Morgunblaðið - 20.11.2002, Qupperneq 24
SUÐURNES
24 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTÁN félög með hátt í 700 fé-
lagsmenn hafa gengið í nýstofnað
Tómstundabandalag Reykjanes-
bæjar (TRB) en það er fyrsta
bandalagið sinnar tegundar á land-
inu. Vegna stofnunar samtakanna
hafa verið stofnuð félög um ýmis
áhugamál og eldri félög sem fáir
vissu um hafa komið fram í dags-
ljósið.
„Sem formaður Skákfélags
Reykjanesbæjar hafði ég samband
við Stefán Bjarkason, íþrótta- og
tómstundafulltrúa, vegna húsnæð-
ismála fyrir félagið. Hann nefndi þá
hugmynd að stofna tómstunda-
bandalag sem gæti verið málsvari
félaga og klúbba og stutt við bakið
á þeim í húsnæðismálum og fleiru.
Stefán hafði raunar fyrst viðrað
þessa hugmynd opinberlega fyrir
nokkrum árum en engar undirtekt-
ir fengið. Ég féllst á að vinna með
honum að þessu verkefni,“ segir
Páll Árnason, formaður Tóm-
stundabandalags Reykjanesbæjar.
Málsvari klúbbanna
Boðað var til kynningarfundar og
síðar stofnfundar Tómstunda-
bandalags Reykjanesbæjar í apríl
síðastliðnum og kosin stjórn sem
Páll er í forystu fyrir. Síðan hefur
stjórn bandalagsins aðstoðað félög
og klúbba við að ganga frá lögum
og formsatriðum við stofnum félaga
um áhugamál sín og ganga í Tóm-
stundabandalagið.
Bandalagið er málsvari þessara
félaga og klúbba gagnvart bæjar-
félaginu. Formaðurinn hefur rétt til
að sitja fundi Tómstunda- og
íþróttabandalags Reykjanesbæjar
með málfrelsi og tillögurétti, með
sama hætti og formaður Íþrótta-
bandalags Reykjanesbæjar. Páll
telur að það komi sér vel fyrir fé-
lögin að hafa þannig áhrif á veit-
ingu styrkja og útvegun aðstöðu
fyrir þau. Því hafi verið lýst yfir af
Reykjanesbæ að félög sem eigi að-
ild að TRB njóti forgangs að fyr-
irgreiðslu bæjarfélagsins við slíka
starfsemi.
Meðal mála sem TRB hefur kom-
ið að er undirbúningur að samn-
ingum um uppbyggingu tóm-
stundasvæðið í tengslum við
go-kartbraut Reisbíla í Njarðvík.
Þar verður komið upp aðstöðu fyrir
fjarstýrða smábíla og báta og jafn-
vel flugmótel. Þá átti bandalagið
aðild að málþingi um tómstundir og
jaðaríþróttir sem haldið var síðast-
liðinn sunnudag. Rætt hefur verið
um að efna til frístundaviku í
Reykjanesbæ á næsta ári og hafa
hana árlega. Páll segir að Tóm-
stundabandalagið muni eiga aðild
að henni.
Nú hafa fimmtán félög og klúbb-
ar gengið í TRB og er samanlagður
félagsmannafjöldi þeirra áætlaður
650 til 700 manns. Þarna kennir
ýmissa grasa, í hópnum eru mörg
áhugafélög um svokallaðar jaðar-
íþróttir, svo sem Brettafélag Suð-
urnesja, Flugmódelfélag Suður-
nesja og Litboltafélag Suðurnesja,
svo nokkur séu nefnd. Einnig hefð-
bundnari áhugamannafélög svo
sem Leikfélag Keflavíkur, Félag
myndlistarmanna í Reykjanesbæ,
Bridsfélag Suðurnesja og Félag
harmonikkuunnenda á Suðurnesj-
um. Þá er Gallerí Björg aðili þannig
að segja má að RNB spanni vítt
svið, frá prjónakonum til brettast-
ráka og myndlistarfólki til sjóþotu-
eigenda. Félög um hefðbundnar
íþróttagreinar sem eru innan
Íþróttasambands Íslands geta ekki
öðlast aðild að Tómstundabanda-
laginu enda gætir Íþróttabandalag
Reykjanesbæjar hagsmuna iðk-
enda þeirra.
Von á fleirum
Páll segir að von geti verið á
fleiri félögum í sambandið, þannig
hafi skátafélögunum, KFUM, ung-
lingadeild Suðurnesjadeildar
Rauða krossins og áhugamönnum
um vélhjólaakstur verið boðin aðild
og reiknar hann með að einhver af
þessum félögum þiggi það. Búast
má við að félagafjöldinn nálgist
fljótt þúsundið ef fram heldur sem
horfir.
„Það hafa sprottið upp félög
vegna stofnunar TRB, félög sem
stofnuð hafa verið af þessu tilefni
um tiltekin áhugamál og önnur
komið upp á yfirborðið, meðal ann-
ars klúbbar sem menn vissu ekki að
væru til og áhugamál sem fáir vissu
að væru iðkuð hér,“ segir Páll.
Tómstundabandalag Reykjanes-
bæjar er fyrstu samtökin af þessu
tagi í landinu og er þar því unnið
ákveðið brautryðjendastarf. Páll
segist hafa heyrt af áhuga víðar á
sambærilegum samtökum, meðal
annars í Reykjavík.
Aðstaða í 88
Formaðurinn er ánægður með
þróunina til þessa. Segir að félögin
sem starfi undir hatti þess njóti
mun meiri viðurkenningar en áður,
meðal annars hjá bæjaryfirvöldum
sem séu mjög jákvæð í garð þessa
starfs. Reynt sé að hjálpa félögun-
um við að koma sér upp starfs-
aðstöðu og hafi margt verið gert í
því. Þá sé rætt um að Tómstunda-
bandalagið fái fundaraðstöðu í
Hafnargötu 88, í fyrirhugaðri fé-
lags- og menningarmiðstöð ungs
fólks sem Reykjanesbær ætlar að
koma þar upp. Hugsanlegt sé að
einhverjir áhugaklúbbar innan
sambandsins fái einnig starfsað-
stöðu þar.
Hátt í 700 félagsmenn í nýstofnuðu Tómstundabandalagi Reykjanesbæjar
Félög og áhugaklúbbar
spretta upp eins og gorkúlur
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Páll Árnason hefur komið sér upp aðstöðu í bílskúrnum fyrir flugmódelin.
Synirnir, Gústaf Ingi og Bergþór Ari, eru áhugasamir um smíðina.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Tómstundabandalag Reykjanesbæjar tók þátt í málþingi um tómstundir og
jaðaríþróttir sem efnt var til í Selinu í Njarðvík um nýliðna helgi.
Reykjanesbær
BAÐSTAÐURINN Bláa lónið og
fiskverkunin Þróttur fá þessa árs
viðurkenningu umhverfisnefndar
Grindavíkur fyrir snyrtilegt um-
hverfi. Tilkynnt var um valið við
athöfn í gær og verðlaun afhent.
Þróttur rekur fiskverkun á
Ægisgötu 9–13. Hefur fyrirtækið
gert upp húsnæðið og stækkað og
lagað umhverfi húsanna. Í um-
sögn umhverfisnefndar kemur
fram að viðurkenningin er veitt
fyrir vel útfærðar endurbætur á
húsinu.
„Þetta er skemmtilegt og kitlar
svolítið metorðagirndina. Ég held
líka að svona viðurkenning hafi
áhrif á mannskapinn, hér hafa
sömu mennirnir unnið lengi, því
þetta er þeirra verk líka enda
verður að ganga vel um og hafa
snyrtilegt í kringum húsið,“ segir
Þórarinn Ólafsson, eigandi Þrótt-
ar ehf., þegar hann er spurður
um þýðingu þess fyrir félagið að
fá viðurkenningu af þessu tagi.
Þróttur er í húsnæði sem byggt
var á fimmta áratugnum og var
fyrst notað sem söltunarhús
Hraðfrystihúss Grindavíkur. „Það
er búið að gera að mörgum fisk-
um hérna á þessum tíma,“ segir
Þórarinn. Hann segist hafa um-
turnað húsunum og stækkað. „Jú,
ég vildi gera þetta almennilega.
Það verður að vera almennilegt
eða hreint ekki neitt gert,“ segir
Þórarinn Ólafsson í Þrótti ehf.
Bláa lónið fær sína viðurkenn-
ingu fyrir snyrtilegt og spenn-
andi umhverfi á nýjum stað í Illa-
hrauni. „Okkur þykir vænt um
þessa viðurkenningu og erum
hreykin af henni. Hún hvetur
okkur áfram og til að gera ennþá
betur,“ sagði Anna Gunnhildur
Sverrisdóttir, rekstrarstjóri bað-
staðarins, þegar hennar við-
bragða er leitað.
Anna segir að Bláa lónið leggi
áherslu á umhverfismál í starfi
sínu. Það hafi fengið umhverf-
isviðurkenningu Ferðamálaráðs
fyrir þremur árum og vonist til
að fá Bláfánann svokallaða á
næstunni. Ekki sé síður mik-
ilvægt að fá slíka viðurkenningu
frá sveitarfélagi sem fyrirtækið
þurfi að vinna mikið með.
Frá því að Bláa lónið var flutt
á nýjan stað í Illahrauni hefur
komið yfir ein milljón gesta í lón-
ið. Anna segir að búast megi við
ummerkjum eftir slíkan fjölda en
reynt sé að vernda umhverfið
eins og kostur sé, meðal annars
með því að leggja og merkja
göngustíga. Áhugi sé að halda
áfram á þeirri braut. Þá þurfi að
hugsa um að hreinsa upp það
sem gestirnir skilji eftir. Ruslið
sé flokkað en með tilkomu nýrrar
flokkunar- og sorpeyðing-
arstöðvar á Suðurnesjum muni
aukast möguleikarnir á frekari
flokkun.
„Umhverfið skiptir okkur
miklu máli, starfsemin byggist á
því og endurnýtingu þeirrar nátt-
úruauðlindar sem heita vatnið
er,“ segir Anna Gunnhildur
Sverrisdóttir rekstrarstjóri.
Bláa lónið
og Þróttur
fá viður-
kenningu
Grindavík
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Fulltrúar Bláa lónsins og Þróttar ehf. tóku við umhverfisviðurkenningu Grindavíkurbæjar í gær. F.v. fulltrúar
Þróttar, Sævar Þórarinsson, Ragnhildur Guðjónsdóttir, Guðveig Sigurðardóttir og Þórarinn Ólafsson. Þá Jóna
Rut Jónsdóttir, formaður umhverfisnefndar, og fulltrúar Bláa lónsins, Hartmann Kárason, Anna G. Sverrisdóttir,
Grímur Sæmundssen, og síðastur í röðinni er Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri.
PÁLL Árnason, formaður
Tómstundabandalags Reykja-
nesbæjar, er mikill áhuga-
maður um skák og flugmódel
og hefur lengi starfað að fé-
lagsmálum skákmanna.
Páll lét af starfi formanns
Skákfélags Reykjanesbæjar
fyrir skömmu en hafði verið
aðal forystumaður félagsins í
fjögur ár. Hann hafði áður
starfað að félagsmálum skák-
arinnar í Keflavík og Vest-
mannaeyjum þaðan sem hann
er ættaður. „Ég hef lítið teflt
undanfarin ár vegna fé-
lagsstarfanna en er að auka
það eftir að ég lét af for-
mennsku. Ég hætti vegna
þess að formennskan í Tóm-
stundabandalaginu var farin
að segja meira til sín,“ segir
Páll. Hann segir að mikil
uppsveifla sé í skákinni í
Reykjanesbæ. Þannig sé fé-
lagið með tvö lið í Íslands-
móti, eina félagið utan höf-
uðborgarsvæðisins. Lið
félagsins teflir í annarri
deild.
Páll segist einnig hafa mik-
inn áhuga á að smíða og
fljúga flugmódelum. Hann
byrjaði aftur að sinna því
áhugamáli í vor eftir tíu ára
hlé. Tveir synir hans eru
einnig mjög áhugasamir um
þetta og er Páll ánægður með
það, segir að þetta sé mjög
heilbrigt tómstundagaman.
Áhuga-
maður um
skák og
flugmódel