Morgunblaðið - 26.10.2002, Page 33

Morgunblaðið - 26.10.2002, Page 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 33 SJÖ íslenskir fiðlunemendur tóku þátt í tónlistarhátíð Suzukinemenda, Young Nordic Tone, í Vesterås í Sví- þjóð fyrir skömmu. Meðal verka sem krakkarnir léku voru íslensk rímna- lög í útsetningu Bjarna Frímanns Bjarnasonar, 13 ára pilts í hópnum. Bjarni Frímann er ekki algjör ný- græðingur í tónsmíðum þótt ungur sé, en í fyrra lék Strengjasveit Tón- listarskólans í Reykjavík verk eftir hann, sem hann kallaði Maritimus, og var byggt á upplifunum hans af náttúrunni. Grunninn að þjóðlagaút- setningunum sem leiknar voru í Sví- þjóð nú gerði hann í fyrrasumar og voru þær þá fluttar á Suzuki- námskeiði í Bryanston á Englandi. Verk Bjarna verður leikið á Há- skólahátíð í dag. „Ég er nú búinn að vera að gera heilmargt síðan þá,“ segir Bjarni Frímann, „ég hef til dæmis verið að endurskoða þjóðlagaútsetning- arnar. Ég samdi þær fyrir einu og hálfu ári, en nú er ég búinn að gera þær svolítið líflegri og bæta fullt af effektum við; nýmóðins innskotum eins og nótum sem hljóma ekki eins og maður á að venjast í samhengi við hinar. Þetta er orðið allt annað stykki eftir þessa endurskoðun. Ég samdi þetta fyrir þrjár fiðlur, en hver partur er talsvert erfiður; – mikið af tvígripum, þannig að við er- um tvö í hverri rödd, og svo er pí- anóundirleikur með.“ Bjarni Frímann segir fiðluhópinn mjög líf- legan og gott að vinna með krökkunum sem í honum eru. „Lilja Hjaltadóttir er líka mjög góð og stýrir þessu styrkri hendi.“ Hægt að gera margt við þjóðlögin En hvernig stendur á því að þrettán ára strákur sökkvir sér niður í íslensk þjóðlög, þegar maður hefði kannski haldið að hann væri uppteknari af annars konar tónlist? „Það er nú skemmst frá því að segja, að í fyrra, þegar við vorum á Suzuki-námskeiðinu í Englandi, voru kennararnir að tala um að þeir þyrftu að spila eitthvað á kenn- arakvöldi. Það voru þrír fiðlukenn- arar í hópnum og einn píanóleikari. Þau vildu helst spila íslensk þjóðlög, en datt ekkert í hug fyrir þrjár fiðl- ur og píanó. Ég skellti þá þessu verki saman, en á endanum voru það svo nemendur en ekki kennararnir sem spiluðu það, og það tókst bara prýðilega.“ Lögin sem Bjarni Frí- mann notar í verk sitt eru vel þekkt: Krummi svaf í klettagjá, Enginn lái öðrum frekt, sem er líka þekkt úr Vísum Vatnsenda-Rósu, Ís- land farsælda frón, Hani, krummi, hundur, svín og svo rímnalag sem Bjarni Frímann kann ekki deili á, en Jón Leifs notaði í sín- um verkum. „Ég var með frekar rólegar sveitastemmn- ingar í huga þegar ég byrjaði á þessu, og líka al-villimannlegar stemmningar sem ryðjast fram af heift- arlegri grimmd; mig langaði að reyna að endurspegla veðráttuna á Íslandi, en hún er mjög mislynd eins og við vitum. Svo verður maður auðvitað að skoða einkenni þjóðlagsins mjög vel þegar maður útsetur þau á þenn- an hátt. Það er hægt að gera svo ótrúlega margt við þau; nota mótíf og jafnvel búa til ný stef úr þeim.“ Bjarni Frímann er mikill nátt- úruunnandi og segir náttúruna birt- ast mismikið í verkum sínum. Hann aftekur þó með öllu að það sé ein- hver sérstök föðurlandsást sem skín þar í gegn, þótt hann sé hrifinn af þjóðlagaarfinum. En hvernig gekk svo í Svíþjóð? „Þetta gekk ágætlega. Það voru ekkert mjög margir áheyr- endur, en krakkarnir í hópnum stóðu sig ótrúlega vel.“ Hópurinn gisti í heimahúsum, en kennararnir þeirra, Lilja og maður hennar, Kristinn Örn Kristinsson píanóleik- ari, voru fararstjórar. Tónlistarhá- tíðin Young Nordic Tone hefur verið haldin reglulega um nokkurra ára skeið af Suzuki-samböndunum í Sví- þjóð, Finnlandi, Danmörku og Nor- egi. Þar koma fram nemendur sem stunda tónlistarnám á framhalds- skólastigi en hafa bakgrunn í Suz- uki-námi. Verkið leikið á Háskólahátíð Bjarni Frímann er með ýmis verk í smíðum og mörg í huganum, þar á meðal óperu um ónefnda sögu- persónu, sem þegar hefur end- urheimt líf sitt einu sinni í íslenskri óperu, en ekki orð um það fyrr en verkið lítur dagsins ljós. Verk fyrir hljóðfæri Bjarna, fiðluna, eru líka ofarlega á blaði, og hann er reyndar að semja verk fyrir Guðnýju Guð- mundsdóttur konsertmeistara. En það hljóp á snærið hjá fiðlukrökk- unum skömmu áður en þau héldu ut- an, þegar þeim var boðið að flytja verk Bjarna Frímanns á Há- skólahátíð í Háskólabíói í dag. „Ég var auðvitað alveg í skýjunum, og líst bara vel á að fleiri fái að heyra verkið mitt.“ Þjóðlagaútsetningar eftir Bjarna Frímann Bjarnason fluttar á Háskólahátíð Bjarni Frímann Bjarnason Rólegar sveitastemmn- ingar og mislynd veðrátta ARI Svavarsson, listmálari og grafískur hönnuður, opnar sýn- ingu á verkum sínum í Galleríi Sævars Karls í dag, laugardag, kl. 14. Þetta er önnur sýning Ara og eru verkin að þessu sinni máluð með rými gallerísins í huga. „Á sýningunni verða 6 eða 8 frekar stórar akrýlmyndir en ég myndi telja að ég málaði í abstrakt/ ekspressíonistastíl,“ segir Ari um sýninguna. „Myndirnar, sem skýra sig sjálfar eru stórar og kraftmikl- ar. Ég þarf að vinna frekar stórt, það er mín leið. Ég reyni að láta myndirnar flæða fram, þær eiga að koma beint frá hjartanu og sálinni og það fer því eftir skapinu hverju sinni hvað gerist á striganum. Frelsið er mér allt í þessum efn- um, það kann að stjórnast af því að ég er einnig grafískur hönnuður og hef starfað lengi sem slíkur. Þar er ég vanur bindingu og fast- mótuðum reglum, en í myndlistina sæki ég frelsið,“ sagði Ari. Ari hefur starfað við grafíska hönnun í 15 ár og stundað mynd- listina samhliða. Hann hefur auk þess fengist við málmsmíðar ýmiss konar, þar á meðal gull- og silf- ursmíði. Sýningin er opin á versl- unartíma og stendur til 14. nóv- ember. Morgunblaðið/Kristinn Ari Svavarsson. Eitt verka hans í bakgrunni. Sækir frelsið í myndlistina ÞRIÐJU tónleikar 15:15-syrpunnar á nýja sviði Borgarleikhússins verða í dag, laugardag, kl. 15:15. Að þessu sinni bregður Ferðalagaþáttur 15:15 sér til Bæheims og Týrol og flytur áheyrendum nokkur sýnishorn af tónlist eftir Martinu, Dvorák og Beethoven. Flytjendur eru Anna Sigríður Helgadóttir mezzósópran, Eydís Franzdóttir óbó, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðla, Sigurður Hall- dórsson selló og Daníel Þorsteinsson píanó. „Tilbrigði við stef frá Slóvakíu og Tilbrigði við stef eftir Rossini eftir Bohuslav Martinu eru dæmi um verk þar sem tónskáldið lætur ímyndunaraflið og sköpunargleði ráða, án þess að bakþankar nái að gefa þeim sótthreinsað yfirbragð,“ segir Sigurður Halldórsson um efn- isskrána. „Sígaunalög Dvoráks, sungin af Önnu Siggu, tvö þjóðlög frá Týrol í útsetningu Beethovens fyrir söngrödd, fiðlu, selló og píanó bera með sér óm af jóðli í bland við Vínarklassík. Þá verður fluttur kvartett frá árinu 1947 fyrir óbó, fiðlu, selló og píanó eftir Martinu sem er auðugur af hrynrænni orku, hljómasviðið vítt og harkalegar ómstríður.“ Sigurður Halldórsson, Daníel Þorsteinsson og Anna Sigríður Helgadóttir eru meðal flytjenda á Ferðalagatónleikunum í dag. Tilbrigði við stef á 15:15- tónleikum REINERT Mithassel heldur fyrirlestur í LHÍ, Laugar- nesi, á mánudag kl. 12.30. Reinert er norskur leikstjóri sem nýtir sér gagnvirkni og vídeótækni við uppsetningu danssýninga og innsetningar. Fyrirlesturinn fjallar um gagnvirka list og nýleg raf- listaverk eftir norska lista- menn. Ólafur Sigurðsson heldur fyrirlestur í Skipholti á mið- vikudag kl. 12.30. Hann er arkitekt og höfundur margra bygginga í Reykjavík. Fyr- irlesturinn nefnist „Þegar ég kom heim“ og segir hann m.a. frá eigin verkum. Námskeið Á námskeiði sem hefst mánudaginn 30. október verð- ur m.a. fjallað um stöðu kvenna í listasögunni. Kenn- ari er Elísa Björg Þorsteins- dóttir listfræðingur. Þá hefst 4. nóvember námskeið í út- litshönnun og umbroti og er grunnþekking á umbrotsfor- ritinu QuarkXPress nauðsyn- leg. Kennari er Margrét Rósa Sigurðardóttir, prentsmiður. Helstu grunnaðferðir í silkiþrykki verða m.a. kynnt- ar á námskeiði Ríkharðs Valt- ingojer sem hefst 4. nóvem- ber. Fyrir- lestrar og námskeið í LHÍ ÁTTA listamenn opna myndlist- arsýninguna Hringsjá í Menn- ingarmiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði í kvöld, laugardags- kvöld, kl. 20. Listamennirnir út- skrifuðust allir frá Listaháskóla Íslands vorið 2001 og verða þeir við opnunina. Viðfangsefni og útfærsla verkanna eru af ýms- um toga og gætu því endur- speglað fjölbreytileika íslenskr- ar samtímalistar. Áhorfandinn skoðar sýninguna út frá eins konar hringsjá sem vísar á það sem fyrir augu ber í sýning- arsalnum. Listamennirnir eru Arnfinnur Amazeen, Bryndís Erla Hjálm- arsdóttir, Baldur Geir Braga- son, Elín Helena Evertsdóttir, Fjölnir Björn Hlynsson, Markús Þór Andrésson, Rósa Sigrún Jónsdóttir og Þuríður Sigurð- ardóttir. Sýningin stendur til 17. nóv- ember. Samsýning átta lista- manna í Skaftfelli Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Húsgögn Sérpantanir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.