Morgunblaðið - 26.10.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 26.10.2002, Blaðsíða 53
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2002 53 ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi Heilsugæslulæknir Laus er til umsóknar staða heilsugæslulæknis við sjúkrahúsið og heilsugæslustöðina á Akra- nesi. Sérfræðiviðurkenning í heimilislækning- um er æskileg. Um er að ræða fullt starf. Stað- an veitist frá 1. janúar, 2003. Upplýsingar gefa Reynir Þorsteinsson, yfirlæknir heilsugæslu- stöðvarinnar, og Þórir Bergmundsson, lækn- ingaforstjóri, í síma 430 6000. Umsóknir send- ist Guðjóni Brjánssyni, framkvæmdastjóra stofnunarinnar, Merkigerði 9, 300 Akranesi. Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi (SHA) skiptist í sjúkra- svið og heilsugæslusvið. Ásjúkrasviði er starfrækt fjölgreinasjúkra- hús með örugga vaktþjónustu allan sólarhringinn árið um kring. Sjúkrahúsið veitir almenna og á vissum sviðum sérhæfða sjúkra- húsþjónustu á lyflækningadeild, handlækningadeild, fæðinga- og kvensjúkdómadeild, hjúkrunar- og endurhæfingadeild og á vel bún- um stoðdeildum þar sem höfuð áhersla er lögð á þjónustu við íbúa Vestur- og Suðvesturlands. Jafnframt er vaxandi árhersla lögð á þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins Áheilsugæslusviði er veitt almenn heilsugæsluþjónusta fyrir íbúa í heilsugæsluumdæmi Akraness með forystuhlutverk varðandi almenna heilsuvernd og forvarnarstarf. SHA tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í sam- vinnu við Háskóla Íslands og aðrar menntastofnanir. Starfsmenn stofnunarinnar eru um 240 talsins. SHA er reyklaus stofnun. R A Ð A U G L Ý S I N G A R FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Þjóðræknisfélags Íslendinga Aðalfundur Þjóðræknisfélag Íslendinga verður haldinn í ráðstefnusal í Borgartúni 6, laugar- daginn 9. nóvember nk., kl. 11 árdegis. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Þjóðræknisþing verður jafnframt haldið á sama stað kl. 13.30 þennan dag með fjölbreyttri dag- skrá. Þingið er öllum opið. Dagskrá auglýst síðar. Stjórnin. Þjóðræknisfélag Íslendinga vinnur að því að auka samskipti á sem flestum sviðum við Vestur-Íslendinga og afkomendur þeirra í Kanada og Bandaríkjunum. TIL LEIGU Lúxus stúdíó-íbúð til leigu 36 fm í nýju húsi við Skipholt. Laus strax. Er með vönduðum húsgögnum og sjónvarpi. Þvottahús með þvottavél og góð geymsla. mbvest@hotmail.com . NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Hafnarbraut 14, þingl. eig. Sigurður Benediktsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 1. nóvember 2002 kl. 13.00. Hæðagarður 12, þingl. eig. Gísli Rangar Sumarliðason, gerðarbeið- endur Fróði hf. og Íbúðalánasjóður, föstudaginn 1. nóvember 2002 kl. 11.00. Sýslumaðurinn á Höfn, 24. október 2002. TIL SÖLU Lagerútsalan Laugardaginn 26. október 2002 verðum við með lagerútsölu frá kl. 13.00 til kl. 16.00 síð- degis. Seld verða leikföng í úrvali: Bílar, risaeðlur með hljóðum, dúkkur, gæsaveiði- tækið vinsæla, tölvustýrðir jeppar og fjórhjól, boltar, stórar vatnsbyssur, mikið úrval leik- fanga í skóinn, og fl. og fl. Einnig nokkuð af ódýrum kaffivélum, brauðristum og handþeyturum. Herðatré, plast og tré, fægi- skóflur, borðdúkar, servíettur, plasthnífapör. Veiðarfæri: Stangir, hjól, nælur, önglar, spún- ar, veiðikassar, gervibeita, línur, flugulínur, vöðluskór, túbu-Vise, vatteraðir veiðigallar, regnjakkar. Ódýrar vöðlur í stærðunum 41-42, hagstætt verð. Verkfærakassar á tilboðs- verði. Bakkar fyrir örbylgjuofna, hitakönnur, vínkælar, þurkgrindur fyrir þvott, áklæði á strauborð. Grillgrindur, grillgafflar, uppkveiki- kubbar fyrir grill. Trégreinasagir fyrir garðinn, hagstætt verð. Hleðslubatterí. Vagn á hjólum með þremur hillum, tilvalinn á lager, í mötu- neyti o.fl. Trilla fyrir lager. Lítið við, því nú er tækifæri til þess að gera góð kaup og kaupa ódýrar jólagjafir og leikföng á hagstæðu verði í skóinn. Kredit- og debitkortaþjónusta. I. Guðmundsson ehf., Skipholti 25, 105 Reykjavík. TILKYNNINGAR Eldri Esk- og Reyðfirðingar í Reykjavík og nágrenni Munið vetrarkaffið sunnudaginn 27. okt. kl. 15 í félagsheimili eldri borgara, Gullsmára 13, Kópavogi. Hittumst hress. Kaffikonurnar. Jóga sem lífsstíll á 21. öldinni 6. Lífið í jafnvægi - (Heimspeki og aðferðir) fyrirlestur — 2 tímar í kvöld kl. 20.10 á Grand Hóteli. Hluti af 14 vikna námskeiði. Hægt er að kaupa sig inn á stakan fyrirlestur á kr. 2.200. Jóga hjá Guðjóni Bergmann. Nánari upplýsingar á www.gbergmann.is UPPBOÐ Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Borgarbraut 2, Stykkishólmi, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Austurgata 6, Stykkishólmi, þingl. eig. Bergsveinn Gestsson, gerðar- beiðendur Iðunn ehf., bókaútgáfa, innheimtumaður ríkissjóðs og Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 31. október 2002 kl. 14.00. Borgarbraut 2, efri hæð, hluti, Grundarfirði, þingl. eig. Höskuldur R. Höskuldsson, gerðarbeiðandi innheimtumaður ríkissjóðs, fimmtu- daginn 31. október 2002 kl. 14.00. Ennisbraut 55, Snæfellsbæ, þingl. eig. Tréskip ehf., Stykkishólmi, gerðarbeiðendur innheimtumaður ríkissjóðs og Lífeyrissjóðurinn Lífiðn, fimmtudaginn 31. október 2002 kl. 14.00. Hellisbraut 20, Snæfellsbæ, þingl. eig. Viðar Páll Hafsteinsson, skv. kaups. og Bátahöllin ehf., gerðarbeiðandi Samskip hf., fimmtudaginn 31. október 2002 kl. 14.00. Helluhóll 10, Snæfellsbæ, þingl. eig. Signý Rut Friðjónsdóttir, gerð- arbeiðendur Íbúðalánasjóður og Vátryggingafélag Íslands hf., fimmtudaginn 31. október 2002 kl. 14.00. Hlíðarvegur 21, Grundarfirði, þingl. eig. Jóhanna Kristín Kristjánsd- óttir og Oddur Magnússon, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtu- daginn 31. október kl. 14.00. Hraunprýði, Snæfellsbæ, þingl. eig. Benedikt Sveinbjörnsson, gerð- arbeiðandi innheimtumaður ríkissjóðs, fimmtudaginn 31. október 2002 kl. 14.00. Þverá, hluti, Eyja- og Miklaholtshreppi, þingl. eig. Jón Þór Þorleifs- son, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, fimmtudaginn 31. október 2002 kl. 14.00. Sýslumaður Snæfellinga, 25. október 2002. SMÁAUGLÝSINGAR EINKAMÁL 42 ára Spánverji, 165 cm á hæð og 75 kg, óskar eftir að kynnast íslenskri konu, 22— 30 ára, með alvöru og stofn- un fjölskyldu á Spáni í huga (helst barnlausa). Tala dálitla ensku. Mynd æskileg. Sendið bréf til: Section Post office, N 22 Briviesca, Burgos, Spain. KENNSLA Triggerpunktanámskeið Helgin 16. og 17. nóv. frá kl. 9- 17. Ríkharður Mar Jósafatsson, Doctor of Oriental Medicine. Aðeins 17.000 ef greitt er fyrir 1. nóv., 20.000 eftir þann tíma. Stóru Triggerpunktaveggkortin verða til sölu. Nálastungur Íslands ehf., Fellsmúla 24, 108 Rvík, símar 553 0070, 863 0180. FÉLAGSLÍF Sunnudagur 27. október Fornar þjóðleiðir — Skógfella- vegur. Áttunda og síðasta af- mælisganga FÍ Genginn Skógfellavegur úr Vog- um á Vatnsleysuströnd í suður- átt áleiðis til Grindavíkur. 5 klst ganga. Þátttakendur fá upplýsingablað um leiðina auk afmælisstimpils í ferðaáætlun FÍ. Veglegir vinn- ingar. Brottför frá BSÍ kl. 10.30 á sunnu- dag með viðkomu í Mörkinni 6. Verð: Félagsmenn 2.400 kr. Aðrir 2.700 kr. Fararstjóri: Þóroddur Þóroddsson. Sunnud. 27. okt. Dagsferð — Húsmúli — Draugatjörn — Litla kaffistofan. Fararstjóri verð- ur Margrét Björnsdóttir. Verð 1.500/1.700. Brottför frá BSÍ kl. 10.30. Spennandi helgarferð framundan. 1.—3. nóv. Sveinstindur — Skælingar. Spennandi jeppa- ferð um fáfarið landsvæði. Ekið í Álftavatnskrók og haldið inn að Sveinstindi. Ekið um Blautulón og í Skælinga. 29. nóv.—1. des. Aðventu- ferð í Bása. Aðventu- og jóla- stemmning í Básum. Göngu- ferðir, hlaðborð og fleira. Kjörin ferð fyrir alla fjölskylduna. 7.-8. des. Aðventuferð jeppa- deildar í Bása. Árviss ferð jeppa- deildar í Bása. Gönguferðir, kvöldvökur og fleira. Miðasala er hafin í hina sívin- sælu áramótaferð Útivistar í Bása. Miðar fást á skrifstofu Úti- vistar. Tryggið ykkur pláss í tíma SAFNARAR Bítlarnir, Stones, Elvis og fleiri, popp, rokk og þungarokk, breiðskífur, smáskífur og plaköt frá ca 1950—'70. Sérstaklega söfn. Gott verð í boði. Tölvup. leariderz@hotmail.com . BLINDRAFÉLAGIÐ hefur um ára- bil gefið út jólakort til styrktar starfinu. Í ár er kortið með mynd- inni ,,Jólaengill“ eftir mynd- listakonuna Línu Rut Wilberg. Blindrafélagið kann henni bestu þakkir fyrir verkið. Jólakortin eru seld átta saman í pakka ásamt um- slögum á 1.000 kr. pakkinn. Einnig eru seld átta merkispjöld saman í pakka með sömu mynd á 200 kr. pakkinn. Sölumenn ganga í hús í nóvember og er aðstoð fleiri sölu- manna vel þegin. Jólakort Blindra- félagsins BRÚÐARKJÓLALEIGA Dóru er flutt í verslunarhúsnæði að Suður- landsbraut 50 í Reykjavík (bláu hús- in við Faxafen). Brúðarkjólaleiga Dóru er með brúðarkjóla til leigu og sölu og fylgihluti s.s. slör, skó og höfuðskraut, kjóla og höfuðskraut fyrir brúðarmeyjar, samkvæm- iskjóla í stærðunum 8 – 26 og und- irföt. Einnig er boðið upp á herrafatn- að, á unga drengi, unglinga og full- orðna, fyrir öll tækifæri s.s. brúð- kaup, fermingar og árshátíðir. Brúðarkjólaleigu Dóru er opin alla virka daga kl. 10–18 og á laug- ardögum kl. 10–14. Netfang: www.brudarkjolaleiga.is Brúðarkjólaleiga Dóru flutt MIÐVIKUDAGINN 24. október var ekið á bifreiðina AP-219 þar sem hún stóð á bifreiðastæði við Guðbrands- götu í Reykjavík, norðan við Hótel Sögu. Sá er tjóninu olli fór á brott af vettvangi án þess að láta vita. Atvik- ið gerðist milli kl. 9.30 og 12. Bifreiðin er fólksbifreið af tegund- inni BMW, grá að lit. Ákoma er á vinstri hlið bifreiðarinnar og vinstra framhorni. Vitni eru beðin að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Þá barst lögreglunni í Hafnarfirði tilkynning um umferðaróhapp á Hafnarfjarðarvegi skammt norðan við Arnarnesbrú kl. 18.14 sl. mið- vikudag. Mun óhappið hafa orðið með þeim hætti að ökumaður á dökk- grænni jeppabifreið missti stjórn á bifreið sinni þar sem hann ók til norðurs Hafnarfjarðarveg, þannig að hún lenti utan vegar og valt. Vitni að atburði þessum eru beðin um að hafa samband við lögregluna í Hafn- arfirði. Sérstaklega er biðlað til öku- manns á eldri gerð jeppa, líklega af Toyota Hilux-gerð, dökkri með hvít- um toppi, að hafa samband við lög- reglu en þeirri bifreið var ekið í sömu átt og bifreiðinni er valt. Vitni óskast Gísli Ólafsson Þau leiðu mistök urðu í formála minningargreina um Gísla Ólafsson í blaðinu í gær, föstudaginn 25. októ- ber, að hann er í tvígang nefndur Ólafur. Ættingjar og aðrir ástvinir Gísla eru beðnir velvirðingar á þess- um mistökum. LEIÐRÉTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.