Morgunblaðið - 20.10.2002, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 B 17
ferðalög
víkur. Í miðri viku var mátulega fá-
mennt en gestum fjölgaði um helgar.
Engir ágengir sölumenn
Atli og Andrea eru sammála um að
úrval veitingastaða sé gott í Calella
og þau segja að hefðbundnir spánskir
réttir séu vinsælastir þar sem mikið
og glæsilegt úrval fiskrétta ræður
ríkjum. „Handa börnunum var hægt
að fá hamborgara, en þeir voru born-
ir fram án brauðs en með frönskum
kartöflum og salati. Veitingamenn í
Calella eru ekkert að flýta sér að nú-
tímavæðast, aðeins hluti veitinga-
staða tekur t.d. greiðslukort. Við fór-
um oftast á veitingahúsin við
strandlengjuna því þá gátu börnin
leikið sér í sandinum á meðan við luk-
um máltíðinni. Þar sem Calella er að
mestu heimsótt af Spánverjum og
Mið-Evrópu mönnum er verðlag þar
mjög gott.“ Þau segja að einhverjum
kunni að finnast rólegheitin full mikil,
en Calella er alveg laus við ágengni
sölumanna og þar gat fólk verið allan
daginn á ströndinni án þess svo mikið
sem að reynt væri að selja ís handa
börnunum, hvað þá dúka eða skart.
„Einn daginn var víkin full af
litlum seglskútum. Á hverju ári sigla
félagar í seglbátaklúbbi einum norð-
ur með ströndinni og heimsækja bæi
og borgir. Í Calella var áð til hádeg-
isverðar. Þetta var mikið „upplifelsi“
fyrir börnin, að vaða í flæðarmálinu
og klifra um borð í litlar skútur er
ævintýri sem gerist ekki á hverjum
degi. Seinni part dagsins sigldu þær
síðan norður með ströndinni.“
Nóg að skoða
Fyrir þá sem ekki geta legið eirð-
arlausir á stöndinni er fjöldi lítilla
bæja sem áhugavert er að skoða. Í
Kataloníu eru margar minjar frá tím-
um Rómverja, kastalar, brýr og aðr-
ar reisulegar byggingar. Ef fólk hef-
ur áhuga að fara á sólarströnd, þar
sem er rólegt en stutt í áhugaverða
staði að skoða, þá er þetta rétti stað-
urinn.
Á Costa Brava ströndinni eru
nokkrir vatnsrennibrautargarðar.
Við fórum tvívegs í Aquaparc í Platja
d’Aro, 20 mínútna akstur suður frá
Calella. Þessi staður er útbúinn öllum
þeim tækjum sem uppfylla þarfir
barnafjölskyldu og á þeim tíma sem
við vorum voru sjaldan biðraðir í
tækin. Huggulegur og þrifalegur
staður þar sem gestir koma byrgir af
nesti. Í lok ferðarinnar gistu Andrea,
Atli Már og börnin í Barcelona. „Enn
leituðum við á Netinu og nú hjá Hotel
Reservation Service (HRS). Netslóð
sem leigir út herbergi á góðum hót-
elum sem eru að koma út síðustu her-
bergjunum á hálfvirði. Við leigðum
íbúðarherbergi á Mariano Cabi, ný-
uppgerðu hóteli þar sem vel fór um
okkur fimm. Í þessu tilfelli fengum
við svefnherbergi með sethorni og
eldhúsi. Við borguðum 60 evrur fyrir
tveggja herbergja íbúð en það hefði
kostað um 120 evrur fyrir okkur að
gista í miðborg Barcelona.
Þar sem flug Flugleiða er seint að
kvöldi frá Barcelona til Keflavíkur er
upplagt að eyða deginum í miðborg
Barcelona og skoða mannlífið.
Ramblan var síðan gengin þar sem
listamenn í hinum furðulegust bún-
ingum og stellingum vöktu mikla
hrifningu barnanna.
Atli og Andrea voru með bílaleigu-
bíl allan tímann og fundu út að það
var hagstæðara að eiga viðskipti við
bílaleigu í Girona en við alþjóðlegar
bílaleigur. Bíllinn beið þeirra á flug-
vellinum við komuna til Barcelona.
Nokkrar áhugaverðar vef-
slóðir: Alþjóðleg íbúðarmiðlun:
www.rent-a-holiday.com
Íbúðarmiðlun í Calella: www.-
finquesfrigola.com
Upplýsingar um gistingu og af-
þreyingu á Costa Brava:
www.costabrava.com/english
Upplýsingar um Barcelona:
www.bcn.es/english
Hótelið sem við gistum á í
Barcelona: www.aparthotel-
marianocubi.com
Vefslóðin sem við pöntuðum
gistingu hjá í Barcelona:
www.hrs.com
Bílaleigan sem við skiptum við:
www.mariusrentacar.com
KARÍBAHAFIÐ
Hjólaferð og skemmtisigling
Hafi einhverjir hug á því að fara í
skemmtisiglingu í Karíbahafinu og
hreyfa sig líka með því að hjóla þá
er boðið upp á slíka samsetningu í
ferð sem stendur yfir frá 26. jan-
úar til 2. febrúar. Siglt er með Nor-
wegian Sky. Á daginn er hjólað, far-
ið í lautarferðir, sund og köfun. Á
kvöldin er farið um borð í skemmti-
ferðaskipið og gist þar.
BANDARÍKIN
Þakkargjörðarhátíð í Boston
Dagana 28. nóvember – 1. desem-
ber er á vegum Icelandair boðið
upp á þakkargjörðarferð til Boston
í Bandaríkjunum.
Verðið er 59.220 krónur á mann í
tvíbýli en 71.220 í einbýli. Auk
flugsins er innifalin gisting á Tre-
mont House í þrjár nætur, þakk-
argjörðarmáltíð á The Bennigans,
íslensk fararstjórn, rúta til og frá
flugvelli er-
lendis og
flugvallar-
skattar.
Fararstjórar
eru Einar
Bollason og
Karl Aspe-
lund. Far-
arstjórarnir
bjóða upp á
dagskrá, t.d.
skipulagða
gönguferð um Boston Common og
nágrenni, ferð á Listasafn Isabellu
Stewart Gardner og skoðunarferð
um Boston Museum of Fine Arts.
Nánari upplýsingar er hægt
að fá á söluskrifstofum Ice-
landair og á www.icelandair.is.
Nánari upplýsingar fást á
slóðinni www.bikeand
cruise.com.
Toppárangur
með
þakrennukerfi
þakrennukerfi
Fagm
enns
ka
í
fyrir
rúmi
BLIKKÁS EHF.
SKEMMUVEGUR 36
200 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111
Söluaðilar um land allt