Morgunblaðið - 26.10.2002, Blaðsíða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 27
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
TO
Y
18
11
9
10
/2
00
2
TOYOTA - LYKILL AÐ AUÐVELDUM OG ÖRUGGUM BÍLAVIÐSKIPTUM.
Við þökkum frábær viðbrögð við „Eigð'ann eða leigð'ann“ tilboði okkar, þar sem einstaklingar geta nú í fyrsta skipti á Íslandi
valið um að taka bíl á rekstrarleigu. Toyota býður nú takmarkað magn bílaleigubíla á frábærum kjörum og þú velur hvort þú
kaupir þér bíl til eignar eða tekur hann á rekstrarleigu, án útborgunar. Þú einfaldlega kvittar undir samninginn og ekur af stað.
Þetta er því einstakt tækifæri til að fá sér betri notaðan bíl frá Toyota með auðveldum og öruggum hætti. Komdu strax í dag,
hringdu í síma 570 5000 eða kíktu á www.toyota.is
EIGÐ'ANN
EÐA LEIGÐ'ANN
Nýjung frá Toyota
sem slær í gegn.
Corolla
Skráður: maí, 01
Rekstarleiga á mán. frá: 24.500 kr. m/v 26 mán.
Bílalán á mán. frá: 16.644 kr. m/v 60 mán.*
Verð frá: 1.090.000 kr.
Verð
dæm
iYaris
Skráður: maí, 01
Rekstrarleiga á mán. frá: 19.200 kr. m/v 26 mán.
Bílalán á mán. frá: 12.564 kr. m/v 60 mán.*
Verð frá: 820.000 kr.
Verð
dæm
i Toyota Avensis Terra
Skráður: maí, 01
Rekstarleiga á mán. frá: 29.000 kr. m/v 26 mán.
Bílalán á mán. frá: 20.874 kr. m/v 60 mán.*
Verð frá: 1.370.000 kr.
Verð
dæm
i
*Bílalán miðast við 30% útborgun af kaupverði og 9% verðtryggða vexti með 3,5% stofngjaldi.
STJÓRN Norður-Kóreu
bauðst í gær til að hefja við-
ræður um griðasáttmála við
Bandaríkin en hafnaði kröfu
Bandaríkjastjórnar um að
hætta að þróa kjarnavopn áður
en samningaviðræður hæfust.
Sérfræðingar í málefnum
Norður-Kóreu sögðu tilboðið
ekki auka líkurnar á því að
hægt yrði að afstýra uppgjöri
milli Bandaríkjanna og Norð-
ur-Kóreu í bráð þar sem banda-
ríska stjórnin hefur ekki léð
máls á viðræðum nema Norð-
ur-Kóreumenn hætti að þróa
kjarnavopn.
Stjórn Norður-Kóreu stað-
festi ekki staðhæfingar banda-
rískra embættismanna um að
Norður-Kóreumenn hefðu við-
urkennt á fundi með banda-
rískri sendinefnd 3.–5. október
að þeir væru að þróa kjarna-
vopn á laun í trássi við samning
ríkjanna frá 1994.
Stjórn Bandaríkjanna sagð-
ist vera að gaumgæfa tilboðið
og ætla að svara því síðar.
Umbótum
Tyrkja
fagnað
LEIÐTOGAR Evrópusam-
bandsins fögnuðu í gær póli-
tískum umbótum í Tyrklandi
og sögðu að viðleitni þarlendra
stjórnvalda til að bæta ástandið
í mannréttindamálum hefði
flýtt fyrir hugsanlegum við-
ræðum um aðild landsins að
sambandinu. Tyrkneska
stjórnin hafði orðið fyrir mikl-
um vonbrigðum með að í ný-
legri skýrslu Evrópusam-
bandsins um stækkunaráform
þess skyldi ekki nefnt hvenær
gera mætti ráð fyrir að mögu-
legt yrði að hefja formlegar við-
ræður um aðild Tyrklands. Ut-
anríkisráðherra Tyrklands
sagði í gær að stjórnin myndi
endurskoða tengsl sín við sam-
bandið ef viðræðurnar hæfust
ekki á næsta ári.
Innflutnings-
banni aflétt
STJÓRNVÖLD í Frakklandi
afléttu í gær formlega banni við
innflutningi á bresku nauta-
kjöti sem sett var fyrir sex ár-
um til að koma í veg fyrir út-
breiðslu kúariðu. Bretar og
Frakkar hafa deilt hart um
bannið frá því að önnur ríki
Evrópusambandsins afléttu því
árið 1999.
STUTT
Bandarík-
in lofi
griðum
„FYRIR einum og hálfum mánuði
var forseti Costa Rica á heimleið frá
alþjóðaumhverfisráðstefnunni í Jó-
hannesarborg en þar heyrði hann
um vetnisorkuáformin hér á Íslandi.
Þessi áform vöktu mjög áhuga
hans,“ segir Gutierrez spurður um
tilefni Íslandsheimsóknar sinnar.
„Forsetinn áði í nokkra daga hjá mér
í Lundúnum á heimleiðinni og fól
mér við það tækifæri að fara í leið-
angur til Íslands til að kynna mér
þetta og gefa sér síðan skýrslu. Þetta
er það sem ég hef verið að gera síð-
ustu daga. Og ég hef hrifist mjög af
því sem ég hef séð og fræðzt um
hér,“ segir Gutierrez.
Hann segir Costa Rica-búum vera
mjög umhugað um umhverfismál.
Fjórðungur landsins sé nú innan
marka þjóðgarða. Raforkuvinnsla í
Costa Rica fari fram í vatnsorkuver-
um og tilraunir hafi einnig verið
gerðar með nýtingu jarðhita.
„Við teljum því, að ef við getum
hrint sambærilegri áætlun [og Ís-
lendingar eru að gera á sviði vetn-
isorkutækninnar] í framkvæmd hjá
okkur myndi það bæta ímynd lands-
ins; við myndum losna við loftmeng-
unina í borgum, losna við hávaða og
jafnvel komast hjá öndunarvegar-
sjúkdómum,“ segir sendiherrann.
Í Costa Rica verði framvegis
fylgzt náið með framvindu þessa
verkefnis á Ís-
landi og mögu-
leikar kannaðir
til hlítar á að
leika það eftir.
„Við munum að
sjálfsögðu gjarn-
an vilja njóta að-
stoðar Íslend-
inga við að taka
þessa nýju
tækni í notkun
og kannski vill Evrópusambandið
líka hjálpa,“ segir Gutierrez og bætir
við að Costa Rica hafi nú þegar
samninga við Holland um fjármögn-
un rannsóknaáætlana á sviði um-
hverfisverndar. „Ég tel að við ættum
að geta fengið lán úr þessari átt til að
fjármagna tilraun með vetnisorku-
áætlun í Costa Rica.“
Í fjögurra daga langri heimsókn
Gutierrez, sem iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytið sá um að skipu-
leggja, hitti hann ýmsa aðila á sviði
orkumála, þ.á m. Braga Árnason
prófessor, sem unnið hefur að ís-
lenzka vetnisorkuverkefninu, og
skoðaði íslenzk orkufyrirtæki, m.a.
Nesjavelli, Landsvirkun, Hitaveitu
Suðurnesja og fyrirtækið Nýorku.
Þá átti hann fundi með fulltrúum
ráðuneyta, Verslunarráðs Íslands og
Útflutningsráðs.
Sendiherrann hefur einnig áhuga
á að efla vöru- og viðskiptatengsl Ís-
lands og Costa Rica en ferðaþjón-
usta er fjölbreytt þar í landi og
reyndar mikilvægasta tekjulindin.
Viljum læra af Íslendingum
Rodolfo Gutierrez
Rodolfo Gutierrez, sendiherra Costa Rica í
Lundúnum, var hér á landi í vikunni til að
kynna sér nýjungar í orkumálum. Auðunn
Arnórsson tók hann tali.