Morgunblaðið - 20.10.2002, Blaðsíða 18
Ný kynslóð
Opel Vectra
Stærri, betur
búinn og
hljóðlátari
HÁLSHNYKKSVÖRNIN í Volvo-bílum hefur hlot-
ið hæstu einkunn í rannsókn á slíkum búnaði í 500
bílum sem gerð var af Thatcham, breskri rannsókn-
armiðstöð trygg-
ingafélaga.
„Rannsóknir á til-
raunastofum sýna
aðeins hluta þeirrar
virkni sem háls-
hnykksvarnir gefa í
raunverulegum
árekstri. Það er
ástæðan fyrir því að Volvo hefur fjárfest í meira en
áratug í tilraunum og rannsóknum á árekstrum og
greiningu á raunverulegum árekstrum, sem leiddi
til þess að árið 1998 var kynnt til sögunnar ný bak-
og hálshnykksvörn – WHIPS,“ segir Lotta Jak-
obsson, talsmaður Volvo. WHIPS-kerfi Volvo er
hannað sem vörn fyrir bak og háls við aftaná-
keyrslu. Framsætið og hnakkapúðinn færist
afturábak til að fylgja eftir högginu sem verður á
höfði og efri hluta líkamans og dregur úr endurkasti
fram á við sem verður við áreksturinn.
WHIPS-kerfi Volvo
fær hæstu einkunn
PORSCHE er sá bílaframleiðandi í heiminum
sem hagnast mest allra. Hagnaður fyrirtækisins
fyrir skatta jókst um 40% á fjárhagsárinu sem lauk
31. júlí sl. Einkum er þetta þakkað mikilli spurn eftir
911 og Boxster en hagnaðurinn fyrir skatta á fjár-
hagsárinu nam 79,9 milljörðum ÍSK. Hagnaður eftir
skatta jókst um 71%, í tæpa 40 milljarða ÍSK. Þrátt
fyrir þetta dróst heildarsalan saman um 0,6%, fór í
54.234 bíla, en salan jókst hins vegar á dýrari bíl-
unum, eins og 911. Áætlanir Porsche ganga út á að
Cayenne-jeppinn, sem var frumsýndur á bílasýning-
unni í París í síðasta mánuði, auki söluna um 50%.
Cayenne Turbo kostar frá framleiðanda 100 þúsund
evrur, eða sem svarar til 8,6 milljóna ÍSK. Hámarks-
hraði bílsins er 266 km á klst. og hröðun úr kyrr-
stöðu í 100 km á klst. tekur 5,6 sekúndur.
Hagnaður Porsche jókst um 71%
ÞAÐ er ávallt sérstakt að setj-
ast upp í Porsche. Þetta er ein-
hver umtalaðasti og nafntog-
aðasti sportbíll sögunnar og
fáanlegur í mörgum útfærslum.
Porsche 911 er framleiddur með
afturdrifi eingöngu, fjórhjóla-
drifi, beinskiptur eða sjálfskipt-
ur með Tiptronic-valskiptingu í
stýri, með þaki eða blæju og
Targa, sem er glerþak sem með
einum hnappi er hægt að opna.
Í vikunni gafst kostur á því að
aka Porsche 911 Carrera 2
Targa sem Bílabúð Benna selur.
Porsche-sportbílarnir verða
stöðugt tæknilega fullkomnari
og um leið aflmeiri. 911 Carrera
var með 3,4 l, 300 hestafla vél,
en nú er hann kominn með 3,6
lítra, sex strokka, 320 hestafla
véli og hjartað byrjar strax að
slá örar þegar bíllinn er gang-
settur. Hljóðið frá vélinni lætur
eins og ljúfasta tónlist í eyrum,
ekki Debussy eða Ravel, miklu
heldur Mahler eða Wagner.
Þetta er mikið afl fyrir ekki
stærri og þyngri bíl og allt fer
það til afturhjólanna. Ólíkt flest-
um öðrum bílum er vélin við aft-
urhjólin og þyngdardreifingin er
engu að síður á þann veg að bíll-
inn er líkastur kartbíl í beygj-
um. Þetta skilja þeir og kunna
að meta sem hafa ekið kartbíl.
Það magnaða við Porsche er
hve auðvelt er að aka honum.
Bíllinn leikur í höndum manns
og er eins og klæðskerasaumað-
ur utan um hvaða ökumann sem
er. Það sem gerir málið einfald-
ara er að ekkert í aksturseig-
inleikunum kemur á óvart –
þetta er ekki kenjóttur bíll. Veg-
gripið er mikið; bíllinn er á
breiðum lágprófilbörðum, 18
tommum, og þótt prófunarbíll-
inn hafi ekki verið með vind-
skeið lá hann sem límdur við
malbikið. Uppgefinn hámarks-
hraði er 285 km á klst. og eyðsla
í blönduðum akstri 11,8 lítrar.
Hröðunin í þessum rúmlega
1.300 kg þunga bíl er áhrifarík
og það fer ekkert til spillis með
PSM-kerfi Porsche, sem er í
senn spólvörn og skrikvörn.
Ökumaður getur síðan fullkom-
lega einbeitt sér að akstrinum
og veginum því Tiptronic-skipt-
ingin er með tökkum í stýrinu í
anda Formula 1 bíla. Uppgefin
hröðun er 5,2 sekúndur úr kyrr-
stöðu í 100 km á klst. Porsche
hefur alltaf verið þekkt fyrir
smíði á frábærum hemlabúnaði.
Í Targa-bílnum er hægt að
negla bílnum af 100 km hraða
niður í kyrrstöðu á 2,9 sekúnd-
um. Stórir, loftkældir diskar eru
á öllum hjólum og diskarnir eru
gegnboraðir til að auka kæl-
inguna, en mesti óvinur hemla-
kerfa er of mikill hiti á bremsu-
skálum.
Og hvað kosta svo herlegheit-
in? Níu milljónir og átta hundr-
uð þúsund.
Morgunblaðið/Þorkell
Targa, bíllinn með glerþakið, kostar 9,8 milljónir kr.
Með 320 hestöfl og
skiptingu í stýri
Það leikur ævintýraljómi yfir Porsche þessa dagana.
Fyrirtækið skilar methagnaði og nýir, aflmeiri og
tæknilega fullkomnari bílar streyma frá fyrirtækinu.
Guðjón Guðmundsson kynntist einni af gersemunum,
Carrera 2 Targa, á dögunum og naut þess út í æsar.
Porsche 911 Carrea 2 Targa — 320 hestöfl, 5,2 sek-
úndur í 100 km/klst.
Tvö stór útblástursrör og sverir barðar. Vélin er
að aftan.
Leður í öllu, Bose-hljómtæki og
Tiptronic-skipting í stýri.
Með götuðum diskum er hemlunin
úr 100 km hraða 2,9 sekúndur.
gugu@mbl.is
Vél- og gírbúnaður: Vél
aftur í.
Fjöldi strokka: Sex,
vatnskæld.
Slagrými: 3.596 rsm.
Hestöfl: 320 við 6.800
sn./mín.
Tog: 370 við 4.250
sn./mín.
Þjöppuhlutfall: 11,3:1.
Drif: Afturhjóladrifinn.
Þyngd (beinskiptur/
Tiptronic S): 1.320/
1.365 kg.
Hámarkshraði: 285
km/klst.
0–100 km/klst: 5,2
sekúndur.
0–160 km/klst: 11,5
sekúndur.
Hemlun 100–0 km/klst:
2,9 sekúndur.
Bensíneyðsla: 11,8 l í
blönduðum akstri.
Heildarlengd: 4.430
mm.
Heildarbreidd: 1.765
mm.
Heildarhæð: 1.305 mm.
Hjólhaf: 2.350 mm.
Dekkjastærð (fram/
aftur): 225/40 ZR 18-
265/35 ZR 18.
Porsche 911
Carrera 2 Targa
Láttu þér ekki verða kalt í bílnum.
Fjarræsibúnaður í sjálfskipta bíla
frá Clifford og Avital.