Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 24
Fiennes-bræður og
fjölskylduböndin
Ralph Fiennes í Red
Dragon og Joseph Fiennes
í Killing Me Softly sem
frumsýndar eru hérlendis
um helgina
ÞRÁTT fyrir misjafnt gengi
undanfarið fer því fjarri að
Hollywood hafi misst trúna á
Eddie Murphy. Hann hefur nú
gert tveggja ára framleiðslu-
samning við DreamWorks-
fyrirtækið og nýtur þar gamalla
kynna við stjórnanda þess
Jeffrey Katzenberg, en þeir
stóðu á árum áður að gerð
smella á borð við 48 hrs. og
Beverly Hills Cop. Murphy er
þessa dagana að vinna að
framhaldi smellsins Shrek fyrir DreamWorks og
Daddy Day Care fyrir Revolution-félagið og birtist
senn með Owen Wilson í I Spy, sem byggð er á
vinsælum sjónvarpsþáttum 7. áratugarins.
Murphy er ekki heillum horfinn
Eddie Murphy:
Hleypur á snær-
ið.
ÞAR sem Gurinder Chadha gekk
út af öldurhúsi sumarið ’96, eftir
að Gareth Southgate hafði
brennt af enn einu úrslitavítinu
fyrir enska landsliðið, og sá hvar
fílefldir karlmenn sátu á gang-
stéttum og grétu hástöfum eins
og ungbörn rann upp fyrir henni
ljós. „Hvernig væri að nota
þennan yfirgengilega tilfinninga-
þrungna testósterón-fulla heim
karlmanna og demba eins og
einni indverskri, tápmikilli stelpu
beint inn í hann miðjan?“
Þar með var borin hugmyndin
að Bend it Like Beckham, ein-
hverjum óvæntasta smelli
breskrar kvikmyndagerðar í
lengri tíma, lítilli mynd sem sló
rækilega í gegn í heimalandinu
og velti um leið upp fleiri spurn-
ingum um breskt samfélag en
kannski flestar aðrar myndir
hafa gert á liðnum árum.
Myndin fjallar um tvær 18 ára
gamlar stelpur sem þrá það heit-
ast að gerast atvinnukonur í fót-
bolta. Önnur hefur fullan stuðn-
ing frá föður sínum en þarf að
glíma við móður sem hefur
áhyggjur af kvenleika dótturinn-
ar. Hin er af indverskum upp-
runa og mætir skilningsleysi
íhaldssamra foreldra sem hlusta
ekki á annað en að dóttirin gangi
öruggan menntaveginn og gerist
svo trú og trygglynd eiginkona
og húsmóðir sem kann að elda
réttu karríréttina ofan í ind-
verskan eiginmann sinn. En
stelpurnar eru sjálfstæðari og
staðfastari en svo að þær láti for-
sjárhyggju foreldranna eyði-
leggja drauma sína og þrár.
Konur í karlaheimi
Ekki einasta hefur myndinni
verið hælt fyrir skemmtanagild-
ið, heldur þykir hún velta upp
þörfum réttindamálum, eins og
rétti indverskra ungmenna til
þess að velja sjálf framtíð sína og
rétti kvenna til þess að iðka
íþrótt sem karlmenn sátu lengi
vel einir að. Það kemur því ekki
á óvart að leikstjóri myndarinn-
ar, Gurinder Chadha, bresk kona
af indverskum uppruna sem
fæddist í Nígeríu, hafi unnið við
blaðamennsku og heimildar-
myndagerð fyrir BBC áður hún
sneri sér að gerð leikinna mynda.
Áður en hún beindi spjótum sín-
um að stelpuboltanum hafði
legur tími í lífi manns en líka sá
mikilvægast því þá eru teknar
ákvarðanir sem koma til með að
ráða mestu um hvað úr manni
verður, hver lífsgildi manns eiga
eftir að verða og hvaða mann mað-
ur kemur til með að geyma. Í
myndinni eru vísvitandi kynnt til
sögunnar ólík viðhorf til þess hvað
það er sem gerir unga stúlku að
góðri konu.“
Eitt sinn blaðamaður,
ávallt blaðamaður
– Af gamanmynd að vera þá
vekur myndin máls á óvenju mörg-
um og áleitnum spurningum.
Nokkuð sem virðist gefa til kynna
að enn blundi heilmikill blaðamað-
ur í höfundi.
Chadha hlær við og segir svo að
þar eigi blaðamaður sannarlega
kollgátuna. „Þetta er einmitt
vandamálið við það að hafa ein-
hvern tímann verið blaðamaður.
Maður getur ekki hætt því. Jafn-
vel þegar ég er á vappi úti á götu
og verð vitni að slagsmálum stend
ég mig að því að hitna öll upp, fyll-
ast forvitni og hungri eftir því
að kynna mér nánar
hvað sé á seyði, hver
fréttin er. Það hefur
alltaf verið ákveðin
blaðamennska til staðar
í kvikmyndagerð minni,
ekki hvað síst í þessari
mynd. Ég vil spyrja þarfra
spurninga í myndum mín-
um og jafnvel bjóða upp á
einhver svör líka.
Þótt myndin eigi að vera
létt gamanmynd þá er ég um
leið að fagna hinu fjölþjóðlega
samfélagi sem byggir England
samtímans. Þetta samfélag á
vissulega við sín vandamál að etja
og er síður en svo eitthvert fyr-
irmyndarríki, en þessi suðupottur
fjölþjóðlegrar menningar sem fyr-
irfinnst í Lundúnum t.d. er fyrir
mér lífið á þessari jörðu í sinni
fegurstu mynd. Í þessum suðu-
potti hef ég nærst og myndin er
afrakstur þess.“
Varð að læra að elda indverskan
Chadha segist þess fullviss að
myndin gefi nákvæma og raun-
sæja mynd af ensku samfélagi á
21. öldinni. Hún segist alveg hafa
staðist þá freistingu að beita ýkj-
um málflutningi sínum til stuðn-
ings. „Myndin er að mjög miklu
leyti byggð á mínum eigin upp-
vaxtarárum, mínum eigin vinum
og vandamönnum. Það gerði ég til
þess að komast hjá öllum klisj-
unum um indversku fjölskylduna í
Englandi, að annað foreldrið sé
alltaf svo strangt og leyfi börnum
sínum ekkert, að allir foreldrar
séu íhaldssamir en börnin frjáls-
lynd og æst í að verða ensk. Þann-
ig er það bara ekki því að í dag eru
margir foreldrar af indverskum
uppruna orðnir frjálslyndari en
börnin þeirra og viljugri til þess að
aðlagast enskum siðum og háttum.
Skýringin er sú að nú loksins hafa
hinir yngri oftast nær frjálst val,
hvort þeir kjósi að hafa í heiðri
gömlu indversku siði forfeðranna
eða lagi sig algjörlega að vestræn-
um siðum heimalandsins. Þannig
er það t.d. einlægur vilji margra
ungmenna af indverskum uppruna
í Englandi að giftast öðrum af ind-
verskum uppruna, og þá ekki ein-
göngu til að gleðja foreldra sína
heldur einnig sig sjálf.“
– Þú hefur því litlar áhyggjur af
því að vestrænu áhrifin muni ein-
hvern tímann kæfa þau indversku?
„Nei, alls engar. Ef þú ferð á
indverskar trúarsamkomur í Eng-
landi sérðu að þær eru yfirfullar af
ungu fólki sem hefur klárlega mik-
inn áhuga á því að halda í ind-
verskar rætur sína, jafnt í anda og
efni, samfara því að það fagnar og
meðtekur enska siði.“
Chadha gert tvær
myndir, rómaðar
mjög þótt lítt
þekktar séu; Bhaji
on the Beach frá 1993
og What’s Cooking?
frá 2000. Og það leyndi
sér ekki, er blaðamaður
Morgunblaðsins ræddi
við Chadha á dögunum,
að hún er ástríðufullur
kvikmyndagerðarmaður
með afbrigðum og henni er
aufúsa á að ræða innihald
mynda sinna og tilgang:
„Ég leggst ekki út í gerð
kvikmyndar nema hún hafi
einhvern tilgang, innihaldi
einhver skilaboð sem mér
þykir þörf á að koma á
framfæri. Svo spillir ekki
fyrir ef hægt er að tvinna
það saman við hátt
skemmtanagildi. Það er
mitt æðsta markmið, að
upplýsa fólk og skemmta
því í senn.“
Chadha sagðist
einkar spennt yfir til-
hugsuninni um að
mynd hennar skyldi
nú verða sýnd á al-
mennum sýningum í
landi á borð við Ís-
land. „Ég einsetti mér
að gera mynd sem
höfðaði til sem flestra.
Ég átti því allt eins von
á að henni yrði tekið vel
í heimalandinu en það
kemur mér afar skemmtilega á
óvart hversu alþjóðlega skírskot-
un hún virðist hafa og að hún
skuli sýnd á almennum sýning-
um í nær öllum löndum heims-
ins.“
– Það hlýtur að vera algjör
draumur, sérstaklega með mynd
sem í fyrstu virðist svolítið stað-
bundin?
„Það er yndislegt því myndin
dvelur að mestu við vangaveltur
er varða enska þjóðarmenningu
og siði frá mínum bæjardyrum
séð.“
– Það væri einfaldast að segja
myndina gamanmynd um ind-
verska stelpu sem langar að ger-
ast atvinnumaður í fótbolta.
Eitthvað segir mér þó að fyrir
þér sé sagan öllu fjölþættari og
meiningarmeiri.
Chadha hugsar sig svolítið
um, hóstar, og segir svo „Sko, í
kjarnann er þetta mynd um stelp-
ur sem eru að reyna að fóta sig í
heimi karlmanna. Og ég valdi þá
leið að tvinna saman tvenns konar
þráhyggju, fótboltaþráhyggju
Englendinga og hjónabandsþrá-
hyggju Indverja. Úr varð tíma-
bær umræða um kveneðlið á 21.
öld. Myndin fjallar um stúlkur á
þeim erfiða aldri er þær taka að
breytast í konur. Stúlkur á þeim
aldri þegar allir virðast vera að
skipta sér af lífi þeirra og segja
þeim til um hvernig þær eigi að
hegða sér og hvað þær þurfi að
gera til að verða góðar og heið-
virðar konur. Þetta er ruglings-
Tandoori, bros
og takkaskór
Bend It Like Beckham er eins og glöggir lesa
úr nafninu mynd um fótbolta. En hún er miklu
meira en það. Hún er gamanmynd, ástarmynd,
þjóðfélagsádeila. Hún er mynd um hvernig það
er að tilheyra minnihlutahópi; vera frá innflytj-
endafjölskyldu í Englandi, stelpa í fótbolta,
indversk stelpa sem ekki vill láta velja fyrir sig
lífsförunaut. Skarphéðinn Guð-
mundsson ræddi við höfundinn og
leikstjórann Gurinder Chadha sem
segir myndina endurspegla sinn eig-
in bakgrunn og lífssýn.
Nýstirnið Parninder Nagra
í hlutverki indversku
stelpunnar Jass sem þráir
ekkert heitar en að verða
atvinnumaður í fótbolta.
Gurinder Chadha er Englendingur
af indverskum uppruna sem fæddist
í Kenýa.
SPENNUMYNDIN The Other
Side Of Simple er nú í und-
irbúningi en þar leika Don
Cheadle og Vince Vaughn
þjófa sem snúa aftur til heima-
bæjar síns í miðvesturríkjunum
og hyggjast fremja rán. Tíu ár-
um áður höfðu þeir notfært sér
yngri bróður annars þeirra við
svipað athæfi og lenti sá í klóm
réttvísinnar. Þegar þeir ætla að
endurtaka leikinn reynist bróð-
irinn ekki eins grandalaus og
hann var. Leikstjórinn er reyndur spennumyndahöf-
undur, Joseph Ruben, sem gert hefur m.a. The
Stepfather, True Believer og Sleeping With the
Enemy, en handrit Erics Kmetz er sagt í anda The
Usual Suspects. Vince Vaughn mun senn birtast á
tjaldinu í gamanmyndinni Old School og fyrsta leik-
stjórnarverkefni Cheadles er í burðarliðnum,
Tishomingo Blues eftir sögu Elmores Leonard.
Cheadle og Vaughn leika
pörupilta
Vince Vaughn:
Þrjótur reynir
öðru sinni.
CLINT Eastwood fer bæði
með aðalhlutverkið og er leik-
stjóri spennumyndarinnar
Blood Work sem frumsýnd
verður á næstunni og byggð er
á skáldsögu eftir Michael
Connelly. Eastwood leikur
Terrell McCaleb, FBI útsendara,
sem er vinsæll fréttamatur en
óvinsæll hjá samstarfs-
mönnum sínum. Kvöld eitt er
hann að rannsaka staðinn þar
sem nýjasta raðmorðið var
framið. Honum verður þá litið á
náunga í áhorfendahópi sem hann telur vera morð-
ingjann og hleypur á eftir honum, en fær hjartaáfall
áður en hann nær að ljúka verkinu. Tveimur árum
síðar hefur nýtt hjarta verið grætt í hann og er
hann að gera sig kláran til að taka við fyrra starfi
þegar ókunnug kona (Wanda De Jesus) kemur til
hans og tjáir honum að nýja hjartað hans sé úr
systur sinni sem fallið hafi fyrir morðingja hendi.
Hún biður McCaleb að finna morðingja systur sinn-
ar sem hann samþykkir þrátt fyrir fortölur lækn-
isins síns (Anjelica Huston). Hann fer af stað með
hjálp nágranna síns Buddy (Jeff Daniels) til að elta
morðingjann uppi.
Með hjarta að láni
Clint Eastwood:
Spennumynd
eftir sögu Conn-
ellys.
REESE Witherspoon leikur
Melanie Carmichael, tísku-
hönnuð frá Alabama sem hef-
ur verið að gera það gott í
stórborginni New York í bíó-
myndinni Sweet Home Ala-
bama, sem frumsýnd verður
hérlendis fljótlega. Hún er ekki
bara vinsælasti tískuhönnuður-
inn heldur er hún einnig trúlof-
uð Andrew (Patrick Demps-
ey), syni borgarstjórans í New
York, sem leikinn er af Candice
Bergen. Þegar trúlofun þeirra
kemst í blöðin, ákveður Melanie að fara aftur til
Alabama og gera hreint fyrir sínum dyrum og kem-
ur þá margt misjafnt í ljós. Melanie er nefnilega gift
kona og hefur eiginmaður hennar Jake neitað að
gefa henni skilnað eftir. Hún er þó ekkert á því að
gefast upp og ætlar sér í þessari heimferð að láta
hann skrifa undir skilnaðarpappírana. Málin verða
hinsvegar svolítið snúin fyrir Melanie þegar Andr-
ew og móðir hans borgarstjórinn ákveða að fylgja
henni á heimaslóðirnar.
Með tvo í takinu
Sweet Home
Alabama: Jean
Smart og Reese
Witherspoon.