Morgunblaðið - 20.11.2002, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 20.11.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MIKINN og svartan reyk lagði frá turni Landspítalans í Fossvogi síð- degis í gær og héldu þeir rúmlega 100 borgarbúar sem tilkynntu Neyðarlínunni um eldsvoða í spít- alanum, að einn versti atburður sem hugsast gæti, væri orðinn að veruleika. Reykurinn á 15 hæða turninum blasti við vegfarendum í óhugnanlegri þögn sinni á björtu vetrarsíðdeginu, en innandyra virtust vaktmenn ekki hafa hug- mynd um málið. Viðvörunarkerfi spítalans steinþagði og örygg- isverðir fréttu af málinu utan af sér. Varðstjóri hjá Neyðarlínu sagði tilkynningar fólks hafa verið „ljótar“ og málið í heild sinni rugl- ingslegt. „Kerfið fór ekki í gang og vakt- menn vissu ekkert. Hringjendur voru um hundrað og allir höfðu svipaða sögu að segja. Það var hringt úr Kópavoginum og alveg inn í Fossvogsdal. Þetta leit því mjög illa út og óafsakanlegt að ábyrgðaraðilar hússins skuli ekki vita hvað var þarna að gerast,“ sagði Kristján Hoffmann, varð- stjóri á Neyðarlínunni. Segir hann að vaktmenn spítalans hafi ekki kunnað neinar skýringar á reykn- um þegar Neyðarlína hafði sam- band við þá. Mikill viðbúnaður Slökkviliðsins Mikill viðbúnaður fór í gang hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og allir tiltækir menn á vakt sendir að spítalanum. Fjölmennt lið lög- reglumanna lokaði aðliggjandi götum að spítalanum á meðan slökkviliðsmenn hlupu upp turninn til að slökkva, en er þeir komu á vettvang, var reykurinn horfinn og ekkert fyrir slökkvilið að gera og engin hætta á ferðum, að sögn Jóns Viðars Matthíassonar, vara- slökkviliðsstjóra. Öryggisstjóri Landspítalans, Pálmi Þór Ævarsson, viðurkennir að spítalaturninn hafi litið illa út á meðan reykinn lagði frá honum. Atburðurinn er rakinn til þess að verið var að prófa hitakatla í hús- inu, en þeir gegna hlutverki vara- kyndingar í húsinu ef hitaveitan bregst og er kveikt upp í þeim tvisvar á ári í prófunarskyni. Pálmi Þór segir að annaðhvort hafi verið of mikið sót í kötlunum eða „spíssar“, þ.e. lokar, vitlaust stillt- ir, sem hafi valdið öllum reyknum. Aðspurður um hvers vegna bruna- viðvörunarkefi hafi ekki farið í gang og hvers vegna vaktmenn hafi ekki vitað neitt um málið, seg- ir hann að enginn eldur hafi kvikn- að og því hafi kerfið þagað. „Reyk- urinn kom út um skorstein en hann var bara svo dökkur og sló um hús- ið. Það var því engin hætta af þessu en þetta leit samt mjög illa út utanfrá séð,“ segir hann og bæt- ir við að enginn reykur hafi farið inn í húsið. Aðspurður segir hann ekki hafa tíðkast á spítalanum að láta vaktmenn eða slökkvilið vita að prófun stæði fyrir dyrum, en þessi reynsla kenni mönnum að breyta um siði í þeim efnum. Í turni Landspítalans eru skrif- stofur spítalans og þar liggja engir sjúklingar. Pálmi Þór segir atburð- inn ekki hafa haft nein áhrif á sjúkrastörf spítalans en starfsfólk skrifstofunnar hafi hraðað sér út úr byggingunni. Í framhaldinu var skýrt út fyrir starfsfólki hvað hefði gerst. Jón Viðar Matthíasson segir að- spurður að það ættu að vera full- komlega eðlileg vinnubrögð af hálfu spítalans að láta slökkvilið vita áður en katlarnir eru prófaðir, en hafa ber í huga að aldrei hefur reykur myndast í prófunum hingað til. „Þetta er því einstakur við- burður að þessu sinni,“ segir hann. Öryggiskerfi þögult og vaktmenn grunlausir Morgunblaðið/JúlíusViðbrögðin sem þessi sjón vakti voru skiljanleg. Símalínur Neyðarlínunnar voru rauðglóandi fyrst eftir að reykurinn sást. ÖKUMAÐURINN sem í fyrrinótt var stöðvaður á Miklubraut til móts við Lönguhlíð á 124 km/klst. hraða í fyrrinótt má búast við 60.000 krónum í sekt, hann fær fjóra umferðarpunkta og það líða tveir mánuðir þangað til hann fær aftur ökuréttindi. Maðurinn var stöðvaður um fjórðungi fyrir eitt. Aðstæður voru þannig að frekar var ástæða til varkárni en ofsaaksturs, dimmt og rigning. Að sögn Ágústs Mogensen, framkvæmdastjóra rannsóknar- nefndar umferðarslysa, er heml- unarvegalengd bifreiðar sem ekið er á 124 km/klst. á blautu malbiki á bilinu 90–100 metrar. Byggir hann álit sitt á rannsókn sem Rannsóknarstofnun byggingariðn- aðarins gerði árið 1992. Lífslíkur gangandi vegfaranda sem yrði fyr- ir bifreið á þessari ferð væru nán- ast engar. Hefði bíllinn lent í árekstri á þessari ferð væri enn- fremur afar líklegt að af hlytist banaslys eða a.m.k. mjög alvarlegt umferðarslys. „Bílar eru almennt ekki hannaðir til að þola árekstur á 124 km hraða. Hvorki að framan eða aftan né á hlið,“ segir Ágúst. „Í myrkri, á blautum vegi þar sem hámarkshraði er 60 kílómetrar á klukkustund, þá er þetta bara glæpamennska.“ Það er víðar en á Miklubraut við Lönguhlíð sem ekið er of hratt. Í liðinni viku stöðvaði lögreglan átta ökumenn sem óku á 108–123 km hraða á Vesturlandsvegi frá Höfðabakka að Úlfarsfelli. Há- markshraði á þessum vegarkafla var nýlega hækkaður upp í 80 km/ klst. en það hefur greinilega ekki dugað öllum.                               !     "#         Stórhættulegur akstur í rign- ingu og myrkri 90–100 metra hemlunarvegalengd JÓN Baldvin Hannibalsson sendi- herra og Bryndís Schram, eiginkona hans, hafa stefnt Ríkisendurskoðun og krafist þess að persónuleg gögn vegna 50 ára afmælisveislu Bryndís- ar verði ekki afhent fjármálaráðu- neytinu en málið var dómtekið í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Tildrög málsins eru þau að rúmu ári eftir að afmælisveislan var haldin sumarið 1988 óskaði Jón Baldvin eft- ir því við ríkisendurskoðanda að hann kannaði hvort ástæða væri til að rengja það að greiðsla veislufanga hefði verið með eðlilegum hætti, en áður hafði opinberlega verið lýst grunsemdum þess efnis. Með beiðni sinni sendi Jón Baldvin m.a. gögn þar sem gerð var grein fyrir meðferð veislufanga og greiðslu kostnaðar, en Jón Baldvin var fjármálaráðherra þegar veislan var haldin og utanrík- isráðherra síðar sama ár. Ríkisend- urskoðandi komst að þeirri niður- stöðu að ekki væri ástæða til að „rengja sannleiksgildi fyrirliggjandi gagna um að greiðsla veislufanga hafi verið með eðlilegum hætti“. Krafðist gagnanna Fyrir rúmu ári óskaði Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. síðan eftir því að fá ljósrit af umræddum gögnum með vísan til upplýsingalaga og hefur hann fengið umbeðin gögn hjá fjár- málaráðuneytinu að frátöldum fyrr- nefndum einkagögnum. Hann kærði synjun fjármálaráðherra á afhend- ingu þessara einkagagna og komst úrskurðarnefnd að þeirri niðurstöðu að gögnin ættu heima í skjalasafni fjármálaráðuneytisins og það væri á valdsviði ráðuneytisins að afgreiða erindi lögmannsins. Ríkisendurskoð- un tjáði það álit sitt að skjölin, sem enn eru í hennar fórum, væru op- inber skjöl og því væri henni „að lög- um skylt að afhenda viðkomandi ráðuneyti umrædd gögn sé eftir því leitað“. Lögmaður hjónanna kærði ákvörðun Ríkisendurskoðunar um afhendingu gagnanna til forseta Al- þingis og vegna kærunnar frestaði Ríkisendurskoðun afhendingu gagnanna. Forseti Alþingis tilkynnti það álit sitt að málið sætti ekki kæru til Alþingis og „þar sem stjórnsýslu- legar leiðir hafa ekki dugað til þess að koma í veg fyrir afhendingu um- ræddra gagna samkvæmt kröfu stefnenda, telja stefnendur óhjá- kvæmilegt að fara dómstólaleiðina með kröfu sína,“ segir í stefnunni. Sendi- herrahjón stefna Ríkisend- urskoðun STEFNT er að sérstöku atvinnu- skapandi átaksverkefni til að leysa bráðavanda vegna atvinnu- leysis í Vestmannaeyjum og ákveðið hefur verið að setja á stofn stýrihóp til að vinna frekar að málinu. Þetta var niðurstaða fundar bæjarfulltrúa og fulltrúa verka- lýðsfélaganna og Svæðismiðlunar Suðurlands í gær um atvinnumál í Vestmannaeyjum en um 115 manns eru þar á atvinnuleysis- skrá. Andrés Sigmundsson, formað- ur bæjarráðs í Vestmannaeyjum, segir að farið hafi verið yfir þessa alvarlega stöðu sem ríkti í at- vinnumálunum. Fólk hafi lýst áhyggjum sínum, annars vegar vegna bráðavandans og hins veg- ar vegna vandamálsins þegar til frambúðar væri litið. „Við leysum ekki þetta vandamál nema til komi fyrirtæki sem geta skapað vinnu og þær tekjur sem fólk þarf,“ segir hann og bætir við að mjög mikilvægt sé að fá opinber- an stuðning þegar til lengri tíma sé litið. Að sögn Andrésar kemur ým- islegt til greina í atvinnuuppbygg- ingunni og verður rætt við at- vinnurekendur í kjölfar fundarins í gær. Hann segir ljóst að þegar atvinnutækifærum fækki í frum- atvinnugreinum eins og útgerð- inni verði eitthvað annað að koma í staðinn og mikilvægt sé að nýta þá mögleika sem séu til staðar. Átaksverkefni vegna atvinnu- leysis í Eyjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.