Morgunblaðið - 26.10.2002, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 26.10.2002, Blaðsíða 45
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 45 ÞAÐ hefur verið sárt að fylgjast með lífskjarabaráttu öryrkja og aldraðra hér á landi á undanförnum mánuðum og árum. Hvað eftir ann- að hafa talsmenn hópanna bent á að mikil skerðing hafi átt sér stað á sjálfsögðum lífeyri og bóta- greiðslum og að bætur þessara hópa fylgi ekki launavístölu lægstu launa. Nú er svo komið að þetta bil fer stöðugt breikkandi enda blasir við sárasta neyð fjölmargra einstak- linga úr röðum aldraðra og öryrkja. Fjöldi fólks úr þessum hópum á vart fyrir brýnustu nauðsynjum hvað þá að það geti notið mann- sæmandi lífsgæða sem öðrum finnst sjálfsagt og eðlilegt að geta veitt sér. Þrátt fyrir ötula baráttu for- ystu Öryrkjabandalgsins og aldr- aðra að því marki að fá réttlátar úr- bætur á lífskjörum þessara hópa er eins og að höggva í harðan klettinn þegar komið er að þætti íslenskra stjórnvalda. Á undanförnum misserum hafa verið haldnir fundir með stjórnvöld- um þar sem jafnvel forsætisráð- herra hefur komið að málum en ekkert kemur fram til úrbóta. Blygðunarlaust hafa stjórnvöld látið í veðri vaka að kjör þessara hópa verði bætt og á hátíðarstundum spara þeir ekki stóru orðin en efnd- ir eru engar. Á Íslandi eru nú tæplega 26 þús- und ellilífeyrisþegar og tæplega 9.800 örorkulífeyrisþegar. Má því hverjum manni vera ljóst að hér er um stórt úrtak Íslensku þjóðarinnar að ræða og einnig að þessir hópar búa við neyðarkjör. Aðbúnaður öryrkja og ellilífeyr- isþega hér á landi borið saman við sömu hópa á öðrum Norðurlöndum er svo átakanlega óhagstæður að vart tárum tekur. Því má ætla að að minnsta kosti helmingi hærri „lífs- framfærslugreiðslur“ séu til þess- ara hópa á hinum Norðurlöndum en hér er. Árið 1990 voru skattleysismörk 54 þúsund kr. hér á landi en eru nú 67.500 kr. en ættu með réttu að vera 105 þúsund kr. Þótt ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hreyki sér af góðæri undanfarinna ára er ljóst að gamla fólkið okkar og öryrkjarnir fá einskis af því notið. Það er stjórnvöldum íslenska rík- isins til háborinnar skammar hvern- ig þau hafa staðið að skerðingu lífs- kjara öryrkja og aldraðra. Óbærileg kjör aldraðra og öryrkja Eftir Önund S. Björnsson Höfundur er sóknarprestur á Breiðabólstað í Fljótshlíð og tekur þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. „Fjöldi fólks úr þessum hópum á vart fyrir brýnustu nauðsynjum hvað þá að það geti notið mann- sæmandi lífsgæða.“ NÚ LÍÐUR senn að því að við velj- um okkur kandidata í prófkjöri Sam- fylkingarfélaganna í kjördæminu fyr- ir alþingiskosningarnar. Mikilvægt er að við vöndum valið og kynnum okkur vel þá aðila sem eru að gefa kost á sér. Ég tel mig vera góðan fulltrúa Sam- fylkingarinnar í þessu eina raunveru- lega landsbyggðarkjördæmi. Ég er Akureyringur og þar bý ég. Ég hef starfað í 35 ár við hjúkrun aldraðra. Í átta ár var ég formaður norðurlandsdeildar SÁÁ. Þar kom ég meðal annars að rekstri áfangaheim- ilisins Fjólunnar á Akureyri. Þess má einnig geta að ég sit nú í áfengis- og vímuefnanefnd Akureyrarbæjar. Það er mér því mjög hugleikið hversu mörg okkar hafa kynnst vímuefnaböl- inu og hef lagt mitt af mörkum til að bæta úr þeim vanda. Það er áríðandi að við mótum okkur heildstæða stefnu í forvarnar- og meðferðarmál- um til þess að við getum áfram sagt að við séum best á þessu sviði. Lyft hefur verið grettistaki í meðferð áfengissjúkra á undanförnum áratug- um, en betur má ef duga skal. Ég gekk til liðs við Samfylkinguna þegar Samfylkingarfélag Akureyrar var stofnað og er þar gjaldkeri. Það sem heillar mig mest hjá Samfylking- unni er hinn gullni þríhyrningur fé- lagsins sem samanstendur af atvinnu, menntun og velferð. Þetta eru mín hugðarefni, ásamt landsbyggðarmálum. Stiklum á stóru; Atvinnumál Það eru mannréttindi að allir hafi atvinnu sem hana geta stundað, at- vinnuleysi er þjóðarböl. Því verður að hafa allar árar úti til að tryggja stöð- uga atvinnu út á landsbyggðinni og fara verður yfir alla möguleika í þeim málum. Menntun Öll eigum við rétt á að hafa góða menntun við hæfi. Fjölbreytt fram- boð menntunnar á landsbyggðinni styrkir bæði stoð byggðar og atvinnu- lífs. Velferðin Það er vegið að velferð í landinu í dag. Bilið milli ríkra og fátækra hefur aldrei verið meira.Við heyrum dag- lega í fjölmiðlum frá neyð fólks. Það er mér gjörsamlega hulið hvernig nokkur maður getur lifað á lægstu laununum. Aldraðir fá ekki þá þjón- ustu sem þeir þurfa og taka þarf mál- efni geðfatlaðra til gagngerrar endur- skoðunar. Landsbyggðarmál Að bæta samgöngur á landsbyggð- inni er mikið kappsmál og nauðsyn- legt til þess að tryggja búsetuskilyrði. Við sem búum úti á landi þurfum að greiða hærra verð fyrir vöruna okkar vegna óhóflegs flutningskostnaðar, sem fyrirtæki eru að sligast undan. Kæri Samfylkingarfélagi, hafðu mig í huga þegar þú fyllir út seðilinn þinn. Eftir Þorgerði Þorgilsdóttur Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. „Það sem heillar mig mest hjá Samfylking- unni er hinn gullni þríhyrningur félagsins …“. Samfylkingin í Norðurlands- kjördæmi eystra Prófkjör Prófkjör stjórnmálaflokkanna vegna þingkosninganna í maímánuði nk. fara fram í vetur. Af því tilefni birtir Morgunblaðið greinar fram- bjóðenda og stuðningsmanna. Þær er einnig hægt að nálgast undir liðnum prófkjör á forsíðu mbl.is. Í PRÓFKJÖRI Samfylkingarinn- ar 9. nóvember nk. í Suðvesturkjör- dæmi er margt góðra frambjóðenda. Það er vissulega vísbending um styrk stjórnmálaflokks þegar hæfileikaríkt fólk gefur kost á sér til að vinna fyrir flokkinn og það gefur okkur auknar vonir um góða útkomu í næstu kosningum. Samfylkingin er ungur flokkur sem er byggður á gömlum gildum, þar sem frelsi, jafnrétti og bræðralag eru bautasteinarnir. Þessi gildi eru kjöl- festan í hugsjónum jafnaðarstefn- unnar, en hún hefur lengi átt miklu fylgi að fagna í þessu kjördæmi. Það er mér, sem jafnaðarmanni, bæði ljúft og skylt að hvetja allt samfylk- ingarfólk til að styðja Rannveigu Guðmundsdóttur í 1. sæti. Rannveig er búin að öðlast mikla reynslu og traust, bæði í bæjarstjórn Kópavogs sem og á Alþingi. Rannveig er afar duglegur og vinnusamur þingmaður, sem lætur sig varða alla þá mála- flokka sem lúta að velferð og afkomu fólks. Rannveig hefur verið í forystu- sveit Alþýðuflokksins og Samfylking- arinnar um árabil og oddviti okkar í Reykjaneskjördæmi. Við sem unnið höfum með Rannveigu og þekkjum hana vitum, að með hana í 1. sæti er það vel skipað. Kjósum Rann- veigu í 1. sæti! Guðmundur Oddsson í Kópavogi skrifar: ÞOLINMÆÐI er dyggð. Og vissulega hlýtur Jóhanna Sigurð- ardóttir að hafa fengið í vöggugjöf dágóðan skerf af þeirri dyggð. Ekki hef ég nú lengur tölu á því hversu oft hún hefur lagt fram á Al- þingi tillögur þess efnis að eftirlit sé haft með fjárreiðum stjórnmálaflokka. En á Alþingi er andstaða við að fjármál stjórn- málaflokka séu höfð uppi á borðinu. Þessi andstaða kemur að sjálfsögðu einkum frá Sjálfstæðisflokknum. Þar kæra menn sig líklega ekkert um að það verði lýðum ljóst hvaða einstaklingar og fyrirtæki leggja meira en 300 þúsund krónur í kosn- ingasjóðinn – og ætlast svo kannske til einhvers í staðinn. Hvað vitum við? Svo mikið er víst að við megum ekkert fá að vita. Jóhanna þarf sennilega að komast í stól fjár- málaráðherra til að fá þessu baráttu- máli sínu framgengt. En fyrst þarf hún að fá góða kosningu og leiða annað Reykjavíkurkjördæmanna fyrir Samfylkinguna í komandi kosningum til Alþingis. Til þess þarf hún stuðning okkar í prófkjörinu 9. nóvember. Áfram Jóhanna Karl Jensen Sigurðsson umsjónarmaður skrifar: SAMFYLKINGIN er eini flokk- urinn þar sem líklegt er að ungt fólk fái brautargengi í komandi kosn- ingum. Það ræðst af því hvernig við kjós- um í prófkjörunum sem framundan eru. Björgvin G. Sigurðs- son gefur kost á sér í flokksvali Samfylk- ingarinnar í Suður- kjördæmi. Hann er ungur og kraft- mikill jafnaðarmaður sem er mikill akkur af að fá í forystuveit Samfylk- ingarinnar. Réttsýnn baráttumaður með hjartað á réttum stað. Til að Samfylkingin nái þeim ár- angri sem við væntum af henni í komandi kosningum er nauðsynlegt að til leiks komi nýtt og öflugt fólk sem ryður flokknum sigurbraut. Björgvin hefur sýnt og sannað með þrotlausri vinnu og glæsilegri framgöngu á pólitíska sviðinu að hann er traustsins verður. Ég skora á Samfylkingarfólk í Suður- kjördæmi að kjósa ungan mann á Al- þingi – að kjósa Björgvin í flokksval- inu hinn 9. nóvember. Styðjum Björgvin í flokksvalinu Torfi Áskelsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, skrifar: Síðumúla 34 - sími 568 6076 Antik er fjárfesting Antik er lífsstíll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.