Morgunblaðið - 26.10.2002, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 26.10.2002, Qupperneq 14
SJÓTÆM nefnist röð spunaverka sem nemendur í leiklist 103 í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja sýndu á sal skólans í gærmorgun. Hefð hefur skapast í skólanum fyrir því að leik- listarnemendur setji upp eina til tvær sýningar á önninni og fái þann- ig æfingu í að tjá sig frjálst og óþvingað frammi fyrir hóp af fólki. Sýningin var vel sótt og kunnu sam- nemendur krakkanna greinilega vel að meta spunaverkin. Spunaverkin Handsnúinn, Ban- anasjeikspír, Í skugga Sjeikspírs, Nötts og Gæran voru öll unnin af nemendum og sóttu þau fyrirmynd- irnar einkum í eigin reynsluheim, sem greinilega er mikið undir áhrif- um fjölmiðlanna. Þarna mátti sjá þeirra túlkun á sjónvarpsþættinum Leiðarljósi, Heilsubælinu í Gerva- hverfi og heyra slagara úr hinum ýmsu auglýsingum. Þá var sjálft fjölmiðlafólkið tekið fyrir og vonar blaðakona Morgunblaðsins svo sannarlega að blaðakonan í Gær- unni sé ekki sú mynd sem ungling- arnir hafi á starfstéttinni. Eins og tíðkast með spunaverk eru engin handrit höfð til hliðsjónar og í ljósi þess að leiklist 103 er grunnáfangi í leiklist lék blaðakonu forvitni á að vita hvort ekki væri erf- itt að byrja „ferilinn“ á þennan hátt. „Jú, spuni er alltaf erfiður, en líka mjög skemmtilegur. Við höfum æft þetta vel þannig að við kunnum þetta orðið utanað. Við fórum ekki út í það að spinna þetta jafnóðum á sýningunni núna,“ sögðu leiklist- arnemarnir í viðtali að sýningu lok- inni. Það leyndi sér ekki að þau voru ánægð með sýninguna og stolt af verkum sínum og Marta Eiríks- dóttir, leiklistarkennari, ekki síður af nemendum sínum. „Þetta er líka ofsalega skemmtilegur áfangi,“ sögðu krakkarnir. „Í vetur höfum við verið að læra að koma fram og spinna eins og núna, opna okkur og læra á líkam- ann og á næstu vikum munum við fá þjálfun í að segja sögu, lesa upp, kynnast látbragðsleik og fara nánar í spunavinnu. Við höfum líka farið í heimsókn í Leiklistarskólann og það var toppurinn,“ sögðu nemendurnir að lokum og ljóst að einhverjir þeirra ætla að spreyta sig á leiklist í framtíðinni, a.m.k. reyna, eins og ein stúlkan í hópnum sagði. Blaðakona (Gæran) tekur viðtal við stórstjörnuna Kaltasar Bormák og aðdáun hennar leynir sér ekki. Sýna spunaverk úr reynsluheimi unglinga Keflavík Áhrifin frá Heilsubælinu í Gervahverfi komu berlega í ljós í spunaverkinu Í skugga Sjeikspírs. Mörg verkin vísa til kunnuglegra atriða úr fjölmiðlum. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir SUÐURNES 14 LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRN Heilbrigðisstofnunar Suð- urnesja (HSS) stefnir að því að öldr- unardeildin á 2. hæð D-álmu sjúkra hússins í Keflavík verði komin í fullan rekstur fyrir lok ársins. Þegar byggingu D-álmunnar lauk á síðasta ári og fyrsta hæð hennar var tekin í notkun kom fram að stefnt væri að því að opnuð yrði öldrunar- deild á 2. hæðinni á miðju þessu ári. Húsnæðið er tilbúið og að mestu búið húsgögnum en deildin hefur þó ekki verið tekin í notkun. Fram hefur kom- ið hjá heilbrigðisráðuneytinu að vegna hallareksturs Heilbrigðisstofn- unarinnar hefði ekki verið hægt að auka þjónustuna. Hallgrímur Boga- son, formaður stjórnar HSS, segir að erfitt hafi verið að manna deildina og fleiri vandamál komið upp. Hann segir að stjórnin hafi nú falið starfandi framkvæmdastjóra að vinna að því að hefja starfrækslu öldr- unardeildarinnar og vildi stjórnin stefna að því að hún væri komin í full- an rekstur fyrir lok ársins. Málþing um öldrunarmál Stjórn HSS hefur einnig skorað á Samband sveitarfélaga á Suðurnesj- um að standa fyrir málþingi um mál- efni sjúkra aldraðra. Fram kemur í samþykkt stjórnarinnar að mælst er til þess að á málþinginu verði unnið að heildarskipulagi á þessu málefni. Hallgrímur Bogason segir að ekki sé búið að ákveða hvernig eigi að nýta 3. hæð í D-álmu sjúkrahússins í Keflavík, hvort þörf væri á henni fyrir öldrunardeild eða hvort nýta ætti hana fyrir aðra starfsemi sjúkrahúss- ins. Taka þurfi ákvörðun um það sem fyrst og vonast hann til að málþingið geti orðið liður í undirbúningi þess. Hafinn verði rekstur í öldrunardeild D-álmu Keflavík MARKAÐS- og atvinnumálaskrif- stofa Reykjanesbæjar verður lögð niður og verkefni hennar færð til annarra sviða bæjarins, samkvæmt tillögum Árna Sigfússonar að breyttu stjórnskipulagi sem nú eru til umræðu í bæjarráði. Þá verður fækkað um þrjár fastanefndir með því að markaðs- og atvinnumálasvið og framkvæmda- og tæknisvið verða lögð niður og menningar- og safnaráð sameinað tómstunda- og íþróttaráði. Unnið hefur verið að undirbún- ingi breytinga á stjórnskipulagi Reykjanesbæjar á undanförnum vikum. Árni Sigfússon kynnti til- lögur sínar á fundi bæjarráðs í vik- unni. Tillögurnar verða ræddar á næsta fundi bæjarráðs og síðan verða þær afgreiddar í bæjarstjórn eftir tvær umræður á þeim vett- vangi. Árni segir stefnt að því að breytingarnar taki gildi 1. desem- ber næstkomandi. Dregið úr kostnaði Árni leggur áherslu á nokkur at- riði þegar hann kynnir tillögur sín- ar. Í fyrsta lagi nefnir hann að fækkun sviða, æðstu stjórnenda og nefnda hafi það markmið að sam- þætta betur skyld verkefni og draga úr stjórnunar- og nefndakostnaði. Starfsmannaþjónusta verði styrkt svo og fjármálastýring og áætlana- gerð bæjarfélagsins. Almenn fjár- hagsleg hagræðing aukist. Nefnt er að beinn sparnaður vegna lækkunar launakostnaðar nemi 20 milljónum á kjörtímabilinu og að auki er vænst hagræðingar af nýjum áherslum í starfsmanna- og fjármálastjórnun. Að síðustu nefnir bæjarstjóri að stjórnkerfið verði verkefnamiðaðra, skapaðir möguleikar á verkefnis- stjórnunarkerfi þegar á þarf að halda. Þannig verði unnt að kalla tímabundið til verkefnisstjóra til að stýra málum sem snerta fleiri en eitt svið í stjórnkerfinu. Eins og fram hefur komið fækkar sviðum og nefndum. Tvær nefndir, menningar- og safnaráð, renna sam- an í eina sem nefnast mun menning- ar-, íþrótta- og tómstundaráð. Eftir að nágrannasveitarfélögin sögðu sig úr Hafnasamlagi Suðurnesja er Reykjanesbær einn aðili að því og raunverulegt samlag ekki lengur til. Verður hafnarstjórn og atvinnuhluti markaðs- og atvinnuráðs sameinað- ur í atvinnu- og hafnaráð. Markaðs- og atvinnuráðið hafði einnig með að gera markaðsmál og einhver sam- starfsverkefni sveitarfélaga. Lagt er til að markaðsmálin fari í verk- efnakaup, það er að segja þjónusta við þau verði keypt að, og að Sam- tök sveitarfélaga á Suðurnesjum sjái alfarið um samstarfsverkefni sveitarfélaganna. Loks er lagt til að framkvæmda- og tækniráð verði lagt af og verkefni þess flutt til bæj- arráðs enda séu flest verkefni þess nú þegar á borði bæjarráðs. Þessar breytingar á sviðum þýða að Pétur Jóhannsson hafnarstjóri kemur inn í stjórnskipulagið með formlegum hætti sem forstöðumað- ur atvinnu- og hafnasviðs. Hins veg- ar verður lögð niður staða fram- kvæmdastjóra markaðs- og at- vinnumálaskrifstofunnar sem Ólaf- ur Kjartansson gegnir. Þau rök eru færð fyrir þeirri breytingu að sam- eina hafnsækna atvinnustarfsemi við önnur atvinnutengd verkefni undir atvinnu- og hafnaráði náist betri nýting fjármuna og markviss- ari vinna við atvinnuþróun. Sérstak- lega er nefnd uppbygging og mark- aðssetning atvinnusvæðisins við Helguvík. Stefán Bjarkason er for- stöðumaður tómstunda- og íþrótta- ráðs en menningarmálin bætast nú við það svið. Stefnt er að opna upp- lýsingamiðstöð fyrir almenning á vegum þess sviðs. Hugmyndin er að miðstöðin verði í bókasafni Reykja- nesbæjar. Manngildissviðin saman Þegar hefur verið ákveðið að flytja svokallaðan „félagsmála- gang“, það er að segja starfsemi fjölskyldu- og félagsmálasviðs af skrifstofum Reykjanesbæjar við Tjarnargötu í skrifstofur bæjarins í Kjarna um næstu mánaðamót. Þar er fyrir starfsemi fræðslusviðs og menningar-, íþrótta- og tómstunda- sviðs. Árni Sigfússon nefnir þau einu nafni manngildissviðin enda varði þau öll það verkefni að efla mannrækt og manngildi í bæjar- félaginu. Lögð verður áhersla á samstarf sviðanna á faglegum grunni. Á móti fer ýmis starfsemi sem verið hefur á vegum MOA í bæjarskrifstofurnar við Tjarnar- götu. Árni Sigfússon bæjarstjóri leggur fram til umræðu tillögur að breytingum á stjórnkerfi bæjarins Fækkað um þrjár nefndir og MOA verður lögð niður Reykjanesbær VÍKURFRÉTTIR ehf. eru að hefja útgáfu á nýju frétta- og auglýsinga- blaði í Hafnarfirði og nágrenni. Blað- ið mun heita VF sem stendur fyrir Vikulega í Firðinum. „Ég hef gengið með þennan draum í maganum í nokkur ár,“ seg- ir Páll Ketilsson, eigandi og ritstjóri Víkurfrétta. Hann hefur gefið út Víkurfréttir í tæp 20 ár. „Okkur hef- ur gengið vel með Víkurfréttir á Suð- urnesjum. Erum með litskrúðugt og fjölbreytt efnisval í blaðinu og langar til að gefa út blað í þeim stíl í Hafn- arfirði,“ segir Páll. 45 þúsund manna markaður Fyrsta blaðið í Hafnarfirði kemur út næstkomandi fimmtudag. Það verður 24 síður á stærð, að sögn Páls, með fjölbreyttu efni úr mann- lífi svæðisins. Blaðinu verður dreift án endurgjalds inn á öll heimili í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi og í öll fyrirtæki á þessu svæði. Á starfssvæði Vikulega í Firðinum búa hátt í 30 þúsund manns og segir Páll að með þessari viðbót sé fyr- irtækið að gefa út vikuleg fréttablöð fyrir 45 þúsund manna markað. Opnuð hefur verið skrifstofa fyrir nýja blaðið í Bæjarhrauni 22 í Hafn- arfirði. Þar starfa auglýsingastjóri og fréttastjóri. Páll verður ritstjóri VF í Hafnarfirði fyrst um sinn og hefur aðsetur á ritstjórnarskrifstof- um Víkurfrétta í Njarðvík og í Hafn- arfirði. Víkurfréttir munu útvíkka frétta- vef sinn, www.vf.is, með því að bæta við daglegum fréttum úr Hafnarfirði og nágrenni. Verður hann opnaður á fimmtudag um leið og útkomu fyrsta blaðsins verður fagnað. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, í hönnunarsal fyrirtækisins. VF færir út kvíarn- ar til Hafnarfjarðar Njarðvík LEIÐBEINENDUR eru fleiri en kennarar við Holtaskóla. Í öðrum grunnskólum Reykjanesbæjar eru kennarar með full réttindi í meiri- hluta þeirra sem starfa við kennslu. 150 starfa alls við kennslu í fjórum grunnskólum Reykjanesbæjar. Þar af er 81 kennari, eða rúmlega helm- ingur, og leiðbeinendur 50, eða þriðj- ungur. Að auki starfa 19 kennarar sem deildarstjórar, námsráðgjafar og við stjórnun. Kemur þetta fram í skýrslu skólaskrifstofu Reykjanes- bæjar sem lögð hefur verið fram í skóla- og fræðsluráði og sagt er frá á heimasíðu Reykjanesbæjar. Lægst er hlutfall réttindakennara í Holtaskóla í Keflavík. Þar eru 19 leiðbeinendur á móti 15 kennurum. Í Heiðarskóla í Keflavík starfa 22 kennarar og 14 leiðbeinendur og í Njarðvíkurskóla starfa 20 kennarar og 10 leiðbeinendur. Hæst er hlut- fallið í Myllubakkaskóla í Keflavík, þar eru 23 kennarar, 68% þeirra sem starfa við kennslu, og 7 leiðbeinend- ur. Þeir kennarar sem starfa við námsráðgjöf, deildarstjórn og stjórnun eru ekki í þessum tölum. Þess má geta að í skýrslunni kem- ur fram að sextán þeirra fimmtíu leiðbeinenda sem starfa við kennslu í Reykjanesbæ eru með háskóla- menntun og 11 að auki hafa hafið nám við Kennaraháskóla Íslands. Í þessum hópi eru fjórir leikskóla- kennarar, fimm þroskaþjálfar og einn hefur lokið tónmenntaprófi. Þrettán leiðbeinendur sem starfa við kennslu hafa stúdentspróf. Leiðbeinendur eru þriðjungur þeirra sem starfa við kennslu Reykjanesbær
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.