Morgunblaðið - 26.10.2002, Blaðsíða 58
Frábær þáttur
ÉG vil koma því á framfæri
að þátturinn Ísland í bítið sé
frábær þáttur. Ég horfði á
þáttinn þar sem talað var
við Jóhannes í Bónus og
fannst þátturinn allt í lagi.
Eins vil ég þakka umfjöll-
un um undirheima Reykja-
víkur. Var sú umfjöllun vel
unnin.
Anna.
Tek undir gagnrýni
ÉG vil taka undir þá gagn-
rýni á þáttinn Ísland í bítið
sem birst hefur í Velvak-
anda. Fannst mér þátta-
stjórnendur mjög dónalegir
við Jóhannes í Bónus og
fannst þau gjörsamlega
hakka manninn í sig og
leyfðu honum ekki að koma
sinni skoðun á framfæri.
SB.
Aldraðir fara
í Bónus
ÉG vil koma því á framfæri,
vegna gagnrýni á Jóhannes
í Bónus, að það eru 6 þjón-
ustustaðir aldraðra í
Reykjavík sem fara með
vistmenn sína í rútum í Bón-
us að versla því þar er verð-
ið hagstæðast.
Þórdís.
Óhæfir
stjórnendur
MIG langar að lýsa stjórn-
endur þáttarins Ísland í bít-
ið óhæfa í þáttastjórn. Þau
fara með staðhæfingar sem
eiga sér enga stoð í raun-
veruleikanum og fóru ekki
með rétt mál í sambandi við
verð á matvöru sem Bónus
selur.
Og þegar Jóhannes í Bón-
us gaf 25 milljónir til
Mæðrastyrksnefndar, datt
þeim ekki í hug að minnast á
það í þættinum.
Kristín.
Sýnum stuðning
MIG langar til að hvetja fólk
að fara í Bónus og versla þar
til að sýna Jóhannesi í Bón-
usi stuðning okkar. Finnst
frábært það fordæmi sem
hann og Bónus sýna með
þessari höfðinglegu gjöf til
Mæðrastyrksnefndar.
Árný.
Óvandaður
fréttaflutningur
MIKIÐ má fréttafólk á Stöð
2 skammast sín vegna
myndbirtingar um hand-
töku „grunaðs einstaklings“
í tengslum við brunann á
Laugaveginum um helgina.
Það hvarflar að manni að
þetta sér gert vegna þess að
einstaklingurinn var við hlið
lögregluþjóns í auglýsing-
unni sem þessi mynd var
tekin úr.
Ég hef alltaf haldið að
einstaklingur væri saklaus
þar til sök væri sönnuð en
þessum „fréttamönnum“ er
ef til vill ekki kunnugt um að
svo sé.
Ríkissjónvarpið sagði
einnig frá handtökunni en
var hvorki með mynd né
nafnbirtingu enda þeirra
fréttaflutningur yfirleitt
vandaðri en á Stöð 2.
Að lokum – ég tek ofan
fyrir Bónusfeðgum bæði
fyrir og eftir gjöfina til
Mæðrastyrksnefndar.
Guðrún Esther
Árnadóttir.
Nafnbirting
óþörf
ÞAÐ er eins og fjölmiðlum
finnist í lagi að birta nafn
ógæfumannsins sem grun-
aður er um íkveikju á
Laugaveginum af því að
hann er ógæfumaður.
Finnst mér að ekki eigi að
birta nöfn fólks fyrr en búið
er að dæma það, því allir eru
jú saklausir þar til sekt
sannast og búið er að dæma
þá.
ÞP.
Dýrahald
Kettlingur
í óskilum
STÁLPAÐUR kettlingur,
högni, svartur með hvíta
höku og hvítar loppur,
fannst í Frostaskjóli. Hann
er ómerktur og ógeltur.
Upplýsingar í síma 551 9038
eða 892 9038.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
DAGBÓK
58 LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Vædderen kemur í dag.
Ottó N. Þorláksson,
Fonnes og Venus fara í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Marschenland fór í gær.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Morg-
unganga kl. 10 frá
Hraunseli. Á mánudag
púttað í Hraunseli kl. 10.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud.: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud.: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kór eldri
borgara í Damos. Laug-
ard.: kl. 10–12 bókband,
línudans kl. 11. Nám-
skeið í postulínsmálun
byrjar 18. nóv. Skráning
í s. 586 8014 e.h.
Korpúlfarnir, eldri borg-
arar í Grafarvogi.
Fimmtud.: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kynning frá
Lyfju verður á Garða-
bergi 4. nóv. kl. 14.
Ath. breytt dagsetning.
Leikhúsferð í Borg-
arleikhúsið að sjá Krydd-
legin hjörtu 2. nóvember.
Skráning í s. 820 8571
eftir hádegi. Námskeið í
þrívíddarmyndum
(klippimyndum) verður í
byrjun nóvember.
Mánud. 28. okt. kl. 9.30,
10.15 og 11.10 leikfimi,
kl. 12 leirmótun, kl. 13.
námskeið í skyndihjálp.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Félagið hefur
opnað heimasíðu
www.feb.is. Kaffistofan
er lokuð vegna breytinga
í Glæsibæ. Heilsa og
hamingja í Ásgarði í
Glæsibæ í dag kl. 13. Er-
indi flytja: Tómas Helga-
son sem skýrir frá rann-
sókn sinni um samband
heilsu og lífsgæða á efri
árum og Júlíus Björns-
son sálfræðingur um
svefnþörf og svefntrufl-
anir aldraðs fólks.
Sunnud.: Dansleikur kl.
20 Caprí tríó leikur fyrir
dansi. Mánud.: Brids kl.
13. Ath. Línudans-
kennsla fyrir byrjendur
hefst kl. 18. Danskennsla
framhald kl. 19, byrj-
endur kl. 20.30. Þriðjud.:
Skák kl. 13 og alkort spil-
að kl. 13.30.
Miðvikud.: Göngu-
hrólfar ganga frá
Hlemmi kl. 9.45. Al-
mennur félagsfundur
Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
verður haldinn í Ásgarði
fimmtud 31. október kl.
17. Fundarefni: Skatt-
lagning ávöxtunarhluta
lífeyrisgreiðslna – ís-
lenska ríkinu stefnt.
Önnur mál. Félagar fjöl-
mennið. Allt áhugafólk
um málefni aldraðra vel-
komið. Silfurlínan er op-
in á mánu- og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12, s.
588 2111. Félagsstarfið
er áfram í Ásgarði
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Fjölskyldudagur í Gull-
smára kl. 14, leik-
herbergi fyrir yngstu
börnin, til afnota verða
litir, pappír og leir. Ung-
lingakór Digraneskirkju
syngur undir stjórn
Heiðrúnar Há-
konardóttur. Brúðuleik-
hús fyrir fólk á öllum
aldri. Leikritið Loð-
inbarði í umsjá Hall-
veigar Thorlacíus. Ragn-
ar Bjarnason rifjar upp
gamlar perlur. Vöfflu-
kaffi. Allir velkomnir,
takið börn og barnabörn
með.
Gerðuberg, félagsstarf.
Myndlistarsýning
Brynju Þórðardóttur op-
in kl. 13–16. Fimmtud.
31. okt. „Kynslóðir sam-
an í Breiðholti“, fé-
lagsvist í samstarfi við
Seljaskóla. Föstud. 1.
nóv. dansleikur, frá 20–
23.30, húsið opnað kl.
19.30, hljómsveit Hjör-
dísar Geirs skemmtir.
Veitingar í Kaffi Bergi.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Digraneskirkja, kirkju-
starf aldraðra. Opið hús
á þriðjudag frá kl. 11
leikfimi, léttur máls-
verður, helgistund,
fræðsluþáttur, kaffi. All-
ir velkomnir.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Púttað á
Listatúni í dag kl. 10.30.
Tómstundastarf eldri
borgara í Reykjanesbæ.
Spönskunámskeið verð-
ur á þriðjudögum kl. 20-
21.30 í fjögur skipti í Sel-
inu, Vallarbraut 4, Kenn-
ari Guðbjörg Sigríður
Hauksdóttir. Skráning í
s. 861 2085.
Vesturgata 7. Getum
bætt við bridsfélögum í
tvímenningi, spilað á
þriðjudögum kl.13–16.
Stjórnendur Bjarni Guð-
mundsson og Guð-
mundur Pálsson.
Þriðjud. 29. okt. kl. 13.30
verður Sigrún Ingv-
arsdóttir félagsráðgjafi
með fræðslufund. Nýtt
heimili – húsnæði fyrir
eldri borgara. Fyr-
irspurnum svarað, kaffi-
veitingar. Landsbanki
Íslands veitir almenna
bankaþjónustu föstudag-
inn 1. nóvember kl.13.30–
14. Lyfjafræðingur frá
Lyfjum og heilsu veitir
lyfjaráðgjöf og mælir
blóðþrýsting mánud. 4.
nóv. Þriðjud. 19. nóv.
kemur hjúkrunarfræð-
ingur og mælir bein-
þéttni. Lyfjafræðingur
fer yfir lyfjanotkun.
Fræðsla um lyf, vítamín,
steinefni og fleira. Vin-
samlega pantið tíma.
Myndlistarsýning Sig-
rúnar Huldar Hrafns-
dóttur er opin virka daga
á sama tíma og þjónustu-
miðstöðin er opin. Sýn-
ingin stendur yfir til 8.
nóvember, allir velkomn-
ir. Allar uppl. í s.
562 7077.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar. Fundur verður
fimmtudaginn 7. nóv-
ember mæting í safn-
aðarheimilinu kl. 18.
Leikhúsferð. Haft verð-
ur samband við fé-
lagskonur.
Gönguklúbbur
Hana-nú. Morgunganga
kl. 10 laugardagsmorgna
frá Gjábakka. Krumma-
kaffi kl. 9. Allir velkomn-
ir.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s. 530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur nám-
skeið gegn reykingum í
Heilsustofnun NLFÍ í
Hveragerði, fundur í
Gerðubergi á þriðjud. kl.
17.30.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í fræðslu-
deild SÁA Síðumúla 3–5
og í Kirkju Óháða safn-
aðarins við Háteigsveg á
laugardögum kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis, fund-
ir mánudaga kl. 20 á Sól-
vallagötu 12. Stuðst er
við 12 spora kerfi AA-
samtakanna.
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl 2,
er opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Leið 10 og 110 ganga að
Kattholti.
Breiðfirðingafélagið.
Hinn árlegi vetrarfagn-
aður er í kvöld og hefst
kl. 22 í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14. Breiðbandið
og Arna Þorsteins leika
gömlu og nýju dansana.
Félagar fjölmennið og
takið með ykkur gesti.
Eskfirðingar og Reyð-
firðingar. Vetrarkaffi
fyrir eldra fólk frá Eski-
firði og Reyðarfirði á höf-
uðborgarsvæðinu verður
á morgun, sunnud. 27.
okt., kl. 15 í Félagsheim-
ili eldri borgara í Gull-
smára 13, Kópavogi. Ath.
nýr staður.
Minningarkort
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd
á skrifstofutími í síma
552-4440 frá kl. 11–15.
Kortin má einnig panta á
vefslóðinni:
http://www.parkinson.is/
sam_minningarkort.asp
Minningarkort Krabba-
meinsfélags Hafn-
arfjarðar (K.H.),
er hægt að fá í Bókabúð
Böðvars, Reykjavík-
urvegi 64, 220 Hafn-
arfirði s. 565-1630
og á skrifstofu K.H.,
Suðurgötu 44, II. hæð,
sími á skrifstofu 544-
5959.
Í dag er laugardagur 26. október,
299. dagur ársins 2002. Fyrsti vetr-
ardagur. Orð dagsins: Verið ávallt
glaðir í Drottni. Ég segi aftur:
Verið glaðir.
(Fil. 4, 4.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 gagnleg, 8 varkára, 9
jurtin, 10 veiðarfæri, 11
gorta, 13 vesæll, 15 eiga
erfitt, 18 skott, 21 skip,
22 opin, 23 ólmar, 24 al-
þekkta.
LÓÐRÉTT:
2 skeldýrs, 3 áana, 4 aft-
urkalla, 5 rándýrum, 6
guð, 7 röskur, 12 skaut,
14 dveljast, 15 buxur, 16
grenja, 17 að baki, 18
mannveru, 19 dáin, 20 lé-
legt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fjóla, 4 hasar, 7 rætin, 8 rjúki, 9 arð, 11 agns,
13 vita, 14 telja, 15 nóló, 17 lúta, 20 fag, 22 kerfi, 23 aul-
ar, 24 niðja, 25 tómið.
Lóðrétt: 1 forða, 2 óætan, 3 arna, 4 hörð, 5 skúti, 6 reisa,
10 rúlla, 12 stó, 13 val, 15 nakin, 16 lærið, 18 útlim, 19 af-
ræð, 20 fita, 21 galt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
SVOKÖLLUÐ einkanúmer hafaæ meira verið að ryðja sér til
rúms í umferðinni síðustu ár og hef-
ur Víkverji haft gaman af að sjá hug-
myndaauðgi fólks við val á slíkum
númerum.
Algengt er að ökumenn kenni bíla
sína við sjálfa sig eða jafnvel elskuna
sína, uppáhaldsíþróttalið eða tegund
bílsins. Víkverji hefur einnig rekið
augun í bíla sem bera auðkenni
frægra kvikmyndapersóna og stund-
um bera plöturnar vitni um óvenju-
lega mikið innsæi viðkomandi mann-
eskju á eigin veikleika. Dæmi um
slíkt væri kannski einkanúmerið
„Bruðl“ sem Víkverji rak augun í um
daginn.
Reyndar eru slíkar númeraplötur
gjarnan nefndar „vanity plates“ á
ensku sem mætti útleggja sem pjatt-
plötur á íslensku. Þótt Víkverja þyki
það nokkuð smellin nafngift er hún
ekki að öllu leyti réttlát því mörg rök
mætti færa fyrir ágæti slíkra núm-
eraplatna umfram hefðbundnar.
Ber það fyrst að nefna að einka-
númerin eru mun betri auðkenni fyr-
ir viðkomandi bíl en hin hefðbundnu.
Það er óneitanlega auðveldara að
muna stutt orð eins og „Bruðl“ en
flóknar bókstafa- og númerasam-
setningar á borð við KZ-569, sem
getur komið sér vel, til dæmis við
rannsókn bílaþjófnaða og annarra
glæpamála þar sem bifreiðar koma
við sögu.
Í því ljósi finnst Víkverja órökrétt
að það skuli vera svo miklu dýrara að
kaupa sér einkanúmer en almennt
númer á bílinn sinn. Vissulega eru
ákveðin hagkvæmnisjónarmið sem
liggja á bak við fastnúmerakerfið en
það hlýtur að vera mikilvægast að
bílnúmerin gegni sínu hlutverki sem
best, þ.e. að auðkenna bifreiðina.
Fyrir utan það hvað pjattplötur geta
verið mikið krydd í tilveruna.
x x x
EKKI er ráð nema í tíma sé tekið,segir máltækið, og það hljóta
sumir kaupmenn að hafa að leiðar-
ljósi, að minnsta kosti ef marka má
áhuga þeirra á jólunum nú þegar í
október. Fimm ára sonur Víkverja
hafði ekki skilning á þessu þegar
gengið var um verslunarrými IKEA
á dögunum. Eftir nokkurt rölt spurði
hann í forundran hvort búðarmenn-
irnir væru eitthvað að ruglast og
voru það jólaskreytingarnar víðs
vegar um búðina sem vöktu þessi
viðbrögð. Honum var nefnilega ekki
kunnugt um að jólin væru handan við
hornið.
Víkverji gat ekki annað en staðfest
grun barnsins um að einhver rugl-
ingur væri í gangi enda sá hann fram
á óbærilega óþreyju hjá þeim stutta
yrði hann haldinn þeim misskilningi
að stutt væri í jólin.
Víkverji hefur orðið var við jóla-
hald í fleiri búðum, eins og í Hag-
kaupum, og það er svo sem skiljan-
legt að kaupmenn reyni að teygja
þetta verslunartímabil yfir sem
lengstan tíma. Það er þó ekki fallega
gert gagnvart blessuðum börnunum
sem sum hver upplifa hreina og klára
vanlíðan af einskærri eftirvæntingu.
Víkverji man sjálfur hversu erfitt
var í gamla daga að bíða allan desem-
ber eftir hátíðarhöldunum. Nú er
þessi biðtími orðinn þrefaldur hjá
börnum sem er meiri streita en rétt-
látt er að leggja á þau. Í versta falli
er hætta á að þau missi trúna á að
ljóssins hátíð komi yfir höfuð þar
sem biðin er orðin svo ótrúlega löng.
NÝLEGA las ég á forsíðu
dagsblaðs að fjórðungur
þjóðarinnar væri mót-
fallinn komu litaðs fólks
hingað til lands. Nú er
það svo að ég hef aldrei
séð litað fólk. Að vísu hef
ég séð fólk með litað hár
og einhverja líkamsparta
aðra, svosem neglur og
varir, en ekki líkamann
allan. Mér þætti fróðlegt
að vita hvar litunin fer
fram og hvort ekki megi
búast við að fólkið upp-
litist með tíma og aldri.
Við lesturinn kom mér
í hug gömul frásögn
Stefáns fréttamanns er
hann var strákur austur
á Fjörðum. Komu þang-
að útlendingar með ýms-
an litarhátt. Eitt sinn
fréttist af komu útlend-
ings og fylgdi sögunni að
hann væri hvítur. Þetta
þótti Stefáni svo merki-
legt að hann óð læki og
keldur og hvers kyns
ófærur til að komast á
staðinn þar sem útlend-
ingur þessi var sagður
búa. Hann langaði svo
mikið að sjá hann því
hann hafði aldrei séð
hvítan mann.
Jón Kjartansson
frá Pálmholti.
Litað fólk