viðbót og eins og þú segir er ég ekki farin enn. Ég skoða bara Disney-land með Steinari og stráknum okkar Tómasi Erich einhvern tíma seinna! Þó að ég útiloki ekkert í framtíðinni hef ég skotið rótum á Tálknafirði. Ef fólk er jákvætt er gott að búa hérna og alltaf nóg að gera,“ segir Marion ákveðin á svip. Glíman við tungumálið „Takk,“ segir Marion feimnis- lega þegar henni er hrósað fyrir hvað hún tali góða íslensku. Hún leynir því þó ekki að glíman við tungumálið hafi tekið á til að byrja með. „Ég átti í mesta basli með ís- lenskuna fyrst eftir að ég kom hingað. Þó hjálpaði mér töluvert að ég er af þýskum ættum og þýska var alltaf töluð á heimili foreldra minna þegar ég var lítil stelpa. Þýskan er alls ekki svo ólík ís- lenskunni. Íslenskan kom líka með tímanum og stóran þátt í því áttu pabbi og mamma Steinars. Þau tala ekki ensku og hafa verið voða- lega dugleg að kenna mér íslensku með því að tala hana hægt og ró- lega.“ Ólíkar gáttir opnast Eins og margir útlendingar í sjávarbyggðum starfaði Marion við fiskvinnslu fyrstu árin á Tálkna- firði. „Ég vann í frystihúsinu þang- að til ég var komin á steypirinn í nóvember árið 1998. Tómas Erich er svo óheppinn að eiga afmæli al- veg síðast á árinu – þann 28. des- ember. Fæðing hans markaði ekki aðeins tímamót að því leyti að ég varð mamma. Eftir að hann fædd- ist hef ég fengið alls konar frábær atvinnutilboð upp í hendurnar,“ segir Marion og ljómar. „Tómas Erich var pínulítill þegar ég var fyrst plötuð til að leika á orgelið í kirkjunni. Núna leik ég reglulega við messur á Tálknafirði og Bíldu- dal og stundum á Barðaströndinni. Ég fylgi prestinum hvert fótmál.“ Tómas Erich var heldur ekki nema hálfs árs þegar Marion var spurð hvort hún gæti kennt þolfimi í íþróttahúsinu. „Hugmyndin var að reyna að nýta íþróttahúsið bet- ur,“ segir Marion. „Ég verð að við- urkenna að mér leist ekki meira en svo á blikuna til að byrja með. Enda þótt ég hefði talsvert stund- að þolfimi í Suður-Afríku og farið á einstök námskeið á Tálknafirði hafði ég aldrei velt því fyrir mér að kenna. Fyrir þrábeiðni Þórunnar Poulsen í íþróttahúsinu lét ég þó undan að lokum. Ég fór að skoða betur nokkrar þolfimispólur heima og fór meira að segja á sérstakt námskeið til Reykjavíkur til að undirbúa mig fyrir starfið. Núna kenni ég þolfimi í íþróttahúsinu þrisvar sinnum í viku – tvo tíma á mánudögum, einn tíma á miðviku- dögum og föstudögum og þátttak- an er bara ágæt miðað við fjöldann í bænum. Hópurinn er svona 20 konur og dálítið misjafnt hversu margar af þeim mæta í hvert skipti.“ Kennari og nemandi Þú hlýtur að hafa verið ánægð að fá tækifæri til að prófa eitthvað annað en fiskvinnuna? „Jú, ég held samt að mamma hafi verið enn ánægðari,“ segir Marion sposk á svip. „Hún var alltaf að tala um að ég gæti gert svo margt annað. Út- lendingar verða náttúrulega bara oft að láta sig hafa að vinna við allt annað en hugur þeirra stendur til fyrstu árin í nýju landi. Ekki verð- ur heldur framhjá því litið að þeir verða sjálfir að leggja sig fram um að aðlagast og taka þátt í samfélag- inu. Sumir útlendingar koma hing- að í þeim einum tilgangi að vinna sér inn peninga og fara síðan aftur til heimalands síns. Á meðan þeir hugsa svoleiðis verða þeir aldrei hluti af samfélaginu.“ Marion segist hafa farið að vinna á barnaheimilinu á Tálknafirði á daginn þegar sonur hennar var orðin 18 mánaða gamall. „Ég vann á barnaheimilinu í eitt ár,“ segir hún. „Þá bauðst mér tækifæri til að kenna við tónlistarskólann. Eins og með þolfimina var ég dálítið rög til að byrja með. Ég hafði tekið 7. stigið á píanó í Suður-Afríku og lít- ið sem ekkert spilað frá 1990 fyrr en ég byrjaði að spila á orgelið í kirkjunni árið 1998. Ég tók að lok- um þá ákvörðun að þiggja kenn- arastöðuna og drífa mig sjálf í nám. Núna kenni ég 5 og 6 ára börnum á blokkflautu í forskólan- um og er með nokkra nemendur í einkatímum á píanó. Sjálf stefni ég að því að ljúka kennararéttindum.“ Heimþrá í myndum „Sumarið líður alltof hratt,“ seg- ir Marion þegar hún rifjar upp hverju hafi verið erfiðast að venj- ast. „Kuldinn var erfiður. Myrkrið jafnvel enn erfiðara. Ég fékk oft heimþrá fyrstu árin. Með tímanum gerir hún sjaldnar vart við sig nema náttúrlega þegar ég skoða myndir frá Suður-Afríku. Fyrstu árin fór ég venjulega einu sinni á ári til Suður-Afríku. Eftir að ég stofnaði fjölskyldu hef ég látið nægja að fara annað hvert ár. Syst- ur mínar þrjár hafa allar heimsótt mig hingað.“ Hvernig hefur þeim litist á? „Mjög vel. Pabbi og mamma ætluðu að koma næsta sumar en urðu að hætta við því að ein systra minna ætlar að gifta sig í Suður-Afríku í ágúst. Þau verða að skipuleggja brúðkaupið svona langt fram í tímann af því að for- eldrar kærasta hennar búa í Ástr- alíu. Við ætlum að fara í brúðkaup- ið.“ Ég sé að þú ert farin að hlakka til! „Já, ekki spurning. Nú þarf ég heldur ekki lengur að hafa áhyggj- ur af því að vera stoppuð einhvers staðar á landamærum út af suður- afríska vegabréfinu því að ég fékk íslenskan ríkisborgararétt í fyrra- vetur. Í fyrrahaust þegar við kom- um heim þurfti ég að bíða í heilan klukkutíma í röð á einum landa- mærunum á meðan Steinar og Tómas Erich fóru beint í gegnum annað hlið. Þegar síðan kom að mér í röðinni tók mig langan tíma að útskýra fyrir landamæravörð- unum að ég byggi á Íslandi og maðurinn minn og sonur biðu eftir mér hinum megin. Þeir áttu erfitt með að skilja að við værum sama fjölskyldan af því að við erum öll með sitt hvert eftirnafnið.“ Kröpp kjör í Suður-Afríku Hafið þið velt því fyrir ykkur að flytja til Suður-Afríku? Marion dregur við sig svarið. „Ekki eins og ástandið í Suður-Afríku er núna. Launin eru lág og nauðsynjavörur dýrar. Ekki er einu sinni víst að við fengjum vinnu. Atvinnuleysi er gríðarlegt og víða hafa verið settir kvótar í tengslum við ráðningu hvítra og svartra. Ef manneskja er ekki annaðhvort hámenntuð eða með sérstök sambönd er hæpið að hún fái vinnu. Við viljum frekar búa á Íslandi og leyfa okkur svolít- inn munað á meðan við erum í Suð- ur-Afríku. Venjulega erum við líka dálítið langan tíma í einu þegar við förum þangað. Ferðalagið er alltof langt til að stoppa bara í fáeina daga. Fyrst fljúgum við frá Tálknafirði til Reykjavíkur, síðan frá Keflavík til London, London til Jóhannesarborgar og að síðustu frá Jóhannesarborg til Durban en þaðan er um 1,5 klukkustunda akstur til pabba og mömmu í Ramsgate. Allt ferðalagið tekur á bilinu 3 til 4 daga.“ Marion er spurð að því hvort hún hafi ástæðu til að óttast um öryggi foreldra sinna í Suður-Afríku. „Sjáðu til. Þegar ég var lítil var ég sveitastelpa. Fjölskyldan bjó á sveitabæ rétt fyrir utan bæinn Ramsgate á austurströnd Suður- Afríku. Eftir að ég settist að á Ís- landi hafði ég stundum áhyggjur af því hvað bærinn væri afskekktur. Þess vegna varð ég líka mjög ánægð þegar pabbi og mamma tóku ákvörðun um að flytja inn í bæinn fyrir stuttu. Inni í þéttbýl- inu er ekki eins mikil hætta á glæpum og úti í sveitinni. Engu að síður er full ástæða til að gæta sín. Maður passar vel upp á seðlaveskið sitt, gætir að því að læsa bílnum og konur fara helst ekki einar út á kvöldin. Ef gætt er að þessu öllu saman er ekki svo mikil hætta á því Ég er bara það sem ég er Þolfimikennari, organisti, tónlistarkennari og nem- andi. Tálknafjörður væri óneitanlega fátæklegra byggðarlag ef hæfileika Marion Giselu Worthmann frá Suður-Afríku nyti þar ekki við. Anna G. Ólafsdóttir stóðst ekki mátið að hitta Maju að lokinni þjóðahátíð á Tálknafirði fyrir skemmstu. ’ Útlendingar eru um 15% af öllum bæj-arbúum. Ef þeirra nyti ekki við er ekki einu sinni víst að bærinn væri lengur á kortinu. ‘ Morgunblaðið/Finnur Slappað af í faðmi sprækra kvenna eftir þolfimitíma í íþróttahúsinu. Aftari röð (f.v.): Þórunn Ösp Björnsdóttir, Bjarnveig Guðbrandsdóttir, Eygló Hreiðarsdóttir og Fanney Hilmarsdóttir. Fremri röð (f.v.): Guðlaug S. Björnsdóttir, Freyja Magnúsdóttir, Carla Sofia de Jesus da Branca og Ýr Árnadóttir. Marion Gisela Worthman liggjandi fremst. ’ Börnin komast of oft upp með að látareka á reiðanum og gera eins og þeim sýnist. Slíkt kemur sér náttúrlega illa fyrir þau að síðar meir í lífinu.“ ‘

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.