Morgunblaðið - 20.11.2002, Side 16

Morgunblaðið - 20.11.2002, Side 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 16 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ PHARMACO hf. hefur lokið fyrsta áfanga endurbóta á lyfjaverk- smiðju sinni á Möltu og var sá hluti verksmiðjunnar tekinn í notkun í gær við hátíðlega athöfn. Þar voru viðstödd Halldór Ásgrímsson utan- ríkisráðherra og eiginkona hans Sigurjóna Sigurðardóttir ásamt maltneskum ráðamönnum, m.a. Joseph Bonnici, viðskiptaráðherra og Louis Deguara heilbrigð- isráðherra. Eftir endurbæturnar uppfyllir lyfjaverksmiðja Pharmaco ýtrustu kröfur Evrópusambandsins og opn- ast þar með nýir markaðir fyrir lyf fyrirtækisins í Evrópu. Fram- leiðslugeta verksmiðjunnar er um 2,5 milljarðar taflna á ári. Halldór Ásgrímsson segir mjög ánægjulegt að hafa fengið tækifæri til að vera viðstaddur þessa opnun. ,,Það er greinilegt að hin öfluga starfsemi Pharmaco hér á Möltu vekur athygli hérlendra stjórn- valda enda er um að ræða afar stórt fyrirtæki á maltneskan mæli- kvarða með um 250 starfsmenn. Pharmaco er dæmi um íslenskt frumkvæði og áræði sem sprottið hefur úr auknu frjálsræði í við- skiptum Íslendinga á síðustu árum. Ávöxtur þess er gríðarlegur vöxtur alþjóðlegs fyrirtækis í eigu Íslend- inga með á 6. þúsund starfsmenn í 10 löndum. Sú öra framþróun hef- ur verið ævintýri líkust,“ er haft eftir Halldóri í frétt frá Pharmaco. Róbert Wessman, forstjóri rekstrar hjá Pharmaco, segir að verksmiðjan á Möltu sé afar mik- ilvæg eining í Pharmaco-samstæð- unni. ,,Við höfum sett okkur það markmið að vaxa um 15–20% á ári næstu þrjú árin og þessi end- urbætta verksmiðja okkar hér er mikilvægur áfangi til að tryggja þann vöxt til framtíðar,“ segir Ró- bert Wessman, forstjóri. „Í tengslum við athöfnina í gær var einnig opnuð ný og glæsileg rannsóknaraðstaða dótturfyr- irtækis Pharmaco á Möltu, Delta R&D. Þar starfa nú 30 sérfræð- ingar og er verkefni þeirra að þróa að jafnaði 3–4 ný samheitalyf á ári. Viðskiptaráðherra Möltu, Joseph Bonnici, sagði við það tækifæri að um væri að ræða afar mikilvæga fjárfestingu fyrir Möltu þar sem sterkt alþjóðlegt fyrirtæki hefði nýtt sér hagstætt fjárfesting- arumhverfi landsins,“ segir í frétt frá Pharmaco. Frá athöfninni í verksmiðjunni á Möltu, frá vinstri: Joseph Bonnici, viðskiptaráðherra Möltu, Louis Deguara, heil- brigðisráðherra Möltu, og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra. Endurbótum lokið að hluta á verksmiðju Pharmaco á Möltu Framleiðslugeta verksmiðjunnar er um 2,5 millj- arðar taflna á ári HLUTHAFAFUNDUR í Íslandssíma hf. samþykkti í gær samruna félagsins við Halló! Frjáls fjarskipti ehf. Fundurinn samþykkti einnig að auka hlutafé Íslandssíma vegna kaupa félagsins á hlutabréfum í Tali hf. Fram kom á hluthafafundinum að Íslandssími hefur samið við Landsbankann og Búnaðarbankann um fjármögnun vegna kaupanna að fjárhæð 4,9 milljarðar króna, auk þess sem unnið er að endurfjármögnun langtímalána sameinaðs fé- lags. Ný stjórn Íslandssíma var kjörin á hluthafa- fundinum í gær. Nýir í stjórn eru Kenneth Pet- erson, eigandi Columbia Ventures Corpora- tion, Bjarni K. Þorvarðarson, framkvæmdastjóri fyrirtækjaþróunar Col- umbia Ventures, og Margeir Pétursson. End- urkjörnir í stjórnina voru Stefán H. Stefáns- son, formaður fráfarandi stjórnar, og Friðrik Jóhannsson. LÍ og BÍ með forkaupsrétt Við sameiningu Íslandssíma og Halló! Frjálsra fjarskipta fá hluthafar í Halló! hluta- bréf í Íslandssíma sem gagngjald fyrir allt hlutafé sitt í Halló! að nafnverði um 413,8 millj- ónir króna. Hluthafafundurinn samþykkti að hækka hlutafé Íslandssíma um þessa fjárhæð. Samþykkti fundurinn einnig að hlutafé Ís- landssíma yrði aukið um liðlega 1.600 milljónir króna að nafnverði vegna kaupa á hlutabréfum í Tali. Umsamið gengi á þessum bréfum er 1,85, eða um 20% hærra en meðalverð hluta- bréfa Íslandssíma í Kauphöll Íslands síðustu sex mánuði. Markaðsvirði bréfanna miðað við þetta er um 3.000 milljónir og verður hið nýja hlutafé gefið út fyrir árslok 2002. Þá var sam- þykkt á fundinum að Landsbankinn og Bún- aðarbankinn hefðu forgangsrétt til að skrá sig fyrir hinum nýju hlutum í hlutföllunum 83,33%, Landsbankinn og 16,67% Búnaðar- bankinn. Fram kom í máli Stefáns H. Stefánssonar, fráfarandi formanns stjórnar Íslandssíma, að gert væri ráð fyrir að gefið yrði út nýtt hlutafé í félaginu á seinni hluta næsta árs að markaðs- virði 1.900 milljónir vegna fjármögnunar á kaupum á hlutabréfum í Tali. Stefán sagði að búið væri að semja við Landsbankann og Búnaðarbankann um fjár- mögnun að fjárhæð 4.900 millljónir króna fram að hlutafjárúboðum, vegna kaupa á hlutabréf- um í Tali. Landsbankinn og Búnaðarbankinn hafi að fullu sölutryggt hlutafjáraukninguna í Íslandssíma en Frumkvöðull ehf., Talsíma- félagið ehf. og Columbia Ventures Corporation komi einnig að sölutryggingunni. Hann sagði að einnig væri unnið að því að endurfjármagna langtímalán Íslandssíma að fjárhæð 4.500 milljónir króna. Columbia Ventures með 40% hlut Eftir hlutafjárhækkun í Íslandssíma á þessu ári, vegna samruna við Tal, mun Columbia Ventures verða stærsti hluthafinn í félaginu með 40,0% hlut. Næststærsti hluthafinn verð- ur Landsbankinn-Fjárfesting með 19,6% hlut, Búnaðarbankinn með 8,8%, Frumkvöðull 6,3%, Talsímafélagið 4,1% og Heildun 2,5%. Aðrir hluthafar eiga minna í félaginu. Hagnaður árið 2004 Óskar Magnússon, forstjóri Íslandssíma, sagði á hluthafafundinum í gær að samruni fé- lagsins við Halló! og kaup á hlutabréfum í Tali gjörbreyttu landslaginu á íslenska fjarskipta- markaðnum. Síminn hefði þó enn yfirburða- stöðu á markaðnum, eða um 73%, en markaðs- hlutdeild hins sameinaða félags, miðað við áætlaða veltu, yrði um 22%. Fram kom í máli Óskars að gert væri ráð fyrir að Íslandssími skilaði hagnaði á árinu 2004. Hann sagði að strax á næsta ári yrði sjóð- streymi félagsins þó sterkt og EBITDA-hagn- aður yrði þá á bilinu 1.200–1.400 milljónir króna. Samruni við Halló! og kaup á hlutabréfum í Tali samþykkt á hluthafafundi í Íslandssíma Fjármögnun vegna kaupa í Tali frágengin HAGNAÐUR Granda hf. og dóttur- fyrirtækis þess, Faxamjöls hf., á fyrstu 9 mánuðum ársins 2002 nam 1.425 milljónum króna. Arðsemi eig- in fjár á ársgrundvelli nemur 42,6% á tímabilinu. Á fyrstu 9 mánuðum ársins 2001 nam hagnaðurinn 22 milljónum króna. Rekstrartekjur samstæðunnar á tímabilinu námu 4.546 milljónum króna samanborið við 3.448 milljónir króna á sama tíma á síðasta ári, en þá voru skipin bund- in við bryggju í 50 daga vegna verk- falls sjómanna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir var 1.220 milljónir króna eða 27% af rekstrartekjum samanborið við 987 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður. Veltufé frá rekstri nam 978 milljónum króna sem er 21,5% af rekstrartekjum samanborið við 803 milljónir króna á sama tíma árið áð- ur. Vegna breytinga á gengi gjald- miðla nam gengishagnaður sam- stæðunnar af langtímalánum 724 milljónum króna á tímabilinu. Lið- urinn fjármunatekjur að frádregn- um fjármagnsgjöldum var jákvæður um 908 milljónir króna, en á sama tíma í fyrra var hann neikvæður um 393 milljónir króna. Félagið seldi á haustdögum hluta- bréf sín í Þormóði ramma – Sæbergi hf. og er söluhagnaður að fjárhæð 339 milljónir króna færður til tekna undir liðnum hreinar fjármuna- tekjur/fjármagnsgjöld. Félagið seldi einnig hlut sinn í fyrirtækinu Isla ehf., sem er eignarhaldsfélag um rekstur sjávarútvegsfyrirtækja í Mexíkó, og hefur sú sala óveruleg áhrif á rekstrarárangur tímabilsins. Hlutdeildarfélög í eigu samstæð- unnar voru fjögur í septemberlok, Deris SA í Chile, Haraldur Böðvars- son hf., Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. og Stofnfiskur hf. Öll hlutdeild- arfélögin voru rekin með hagnaði á tímabilinu. Alls var hlutdeild í rekstrarafkomu hlutdeildarfélaga jákvæð um 339 milljónir króna en að teknu tilliti til afskrifta af yfirverði við kaup að fjárhæð 204 milljónir króna eru 135 milljónir færðar til tekna í rekstrarreikningi vegna þessa liðar. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 1.775 milljónum króna. Tekjuskattur að fjárhæð 350 milljónir króna er færður til gjalda í rekstrarreikningi og nemur hagnaður tímabilsins því 1.425 milljónum króna. Eignabreytingar Í byrjun árs 2002 fékk félagið af- hentan frystitogarann Venus HF 519 sem keyptur var með aflaheim- ildum er námu um 3.000 þorskígild- istonnum. Kaupverð skips og afla- heimilda nam samtals 1.621 milljón króna. Á sama tíma var Snorri Sturluson RE 219 afhentur nýjum eigendum ásamt veiðarfærum og aflaheimildum sem námu 1.045 þorskígildistonnum. Söluverð skips, veiðarfæra og aflaheimilda nam samtals 878 milljónum króna og var það greitt með hlutafé í Ísfélagi Vestmannaeyja hf. Í maí sl. fjárfesti Grandi í Haraldi Böðvarssyni hf. fyr- ir 27 milljónir króna og í Hraðfrysti- húsi Eskifjarðar hf. fyrir 33 milljónir króna. Með þessum fjárfestingum fóru eignarhlutar í þessum félögum yfir 20% og eru þeir nú færðir til eignar samkvæmt hlutdeildaraðferð. Eigið fé félagsins var þann 30. september sl. 5.420 milljónir króna og hefur það hækkað um 782 millj- ónir króna frá ársbyrjun 2002. Eig- infjárhlutfall er 39%. Grandi með 1.425 milljónir í hagnað Gengishagnaður samstæðunnar af langtímalánum nam 724 milljónum króna fyrstu níu mánuði ársins BANDARÍSKA flugfélagið United Airlines ætlar að fækka störfum hjá félaginu um níu þúsund. Er þetta liður í að forða félaginu frá gjaldþroti. Forsvarsmenn flugfélagsins hafa ekki gefið upp hverjum né hvenær verður sagt upp. Í dag starfa um 83 þúsund manns hjá United Air- lines. Samkvæmt fréttavef BBC verð- ur flugmönnum United Airlines gert að taka á sig 18% kauplækk- un frá og með næstu mánaðamót- um. Jafnframt er ætlunin að minnka sætaframboð um 6% og fækka flugvélum um 49. Uppsagnir hjá United Airlines ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.