Morgunblaðið - 20.11.2002, Side 10

Morgunblaðið - 20.11.2002, Side 10
ÞINGMENN Framsóknarflokksins, þeir Ólafur Örn Haraldsson og Magnús Stefánsson, ræða málin í þing- sal. Væntanlega hafa ríkisfjármál borið á góma enda Ólafur formaður fjárlaganefndar. Samherjar stinga saman nefjum Morgunblaðið/Kristinn GENGISTAP ríkisins af erlendum lánum ríkissjóðs nam 25 milljörð- um króna í fyrra borið saman við 13 milljarða árið á undan. Lang- tímaskuldir ríkissjóðs hækkuðu mikið á síðasta ári eða um 70,8 milljarða. Langtímaskuldirnar námu um síðustu áramót 440 millj- örðum króna. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings fyrir árið 2001. Stærsti hluti langtímaskulda rík- issjóðs eru lífeyrisskuldbindingar ríkisins. Þær hækkuðu gríðarlega mikið árið 1998 í kjölfar breytinga á kjarasamningum ríkisins. Ríkis- sjóður hefur á síðustu árum greitt 34 milljarða í Lífeyrissjóð starfs- manna ríkisins og Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga. Á síðasta ári greiddi ríkissjóður 18 milljarða inn í lífeyrissjóðina, en skuldbinding- arnar jukust hins vegar um 20,1 milljarð. Langtímaskuldir ríkissjóðs án lífeyrisskuldbindinga námu 272 milljörðum um síðustu áramót og hækkuðu um tæplega 66 milljarða milli ára. 73% upphæðarinnar er í erlendum skuldum, en 27% eru innlendar skuldir. Í fyrra tók rík- issjóður fjögur erlend langtímalán, öll hjá Citibank, að fjárhæð 47,6 milljarðar króna, en þar af tók rík- ið 25 milljarða að láni til að styrkja stöðu Seðlabanka Íslands. Árið á undan tók ríkið 14,2 milljarða að láni erlendis. Samtals hækkuðu er- lendar skuldir ríkissjóðs um 59 milljarða á síðasta ári. Neikvæður lánsfjárafgangur í fyrsta sinn frá 1997 Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er bent á að jákvæður lánsfjárafgang- ur sé mikilvægur mælikvarði á hversu mikið fé ríkissjóður hefur til ráðstöfunar til að greiða niður skuldir. Fram til ársins 1997 var viðvarandi lánsfjárþörf hjá ríkis- sjóði en dæmið snerist við á því ári. Árið 1998-2000 var umtals- verður lánsfjárafgangur hjá ríkis- sjóði. Mestur var hann árið 1999 eða 19,1 milljarður eða 3,1% af landsframleiðslu. Í fyrra var hins vegar lánsfjárþörf hjá ríkissjóði að fjárhæð 40,2 milljarðar eða 5,4% af landsframleiðslu. Fram kemur í skýrslunni að í fyrra hafi lántökur umfram afborganir á lánum numið 41,6 milljörðum króna. Lánsfjár- afgangur á árunum 1997-2000 nam hins vegar samtals 48,2 milljörðum króna. Í skýrslunni kemur fram að fjár- magnskostnaður ríkissjóðs nam 17,9 milljörðum í fyrra sem er tæp- lega 2,7 milljörðum hærri fjárhæð en árið á undan. Einnig kemur fram að lántöku- kostnaður ríkissjóðs árið 2001 vegna innlendrar lántöku nam 615 milljónir, borið saman við 259 milljónir árið 2000. Meginskýring- in á þessari miklu hækkun er sú að vorið 2000 voru gerðir samningar við verðbréfafyrirtækin um við- skiptavakt fyrir spariskírteini og ríkisbréf vegna sérstakra að- stæðna á innlendum skuldabréfa- markaði á þeim tíma. Þóknanir til verðbréfafyrirtækjanna voru mið- aðar við veltu, en að öðru leyti voru sett nokkur tiltekin skilyrði um viðskiptin. Gjaldfærsla vegna samninganna kom inn með miklum þunga árið 2001. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að nýir samningar sem gerðir hafi verið við verð- bréfafyrirtækin miðist við að tak- marka þóknunina frá því sem hún var áður og sett hafi verið þak á hana. Gengistap ríkissjóðs 25 milljarðar í fyrra                            FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRNARANDSTÆÐINGAR fögnuðu því á Alþingi í gær að náðst hefði samkomulag milli ríkisstjórn- arinnar og Landssambands eldri borgara um bætt kjör aldraðra. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra greindi frá samkomulaginu í upphafi þingfundar í gær. Samkomulagið verður lagt fyrir fjárlaganefnd þingsins fyrir aðra umræðu um fjár- lög næsta árs. Geir H. Haarde fjár- málaráðherra sagði að með sam- komulaginu væri stigið stórt skref í átt að kröfum eldri borgara og Jón Kristjánsson minnti á, þegar hann var spurður að því hvort gera ætti sams konar samkomulag við öryrkja, að samkomulagið væri árangur formlegrar nefndar ríkisstjórnarinn- ar og fulltrúa eldri borgara. Slíkri formlegri nefnd hefði ekki verið komið á fót milli ríkisstjórnarinnar og öryrkja, þótt ástæða væri e.t.v. til þess. Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, kvaðst m.a. fagna samkomulaginu og sagði að með því væri verið að leysa brýna þörf. Ögmundur Jónasson, þing- flokksformaður Vinstrihreyfingar- innar–græns framboðs, tók í sama streng. „Þetta felur í sér kjarabætur fyrir marga og því ber að sjálfsögðu að fagna. Einnig er mjög mikilvægt að heimaþjónustan og margvísleg stoðþjónusta verði styrkt. Ég fagna þessu sérstaklega. En þetta er ár- angur af þrotlausri baráttu eldri borgara og sýnir okkur hverju bar- áttan getur skilað.“ Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði að það mætti með sanni segja að þarna væru á ferð mikil tímamót í sam- skiptum ríkisstjórnarinnar og eldri borgara, þ.e. ef samkomulagið væri eins „bitastætt eins og menn héldu fram“, sagði Sverrir. „Ef þetta er eins og það lítur út við fyrsta augna- kast; mikilvægt og mikil kjarabót fyrir aldraða og öryrkja, þá er hér um gerbreytt tímamót að ræða í samskiptum þessara tveggja aðila.“ Bryndís Hlöðversdóttir, þing- flokksformaður Samfylkingarinnar, fagnaði eins og aðrir stjórnarand- stæðingar samkomulaginu. „Það er sérstök ástæða til að fagna því að hæstvirt ríkisstjórn hafi horfið af braut andvaraleysis sem hefur ríkt í málefnum aldraðra af hennar hálfu.“ Bryndís bætti því við að það væri heldur ekki seinna að vænna svona í lok kjörtímabilsins; kosningar væru framundan. Stjórnarandstæðingar fagna samkomulagi RANNVEIG Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vek- ur athygli á því að alls hafi 108 börn komið til skýrslutöku í dómhúsi á árunum 1999 til nóvember á þessu ári. Þar af voru alls 46 börn undir fjórtán ára aldri. Þessar upplýsing- ar koma fram í skriflegu svari Sól- veigar Pétursdóttur dómsmálaráð- herra við fyrirspurn Rannveigar. Í svarinu kemur jafnframt fram að alls 170 börn hafi komið til skýrslu- töku í Barnahúsinu frá 1. maí 1999 til nóvember á þessu ári. Rannveig segir það slæma þróun að svo mörg börn hafi farið í skýrslutöku í dómhúsi. Hvað þá að þar séu teknar skýrslur af börnum yngri en fjórtán ára. Hún segir að í Barnahúsinu sé betur hlúð að þeim börnum sem þurfi að fara í skýrslu- töku sem og foreldrum þeirra. Að- staðan til skýrslutöku í dómhúsi sé mun kuldalegri en í Barnahúsi. Rannveig segir að úr því Íslend- ingar hafi verið svo framsýnir að stofna Barnahúsið þá eigi þeir að taka skrefið til fulls og tryggja það að börn sem hafi orðið fyrir ofbeldi fari í skýrslutöku í Barnahúsi en ekki í dómhúsi. Starfsemi í Barna- húsinu hófst í nóvember 1998 en hugmyndin að baki starfseminni er m.a. sú að barn sem sætt hefur kynferðisofbeldi þurfi aðeins að koma á einn stað þegar málið er rannsakað og þurfi ekki að end- urtaka sögu sína margoft. Rannveig bendir á að eftir lagabreytingar ár- ið 1999 hafi það verið sett í hendur dómara að ákveða hvort skýrslutak- an færi fram í Barnahúsinu eða hjá viðkomandi dómstól. „Þessu getum við hins vegar breytt með því að breyta lögum til baka og tryggt að börn séu í réttu umhverfi þegar skýrsla er tekin af þeim,“ segir Rannveig. Rannveig Guðmundsdóttir Of mörg börn í skýrslutöku í dómhúsi ÞINGFUNDUR hefst kl. 13.30 í dag. Að loknum atkvæða- greiðslum fara fram und- irbúnar fyrirspurnir til ráð- herra. Meðal annars verður spurt um framkvæmd þjóð- lendulaganna og kostnað af heilsugæslu. RÍKISSJÓÐUR afskrifaði í fyrra 450 milljónir króna sem eru til komnar vegna ríkisábyrgða sem veittar voru vegna viðgerða á tveim- ur rússneskum togurum. Eigandi togaranna, rússneska fyrirtækið Karelrybflot, hefur ekki staðið í skilum með afborganir af láninu. Samningur um endurbætur á tog- urunum var gerður í febrúar 1997 og var gert við þá hjá Slippstöðinni á Akureyri það ár. Fyrirhugað var að halda áfram viðskiptum við rúss- neska fyrirtækið og í september lagðist togarinn Omnya að bryggju á Akureyri. Þá voru greiðslur af samningnum hins vegar farnar að dragast og varð því ekkert úr því að gert væri við skipið, en það lá við bryggju á Akureyri í tæplega fimm ár. Það var Iðnlánasjóður, sem síðar varð Fjárfestingabanki atvinnulífs- ins hf., sem veitti lán vegna fram- kvæmda við togarana. Lánsupp- hæðin nam 4.254.000 dollurum. Eigið fé dugði ekki til að greiða vexti af láninu Þegar ljóst var að eigandi togar- anna myndi ekki standa í skilum með lánið kom það í hlut Trygging- ardeildar útflutningslána hjá Ný- sköpunarsjóði, sem tók yfir þessa skuldbindingu þegar FBA var seld- ur, að greiða vexti af láninu. Í árs- lok 2001 nam höfuðstóll lánsins 440 milljónum auk 10 milljóna gjaldfall- inna vaxta. Eigið fé Tryggingardeildar hefur ekki nægt til greiðslu vaxta af lán- inu og kemur það því í hlut rík- issjóðs að greiða af láninu, en það er í samræmi við lög um deildina. Ríkisábyrgð vegna viðgerða á rússn- eskum togurum fellur á ríkissjóð Kostnaður ríkisins er um 450 milljónir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.