Morgunblaðið - 20.10.2002, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.10.2002, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 B 19 bílar LÍTIÐ franskt fyrirtæki að nafni P.G.O. hefur helst unnið sér til frægðar að endursmíða fyrir markað Porsche 356 Speedster. Fyrirtækið getur framleitt 14 slíka bíla á mán- uði. Á bílasýningunni í París sýndi P.G.O. lítinn roadster sem byggður er á gömlu VW roadster útliti. Bíllinn heitir RSR og er hinn glæsilegasti. Þetta er tveggja sæta sportbíll byggður á röragrind og yfirbygging- in er úr trefjagleri. Hann er 3,77 m langur, 1,72 m á breidd og 1,24 m á hæð og hjólhafið er 2,25. Vélin er miðjusett og þverstæð, fjögurra strokka með sextán ventlum og tveimur yfirliggjandi knastásum. Hún skilar að hámarki 177 hestöflum við 6.000 snúninga á mínútu. Við hana er tengdur fimm gíra hand- skiptur kassi og hröðun úr kyrrstöðu í 100 km á klst. er sögð vera innan við 7 sekúndur. Hámarkshraðinn er 200 km/klst. Fjöðrun er sjálfstæð á öllum hjólum og öflugur bremsubúnaður er til staðar, þ.e. diskar á öllum hjólum með kælingu. Bíllinn situr á 18 tomma dekkjum og það er afturhvarf til sjötta og sjöunda áratugarins í hönnun bílsins. Aðeins verða fram- leiddir 99 bílar og verða þeir sér- merktir eigandanum. Verðið er frá 35 þúsund evrum, rétt rúmum 3 milljónum ÍSK. Áhugasamir geta sett sig í samband við P.G.O. og heimilisfangið er: Automobiles P.G.O. 181, Rue G. Guynemer, 34130 Mauguio. Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson RSR Speedster er framleiddur í aðeins 99 eintökum. RSR Speedster MARGIR sem sáu Minority Report, framtíðarkvikmynd Stevens Spiel- bergs, muna eftir farartækjunum sem lutu engum lögmálum eðlis- fræðinnar. Á bílasýningunni í París sýndi Lexus einn af aðalleikurunum, tveggja sæta hugmyndabíl fyrir árið 2054. Spielberg skýrir val sitt þannig að hann hafi leitað eftir samstarfi við Lexus til þess að sýna hvernig fram- tíðin gæti litið út varðandi sam- göngukerfi og samgöngutæki á hraðbrautunum eftir hálfa öld. Bíll- inn vakti talsverða athygli í París. Hann er kraftalegur á að líta með næstum láréttum fram- og afturrúð- um og vandséð hvað snýr fram og hvað aftur. Hver veit nema að þeir sem eru að fæðast núna eigi eftir að aka sambærilegu ökutæki eftir hálfa öld, þá vitaskuld knúið vetni eða kannski bara lofti? Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson Hvað er fram og hvað er aftur? Framtíðarbíll fyrir 2054 MENN hafa heyrt um tvinnbíla, rafbíla og vetnisbíla en fæstir vita að framleiddur hef- ur verið bíll knúinn samþjöppuðu lofti. Bíll- inn atarna var kynntur ábílasýningunni í París í síðasta mánuði og heitir PHEV (Pneum- atic Hybrid Electric Vehicle). Þetta er vissulega tvinnbíll því hann gengur jafnt fyrir litlum rafmótor sem og vél sem knúin er með samþjöppuðu lofti. Hefðbundinn sprengihreyfill vinnur þannig að rafneisti kveikir í eldsneyt- isblöndu (bensíni eða dísilolíu) inni í strokkhólfinu og við sprenginguna þenst stimpillinn upp og í endanlausri röð sprenginga verður aflið til sem knýr hjólin. Loftvélin á hinn bóginn þarf ekki eldsneyti heldur eingöngu sam- þjappað loft sem þenst út og hreyfir stimpilinn. Loftvélin er eingöngu notuð til að knýja bílinn áfram þegar farið er upp brekku eða þegar skyndilega er þörf fyrir hraðaaukningu, eins og t.a.m. þegar tekið er af stað. Í bílnum er tölvukerfi sem sér um að skipta á milli orkugjafanna, þ.e. rafmótorsins og loftvélarinnar. Þegar bíllinn hefur náð 10–20 km hraða tekur rafmótorinn við og nær að knýja bílinn upp í allt að 120 km hraða á klst. Ólíkt mörgum öðrum tvinnbílum og sérstaklega rafbílum vegur PHEV ekki meira en hefðbundinn bíll með sprengi- hreyfli. Ástæðan er sú að ekki er þörf fyrir kveikjukerfi, kælikerfi, eldsneyt- istank og útblásturskerfi ásamt hljóð- kútum. Í stað þessara hluta er að finna íbílnum endurhlaðanlegar rafhlöður, loftþrýstidælu og loftþrýstitank. Energine, fyrirtækið sem hefur hannað PHEV, segir að innan tíðar verði hægt að framleiða bílinn á svipuðu verði og hefðbundna bíla af sambærilegri stærð. Það þarf vart að taka það fram að PHEV er mengunarlaus bíll sem notar andrúmsloftið og þjappar því saman og skilar því aftur frá sér hreinu. Vélina áað vera hægt að nota einnig í flug- vélar, skip, kafbáta og í ýmiss konar landbúnaðar- og iðnaðartæki. Eini vandinn sem ennþá blasir við bíl af þessu tagi er lítil ending og hár kostnaður við endurhlaðanlegar raf- hlöður. Helstu bílaframleiðendur heims vinna hins vegar hörðum höndum að þróun nýrra tegunda rafhlaðna og þá má jafnvel vænta þess að hægt verði að markaðssetja PHEV. Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson PHEV er knúinn með lofti og af rafmótor. Bíll sem gengur fyrir loftinu JARÐVATNSBARKAR Stærðir 50—100 mm Lengd rúllu 50 m Tilvalið þar sem ræsa þarf fram land. Vara sem vinnur með þér, auðveld í meðhöndlun. Ármúla 21, sími 533 2020 Stærðir 50—80 og 100 mm. Lengd rúllu 50 mtr. Tilvalið þar sem ræsa þarf fram land. Vara sem vinnur með þér, auðveld í meðhöndlun. MAX VOLUME MASCARA Max Volume NÝTT! .Hámarks þykkt.Hámarks lengd.Hámarks fegurð Veronika notar Max Volume maskara nr. 46 fyrir þína fegurð með þrívíddaráhrifum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.