Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 21

Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 B 21 bílar Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Húsgögn Sérpantanir Opnunartímar: Mánud.-föstud. frá kl. 10-18. Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is Netfang: bilathing@hekla.is MMC Pajero GLX 2500 Diesel, f.skr. d. 16.03.2001, ek. 24 þús. km, bsk., 5 dyra., 33“ breyting, vara- dekkshlíf, vindskeið, dráttarkrókur, litað gler o.fl. Verð 3.690.000. Nánari upplýsingar hjá Bílaþingi Heklu Grand Cherokee Ltd. jeppi til sölu, árg. 2000, tilbúinn til afh. strax. Með öllum búnaði, ekinn aðeins 47 þús. km, þjónustusaga til. Einn eigandi, allt upprunalegt, toppástand. Nánari uppl. á heimasíðu okkar: www.natcars.com UMFJÖLLUN er um metanbíla á Íslandi í NGV Worldwide sem er fagtímarit um ökutæki sem ganga fyrir jarðgasi og þar með metani. Tímaritið er gefið út af alþjóðasam- tökum um jarðgasbíla og er dreift til 65 landa. Greinar um þetta efni hafa áður birst í blaðinu. Í greininni er sagt frá því að met- angasvæðing á Íslandi sé enn á frumstigi og innan við 50 ökutæki nýti sér jarðgas. Þessi þróun sé hins vegar studd af sveitarfélögum og fyrirtækjum. Sagt er frá því að til að uppfylla starfsleyfi sitt við landfyll- ingar með sorpi þurfi Sorpa að vinna gas og helst að nýta það ella verði að brenna því á staðnum. Auk notkunar á ökutæki sé starfrækt rafstöð sem nýti sér gasið og auk þess kanni nú plastframleiðandi tækifæri til að nota gasið í stað innfluttrar olíu. Morgunblaðið/Ásdís Fjallað um metanbíla á Íslandi 50 ÁR eru nú frá því að Sigfús Bjarnason, stofnandi Heklu, hóf inn- flutning á Volkswagen-bifreiðum til Íslands. Af því tilefni hefur Hekla efnt til sagnasamkeppni, þar sem fólki er boðið að senda inn frásögn af reynslu sinni og/eða skemmtilegum atvikum, sem tengjast Volkswagen-bjöllunni, í formi örsögu, eða innan við 500 orð. Skilafrestur er til 21. október nk. og sögurnar má senda á netfangið saga- @volkswagen.is eða til Heklu, Lauga- vegi 170–174, 105 Reykjavík. Á afmælisárinu hefur Volkswagen náð hæstu markaðshlutdeild sinni, frá því að gamla Volkswagen-bjallan var einn vinsælasti bíll hérlendis, og hún aukist um tæplega 18% ef borið er saman við sama tímabil 2001. „Við höfum, í tilefni þessara tíma- móta, boðið Volkswagen Golf og Bora með veglegum afmælispakka, auk þess sem nýr Polo var kynntur í vor. Þessu hefur verið ákaflega vel tekið af viðskiptavinum Heklu, enda hefur sala Volkswagen-bíla aukist og farið fram úr okkar björtustu vonum,“ seg- ir Jón Trausti Ólafsson, markaðs- og blaðafulltrúi Heklu. „Við höfum því gert ráðstafanir til að afmælispakk- inn verði í boði með Golf og Bora til ársloka. Í tilefni afmælisins efnum við með- al annars til Volkswagen-sagna- samkeppni, en skilafrestur rennur út mánudaginn 21. október. Við munum síðan í kringum næstu mánaðamót kynna þá sögu sem best þykir, og veita sigurvegara vegleg verðlaun. Okkur hafa þegar borist fjölmargar sögur, og er skemmtilegt að fylgjast með hve margir taka þátt í keppn- inni.“ Í lok mánaðarins verður opnaður endurnýjaður Volkswagen- og Audi- sýningarsalur í Heklu-húsinu. Nýi sal- urinn er í samræmi við nýjar áherslur Volkswagen og Audi á útliti sýning- arsala sinna, sem hefur vakið verð- skuldaða athygli í Evrópu. Í salnum verður m.a. sérstakt Volkswagen Touareg sölu- og kynningarsvæði, en Touareg er nýr, afar vel búinn jeppi, sem frumsýndur var á bílasýningunni í París í september 2002. VW í 50 ár Skráðu þig í Broste klúbbinn - bergis.is Nýr lífsstíll

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.