Morgunblaðið - 20.11.2002, Side 2

Morgunblaðið - 20.11.2002, Side 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                                  !           !  "!                 $  % &    '       ( ! %    !   $  ) *** STEINAR Bragi, höfundur nokkurra áhuga- verðra ljóðabóka og tilraunakenndrar smásögu sem gefin var út í skáldsöguformi, hefur með út- komu fyrstu skáldsögu sinnar dæmt úr leik hlut- laus lýsingarorð á borð við þau sem notuð voru hér að framan; „áhugaverð og „tilraunakennd“ eru reyndar hugtök sem vel má nota til að lýsa Áhyggjudúkkum en ólíkt almennri notkun þeirra eru orðin í þessu tilviki hlaðin merkingu og aðeins vísir að þeirri umfjöllun sem verkið kallar á. Reyndar hefur verið áhugavert að fylgjast með framkomu og þróun ungra höfunda undanfarin ár, bæði í bókmenntum og kvikmyndum, og hvernig ný kynslóð hefur í auknum mæli leitast við að tak- ast á við málefni sem tilheyra þessari sömu kyn- slóð, og notað til þess orðfæri nútímans og þau helstu kennileiti sem geta talist viðeigandi, þ.e. miðborgina, skemmtistaði, kaffihús, skóla og há- skólann. Þannig hefur ýmsum nýlegum textum það sem virðist vera (en er að sjálf- sögðu ekki) handahófskennd óreiða sem stjórnar því hverjir koma fram í verkinu, og hvenær lesandi fær að kynnast þeim, og hvað þeir gera þau augnablik sem við fylgjumst með þeim, svipar til hins guðlega hlut- leysis sjálfvirks eftirlitsbúnaðar. Líkt og kvikmyndum er stundum hrósað fyrir tilfinningu sem hægt er að skapa fyrir því að ramminn hylji jafnmikið og hann sýnir – að veru- leiki hins uppdiktaða heims haldi áfram óbreyttur þótt sjónarhorn kvikmyndatökuvélarinnar breytist og yfirgefi ákveðnar persónur – þá tekst Steinari Braga að skapa svo panóramíska og lifandi breiðmynd af afar afmörkuðu (landfræðilegu) sjónarsviði að lesandinn getur ekki varist því að fallast á og fyll- ast áhuga á þeim mannlega vef sem skáldsagan spinnur, auk þess sem ýmsir merkingaraukar á borð við „rannsókn“, „raunveruleikasjónvarp“ og „montage“ verða fljótt aðkallandi. Hér kynnumst við litríkum hópi af ungu og eldra fólki, manneskjum sem eiga ekkert annað tekist að gefa í skyn að daglegur veruleiki ungs fólks á Íslandi við alda- og árþúsundamótin miðast meira við tilvísunarnet alþjóðlegrar (helst samt bandarískrar) afþreying- armenningar – tölvuleiki, kvikmynd- ir, myndasögur – en meðfæddrar samvitundar um togara, fjós og hrausta karlmenn sem takast á við náttúruöflin. Það sem Steinar Bragi bætir við efnistök fyrri texta á borð við 101 Reykjavík, Dís, Fíaskó og Óskabörn þjóðarinnar, sem geta talist lifandi dæmi um áherslubreytinguna sem lýst var hér að ofan, er tilfinning fyr- ir lifuðum og margradda veruleika sem þó er bundinn við ákveðinn stað og ákveðinn tíma. Í Áhyggjudúkkkum er ekki að finna neina aðal- persónu, ekki heldur aukapersónur, heldur ein- faldlega fjöldann allan af persónum sem flakka inn og út úr textanum, líkt og fólk flakkar inn og út úr sjónsviði öryggismyndavélarinnar á Lækjartorgi. Höfundarsýn Steinars er reyndar ekki niðurnegld á sama hátt og öryggismyndavél en hlutleysið og Að slengja orðræðunni Steinar Bragi SKÁLDSAGA Áhyggjudúkkur STEINAR BRAGI 225 bls. Bjartur, 2002. Form í samræmi við sál ljóðsins Freysteinn Jóhannsson ræðir við Þorstein frá Hamri Lovestar er titill nýrr- ar skáldsögu Andra Snæs Magnasonar sem kemur út í dag. Andri Snær varð þjóðþekktur þegar bók hans Sagan af bláa hnettinum kom út fyrir þremur árum. LoveStar gerist í fram- tíðinni þegar alþjóð- lega stórfyrirtækið LoveStar hefur komið Íslandi á heimskortið með því að mark- aðssetja dauðann og koma skipulagi á ástina. Indriði og Sigríður eru hand- frjálsir einstaklingar í þessu samfélagi sem þau trúa á þar til bréf berst frá stórveldinu: Þau eru ekki ætluð hvort öðru og Sigríður er boðuð norður í Öxnadal, þar sem ástarstjarnan blikkar bak við ský í miklum skemmtigarði. Sagan er fantasía um samfélag þar sem markaðssetning, auglýsingamennska og tæknihyggja ráða lögum og lofum en tekst þó ekki að beisla ástina og lífs- þróttinn. Mál og menning gefur bókina út. LoveStar Andri Snær Magnason Blíðfinnur og svörtu teningarnir – ferðin til Targíu er eftir Þorvald Þorsteinsson. Það er vor og Blíðfinnur und- irbýr enn eitt dásemda- sumar í garðinum sín- um. En út við sjóndeild- arhring hrannast upp kolsvört reykjarský. Áður en langt um líður brennur allur skógurinn hans Blíðfinns og litla húsið hans líka. Fullur af hefndarþorsta leggur Blíð- finnur af stað ásamt vini sínum og vel- gjörðarmanni, dyrglinum. Er reiðin og hefndarhugurinn góðir ferðafélagar? Útgefandi er bókaforlagið Bjartur. Bókin er 126 bls., prentuð í Odda hf. Kápugerð, kortagerð og myndskreyt- ingar annaðist Guðjón Ketilsson. Verð: 2.480 kr. Blíðfinnur enn á ferð Þorvaldur Þorsteinsson  BÆKUR SÉRRIT MORGUNBLAÐSINS UM BÆKUR miðvikudagur 20.nóvember2002 Andri Snær Magnason Í Öxnadal hefur LoveStar stórveldi› komi› skipulagi á ástina og hafi› dau›ann til sk‡janna. Indri›i og Sigrí›ur halda a› flau séu sköpu› hvort fyrir anna› flar til fleim berst bréf sem umturnar lífi fleirra. LoveStar sjálfur er á lei›inni nor›ur eftir a› hafa láti› hættulegustu hugmynd í heimi ver›a a› veruleika. Brjálæ›isleg skáldsaga um ástina, dau›ann og gu› flegar stemningin hefur teki› öll völd. Ástin, dau›inn og gu› ÍS LE N SK A A U G L SL EN SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S E D D 1 94 11 11 /2 00 2 SI N G A ST O FA N /S IA .I S ED D 19 41 1 11 /2 00 2 Kemur í verslanir í dag GJÖRBREYTTUR AVENSIS lengri og breiðari  DÝRT AÐ REKA DÍSILBÍL  RENAULT MÉGANE BÍLL ÁRSINS  LOFTDÆLUR Í FJALLAJEPPANA LAND CRUISER REYNSLUEKIÐ  VOLKSWAGEN Í PARÍS-DAKAR  SMÁSPORTARI FRÁ OPEL  Alhliða lausn í bílafjármögnun Suðurlandsbraut 22 • Sími: 540 1500 Vesturhraun 3, 210 Garðabæ sími 565 5333 FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI SÍMI 555 6025 • www.kia.is K IA ÍSLAND Bílar sem borga sig! Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Umræðan 34/38 Viðskipti 14/16 Minningar 39/43 Erlent 17/21 Hestar 44 Höfuðborgin 22 Bréf 48 Akureyri 23 Dagbók 50/51 Suðurnes 24 Kvikmyndir 52 Landið 25 Fólk 52/57 Listir 26/29 Bíó 54/57 Forystugrein 30 Ljósvakamiðlar 58 Viðhorf 34 Veður 59 * * * 2002  MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A HAUKAR FARA FARA TIL SPÁNAR EN GRÓTTA/KR TIL DANMERKUR / B3 Atli sagði að hann treysti öllumleikmönnum sínum, sem eru í hópnum í Tallinn, fullkomlega í slaginn, en hann hafi valið að gera breytingar á lands- liðinu og það yrði mjög skemmtilegt að sjá hvernig þær virkuðu. „Árni Gautur Arason verður í markinu og miðverðir fyrir framan hann Hermann Hreiðarsson og Ív- ar Ingimarsson. Bjarni Þorsteins- son verður vinstri bakvörður og Gylfi Einarsson verður hægri bak- vörður. Fyrir framan miðverðina verða tveir miðjumenn – Pétur Mar- teinsson og Ólafur Stígsson. Þórð- ur Guðjónsson verður hægra meg- in á miðjunni og Arnar Gunnlaugsson vinstra megin. Tryggvi Guðmundsson verður á miðjunni og Helgi Sigurðsson í fremstu víglínu,“ sagði Atli um uppstillingu liðsins. Gaman að sjá Arnar á ný með landsliðinu „Það verður gaman að sjá Arnar leika með okkur á ný en hann hef- ur mikla hæfileika – kemur með hraða og knatttækni. Ef hann nær sér á strik yrði það frábært fyrir okkur. Sama má segja um Þórð, sem hefur góðar spyrnur og hraða. Tryggvi gæti hentað í því hlut- verki sem Eiður Smári Guðjohn- sen hefur leikið. Það er að skjóta sér inn á milli varnarmanna, sem hann er þekktur fyrir. Fyrir fram- an hann er Helgi, sem er mikill gegnumbrotsmaður. Maður veit aldrei hverju hann tekur uppá og það gerir andstæðingurinn heldur ekki. Helgi getur verið óútreiknanleg- ur og þegar hann dettur inn á góð- an dag getur hann sett mörk sem duga til sigurs,“ sagði Atli, sem reiknar fastlega með miklum bar- áttuleik. Líkamlega sterkir og hættulegir sóknarmenn „Eistlendingar eru líkamlega sterkir og leika agaðan varnarleik. Þá eru þeir með hættulega sókn- arleikmenn, sem við verðum að hafa góðar gætur á. Þá eru þeir með leikna miðjumenn, sem við verðum að stöðva. Eistlendingar beita mikið skyndisóknum, sem eru hættulegar.“ Þegar Atli var spurður hvort bræðurnir Þórður, Jóhannes Karl og Bjarni Guðjónssynir komi til með að vera inná vellinum allir í einu, sagði hann: „Já, ég vona það. Það fer eftir því hvernig leikurinn þróast. Það yrði gaman að sjá þá saman inni á vellinum. Jóhannes Karl og Bjarni léku vel gegn Litháen á dögunum, en nú fá aðrir tækifæri í byrjunarliðinu,“ sagði Atli. Landsleikur Eistlands og Ís- lands verður leikinn á nýjum heimavelli Flora Tallinn og hefst hann kl. 18 eða kl. 16 að íslenskum tíma. Honum verður sjónvarpað beint á RÚV. Atli Eðvaldsson teflir fram breyttu landsliði gegn Eistlandi í Tallinn „Arnar, Þórð- ur og Tryggvi koma með meiri hraða“ „ÉG hef valið að nýta leikinn gegn Eistlendingum hér í Tallinn til að gefa leikmönnum sem hafa ekki leikið með landsliðinu að undanförnu tækifæri,“ sagði Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, þegar hann var búinn að tilkynna byrjunarlið sitt á æfingu í gær. Þórður Guðjónsson, Pétur Hafliði Marteinsson, Arnar Gunnlaugsson leika sinn fyrsta landsleik í ár og Tryggvi Guðmundsson er kominn í byrjunarliðið á ný, en hann hefur að- eins leikið einn leik á árinu – kom inná sem varamaður rétt fyrir leikslok í leik gegn Noregi í Bodö, 1:1. Sigmundur Ó. Steinarsson skrifar frá Tallinn ■ Mikil spenna /B4 HJÁLMUR Dór Hjálmsson, knatt- spyrnumaður frá Akranesi, dvelur þessa dagana til reynslu hjá þýska 2. deildarfélaginu Rot-Weiss Oberhau- sen. Hann fór þangað í síðustu viku og er væntanlegur heim nú fyrir helgina. Framkvæmdastjóri Ober- hausen er enginn annar en Klaus Hilpert, sem þjálfaði Skagamenn á árum áður og var lengi fram- kvæmdastjóri Bochum. Hilpert sá til Hjálms í leikjum 21-árs landsliðsins í haust og bauð honum til Þýskalands í framhaldi af því. Oberhausen er í 5. sæti 2. deildar, næstefstu deildar, og er tveimur stigum á eftir Frankfurt, sem er í þriðja sætinu, en þrjú lið vinna sig upp í 1. deild. Þetta er fimmta tíma- bilið sem Oberhausen leikur í 2. deild eftir að hafa unnið sig upp úr þeirri þriðju árið 1998, og hefur best náð sjötta sætinu til þessa. Hjálmur er tvítugur og átti fast sæti í liði Skagamanna sem hægri bakvörður í úrvalsdeildinni í sumar, lék 17 leiki og skoraði eitt mark. Þá lék hann þrjá leiki með 21-árs lands- liðinu og hefur áður spilað með yngri landsliðunum. Hjálmur er hjá Hilpert Morgunblaðið/Jim Smart Keflavík vann yfirburðasigur á Val, 114:61, í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöld. Hér reynir Gylfi Már Geirsson í Val að verjast Damon Johnson. Nánar um leikina á B2. MÓTANEFND HSÍ ákvað í gær að fresta leik Fram og Hauka í 1. deild karla í handknattleik sem fram átti að fara í gærkvöldi. Framarar fóru fram á frestunina þar sem flensa herjar á leik- menn liðs þeirra en sjö liggja rúmfastir. Þetta eru; Magnús G. Erlendsson, Valdimar Þórsson, Gunnar Jónsson, Haraldur Þorvarðarson, Guð- laugur Arnarsson, Hjálmar Vilhjálmsson og Þór- ir Sigmundsson. Leikurinn hefur verið settur á að nýju á miðvikudaginn í næstu viku. „Það er fordæmi fyrir frestun vegna veikinda leikmanna frá 1998 þegar fresta varð leik Aftur- eldingar og Vals þegar sex leikmenn Vals voru veikir og þá eins og nú voru lögð læknisvottorð því til staðfestingar,“ sagði Óskar Bjarni Ósk- arsson, starfsmaður HSÍ í gær. „Auðvitað er slæmt að þurfa að fresta leik á leikdegi en þegar læknisvottorð lágu fyrir kom ekkert annað til greina en að fresta,“ sagði Óskar. Sjö Framarar rúmliggjandi XUHONG Yang, knatt- spyrnukona frá Kína, er gengin til liðs við úrvals- deildarlið Stjörnunnar og hefur skrifað undir tveggja ára samning við Garðabæj- arfélagið. Xuhong er 24 ára og lék með liði í Peking í úr- valsdeildinni í Kína í sex ár og varð meistari með því árið 1999, en auk þess spilaði hún með kínverska landsliðinu 1997–1999. Hún hefur dvalið hér á landi frá því í byrjun ágúst en fékk ekki leikheim- ild til að spila með Stjörnunni á lokakafla Íslandsmótsins. „Það er góður liðsstyrkur í þessari stúlku. Hún leikur á miðjunni og ætti að nýtast okkur vel,“ sagði Ásbjörn Sveinbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, við Morg- unblaðið. Kínverji í Stjörnuna JÁKVÆTT andrúmsloft var á fundi stjórnar heilsugæslulækna og heilbrigðisráðherra í gær að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra og Þóris Björns Kolbeinssonar, formanns Félags ís- lenskra heimilislækna. Ráðherra segist bjartsýnn á að hægt verði að ná samkomulagi við heilsu- gæslulækna, án þess að vilja tjá sig efnislega um það. Þórir segir að samningshljóð hafi verið í báð- um aðilum. „Heilsugæslulæknar hafa lagt fram ákveðnar hugmyndir til að leysa deiluna og við einnig. Við erum að skoða tiltekin atriði og ég legg mikið upp úr því að hratt verði unnið í málinu til að leysa þá spennitreyju sem þetta mál er komið í,“ sagði ráð- herra. Ákveðið hefði verið að funda aftur með læknum síðar í vikunni. „Ég held að það sé ekki skynsamlegt að greina frá því hvað okkur fór á milli á fundinum. Það var jákvætt andrúmsloft og við hittumst aftur síðar í vikunni. Ég er tiltölulega bjartsýnn á að við náum sameiginlegum grund- velli,“ sagði Jón. „Ég er bjartsýnni eftir fundinn en ég var fyrir hann,“ segir Þórir. „Við ræddum þarna hugmyndir á báða bóga og það var ákveðið að vinna heimaverkefni frekar með þær og ákveð- ið að hittast mjög fljótt aftur. Efnislega get ég ekki farið út í þetta, það er verið að vinna úr hug- myndum sem við höfum verið að kynna fyrir hvor öðrum. Það virðist sem þetta gæti orðið grundvöll- ur undir sátt, en þetta er á viðkvæmu stigi,“ segir Þórir. Morgunblaðið/Jim Smart Samningshljóð var í báðum aðilum að sögn Þóris Björns Kolbeinssonar, formanns Félags íslenskra heimilislækna. Hér má sjá frá vinstri Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra, Davíð Á. Gunnarsson ráðuneytisstjóra, Þóri Björn, Gunnstein Stefánsson, Jón Steinar Jónsson og Sigríði Dóru Magnúsdóttur. Bjartsýni eftir fund í læknadeilu ALLMYNDARLEGIR eftirskjálftar, upp á 2,5 á Richter, urðu við Bárðarbungu í Vatnajökli í gærkvöld, að sögn Páls Einarssonar jarðeðl- isfræðings en á tíunda tímanum í gærmorgun varð skjálfti upp á 4,1 á Richter og stuttu síðar annar upp á rúm 3 stig. Páll segir að þessi virkni gefi tilefni til þess að vel sé fylgst með svæðinu. „Þetta er utan í einu stærsta og virkasta eldfjalli lands- ins og þá er alltaf ástæða til að hafa augun hjá sér. Það hafa ekki komið svona skjálftar á þessum stað í sex ár frá því gaus í Gjálp,“ segir Páll. Hann segir skjálftavirknina ekki gefa í sjálfu sér tilefni til þess að gos sé að byrja, en hins vegar sé eitthvað að gerast í eldstöð- inni. Þetta geti verið fyrsta merki um að þrýstingur sé byrjaður að vaxa að nýju í eldstöðinni eftir Gjálpargosið 1996. Það ein- kenni skjálfta við Bárðarbungu að engir eftirskjálftar komi, þessi skjálfti sé því að þessu leyti frábrugðinn öðrum skjálftum á þessu svæði. Myndarlegir eftirskjálftar Páll Einarsson ENDURTALNING á atkvæðum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norð- vesturkjördæmi breytti ekki innbyrð- is röð frambjóðenda frá frumtalningu og ekkert misræmi milli útgefinna at- kvæðaseðla og greiddra atkvæða, gildra sem ógildra, kom fram við yf- irferð á gögnum og skýrslum undir- kjörstjórna. Endurtalning fór fram í Valhöll, höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, í gærkvöldi og segir Jó- hann Kjartansson, formaður kjör- stjórnar í Norðvesturkjördæmi, að hún hafi í raun staðfest frumtaln- inguna. „Við fórum yfir öll gögn og alla pappíra og ekkert óeðlilegt kom í ljós. Allt var eins og við fyrstu yfir- ferð,“ segir hann, en prófkjörið fór fram 9. nóvember. Jóhann segir að með þessari fram- kvæmd hafi samþykkt kjörnefndar á fundi í Hrútafirði í liðinni viku verið fullnægt og þar með sé málið frá hjá kjörnefnd að sinni, en eins og fram hafi komið liggi fyrir beiðni um að málið verði tekið fyrir hjá miðstjórn flokksins. Endur- talningin breytti enguÍ ALLA nótt vann íslenska lands-liðið í matreiðslu við að galdra fram rétti á kalt borð en liðið tekur nú þátt í heimsmeistaramóti mat- reiðslumanna í Lúxemborg og mun á hádegi í dag afhenda dómnefnd- inni kalda borðið. Liðið fékk silf- urverðlaun þegar það keppti í heit- um réttum á laugardag. Alls keppa 700 matreiðslumeist- arar frá 34 löndum á mótinu. Sturla Birgisson, þjálfari liðsins, segir landsliðið vera samstilltan hóp. Stig séu gefin í hverjum flokki, 2–3 þjóð- ir geti fengið gull og 3–4 silfur. Að lokum eru gefin heildarstig. „Við höfum þurft að snúa sólar- hringnum alveg við. Við byrjum að vinna klukkan 16 á daginn og erum að til klukkan 6 á morgnana, en við erum með vinnuaðstöðu í eldhúsi hótelsins þar sem við gistum.“ Sturla segir að þrjár nætur hafi tekið að undirbúa kalda borðið. Gott bragðskyn, listfengi og út- sjónarsemi séu þeir eiginleikar sem skipti mestu máli við matreiðslu. Landsliðið tók allt hráefni fyrir keppnina með að heiman en þó kaupir það grænmeti og annað ferskmeti í Lúxemborg. Sturla seg- ir að það hafi verið skipulagt fyrir mörgum mánuðum og mörgum æf- ingum hvað yrði borið á borð og matreitt í keppninni. Á laugardag, þegar keppt var í heitum réttum, hljómaði matseðill landsliðsins svona. Í forrétt var boðið upp á lax og þorsk með humri og eplamauki, sultuðum tómat og lakkríssósu. Í aðalrrétt var lamba- hryggvöðvi hjúpaður klettasalati með kóngasveppakartöflum, villi- sveppum og lambadjússoði. Í eft- irrétt var reitt fram hvítt súkku- laðifrauð með súraldini, mangó ís, heit súkkulaðikaka og anísfroða. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Einn landsliðsmanna brúnar hér mini-maís með logsuðutæki. Eru þrjár nætur að undirbúa kalda borðið SAMIÐ VIÐ ALDRAÐA Fulltrúar ríkisins og Lands- sambands eldri borgara undirrituðu í gær samkomulag um að hækka al- mannatryggingar og breyta öldr- unarþjónustu á næstu tveimur til þremur árum. Þetta kemur til með að hækka tekjur eldri borgara um átta til fjórtán þúsund krónur á mánuði. Olía í sjóinn við Spán Talið er að sex þúsund tonn af olíu hafi farið í sjóinn þegar olíu- flutningaskipið Prestige sökk undan ströndum Spánar í gær. 70 þúsund tonn af olíu eru enn í skipinu. Á fljúgandi ferð Flugleiðir högnuðust um 3,3 millj- arða króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins, en á sama tímabili í fyrra var hagnaðurinn 385 millj- ónir. Hækka leikskólagjöld Samþykkt var í borgarráði í gær að hækka leikskólagjöld um 8%. Borgarstjóri segir ástæðuna vera uppsafnaða þörf. Reyk lagði frá Landspítala Símalínur Neyðarlínunnar voru glóandi í gær þegar mikinn reyk lagði frá turni Landspítalans í Foss- vogi. Tiltækt slökkvilið var sent á vettvang en reykurinn reyndist hafa myndast þegar verið var að prófa hitakatla og engin hætta á ferðum. Yfirtaka JP Nordiska 81,5% hluthafa í sænska fjárfest- ingarbankanum JP Nordiska sam- þykktu yfirtökutilboð Kaupþings. Þess er nú beðið að fjármálaeftirlit Svíþjóðar samþykki kaupin. Uppselt á Nick Cave Miðar á tónleika Nicks Caves í Broadway 9. desember seldust upp á innan við klukkustund í gær. Til greina kemur að hann haldi aðra tónleika 10. desember.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.