Morgunblaðið - 20.11.2002, Síða 20

Morgunblaðið - 20.11.2002, Síða 20
ERLENT 20 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ LÖGREGLAN í Indónesíu efldi í gær ör- yggisvörslu við alþjóð- lega skóla í höfuðborg- inni Jakarta vegna viðvarana um hryðju- verkaárásir. Enn er leit- að að liðsmönnum músl- ímasamtakanna sem myrtu nær 200 manns, aðallega útlendinga frá Ástralíu og fleiri ríkjum, í sprengjutilræði á eynni Balí í liðnum mánuði. Maður að nafni Am- rozi er í haldi og er hann grunaður um aðild að til- ræðinu á Balí. Da’i Bachtiar, yfirmaður indónesísku lög- reglunnar, sagði í gær að yfir- heyrslur og upplýsingar frá stjórn- völdum í grannríkinu Malasíu hefðu leitt í ljós að aðgerðaforingi hermdarverkasamtakanna Jemaah Islamiyah, Imam Samudra, hefði skipulagt tilræðið á Balí. Samtökin starfa í nokkrum löndum SA-Asíu. Áður hefur Samudra verið grunaður um að hafa átt þátt í árásum á kirkjur árið 2000. Abu Bakar Bashir, herskár músl- ímaklerkur og andlegur leiðtogi Jemaah Islam- yiah, segist ekki bera ábyrgð á tilræðinu á Balí en hann er nú í haldi indónesískra stjórn- valda. „Ræður mínar geta hafa haft áhrif á þá en ég er ekki ábyrgur vegna þess að ég hef aldrei hvatt nokkurn til að sprengja á Balí eða efna til nokkurra ann- arra ofbeldisverka,“ sagði Bashir í viðtali við AP-fréttastofuna. Hann er í gæsluvarðhaldi á sjúkrahúsi í Jakarta. Þrír bandarískir alríkislögreglu- menn yfirheyðu á mánudag meintan hermdarverkamann í Malasíu en hann er grunaður um tengsl við flug- ránsárásirnar 11. september í fyrra. Maðurinn heitir Yazid Sufaat og er hann sagður hafa starfað með Zac- arias Moussaoui sem er talinn hafa átt að verða 20. flugræninginn í árás- unum á Bandaríkin í fyrra. Hann er nú fyrir rétti í Bandaríkjunum og hefur viðurkennt aðild að al-Qaeda- samtökum Osama bin Ladens. Hryðjuverka- manna enn leit- að í Indónesíu Jakarta, Kuala Lumpur. AFP, AP. AP Eftirlýsingarmynd af Imam Samudra, meint- um höfuðpaur að baki sprenginganna á Balí. MOHAMED ElBaradei, yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunar- innar, segir yfirvöld í Írak hafa lofað að veita Sameinuðu þjóðunum upp- lýsingar um það hvort einhver ger- eyðingarvopn séu í landinu fyrir átt- unda desember eins og kveðið er á um í ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (SÞ). ElBaradei segir íraska embættis- menn hafa heitið þessu á fundum með Hans Blix, yfirmanni vopnaeft- irlits SÞ, í gær. „Írakar hafa skuld- bundið sig til að gera grein fyrir öll- um gereyðingarvopnum sínum, ef þeir eiga þau þá enn,“ sagði ElBar- adei á arabísku í sjónvarpsviðtali í gær. „Þá munu þeir gera grein fyrir öllum aðgerðum sínum sem varða efna-, sýkla- og kjarnorkuvopn, jafn- vel þeim sem tengjast ekki hernaði.“ Fyrrverandi yfirmaður hersins ákærður í Danmörku Yfirvöld í Danmörku skýrðu frá því í gær að þau hefðu ákært fyrr- verandi yfirmanns Írakshers, Nizar al-Kharzraji, fyrir stríðsglæpi í Írak á níunda áratug síðustu aldar þegar herinn beitti efnavopnum gegn íröskum Kúrdum. Danskir saksókn- arar óskuðu eftir því að Kharzraji yrði dæmdur í gæsluvarðhald. Írakar lofa upp- lýsingum RÚMLEGA tíu þúsund manns fylltu íþróttaleik- vang í borginni Quetta í Pakistan í gær, er fram fór jarðarför Mirs Aimals Kasis, pakistansks rík- isborgara sem var tekinn af lífi í Bandaríkjunum í síðustu viku, eftir að hafa hlotið dauðadóm fyrir morð á tveimur bandarískum leyniþjónustu- mönnum fyrir níu árum. Fólk af ættbálki Kasis, dómarar, trúarleiðtogar, stjórnmálamenn, vinir Kasis og ókunnugir sem ferðast höfðu úr öllu heimahéraði hans, Baluchistan, voru við útförina er fram fór í héraðshöfuðborginni. Bandarísk stjórnvöld höfðu hafnað beiðni fjöl- skyldu Kasis og Amnesty International um að hann yrði náðaður. Bandarískur alríkislögreglu- maður, sem stjórnaði leit að Kasi í fjögur ár uns hann náðist 1997, sagði í viðtali við AFP-frétta- stofuna í síðustu viku að Kasi hefði myrt mennina í hefndarskyni fyrir afskipti bandarísku leyni- þjónustunnar í ríkjum múslíma. En heima fyrir er hann hetja, og við útförina í gær hélt fólk á lofti borðum er á stóð: „Aimal, píslarvottur Íslams.“ Reuters Þúsundir við útför í Quetta STJÓRNVÖLD í Ástralíu vöruðu í gær þegna sína við því að hætta væri á hryðjuverkum í landinu á næstu tveimur mánuðum. Sagði Chris Ell- ison, dómsmálaráðherra Ástralíu, að borist hefðu áreiðanlegar upplýsing- ar um þetta. Ellison vildi ekki greina frá því hvernig yfirvöld hefðu komist yfir vitneskjuna, um að hætta væri á hryðjuverkum, en sagði ógnina tengjast al-Qaeda hryðjuverkasam- tökum Osamas bin Ladens. Ellison sagði að upplýsingarnar sem stjórnvöld byggju nú yfir væru ekki ósvipaðar þeim sem yfirvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum hefðu komið á framfæri við sína þegna á undanförnum dögum, en þar hefur verið varað við hugsanlegum hryðju- verkum á næstu vikum og mánuð- um. Sagði hann að ráðamenn hefðu talið rétt að almenningur fengi að vita af upplýsingunum. Ellison lét þess hins vegar getið að hættan tengdist ekki áströlskum ríkisborgara, Jack Roche, sem leidd- ur var fyrir dómara í Perth í gær og ákærður fyrir að hafa lagt á ráðin um að sprengja upp ísraelska sendi- ráðið í Canberra og ræðismanns- skrifstofu Ísraels í Sydney. Roche lýsti sig saklausan af ákærunum. Roche, sem fæddist í Bretlandi og snerist á sínum tíma til íslamstrúar, hafði áður lýst því yfir í samtölum við ástralska fjölmiðla að hann hefði hlotið þjálfun við meðferð sprengi- efna hjá al-Qaeda. Stjórn Ástralíu ótt- ast ný hryðjuverk Sydney, Jakarta. AFP. JOSE Bove, leiðtogi stéttarfélags bænda í Frakklandi, var í gær dæmdur í fangelsi eftir að hæsti- réttur landsins hafnaði áfrýjun hans á úrskurði undirréttar er dæmt hafði hann í alls 14 mánaða fangelsi fyrir að eyðileggja upp- skeru á erfðafræðilega breyttum plöntum. Undirrétturinn hafði dæmt Bove í hálfs árs fangelsi fyrir að hafa ráðist inn í rannsóknarmiðstöð í Suður-Frakklandi 1999 og eyðilagt þar hrísgrjónaplöntur og staðfesti fyrri úrskurð um átta mánaða fang- elsi fyrir svipaða árás er Bove hafði gert ári áður. Hann var ennfremur dæmdur til að greiða 7.600 evra sekt. Bove var ekki viðstaddur dóms- uppkvaðninguna en var greint frá henni í síma. Hann stóð frammi fyrir um 150 stuðningsmönnum sín- um í heimabæ sínum, Millau, í Suð- ur-Frakklandi, og kvaðst ekki taka úrskurðinn gildan þar sem hann væri „alvarlegt brot á stéttar- félagaréttindum“. Ber stjórnvöld saman við Vichy-stjórnina Bar hann frönsku ríkisstjórnina saman við Vichy-stjórnina er starf- aði með nasistum á árum seinni heimsstyrjaldarinnar og sagði að ef stéttarfélagaforkólfar eins og hann sjálfur yrðu settir í fangelsi þýddi það „endalok aðgerða stéttarfélaga, frumkvæðis almennra borgara og andstöðu við ríkjandi skipulag“. Reuters Bové talar við verjanda sinn í síma í gær, umkringdur stuðningsfólki. Áfrýjun Boves hafnað París. AFP. BANDARÍSKA poppstjarnan Mich- ael Jackson kom í gær til Berlínar þar sem hann mun á morgun taka við svonefndum Bambi-verðlaun- um fyrir tónlistarafrek sín. Hópur aðdáenda Jacksons kom saman við Adlon-hótelið þar sem hann dvel- ur. Kom hann þá út á svalirnar á þriðju hæð hússins með níu mán- aða gamlan son sinn og hélt hon- um um hríð fyrir utan handrið svalanna en dró sig síðan í hlé. Jackson hafði ekki gefið neina skýringu á þessu framferði sínu er síðast fréttist. Jackson „gætir“ sonar síns

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.