Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 20
20 B SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ hefur lengi verið beðið eftir nýj-
um Opel Vectra og nú er hann kominn
á markað hérlendis. Bíllinn er gjör-
breyttur í útliti enda ný kynslóð og
jafnframt orðinn stærri og mun rúm-
betri en áður og betur búinn.
Enn sem komið er hafa einungis
stallbakar borist hingað til lands en
framleiðsla á langbaknum fer senn að
hefjast. Stallbakurinn er eingöngu fá-
anlegur fyrst um sinn með 1,8 lítra
bensínvél og aðeins beinskiptur í
fyrstu. Fenginn var til prófunar
Vectra 1,8 Comfort og óhætt er að
fullyrða strax að með nýrri Vectru
hefur Opel tekið stórt stökk upp á við,
jafnt í hönnun sem aksturseiginleik-
um og þægindum.
Þriðja kynslóðin
Vectra kom fyrst á markað 1995 og
var endurnýjuð 1999. Það er því
þriðja kynslóð bílsins sem nú er verið
að kynna og hann kemur inn á harðan
markað stórra millistærðarbíla þar
sem endurnýjunin hefur verið mikil
að undanförnu. Þarna eru fyrir bílar
eins og Ford Mondeo, VW Passat,
Nissan Primera, Renault Laguna,
Citroën C5 og Mazda 6. Vectra er nú
mun betur búin í þessa samkeppni
enda bílnum verið gjörbylt að öllu
leyti.
Bíllinn er með ávalan framenda og
stórum framlugtum sem ná langt upp
á vélarhlífina. Þetta er nýi Opel-svip-
urinn sem menn eiga eftir að sjá í
fleiri bílum fyrirtækisins, eins og
t.a.m. Signum og Meriva. Hliðarlínan
er há og framrúðan stór. Skottlokið er
sömuleiðis stórt og Vectra státar af
500 lítra farangursrými, sem er það
stærsta í þessum flokki bíla ásamt
Ford Mondeo og Mazda 6. Það er
þýskur nákvæmnisblær yfir hönnun-
inni sem er með harðari línum en áður
en jafnframt sportlegri.
10 cm lengri en áður
Ný Vectra er 10 cm lengri en for-
verinn og hjólhafið hefur stækkað um
5 cm. Fyrir vikið er bíllinn líka um-
talsvert rúmbetri en eldri gerðin og
verður þess ekki síst vart í aftursæt-
um þar sem fótarýmið er gott. Það er
klassi yfir mælaborðinu og allur frá-
gangur og efnisval eins og best gerist.
Komin er ný gerð stefnuljósaarms
sem gæti ruglað menn í ríminu meðan
þeir eru að venjast honum. Með því að
ýta létt á arminn kviknar þrisvar á
stefnuljósinu, nógu oft til að gefa öðr-
um ökumönnum til kynna þegar skipt
er um akrein t.a.m. á hraðbraut. Sé
þrýst fastar á arminn blikkar stefnu-
ljósið lengur og þegar bíllinn er réttur
af slokknar á því.
1,8 lítra vélin skilar að hámarki 122
hestöflum. Vélin er hljóðlát – eða er
það bara hljóðeinangrunin sem er
svona góð - og dugar bílnum fyllilega
með fimm gíra handskipta gírkassan-
um. Hún skilar mestu á tiltölulega
miklum snúningi. Gírskiptingin er lið-
ug og ratvís.
Góðir aksturseiginleikar
Vectra hvílir á nýjum undirvagni
sem státar af svokölluðu IDS-kerfi
(Interactive Driving System). Í kerf-
inu er að finna skrikvörn sem grípur
inn í þegar ökumaður er kominn á
hálan ís. Kerfið er ekki hægt að af-
tengja, nema þá með því að fjarlægja
öryggi í öryggjaboxinu. En kerfið er
líka þannig gert að það grípur ekki
inn í fyrr en algjör nauðsyn krefur og
ökumaður verður því sjaldnast nokk-
uð var við það. Með því að minnast á
undirvagninn, sem er m.a. með nýjum
hjólaupphengjum úr léttmálmi, er
komið að kjarna nýrrar Vectru. Bíll-
inn býður upp á einhverja bestu, al-
hliða aksturseiginleikana í þessum
stærðarflokki. Veggripið er aðdáun-
arvert, undirstýring með minnsta
móti og bíllinn leggur sig lítið í kröpp-
um beygjum. Hann er léttur í stýri og
svarar vel í stýri.
Það er bæði að finna sportlega
takta í aksturseiginleikunum en einn-
ig þægindin sem jafnan fylgja stærri
bílum, ekki síst vegna vel heppnaðrar
hljóðeinangrunar. Þetta ásamt miklu
rými, ríkulegum staðalbúnaði og sam-
keppnishæfu verði gera Vectru að
fýsilegum kosti.
Samkeppnisfært verð
Opel Vectra Comfort 1,8 kostar
beinskiptur 2.190.000 krónur. Hann
er eini bíllinn í sínum stærðarflokki
með átta öryggisloftpúða sem staðal-
búnað en að auki er í honum að finna
ABS-hemlalæsivörn ásamt heml-
unarátaksdreifingu, tölvustýrða spól-
vörn, loftkælingu í miðstöð, fjölstill-
anleg framsæti, hljómtæki með
geislaspilara með fjarstýringu í stýri
og átta hátölurum, 16 tommu dekk og
margt fleira. Helstu keppinautar eru
Ford Mondeo, sem kostar í Trend-
útfærslu 2.165.000 kr., VW Passat
Comfortline 2.0, sem kostar 2.280.000
kr. og Mazda 6 TS 2.0 með 141 hest-
afla vél, sem kostar 2.290.000 kr. Mis-
munandi búnaður fylgir öllum þess-
um bílum.
Morgunblaðið/Sverrir
Ný Vectra er lengri og rúmbetri en fyrirrennarinn.
Hljóðlát Vectra með
góða aksturseiginleika
Stallbakurinn er með 500 lítra farangursrými. Snotur innrétting, góður frágangur og efnisval einkenna Vectra.
Einfaldir og þægilegir mælar.
Op fyrir skíði eða lengri hluti.
Stórar linsulugtir.
Fjarstýring er í stýrinu.
gugu@mbl.is
!
"#"$ %"$ & $$ '
" (
) * )+* %,"
-
$
.
/*
0"
1"
.
234444 ' $5$ 6 $
78
24
5
9$
24
;
-
<:24
2:<444
22 4444
2234444
2=34444
REYNSLUAKSTUR
Opel Vectra
Guðjón Guðmundsson
Vél: 1.796 rsm, fjórir
strokkar, 16 ventlar.
Afl: 122 hestöfl við
6.000 sn./mín.
Tog: 167 Nm við
3.800 sn./mín.
Gírkassi: Fimm gíra
handskiptur.
Lengd: 4.596 mm.
Breidd: 1.798 mm.
Hæð: 1.460 mm.
Hjólhaf: 2.700 mm.
Eigin þyngd: 1.395 kg.
Farangursrými:
500 lítrar.
Hemlar: Diskar, kældir að
framan, ABS-EBD.
Hröðun: 11,2 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km/klst.
Hámarkshraði:
203 km/klst.
Eyðsla: 7,7 lítrar í
blönduðum akstri.
Verð: 2.190.000 kr.
Umboð: Bílheimar.
Opel Vectra
Comfort 1,8i
bílar