Morgunblaðið - 20.10.2002, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.10.2002, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 B 9 að verða fyrir einhverju þótt auð- vitað geti fólk alltaf lent í því að vera á röngum stað á röngum tíma. Bróðir Steinars og konan hans fóru með okkur út í fyrra. Þau voru al- veg hissa á því hvað allt virtist ró- legt á yfirborðinu nema náttúrlega þegar við keyrðum í gegnum svæði svartra. Það var hræðilega stress- andi af því að ástandið þar er mun verra en þar sem hvítir búa, at- vinnuleysi talsvert hærra og glæp- ir algengari. Tveimur dögum áður en við keyrðum í gegnum svæðið höfðu tveir lögreglumenn verið myrtir þar,“ segir Marion. Hún er spurð að því hvernig hún haldi sambandi við fjölskylduna sína í Suður-Afríku frá Íslandi. „Ég er alltaf í símasambandi við pabba og mömmu í hverri viku. Við skiptumst á að hringja því síma- kostnaðurinn er hár. Systur mínar hafa verið duglegar að senda mér SMS-skilaboð og núna fer tölvan að taka við. Ég fékk nefnilega tölvu í þrítugsafmælisgjöf um daginn.“ Falleg jólaljós á Íslandi Hvers saknar þú mest frá Suður- Afríku, þ.e. fyrir utan birtuna og veðrið. „Ég finn náttúrlega fyrir því hvað ég er langt í burtu frá fólkinu mínu. Pabba og mömmu finnst sérstaklega erfitt að missa nánast alveg af því að sjá fyrsta barnabarnið sitt vaxa úr grasi. Mamma segir stundum við mig í gríni og alvöru. „Marion mín, af hverju þarftu að búa svona ofboðs- lega langt í burtu? Af hverju getur þú ekki búið aðeins nær, t.d. í London? Þá gæti ég flogið beint til þín frá Jóhannesarborg.“ Marion viðurkennir að hún sakni þess að hafa ekki meira úrval af ávöxtum og grænmeti. „Mataræðið er líka talsvert ólíkt hér og í Suð- ur-Afríku. Hérna fær fólk sér stóra kjötsneið og smávegis af græn- meti. Úti fær fólk sér kjötflís og mikið grænmeti. Annars var ekki næstum því eins erfitt fyrir mig að aðlagast íslensku samfélagi og fyr- ir marga aðra útlendinga, t.d. eru siðirnir svipaðir. Ég get nefnt sem dæmi að ég er Lúterstrúar eins og flestir Þjóðverjar og vön því að halda jólin 24. desember eins og Ís- lendingar. Ég hef líka alveg rosa- lega gaman af jólaljósunum hérna. Í Suður-Afríku eru náttúrlega eng- in jólaljós því að birtan er svo mik- il.“ Friðsælt og afslappað Marion verður að viðurkenna að ýmislegt í fari Íslendinga hafi kom- ið henni spánskt fyrir sjónir til að byrja með. „Mér fannst alltaf mjög skrítið að sjá börn sofa úti í barna- vögnum í öllum veðrum.“ Hvað gerðir þú síðan sjálf? „Alveg ná- kvæmlega eins.“ Marion skelli- hlær. „Tómas Erich svaf úti í brjál- uðu veðri þegar hann var minni. Mamma hélt að ég væri orðin eitt- hvað verri. Mér fannst líka skrítið hvað krakkarnir voru lengi úti að leika sér á kvöldin. Núna kann ég betur að meta frelsið. Í Suður-Afr- íku er alltof hættulegt fyrir börn að vera lengi eftirlitslaus úti á kvöldin. Á Tálknafirði er heldur ekki eins mikið stress og í Reykjavík. Hér er friðsælt og afslappað andrúmsloft og hingað til hefur atvinnuástandið verið ágætt. Við vonum náttúrlega að ekki verði breyting á því í tengslum samdrátt í sjávarút- veginum. Ungt fólk á heldur ekki í sérstaklega miklum erfiðleikum með að koma sér upp þaki yfir höf- uðið því að húsin hérna eru alls ekki dýr. Við höfum góðan skóla, tónlistarskóla, íþróttahús og sund- laug. Hvað er hægt að biðja um meira?“ Agaleysi áberandi Íslendingar geta ekki verið gallalausir! „Nei náttúrlega ekki. Ég veit bara ekki hvað ég á að segja mikið. Jú, jú, mér finnst ungt fólk á Íslandi stundum vera dálítið þröngsýnt. Heima í Suður-Afríku þykir sjálfsagt að ungt fólk byrji á því að mennta sig og skoða sig um í heiminum áður en það festir ráð sitt og hefst handa við brauðstritið. Hér byrjar fólk oft saman ungt, fer út á vinnumarkaðinn og vinnur síð- an að því alla ævi að búa sér fallegt heimili. Satt best að segja held ég að margir hefðu gott af því víkka aðeins sjóndeildarhringinn áður en þeir festa ráð sitt og stofna fjöl- skyldu,“ segir Marion og bætir hugsi við að skilningur Suður-Afr- íkubúa og Íslendinga á því að fara út að skemmta sér sé líka dálítið ólíkur. „Suður-Afríkubúar geta skroppið eftir vinnu út að skemmta sér með félögum sínum og komið síðan heim á skikkanlegum tíma til að mæta daginn eftir í vinnuna. Ís- lendingar segjast ætla út að skemmta sér og eiga þar með við að þeir ætli að detta ærlega í-ða. Agaleysið í þjóðfélaginu er líka talsvert áberandi, t.d. í uppeldinu. Ég man þegar ég var lítil hvað for- eldrar mínur lögðu mikið upp úr því að ég væri hlýðin, snyrtileg og kurteis í samskiptum mínum við annað fólk, t.d. þótti sjálfsagt að börn stæðu upp fyrir eldra fólki þegar ekki voru nógu mörg sæti fyrir alla. Mér finnst oft ekki felast nægilegt aðhald og stýring í ís- lensku uppeldi. Börnin komast of oft upp með að láta reka á reið- anum og gera eins og þeim sýnist. Slíkt kemur sér náttúrlega illa fyr- ir þau síðar meir í lífinu.“ Mikilsvert framlag útlendinga Marion þarf ekki að hugsa sig tvisvar um þegar hún er spurð að því hvort Tálknfirðingar taki út- lendingum vel. „Mjög vel,“ segir hún ákveðin. „Ég held að Tálkn- firðingar átti sig vel á því hversu framlag útlendinga til samfélagsins er mikils virði. Útlendingar eru um 15% af öllum bæjarbúum. Ef þeirra nyti ekki við er ekki einu sinni víst að bærinn væri lengur á kortinu. Almennt finnst mér út- lendingar blandast ágætlega inn í samfélagið, þ.e. ef þeir hafa sjálfir áhuga á því að vera hluti af sam- félaginu eins og ég talaði um áðan. Fyrst eftir að ég flutti hingað voru Tálknfirðingar líka duglegir að spyrja mig út í mína menningu. Með tímanum hef ég síðan orðið eins og hver annar Tálknfirðingur og spurningunum fækkar af eðli- legum ástæðum. Nema náttúrlega þegar ýtt er undir áhugann eins og gerðist á þjóðahátíðinni. Þá var fólk duglegt við að koma við í básn- um mínum um Suður-Afríku og spyrja mig nánar út í ýmislegt.“ Þú varst einmitt annar tveggja framkvæmdastjóra þjóðahátíðar- inn Vestfirðinga á Tálknafirði. Ekki satt! „Já, við Sigríður Ingi- björg Birgisdóttir tókum að okkur að vera framkvæmdastjórar þjóða- hátíðarinnar á Tálknafirði fyrstu helgina í október. Þjóðahátíð Vest- firðinga hefur verið haldin fimm sinnum áður. Fyrstu fjórar þjóða- hátíðarnar voru haldnar á norður- fjörðunum. Núna var komið að okkur að sjá um framkvæmdina. Markmiðið með þjóðahátíðinni er að skapa vettvang fyrir Vestfirð- inga af íslenskum og erlendum uppruna til að koma saman, kynn- ast betur bakgrunni hvers annars og smakka á nokkrum þjóðarétt- um. Við Sirrý eru afskaplega ánægð- ar með hvernig til tókst. Útlend- ingarnir á svæðinu hafa gaman af því að koma fram og kynna menn- ingu sína. Áhugann vantaði heldur ekki hjá Íslendingunum því að að- sóknin var ágæt. Um 300 gestir voru viðstaddir setningu þjóðahá- tíðarinnar og á bilinu 400 til 500 sóttu einhverja liði hennar annan hvorn daginn.“ Óráðin framtíð Hvernig sérðu fyrir þér framtíð- ina? „Þú segir nokkuð,“ segir Mar- ion. „Ég hef svo sem ekki spáð sér- staklega mikið í framtíðina. Jú, ég væri alveg til í að mennta mig eitt- hvað meira í tengslum við íþróttir. Gallinn er bara sá að erfitt er að stunda íþróttanám í gegnum tölvu! Annars er heldur ekkert útilokað að við flytjum eitthvað annað í framtíðinni. Þó að ég sé ánægð á Tálknafirði hef ég stundum velt því fyrir mér að gaman væri að búa að- eins nær stærri bæ eða borg. Ég hef líka stundum velt því fyrir mér að gaman væri að starfa eitthvað innan ferðaþjónustunnar. Áður en ég lagðist í ferðalög lauk ég sér- hæfðu námi fyrir starfsmenn á ferðaskrifstofu í Suður-Afríku þó að ég hafi lítið starfað á því sviði hingað til fyrir utan tímabundið starf á ferðaskrifstofu í Þýska- landi. Einu sinni var reyndar reynt að plata mig til að starfa við hót- elrekstur sem átti að koma hér á fót en ekkert varð úr því. Hugs- anlega gæti verið gaman að fá tækifæri til að starfa sem leiðsögu- maður. Spurning hvað verður ofan á.“ Ein spurning að lokum. Hvað varð um vinkonuna? „Vinkonuna?“ Já, þessa sem kom með þér til Ís- lands? „Já, síðast þegar ég vissi var hún í London á leiðinni til Suð- ur-Afríku. Hún var ekki tilbúin að festa rætur – átti eftir að fara víð- ar …“ ago@mbl.is Marion heima með Steinari og Tómasi Erich fjögurra ára. • Essential Mask gefur frísklegan lit og fallega áferð. • Vinnur gegn öldrunareinkennum, styrkir andlitsvöðvana og þéttir húðina. • Frískar húðina á augabragði og því ómissandi undir kvöldförðunina. • Eins og ferskur andardráttur sem lífgar húðina. ...fegurð og ferskleiki Mánudag 21. okt. Mjódd Þriðjudag 22. okt. Austurveri Miðvikudag 23. okt. Domus Fimmtudag 24. okt. Háteigsvegi Fimmtudag 24. okt. Hamraborg Föstudag 25. okt. Fjarðarkaup Föstudag 25. okt. Mosfellsbæ Súrefni og Essential olíur í nýjum andlitsmaska frá Karin Herzog. Essential Mask (+Essential Olis). Súrefni og Essential olíur gefa öruggan árangur. Kynningar og fagleg ráðgjöf í Lyf og heilsu í október. www.lyfja.is 20% kynningar afsláttur af allri Karin Herzog línunni WWW.FORVAL.IS Sjúkra- aðhalds-, flug- og nuddsokkar. Græðandi, losar þig viðfótrakann Meyjarnar, Háaleitisbraut Borgarnesapótek Apótek Suðurnesja SOLIDEA BAS ET COLLANTS Skráðu þig í Broste klúbbinn - bergis.is Nýr lífsstíll Bankastræti 3, s. 551 3635 Póstkröfusendum BIODROGA snyrtivörur unnar úr lífrænt ræktuðum jurtum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.