Morgunblaðið - 26.10.2002, Qupperneq 17
KEA-
menn
kynna
áform sín
SAMVINNUFÉLAGIÐ KEA
boðaði nýlega sveitarstjórnir í
Suður-Þingeyjarsýslu til fundar
að Breiðumýri þar sem Benedikt
Sigurðarson stjórnarformaður,
ásamt þeim Rúnari Sigursteins-
syni og Þórhalli Hermannssyni
stjórnarmanni, kynnti stefnu-
mörkun og hlutverk KEA. Sam-
vinnufélaginu KEA hafa sem
kunnugt er nýlega verið settar
nýjar samþykktir og lögð drög
að ítarlegum starfsramma fyrir
stjórnendur félagsins.
Óskað eftir hug-
myndum um verkefni
Um leið er lýst eftir samstarfi
og hugmyndum um álitleg verk-
efni fyrir félagssvæðið, en það
markast af byggðum Eyja-
fjarðar og Þingeyjarsýslu.
Fundurinn var mjög vel sótt-
ur og bjartsýni ríkjandi, enda
ljóst að hér er kominn til sögu
mjög öflugur og fjárhagslega
sterkur aðili sem vill og getur
fjárfest í staðbundnum verk-
efnum og stuðlað að hvers kyns
framfaramálum á svæðinu.
Mývatnssveit
KEA-menn kynntu félagið og áform sín á fundi í Breiðumýri nýlega.
Morgunblaðið/BFH
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 17
Leikhúsmatseðill
Smáréttir fyrir hópa
Leikhúsloftið
Nánari upplýsingar á www.karolina.is
„staður menningar og lista“
Velkomin til
Akureyrar
Þökkum
frábærar móttökur
Leikfélag Akureyrar, Hafnarstræti 57 • Miðasala 462 1400
www.leikfelag.is • la@leikfelag.is
Guðmundur Oddur Magnússon tal-
ar um Hönnun, ímyndir og myndmál
í Ketilhúsinu laugardaginn 26. októ-
ber kl.15.00. Þetta er annar fyr-
irlesturinn í röðinni „Fyrirlestrar á
haustdögum“ á vegum Listnáms-
brautar Verkmenntaskólans í sam-
vinnu við Gilfélagið.
Á MORGUN
Rannsóknastofa í kvennafræðum
heldur námskeið með heitinu „Á
valdi ímynda. Markaðssetning kyn-
ímynda,“ á vegum Endurmenntunar
Háskóla Íslands og Rannsóknastofu
í kvennafræðum dagana 6., 8. og 12.
nóvember næstkomandi og verður
það í fjarkennslu í Háskólanum á
Akureyri ef næg þátttaka fæst.
Markmiðið er að leiðbeina fólki við
að lesa í og skilja táknmyndir
kynjanna, hverjar þær eru, hvernig
þær urðu til og hvernig hægt er að
forðast að festast í klisjum kynhlut-
verkanna, m.a. við markaðssetningu
og auglýsingagerð. Dagný Krist-
jánsdóttir, bókmenntafræðingur,
Þorgerður Þorvaldsdóttir kynja- og
sagnfræðingur, Gunnar Hersveinn
blaðamaður og heimspekingur og
Geir Svansson bókmenntafræðingur
fjalla um efnið.
Á NÆSTUNNI
Námskeiðið Hálendi Íslands verð-
ur haldið á vegum Símenntunar Há-
skólans á Akureyri í næstu viku,
dagana 28. október til 1. nóvember.
Kennari er Guðmundur Páll Ólafs-
son náttúrufræðingur og höfundur
verðlaunabókarinnar Hálendið í
náttúru Íslands.
Á námskeiðinu verður almenn kynn-
ing á hálendi Íslands. Fjallað verður
um staðhætti og náttúrufar í máli og
myndum eins og fornar þjóðleiðir og
gróðurfar á hálendinu. Þá verður
rætt um sambúðina við öræfin og
nýtingu hálendisins til frambúðar án
þess að spilla því. Einnig verða þjóð-
garðar á hálendinu og fræðileg
ferðaþjónusta tekin til umræðu.
VIÐTALSTÍMUM bæjarfulltrúa á
Akureyri hefur nú á haustdögum
verið breytt. Þeir verða framvegis
síðdegis annan hvern mánudag,
frá kl. 17 til 19, en voru áður að
kvöldlagi. Fyrsti viðtalstíminn með
breyttri tímasetningu verður
næsta mánudag, 28. október og þá
verða til viðtals bæjarfulltrúarnir
Þórarinn B. Jónsson og Marsibil
Fjóla Snæbjarnardóttir. Bæjarbú-
um er frjálst að koma og tjá sig
við bæjarfulltrúana eða bera fram
fyrirspurnir varðandi bæjarmál-
efni. Viðtalstímarnir eru í fund-
arsal á 1. hæð Ráðhússins við
Geislagötu.
Viðtalstím-
ar bæjarfull-
trúa síðdegis
NÝTT fréttavefsetur, local.is
hefur verið opnað á Netinu en
markaðssvæði þess er Norð-
ur- og Austurland. Vefurinn
verður uppfærður daglega og
er markmiðið að hvern virkan
dag verði settar inn 25 til 35
nýjar fréttir.
Starfsstöðvar eru á Akur-
eyri og Neskaupstað. Rit-
stjóri er Kristján J. Krist-
jánsson. Lokal.is er fyrsti
fjölmiðillinn sem ætlað er að
höfða til allra íbúa í vænt-
anlegu Norðausturkjördæmi
og munu í viku hverri birtast
þar um 130 til 170 fréttir sem
tengjast íbúum þessa kjör-
dæmis.
Norðaustur-
kjördæmi
Nýtt frétta-
vefsetur
♦ ♦ ♦