Morgunblaðið - 20.10.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.10.2002, Blaðsíða 27
leika á ýmis hljóðfæri ungur að aldri. Hann er núna vel metið tónskáld og hann og eiginkona hans, Maya, sömdu tónlistina fyrir Onegin Mörthu. Magnus hefur einnig samið lög fyrir poppsveitina All Saints og stýrði upptökum á helmingnum af lögunum á fyrstu plötu hennar. Sophie Fiennes er 35 ára og óx úr grasi klemmd milli fimm bræðra og einnar systur. Hún hafði mikla samúð með móður sinni þegar hún glímdi við uppeldi alls þessa liðs. „Þegar við urðum unglingar var þetta yfirþyrmandi verkefni; hún var umkringd skítug- um fötum, illa lyktandi unglings- strákum og fólki sem sí og æ krafðist þess að vera fætt og klætt,“ segir hún. Hún er nú ljósmyndari, leik- myndahönnuður, handritshöfundur og leikstjóri tveggja heimildamynda, auk þess að hafa verið meðframleið- andi einnar leikinnar bíómyndar. Sophie lék aukahlutverk í Onegin hjá systur sinni en hefur ekki áhuga á frekari frama á því sviði. Jacob Fiennes er tvíburabróðir Josephs, 32 ára, og sá eini af Fiennes-börnunum sem ekki starfar í listum og býr í London. Hann er veiðivörður í Norfolk á landareign Sir Nicholas Bacon. Hann segist hafa orðið stoltastur yf- ir þeim árangri að vinna bikarverð- laun í lax- og rjúpuveiðum í Inver- ness. Að skólanámi loknu hafði hann farið til Ástralíu og unnið á bónda- bæ. „Ég er gjörólíkur öðrum í fjöl- skyldunni því ég er í eðli mínu sveita- strákur og kýs rólegt líf,“ segir hann. Joseph Fiennes var lengi í skugga eldri bróður síns sem leikari og þeir Jacob þurftu snemma að berjast til að fá athygli á heimili sem þegar var orðið fjöl- mennt. „Að vera yngstur þýddi æv- intýralega ringulreið. Sífellt var ver- ið að ota að manni vaxlitum, málningu, teikningum og bókum til að maður yrði til friðs,“ segir hann. Sextán ára innritaðist hann í árs- langt listnám en uppgötvaði, eins og Ralph stóri bróðir, að hann hefði mun meiri áhuga á leiklistinni. Hann fór að vinna með Young Vic-leikhús- inu og hóf svo nám við Guildhall-leik- listar- og tónlistarskólann. Fyrsta sviðshlutverkið var í A Month in the Country á móti Helen Mirren en síð- an komu nokkur sjónvarpshlutverk, m.a. með Ralph bróður í Lawrence After Arabia. Fyrsta kvikmynda- hlutverkið var í Stealing Beauty eftir Bernardo Bertolucci, ekki stórt en dugði til þess að vekja athygli á leik- aranum svo að tveimur árum síðar, 1998, lék hann aðalhlutverk í tveim- ur vinsælum stórmyndum frá tímum Elísabetar drottningar, elskhuga Cate Blanchett í Elizabeth og sjálfan Shakespeare í hinni ofmetnu Shake- speare in Love. Síðan hafa komið m.a. Enemy at the Gates og Dust, og framundan eru fjórar bíómyndir með Joseph Fiennes í aðalhlutverk- um, svo hann er nú endanlega kom- inn út úr skugga bróður síns. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 B 27 bíó MIKAEL Torfason og Zik Zak-kvik- myndir eru nú að vinna að fjármögn- un næstu bíómyndar Mikaels en frumraunin Gemsar var sýnd fyrr á þessu ári. Nýja myndin, sem Mikael skrifar einnig handrit að, heitir The Boys og hefur danska kvikmynda- fyrirtækið Nimbus Film, sem verið hefur atkvæðamikið undanfarin ár og m.a. framleitt Festen, gerst með- framleiðandi. Að sögn Mikaels standa nú yfir viðræður við stærsta kvikmyndafyrirtæki Norðurlanda, Nordisk Film, um að taka þátt í gerð The Boys. „Þeir hafa mikinn áhuga en ekkert hefur enn verið undir- ritað,“ segir hann. „Aðild Nordisk Film er mikilvæg því fyr- irtækið á flest kvikmyndahús í Danmörku og hefur tekið þátt í framleiðslu flestra danskra bíómynda, m.a. mynda Nimbus Film.“ Mikael segir í samtali við Morg- unblaðið að hann hafi í mörg ár unnið að handriti The Boys. „Þetta er í eðli sínu fjölþjóðlegt drama í anda East is East og jafnvel Billy Elliot en þó með þeim ferska vinkli að sagan fjallar um dansk-íslenska fjölskyldu og samskipti innan hennar. Faðirinn er íslenskur útlendingur í Danmörku sem vill fá að vera með í dönsku sam- félagi en hefur gengið illa. Hann reynir þá að upplifa þetta samfélag gegnum syni sína og fer langt með að rústa fjölskylduna vegna þess.“ Hann segir að fjármögnunarvinna sé nú í fullum gangi og er leitað sam- starfsaðila víða um lönd. „Okkur gengur mjög vel að laða að verkefn- inu flotta samstarfsaðila en fram- haldið veltur nokkuð á þróun sjóða- mála heima á Íslandi,“ segir Mikael sem búsettur er í Kaupmannahöfn. „En hér í Danmörku erum við komn- ir í startholurnar og draumaplanið er að fara í tökur í lok næsta sum- ars.“ Ný skáldsaga Mikaels, Samúel, er væntanleg nú fyrir mánaðamótin á Íslandi og sú síðasta, Heimsins heimskasti pabbi, kemur m.a. út í Danmörku á næstu vikum. Nimbus Film í Danmörku meðframleiðandi Zik Zak að næstu mynd Mikaels Torfasonar The Boys er dönsk-íslensk fjölskyldusaga Mikael Torfason: Kominn í starthol- urnar í Danmörku. Sterkur B-Complex FRÁ FRÍHÖFNIN Öflugur og öruggur A llta f ó d ýrir H á g æ ð a f ra m le ið sl a -fyrir útlitið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.